RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ríkisbanki kaupir tryggingafélag og hungur á Gaza 19.03.2024

Má banki í ríkiseigu kaupa tryggingafélag? Ætti banki í ríkiseigu að kaupa tryggingarfélag? Þessi umræða hefur vaknað eftir að Landsbankinn tilkynnti að hann hefði gert Kviku skuldbindandi tilboð í tryggingafélagið TM. Bankasýsla ríkisins hefur gagnrýnt kaupin harðlega og beðið um skýringar og stjórnarandstaðan hefur krafið ríkisstjórnina svara. Hungur sverfur að íbúum á Gaza, tugir barna hafa dái...

Réttarhöld v. skotárásar, Grindavík, kosningar í Rússlandi 18.03.2024

18. mars 2024 Réttarhöld vegna skotárásar í Úlfarsárdal í nóvember á síðasta ári hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Árásin vakti bæði athygli og óhug en hana virðist mega rekja til hefndar fyrir rán. Sá eini sem særðist í árásinni gaf þó lítið upp um mögulegar ástæður þess að hann var skotinn og sagðist hvorki vita neitt né muna. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Neyðarstigi almannavarna var l...

Mansalsmál á Íslandi, húsnæðismál á Akureyri, forsetakosningar í Rússlandi 15.03.2024

Áttatíu til níutíu mansalsmál hafa komið inn á borð Bjarkarhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, segir Jenný Kristín Valbergsdóttir, teymisstjóri. Ragnhildur Hrefna Thorlacius ræddi við hana. Allt of fáar íbúðir hafa verið byggðar á Akureyri undanfarin ár og eftirspurnin á aðeins eftir að aukast, samkvæmt spá húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Halla Björn Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar,...

Kjarasamningar, verkbann og verkföll, skjálftavirkni færist vestar og stjórnarmyndun í Hollandi 14.03.2024

Verkalýðsfélög virðast fljótari en áður að grípa í verkfallsvopnið og atvinnurekendur svara því með samhverfunni verkbanni segir vinnumarkaðsfræðingur. Jarðskjálftavirkni við Grindavík hefur færst dálítið til vesturs. Hvað telur Halldór Geirsson jarðeðlisfræðingur að það þýði. Frelsisflokkur þjóðernisöfgamannsins Geerts Wilders vann stórsigur, ríflega tvöfaldaði þingmannafjölda sinn í kosningum í...

Mansal, breytingar á stjórnarskrá og mannrán í Nígeríu 13.03.2024

12. mars 2024 Sex manns eru í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu á meintum brotum Quangs Lé, öðru nafni Davíðs Viðarssonar, sem grunaður er um peningaþvætti, skipulagða glæpastarfsemi og vinnumansal. Búið var að rannsaka málið í langan tíma í samvinnu fjölmargra aðila, áður en lögreglan lét til skarar skríða á 25 stöðum um land allt. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn hjá Ríkislög...

Harður hnútur í deilu VR og SA, sögulegur dómur í hryðjuverkamáli og afsögn á Haítí 12.03.2024

Stjórn Samtaka atvinnulífsins samþykkti í dag að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu um verkbann á tugi þúsunda skrifstofumanna í VR. Ástæðan er yfirstandandi atkvæðagreiðsla um verkfall á annað hundrað VR-félaga í farþega- og hleðsluþjónustu á Keflavíkurflugvelli, segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA. Ofsafengið og óvænt viðbragð segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR. Tveir vor...

Hver á eyjarnar við landið? Kílómetragjaldið vekur athygli, erfiðar stjórnarmyndunarviðræður framundan í Portúgal 11.03.2024

Mörgum brá þegar ríkið gerði tilkall til Vestmannaeyja, Hvítserks og flestallra eyjanna á Breiðafirði á grundvelli þjóðlendulaga, ekki síst þeim landeigendum sem töldu sig eiga eyjarnar. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt til að eyjar og sker verði undanskildar meðferð Óbyggðanefndar en lögfræðingar segja eitt þurfa yfir alla að ganga. Sigurvegari þingkosninganna í Portúgal í gær Mið-hæg...

72 flóttamenn til Íslands, Ítalskar konur krefjast mannréttinda, grænlenskar konur og lykkjan 08.03.2024

Yfir 70 palestínskir flóttamenn frá Gaza lentu á Keflavíkurflugvelli upp úr hádegi í dag. Reykjavíkurborg tekur á móti stórum hluta þeirra. Fólkinu býðst að koma í skóla- og fjölskyldumiðstöð sem koma á - á laggirnar í Reykjavík á næstu vikum. Þannig á að gefa fólki færi á að kynnast í lífinu í landinu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Sögu Stephensen og Dagbjörtu Ásbjörnsdóttur, verkefnisstjóra fj...

