RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Reynt að semja um vopnahlé á Gaza, hryðjuverkaógn, ævintýralegt fiskerí 13.02.2024 20:00
Sendinefndir frá Egyptalandi, Katar, Bandaríkjunum og Ísrael settust í dag að samningaborðinu í Kaíró í Egyptalandi til að reyna enn einu sinni að semja um vopnahlé á Gaza. Meðal þeirra sem voru mættir til að reyna að miðla málum voru yfirmenn bandarísku og ísraelsku leyniþjónustunna CIA og Mossad. Nýlega birti greiningardeild ríkislögreglustjóra árlega skýrslu sína um hryðjuverkaógn á Íslandi. Hú...
Andrúmsloft í Ísrael, hungursneyð vofir yfir Eþíópíu og orkan misdýr í landinu 12.02.2024 20:10
12. febrúar 2024 Stríð hefur geisað í fjóra mánuði fyrir botni Miðjarðarhafs. Tugþúsundir hafa fallið á Gaz, fjöldi gísla er í haldi Hamas og árásum Ísraelshers á Gaza linnir ekki. Íslendingur sem búið hefur í Tel Aviv í fimma ár segir andrúmsloftið í Ísrael þungbært. Hungursneyð vofir yfir íbúum Tigray-héraðs í Eþíópíu. Forsætisráðherra landsins segir engan vera að deyja úr hungri. Allt að þrefal...
Heitavatnslögnin frá Svartsengi, heitt vatn er ekki endalaus auðlind, samræði við barn undir 15 ára. 09.02.2024 20:00
Unnið hefur verið að því hörðum höndum að koma á heitu vatni frá Svartsengi til notenda í byggðakjörnum á Suðurnesjum. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Guðlaug H. Sigurjónsson, sviðsstjóra umhverfissviðs í Reykjanesbæ. Ástandið á Reykjanesskaga er fólki áminning um að vissast er að fara sparlega með heita vatnið, ekki síst þegar frost er á bilinu 10-20 stig. Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku, segi...
Eldgos á Reykjanesskaga, heitavatnslaust á Suðurnesjum 08.02.2024 20:00
8. febrúar 2024 Eldgos hófst skammt frá Svartsengi klukkan sex að morgni 8. febrúar. Sex tímum síðar hafði hraun runnið yfir heitavatnslögnina, Njarðvíkuræðina, frá Svartsengi til þéttbýlisins á Suðurnesjum og eyðilagt hana, með þeim afleiðingum að um 30.000 manns eru eða verða fljótlega án húshitunar og heits vatns og vegna þessa var lýst yfir neyðarstigi á öllum Suðurnesjum. Gunnhildur Kjerúlf B...
Stríð í fjóra mánuði, loftslagsráð og ESB bregst við mótmælum bænda 07.02.2024 20:00
7. febrúar 2024 Stríð Ísraels og Hamas hefur geisað í fjóra mánuði. Fjölmargir ísraelskir gíslar eru enn í haldi Hamas og tugþúsundir Palestínumanna hafa fallið á Gaza. Umhverfisverndarsamtök segja hvorki gætt að sjálfstæði né sérfræðiþekkingu loftslagsráðs í boðaðri reglugerð um ráðið. Víðtæk og fjölmenn mótmæli evrópskra bænda undanfarna daga og vikur virðast hafa náð eyrum leiðtoga og ráðamanna...
Verðmætum bjargað úr Einhamri, djúp og löng sprunga undir gervigrasi 06.02.2024 20:00
Forsvarsmenn fyrirtækja fengu að fara inn í Grindavík í dag að bjarga verðmætum. Meðal þeirra var Stefán Kristjánsson eigandi fiskvinnslunnar Einhamars, sem er reyndar staðráðinn í að halda áfram sínum rekstri í bænum um leið og færi gefst. Arnar Björnsson fréttamaður hitti hann í aðgerðinum í dag, þegar var verið að bjarga 150 tonnum af beitu. Tækin ætlar hann ekki að fara með úr bænum. Bragi Val...
