RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Norrænt varnarsamstarf, ágreiningur um uppbyggingarsjóð EES-ríkja og Hastings í Gufunesi 29.04.2024 20:00
Er þörf á norrænu varnarsamstarfi þegar þau eru öll í NATO? Jónas Allansson, skrifstofustjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir að Atlantshafsbandalagsaðild allra styrki bæði bandalagið og Norðurlöndin sjálf með þéttri samvinnu og samruna á sviði hermála, líkt og þegar sé á félagslega og pólitíska sviðinu. Samingur um Uppbyggingarsjóð EES ríkjanna, Íslands, Noregs og Lichtenstein...
Það sem Guðni gerði og forsetakosningarnar framundan 26.04.2024 20:00
Hulda Þórisdóttir, stjórnmálasálfræðingur, fer yfir stöðuna í komandi forsetakosningum sem metfjöldi frambjóðenda ætlar að taka þátt í. Fyrst verður hins vegar skyggnst á bakvið tjöldin og skoðað hvernig það er að vera forseti Íslands og hvað það er sem hann gerir.
Varnarmál, útendingalög og umdeildar styttur á Taívan 24.04.2024 20:00
24. apríl 2024 Ísland er herlaust en ekki hlutlaust segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. Hún vill leggja aukna áherslu á öryggis- og varnarmál landsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Dómsmálaráðuneytið svaraði fyrir helgi umsögnum sem hafa borist í tengslum við nýtt og umdeilt frumvarp til útlendingalaga. Þar segir ráðuneytið meðal annars að kærunefnd útlendingam...
Manndráp og forsetakosningar 23.04.2024 20:00
Hverjir eiga möguleika á því að verða næsti forseti Íslands? Hver skoðanakönnunin rekur aðra þessa dagana, síðast í dag kom könnun sem sýnir mikið forskot tveggja frambjóðenda. Eiga fleiri möguleika? Hvað með þann þriðja sem er á fleygiferð og þann fjórða - gamalkunnugt ólíkindatól. Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórmálafræði spáði í nýjustu skoðanakönnunina með Speglinum. Síðustu tólf mánuði haf...
Einföldun á örorkulífeyriskerfinu, kviðdómur í máli gegn Donald Trump og kjör eldri borgara 22.04.2024 20:00
Í fjármálaáætlun til næstu ára er 18 milljörðum króna ráðstafað í breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem taka eiga gildi í september 2025, verði frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, samþykkt. Ætlunin er að einfalda kerfið og tryggja samfellu , hvetja til atvinnuþátttöku og draga úr skerðingum og hækka frítekjumörk. Vigdís Jónsdóttir forstjóri VIRK segir margt ti...
Ofgreining og ofnotkun ADHD, sameiningar á Suðurnesjum og Taylor Swift 19.04.2024 20:00
ADHD er bæði ofgreint og ofmeðhöndlað hér á landi segir yfirlæknir ADHD-teymis Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Landlæknir segir að á hverjum tíma séu nokkur mál vegna ávísana of stórra skammta ADHD-lyfja til meðferðar hjá embættinu og að misbrestur hafi verið á að næg eftirfylgni sé með slíkum lyfjameðferðum. Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar hafa í vikunni átt samráðsfundi með...
Manndrápsmál í Landsrétti, hátækni-sorpbrennsla á Íslandi og innri markaður ESB og EES 18.04.2024 20:00
18. apríl 2024 Landsréttur skoðar hvort formgalli í máli hjúkrunarfræðings sem var sýknaður af manndrápsákæru eigi að leiða til þess að sýknudómurinn verði ómerktur og málinu vísað aftur til héraðs. Ákæruvaldið telur sig geta krafist þess að hjúkrunarfræðingurinn verði til vara dæmdur fyrir manndráp af gáleysi, en verjandi hennar segir ekki hægt að skipta um hest í miðri á. Freyr Gígja Gunnarsson...
Vantrauststillaga, ólga í Georgíu og hlutverk og starfssvið forseta 17.04.2024 20:00
17. apríl 2024 Vantrauststillaga í Alþingi. Harður tónn var í ræðu Ingu Sæland formanns Flokks fólksins við þegar hún flutti tillögum um vantraust, þingrof og nýjar kosningar. Forsætisráðherra sagði tillöguna ýta undir glundroða. Þúsundir mótmælenda hafa safnast saman dag eftir dag í höfuðborg Georgíu til að mótmæla lögum sem óttast er að verði beitt til að þagga niður í gagnrýni sjálfstæðra fjölm...