Kjarasamningur, Gaza og hergagnaframleiðsla í Evrópu 07.03.2024

7. mars 2024 Fulltrúar Eflingar, Samiðnar og Starfsgreinasambandsins undirrituðu í dag kjarasamning við Samtök atvinnulífsins, fyrir hönd um það bil 70.000 félaga í hreyfingunum þremur. Samningurinn gildir í fjögur ár og nefnist Stöðugleika- og velferðarsamningur. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir þetta tímamótasamning og er sannfærður um að hann verði samþykktur af yfi...

Vinnumansal og starf Solaris og sjálfboðaliða í Egyptalandi og Gaza 06.03.2024

6. mars 2024 Það er ekki alltaf hagur þolenda vinnumansals að greina frá því, bendir Halldór Oddsson lögfræðingur ASÍ á. Atvinnu- og dvalarleyfi fólksins sé oft bundið kvalaranum og það hefur eytt aleigunni í leiti að betra lífi. Halldór stingur upp á að þolendur sem ljóstri upp um mansal fái aukna vernd, atvinnu- og dvalarleyfi hér á landi. Ragnhildur Thorlacius ræðir við hann. Sjálfboðaliðar á v...

Móttaka flóttafólks frá Gaza, nýr bændahöfðingi, óspennandi ofur-þriðjudagur 05.03.2024

Flóttafólkið sem væntanlegt er hingað frá Gaza á næstu dögum og vikum hefur búið við meiri og langvinnari hörmungar, ógn og skelfingu en nokkur hópur annar sem hér hefur fengið skjól. Þetta segir Nína Helgadóttir teymisstjóri hjá Rauða krossinum. Trausti Hjálmarsson var kosinn formaður Bændasamtaka Íslands um síðustu helgi með tæplega 66% atkvæða. Trausti Hjálmarsson er sauðfjárbóndi í Austurhlíð...

Umræða um útlendingalög og uppþot á Alþing, vargöld á Haíti og áhrif hormonalyfja foreldra á börn 04.03.2024

Hormónalyf mæðra getur haft alvarleg áhrif á börn ef þau komast í snertngu við lyf sem þær bera á sig, innkirtlasérfræðingur. Glæpagengi herja á Haítí, og engin lausn í augsýn.. Dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á útlendingalögum síðdegis, en gera þurfti hlé á umræðum þegar mótmælendur gerðu hróp að ráðherra og einn þeirra klifraði yfir handrið á þingpöllum. Sá var handtekinn og...

Noregskonungur veikur í Malasíu, málefni kvótaflóttamanna, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis 01.03.2024

Norðmenn óttast að Haraldur konungur sé alvarlega veikur þar sem hann liggur á sjúkrahúsi í Malasíu. Hann er þar í fríi frá störfum. Búið er að senda sjúkraþotu á vegum hersins og lið lækna á staðinn en alls er óvíst hvenær konungur verður fluttur heim. Gísli Kristjánsson sagði frá. Gerður Gestsdóttir, ormaður flóttamannanefndar, vonar að hægt verði að að taka við kvótaflóttamönnum í ár en það hef...

Kjaramál, orkuöryggi og bágt ástand á Kúbu 29.02.2024

Útlit var fyrir að kjarasamningar næðust fljótlega milli breiðfylkingar Alþýðusambandsfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Snurða hljóp svo á þráðinn og formaður Eflingar sagði ekkert traust ríkja gagnvart SA, launaliðurinn hefði verið frágenginn en svo tekinn upp í viðræðum við önnur félög. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent og sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum telur að erfiðar viðræður endurspegli...

Raforkuöryggi og virkjanir, rússneskt fé í aðstoð við Úkraínu og fólksfækkun í S-Kóreu 28.02.2024

28. febrúar 2024 Allnokkrar umsagnir bárust í Samráðsgátt stjórnvalda um fyrirhugaðar breytingar á orkulögum, sem miðuðust að því að tryggja forgang heimila og minni raforkunotenda að rafmagni, ef til skömmtunar kæmi, á kostnað stórnotenda. Sumar umsagnir voru jákvæðar, aðrar neikvæðar, en eitt voru nánast allir umsagnaraðilar þó sammála um: Til að tryggja raforkuöryggi og nægt framboð þarf að vir...

Raforkumál á ís, viðbrögð ráðamanna við hugleiðingum Macron, var Binden of fljótur á sér? 27.02.2024

Drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum var kynnt fyrir ári. Markmið þess var að tryggja raforkuöryggi og framboð raforku, enda væri þetta grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. En nú hefur málið verið sett á ís. Emmanuel Macron Frakklandsforseti velti því upp í gær að það væri ekkert útilokað að senda hermenn inn í Úkraínu til að berjast gegn Rússum. Við heyrum af viðbrögðum annarra evr...