Óðaverðbólga í Argentínu, endurnýting á textíl og forsetakosningar í Finnlandi 05.02.2024 20:00
5. febrúar 2024 Því er spáð að verðbólgan í Argentínu fari yfir 250 prósent í ár. Lífskjör landsmanna versna stöðugt. Meira en fjórir af hverjum tíu eru undir fátæktarmörkum. Verslun með notuð föt hefur aukist hér á landi undanfarin ár og verslunum með notaðan fatnað fjölgað mikið. Þetta er breyting í anda hringrásarhagkerfisins segir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Hins vegar er engu minna hen...
Jarðhræringar og ferðaþjónusta, sameining háskóla og óveður í Noregi 02.02.2024 20:00
2. febrúar 2024 Jarðskjálftahrinur og tíð eldsumbrot hafa einkennt síðustu fjögur ár á Reykjanesskaganum. Halda mætti að þetta hefði veruleg áhrif á þá kviku og mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er. Engu að síður stefnir í metár í farþegafjölda segir Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri, sem reiknar með 2.4 milljónum erlendra gesta til landsins. Formlegar viðræður um sameiningu Háskólans á B...
Palestína, stuðningur ESB við Úkraínu og yfirmaður Úkraínuhers 01.02.2024 20:46
1. febrúar 2024 Sögulegar og pólitískar ástæður fyrir því að palestínska flóttamannahjálpin er að mestu fjármögnuð af nokkrum öflugum Vesturlöndum. Það gildir líka um ástæður þess að hin vellauðugu olíuríki við Persaflóann skuli ekki einfaldlega taka við keflinu undir þeim aðstæðum sem nú eru uppi, og líka því, að Egyptar vilja ekki opna landamærin að Gaza og taka á móti þeim milljónum Palestínuma...
Gaza, Palestína og Persaflóaríki, raforka á Vestfjörðum 31.01.2024 20:00
31. janúar 2024 Meira en helmingur bygginga á Gaza hafa skemmst eða verið jafnaðar við jörðu frá því að stríðið milli Ísraelsmanna og Hamas braust út í haust. Nákvæmur samanburður á gervihnattarmyndum af landshlutanum 12. október til 29. janúar leiðir þetta í ljós, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá á fréttavef sínum. Ásgeir Tómasson tók saman. Algjört þrot blasir við UNRWA, flóttamann...
Íslenskur hjúkrunarfræðingur á Gaza, Imran Khan dæmdur í fangelsi á ný 30.01.2024 20:00
Fjölmargir þeirra sem leita á sjúkrahús í Rafah missa útlim, að sögn Elínar Oddsdóttur skurðhjúkrunarfræðings sem er nýkomin frá Gaza. Hún hefur starfað þar á vegum Alþjóðaráðs Rauða krossins. Alvarleg brunasár eru algeng. Allir sjúkrahúsgangar eru fullir af fólki sem hreinlega býr þar því það hefur á engan stað að fara, segir hún. Rætt er við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benedi...
Gaza, Miðausturlönd og héraðslækningar 29.01.2024 20:00
29. janúar 2024 Daginn eftir að Alþjóðadómstóllinn í Haag ákvað að taka til efnislegrar meðferðar kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríki fyrir brot á alþjóðalögum um þjóðarmorð sökuðu Ísraelsmenn tólf af um það bil 30.000 starfsmönnum Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna við Palestínu um aðild að hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október síðastliðinn. Í kjölfarið ákváðu nokkur ríki, þar á meðal Í...