Dómur MDE, fjármálaáætlun - aðhald eða bólhaldsbrellur, Guðjón Friðriksson um Børsen 16.04.2024 20:16
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu um að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt krefst viðbragða en mögulega án þess að breyta stjórnarskrá segir fyrrverandi dómari við dómstólínn. Aðhald eða bókhaldsbrellur - sýn stjórnmálamanna á nýbirta fjármálaáætlun veltur á því hvaðan er horft. Børsen, hin fjögurhundruðára gamla kauphöll Dana brann í dag, næstum til grunna. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir...
Kaup Landsbankans á TM, stríðið í Súdan og verðandi mæður í ofþyngd 15.04.2024 20:00
15. apríl 2024 Bankasýslan skilaði á föstudag skýrslu um kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Bankasýslan finnur kaupunum og aðdraganda þeirra flest til foráttu og undrast að valin hafi verið eina leiðin sem hvorki kallaði á aðkomu né samþykki hluthafa. Kaupin hafa dregið dilk á eftir sér og sýnist sitt hverjum, eins og Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir í umfjöllun sinni um málið. Við heyrum í...
Nýr fjármálaráðherra segir ekki niðurskurð framundan og allt um mál OJ Simpson 12.04.2024 20:00
Í þættinum verður rætt við formann BSRB um kjarasamninga, þar sem meginverkefnið er að hemja verðbólgu og vexti. Einnig þurfi að leiðrétta það sem rangt var gefið í upphafi. Líka verður fjallað um OJ Simpson, sem lést í gær. Fyrst er það þó nýr fjármálaráðherra sem boðar ekki niðurskurð í fjármálaáætlun, ætlar að halda áfram að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka og segir sitthvað um kaup Landsbank...
Erlendir sérfræðingar leggja mat á krufningarskýrslu, Evrópulöggjöf um hælisleitendur og útgefendur um bókmenntastefnu. 11.04.2024 20:00
11. apríl 2024 Tveir sænskir sérfræðingar hafa verið fengnir til að vinna álit á krufningarskýrslu sem unnin var hér á landi vegna andláts konu á Selfossi fyrir ári síðan. Samstarf og stuðningur Evrópusambandsins við ríki þaðan sem flóttafólk og innflytjendur koma til Evrópu verður aukinn, til að draga úr þeim fjölda fólks sem sækist eftir hæli og dvalarleyfi í aðildaríkjum ESB. Félag íslenskra bó...
Hvað er pólitískur stöðugleiki og er jafnlaunavottun gagnslaus? 10.04.2024 20:00
Nýr forsætisráðherra flutti Alþingi yfirlýsingu ríkisstjórnar sinnar þar sem honum var tíðrætt um pólitískan og efnahagslegan stöðugleika. Stjórnarandstaðan gaf lítið fyrir nýtt andlit ríkisstjórnarinnar, kallaði hana hræðslubandalag og raunveruleikasjónvarp og fannst andrúmsloftið minna á búsáhaldarbyltinguna. Jafnlaunavottun er alls ekki gagnslaus í baráttu við launamisrétti en nýlegt dæmi af La...
Horft um öxl en líka rýnt í stöðuna eftir ráðherraskipti dagsins 09.04.2024 20:00
Það verður rýnt í ríkisstjórnarsamstarfið og hvað ráðherraskipti dagsins þýða með tveimur stjórnmálafræðingum, þeim Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Það verður líka horft um öxl og hvernig stjórnarsamstarfið hefur þróast og rætt við fréttamann RÚV á Bessastöðum þar sem haldnir voru tveir ríkisráðsfundir.
Starfsstjórn, forsetaembættið og stjórnskipan, varnir Norðmanna og skynörvunarvandi 08.04.2024 20:00
8. apríl 2024 Hvað getur starfsstjórn gert? Forsætisráðherra hefur beðist lausnar fyrir ráðuneyti sitt til að bjóða sig fram til forseta, hvaða kostir blasa þá við og hver er staða forseteaembættisins. Norðmenn ætla að stækka her sinn og verja miklu fé til varnarmála á næstunni til að geta brugðist við mögulegri sókn Rússa. Skynúrlausnarvandi er tiltölulega algengur, bæði hjá fullorðnum og börnum...
Katrín Jakobsdóttir segir það ekki áfellisdóm ef hún verður ekki kosin forseti 05.04.2024 20:00
Fjallað verður um vaxandi þrýsting á Ísraelsstjórn og hvernig árás á hjálparstarfsmenn virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá jafnvel hörðustu stuðningsmönnum Ísraels. En við byrjum á máli málanna hér heima, forsætisráðherra er hættur því hún ætlar að bjóða sig fram í forsetakosningunum í sumar. Spegillinn ræddi við Katrín Jakobsdóttur í Hörpu í dag en fór líka aðeins yfir stöðuna í stjór...