Samningar í augsýn en mikið veltur á þætti þess opinbera, þurrkar á Spáni og örorkulífeyriskerfið 26.02.2024

26. febrúar 2024 Kjarasamningar fyrir stóran hluta vinnumarkaðarins eru í augsýn, launaliðurinn er sagður í höfn og talað um að samið verði til fjögurra ára og tvisvar á þeim tíma verði hægt að segja upp eða endurskoða samninginn ef verðbólga fer fram úr ákveðnum viðmiðum, enn er óvíst hver verður þáttur þess opinbera sem skiptir æ meira máli. Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur telur jákvætt að ekki...

Varnargrðar við Svartsengi, ónóg þjónusta við heilabilaða, útrýmingarhætta hvítmygluosta 23.02.2024

Meðan beðið er eftir næsta eldgosi við Svartsengi, sem jarðeðlisfræðingar búast við að gæti jafnvel orðið í næstu viku, hamast menn við að styrkja varnir og koma í veg fyrir frekara tjón á innviðum. Ari Guðmundsson verkfræðingur fer fyrir þeirri vinnu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Ara. Hvorki heilabiluðum né aðstandendum þeirra býðst viðunandi þjónusta á Norðurlandi. Þetta segja talsmenn Sólbló...

Þingmenn um útlendingamál og mengun, mold og vatn 22.02.2024

22. febrúar 2024 Samkomulag ríkisstjórnarinnar um heildarsýn í útlendingamálum felur í sér aðkomu ekki færri en sjö ráðuneyta. Í því koma fram háleit markmið um að leggja áherslu á mannúð og virðingu og vinna gegn skautun og stéttskiptingu. Rætt við Ingibjörgu Isaksen (B) og Sigmar Guðmundsson (C) um útlendingmál og frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Mikilvægt er að rannsak...

Málefni útlendinga, neðansjávargos við Reykjanes, herbátar til Úkraínu 21.02.2024

21. febrúar 2024 Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands fagnar mörgu í heildarsýn í málefnum útlendinga og hælisleitenda en setur spurningarmerki til dæmis við breytingar á viðmiðum um fjölskyldusameiningu, styttingu dvalarleyfa og áform um lokuð búsetuúrræði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Mikil eldsumbrot hafa verið á Reykjanesskaga síðustu misseri og ár...

Útlendingamál, Ungverjar samþykkja inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið og orkuskerðingar 20.02.2024

20. febrúar 2024 Útlendinga- og hælisleitendamál hafa verið uppspretta núnings og jafnvel beins ágreinings innan ríkisstjórnarinnar um langa hríð. Á fundi hennar í morgun sammæltist stjórnin um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda, takaá utan um þau mál í heild. Ungverska þingið greiðir atkvæði á mánudaginn kemur um hvort það fellst fyrir sitt leyti á að...

Grindavík, smitsjúkdómar og bólusetningar, Ursula von der Leyen 19.02.2024

19. febrúar 2024 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tilkynnti í dag að Grindvíkingar mættu frá og með morgundeginum dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. En þó að aðgangur hafi verið rýmkaður er varla hægt að segja að lögreglustjórinn telji fýsilegt að dvelja í bænum; segir reyndar í tilkynningu að aðstæður sé ekki boðlegar fyrir búsetu í húsum, hann býst ekki við að margir kjósi að dvelja þar...

Uppkaup fasteigna í Grindavík, Brjósta- og leghálsskimun, Alexei Navalní 16.02.2024

Töluvert hefur dregið úr þátttöku kvenna í brjósta- og leghálsskimun síðustu ár. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ölmu Möller landlækni og Ágúst Inga Ágústsson, yfirlækni hjá Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana. Á fjórða hundrað umsagnir bárust um drög að stjórnarfrumvarpi um uppkaup ríkisins á íbúðarhúsnæði í Grindavík, vegna hamfaranna sem dunið hafa yfir bæinn og enn standa yfir í næsta nágr...

Ísland og NATO, eldgosataktur og kreppa í Bretlandi 15.02.2024

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir það slæm - og röng skilaboð, sem Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna sendi um helgina, þegar hann sagði að undir sinni stjórn myndu Bandaríkin ekki koma þeim NATO-ríkjum til varnar, sem ekki hefðu varið nægu fé til varnarmála. Þessi umræða var í bakgrunni tveggja daga fundar varnarmálaráðherra NATO sem Bjarni sat fyrir hönd Íslands. Björn Malm...

Uppkaup húsa í Grindavík, mannshvarf í Dyflinni og kosningar í Indónesíu 14.02.2024

Þórkatla skal það heita, eignaumsýslufélagið sem Grindvíkingum býðst að selja íbúðarhúsnæði sitt, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Drög að lögum um þetta voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Yfir 300 umsagnir bárust um drögin, nær undantekningarlaust frá Grindvíkingum, sem hafa ýmislegt við þau að athuga. Það á sérstaklega við um fimm atriði og athugasemdir við þau liggja sem rauður þráður í geg...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.