Ísrael og Alþjóðadómstóllinn í Haag, næringarástand botnfiska við Ísland, menningarsamningur Akureyrar og ríkis 26.01.2024 20:00
Alþjóðadómstóllinn í Haag féllst í dag á að rannsaka hvort Ísraelsmenn hafi framið þjóðarmorð á Gaza. Hann krafðist þess ekki að hernaðaraðgerðum yrði hætt, heldur að Ísraelsmenn gripu til allra ráðstafana til að koma í veg fyrir þjóðarmorð og tryggja að mannúðaraðstoð berist íbúunum. Ásgeir Tómasson sagði frá. Hafrannsóknastofnun birti á dögunum skýrslu um niðurstöður viðamikillar langtímarannsók...
Skipulegga hvernig hluti Grindvíkinga getur sótt eigur, ósáttir franskir bændur 25.01.2024 20:00
Hættan af sprungum í Grindavík er viðvarandi og verður næstu misseri og ár, segir Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni. Hættan í bænum er heilt yfir talin minni, en samt mjög mikil hvað sprungur varðar. Víðir Reynisson sviðsstjóri almannavarna vonast til að geta kynnt á morgun skipulag um hvernig Grindvíkingar, sem búa vestan Víkurbrautar, geta komist að vitja eigna sinna. Hann se...
Þorskur, tjónaskrá í Úkraínu og sendiráð í Sierra Leone 24.01.2024 20:00
24. janúar 2024 Íslenski þorskstofninn er nokkuð sterkur og hefur verið um alllanga hríð, öfugt við flesta þorskstofna aðra í Norður-Atlantshafi. Nýleg rannsókn Hafrannsóknastofnunar leiddi í ljós að honum má skipta gróflega í minnst tvær stofneiningar. Í erlendri rannsókn sem birt var í fyrra kemur fram að þorskstofnar í Norður-Atlantshafi séu um 20 talsins og að af þeim séu aðeins tveir í nógu g...
Hvert flytja Grindvíkingar? Hver er Nikki Haley og á hún séns? Enn einn ráðherraskandallinn í Noregi 23.01.2024 20:00
Um eða yfir 1.200 heimili í Grindavík voru rýmd 10. nóvember og fyrir liggur að fólk fær ekki að flytja þangað aftur í bráð. En gangi áætlanir stjórnvalda eftir má gera ráð fyrir að fjöldi Grindvíkinga vilji koma sér fyrir í eigin húsnæði á næstunni, en hvar? Spegillinn ræddi við Grindvíkinginn Sverri Auðunsson. Hann er í bæjarstjórn Grindavíkur og er nýtekinn við formennsku í Sambandi sveitarféla...
Grindavík, staða og horfur 22.01.2024 19:58
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hétu því í dag að eyða þeirri óvissu sem Grindvíkingar hafa búið við síðustu vikur og mánuði og gera þeim kleift að tryggja sér húsnæði til framtíðar – skemmri, millilangrar eða varanlegrar framtíðar, eins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra orðaði það. Hvernig það verður gert liggur ekki endanlega fyrir, en stefnt er að því að leggja fram lagafrum...
Nauðsyn D-vítamíns í skammdeginu, Sjávarútvegsfrumvarpið og smábátasjómenn, tunglferðir í ár. 19.01.2024 20:00
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda segir að í nýju sjávarútvegsfrumvarpi matvælaráðherra sé rækilega skautað framhjá flestöllu sem eflt gæti útgerð smábáta. Þvert á móti blasi við að veiðiheimildir verði skertar - þvert á þær væntingar sem smábátaeigendur hafi gert sér. Þá líti út fyrir að þessi flokkur útgerðar þurfi í enn meiri mæli að sækja hluta sinna veiðiheimilda á up...
Grindavík, fjarskiptaöryggi við umheiminn, Hútar og ökklabönd á ofsækjendur kvenna 18.01.2024 20:00
Grindavík er hættulegur staður og verður það áfram næstu mánuði og líklega ár. Um þetta eru flestir jarðvísindamenn landsins sammála. Viðvarandi skjálftavirkni og hætta á fyrirvaralitlum eldgosum, gamlar sprungur sem hafa gliðnað og dýpkað og nýjar sprungur sem eru jafnvel ósýnilegar þar til einhverjum verður á að stíga fæti á örþunnt jarðlagið sem hylur þær gera bæinn í raun óbyggilegan eins og e...