Forsetaframboð,, forsetaembættið og framtíð pósthúsa 04.04.2024 20:00
4. apríl 2024 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfesti í gær að hún hefði íhugað forsetaframboð af mikilli alvöru. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, aflýsti för sinni á 75 ára afmælisfund Atlantshafsbandalagsins í Brussel og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins frestaði boðuðum fundarhöldum á Austurlandi. Heimildir fréttastofu herma að þeir tveir eigi nú í...
Hvað gerist þegar forsætisráðherra segist vera íhuga forsetaframboð? 03.04.2024 20:00
Forsætisráðherra íhugar að láta af embætti til að bjóða sig fram í komandi forsetakosningum. Stjórnarandstaðan telur hana þannig viðurkenna að stjórnarsamstarfið gangi ekki lengur upp - hún væri ekki að íhuga slíkt framboð ef veðrið væri gott á stjórnarheimilinu. Ólafur Þ. Harðarson rýnir í stöðuna í Speglinum. Trausti Valsson svarar líka þeirri spurningu af hverju það sé best að ný varaflugvöllur...
Fer Katrín fram eða ekki? Spennan í mið-austurlöndum eykst enn, stórhuga hugmyndir um Hóla 02.04.2024 20:00
Fer hún fram eða ekki? Hrekkur hún eða stekkur? Hvenær segir hún af eða á? Stjórnmálastéttin og ekki síður þeir sem stefna á forsetaframboð bíða þess í ofvæni að forsætisráðherra tilkynni hvort hún ætlar sjálf fram. Spáð var í spilin með Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur. Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda, segir spennuna á svæðinu hafa aukist til muna eftir árás Ísrael...
Hæstaréttardómur vegna ríkislögreglustjóra, Forsetakosningar, það sem ekki má á Ítalíu 27.03.2024 20:00
Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að ríkið yrði að standa við samkomulag sem fyrrverandi ríkislögreglustjóri gerði við undirmenn sína. Þó er alveg skýrt að mati Hæstaréttar að ríkislögreglustjóinn fyrrverandi mátti ekki gera samkomulagið. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Sjöundi forseti Íslands verður kosinn 1. júní. Forsetakosningar eru sannarlega persónukjör og embættið hefur í gegnu...
Kapphlaupið á Besstastaði, forsetaembættið og offita 26.03.2024 20:00
Orðrómurinn um forsetaframboð forsætisráðherra lifir áfram góðu lífi, rætt verður við Ölmu Möller um offitu og rýnt verður í forsetaembættið með Ragnheiði Kristjánsdóttur, prófessor í sagnfræði.
Hryðjuverk afhjúpa vanhæfni rússneskra stjórnvalda, ESB rannsakar tæknirisa og offita 25.03.2024 20:27
Enn einu sinni virðast vanhæfni og veikleikar einkenna rússneska stjórnkerfið, segir Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra Íslands í Rússlandi um hryðjuverkið í Moskvu. Ólíklegt er þó að þessi vanhæfni bíti á Vladímír Pútín forseta landsins. Evrópusambandið boðar ítarlega rannsókn á starfsemi nokkurra stærstu netfyrirtækja heimsins. Reynist þau brotleg getur sektin numið tíu prósentum af árlegri...
Eldgos á Reykjanesskaga, þingkosningar á Indlandi, spurningar eftir sigurinn á Ísrael 22.03.2024 20:38
Talað er um sírennsli í tengslum við nýjasta eldgosið á Reykjanesskaga, norður af Grindavík. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðing á Veðurstofu Íslands. Umfangsmestu þingkosningar sögunnar standa fyrir dyrum á Indlandi. Kosið verður í 44 daga í 7 áföngum. 2.200 flokkar bjóða fram. Ásgeir Tómasson sagði frá. Sigur Íslands á Ísrael í leik um laust sæti á Evrópumótinu í kn...
Ópíóíðavandinn, rammaáætlun og leiðtogar ESB um stríðsátök 21.03.2024 20:00
Í þættinum verður fjallað um rammaáætlun og af hverju framkvæmdastjóri Samorku telur hana vera barn síns tíma. Spegillinn verður líka á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel með Birni Malmquist og heldur áfram umfjöllun sinni um ópíóíðavandann.
Ópíóíðafaraldur og framtíð rammaáætlunar 20.03.2024 20:00
Heilbrigðisráðherra segir góðar ábendingar í nýrri úttekt ríkisendurskoðunar um ópíóíðavandann sem beri að taka alvarlega. Stjórnvöld verði að gera betur í þessum málaflokki í heild og ráðuneytið gangist við því að vera í forystuhlutverki í baráttunni við fíknivandann. Pétur Magnússon ræðir við Willum Þór Þórsson um úttektina og hvað stjórnvöld eru að gera. Vinna er hafin við fimmta áfanga - eða f...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.