Grindavík - byggilegur bær?, Vindorkugarður á Klausturseli, Traðkað á mannréttindum í landinu helga 17.01.2024 20:00
Grindavík er ekki staður sem fjölskyldur geta búið á eins og staðan er núna og líklegra að einhver ár líði frekar en mánuðir áður en það breytist, segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðvísindamaður í viðtali við Ævar Örn Jósepsson. Fyrirtækið Zephyr áætlar að byggja upp allt að 500 megavatta vindorkugarð í landi Klaustursels á Jökuldal í Múlaþingi. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræddi við Jónínu Brynjólfsdótt...
Ávarp forsætisráðherra á íbúafundi, nýr sigdalur í Grindavík, Náttúruhamfaratrygging, Trump vann í Iowa 16.01.2024 20:00
Öryggi íbúa hefur verið forgangsmál stjórnvalda, sagði Katrín Jakobsdóttir á íbúafundi Grindvíkinga í Laugardalshöll. 70 íbúðir verða keyptar í næstu viku. Húsnæðisstyrkir verða endurmetnir. Á lokametrunum er frumvarp sem breytir regluverki í skammtímaleigu, meðal annars í atvinnuhúsnæði. Brot úr ávarpi Katrínar er spilað í Speglinum. Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir frá sigdal sem mynd...
Gæti gosið reglulega, hiti og rafmagn í Grindavík, varnargarðar og hraun, andleg líðan 15.01.2024 20:00
Spegillinn er tileinkaður Grindavík. Halldór Geirsson dósent í jarðeðlisfræði segir að enn streymi kvika inn í Svartsengi og það geti gosið reglulega á þeim slóðum. Heitavatnslögnin til Grindavíkur skemmdist í gosinu, heitavatnslaust er í bænum, en rafmagn er komið á í vesturhluta bæjarins, í bili að minnsta kosti. Það á að skoða hvort hækka þurfi varnargarðana við bæinn, því hraun rann upp að þei...
Landris við Svartsengi, samningafundur, dauðaslys í umferðinni í Noregi, Ísrael sakað um þjóðarmorð. 12.01.2024 19:04
Áfram mælist landris við Svartsengi vegna kvikusöfnunar sem getur leitt til eldgoss. Veðurstofa metur aukna hættu á að sprungur opnist í Grindavík. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðing og fagstjóra aflögunnarmælinga. Fulltrúar Samninganefndar samtaka Atinnulífisins og fylkingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði hittust á samningafundi hjá ríkissáttasemjara í dag....
Bara tveir í fjölskipuðu loftslagsráði, löggjöf um gervigreind, kínversk stjórnvöld vara við sjálfstæðissinna 11.01.2024 20:00
Í lögum um loftslagsmál segir að starfrækja skuli loftslagsráð, sem hafi það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir og markmið Íslands sem tengjast loftslagsmálum. Loftslagsráð hefur verið giska duglegt að ráðleggja stjórnvöldum á þeim fimm árum sem það hefur starfað. En þótt formaður og varaformaður nýs loftslagsráðs hafi verið skipaðir í september síða...
Eldsumbrot á Reykjanesskaga, vargöld í Ekvador og þróunarsamvinna Íslands og Malaví 10.01.2024 20:00
Jarðeðlisfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvika hlaupi úr Svartsengi á næstu dögum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Kristínu Jónsdóttur deildarstjóra á Veðurstofunni oum stöðuna þar syðra, viðvarandi landris frá síðasta gosi, 18. desember, kvikuhólf, kvikugang og kvikuflæði, myndun sigdals og ris lands meðfram börmum hans, aðferðir við mælingar á kviku og mat á goslíkum og fleira. Neyðará...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.