RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Tvö ár frá árás Hamas og upphafsins að hörmungum Gaza 07.10.2025

Fyrri hluti þáttarins verður helgaður því að í dag eru tvö ár frá því að vígamenn Hamas frömdu grimmilega hryðjuverkaárás í Ísrael sem var upphafið að alblóðugasta kaflanum í margra áratuga stríði Ísraela og Palestínumanna. Við fjöllum líka um af hverju Flokkur fólksins hefur skipt um skoðun um bókun þrjátíu og fimm.

Formaður Eflingar um leikskólatillögur í Reykjavík , frönsk stjórnarkreppa og íslensk tunga 06.10.2025

Áform um breytingar á leikskólum í Reykjavík voru kynntar í síðustu viku og meðal annars lagt til að vinnutími starfsfólks og dvalartími barna mætist í 38 tímum og ný gjaldskrá verði tekjutengd. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir gefa auga leið að stemma verði saman vinnu og dvalartímann. Ólga og ókyrrð lýsa ástandinu í frönskum stjórnmálum þessi misserin. Um fátt er rætt og ritað af...

Handhafalaun og óhollustuauglýsingar bannaðar 03.10.2025

Laun handhafa forsetavalds og ferðakostnaður fyrstu tólf mánuði Höllu Tómasdóttur í forsetaembætti námu yfir þrjátíu milljónum króna. Fyrirhugað er að breyta fyrirkomulagi handhafalaunanna. Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands segir löngu tímabært að Akureyrarflugvöllur verði viðurkenndur sem önnur gátt inn í landið til jafns við Keflavík. Hún vísar þar meðal annars til Grænlands þar sem brát...

Flókið og tímafrekt að gera upp fallið flugfélag og fjármál sveitarfélaga 02.10.2025

Nær sex þúsund kröfum var lýst í þrotabú WOW air þegar það varð gjaldþrota. Skiptum á félaginu er ólokið, nú sex árum síðar. Skiptastjóri segir margt óvenjulegt í gjaldþroti flugfélags en það séu fyrst og fremst tímafrek dómsmál sem hafi dregið skiptin á langinn. Mörg hundruð sveitarstjórnarmenn af öllu landinu eru á árlegri fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna. Mikið rætt þar um inniviði, fjárfesti...

Rauði krossinn hverfur tímabundið frá Gaza og fátt nýtt í friðaráætlun Bandaríkjaforseta 01.10.2025

Rauði krossinn hefur hætt starfsemi í Gaza-borg og flutt starfsfólk sitt sunnar í Gaza því ekki er hægt að tryggja öryggi þess og halda starfsemi áfram eftir því sem harðar er sótt að borginni. Magnús Þorkell Bernharðsson prófessor við Williamsháskóla í Bandaríkjunum og sérfræðingur í málefnum miðausturlanda segir fátt nýtt að finna í margliða áætlun Doanlds Trumps um frið á Gaza. Henni svipi um m...

Ein lítil bilun getur valdið meiriháttar viðbragði og innviðafélag getur margt leyst 30.09.2025

Fjölþáttaógnir færðust nær Íslandi þegar loka þurfti Kastrup -flugvelli í Kaupmannahöfn vegna óþekktra dróna. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir óvinveittum ríkjum hafa orðið ágengt með þennan hernað sinn; ein lítil og eðlileg bilun geti sett stjórnkerfið af stað. Sérfræðingur í samgöngurannsóknum segir að innviðafélag, líkt og innviðaráðherra vill stofna, ætti að geta leyst ú...

Fall flugfélagsins Play og skattar á orkumannvirki 29.09.2025

Play ætlaði sér að vaxa of hratt og viðskiptamódelið gekk ekki upp, eins og fulljóst er við fall félagsins. Spurningar vakna líka um hvað varð um tvo og hálfan milljarð sem fengust í sumar, segir Steinn Logi Björnsson fjárfestir sem þekkir vel til í flugrekstri. Þótt þrjú flugfélög hafi fallið á öldinni telur hann allt eins líklegt að aftur verði til félag vil hlið Icelandair. Spegillinn hefur sag...

Skattur á orkumannvirki og staða íslenskrar tungu 26.09.2025

Framleiðslukostnaður við tökur á kvikmyndinni Ódysseifur hér á landi var áætlaður rúmlega tveir og hálfur milljarður og endurgreiðsla úr ríkissjóði tæplega níu hundruð milljónir, sem yrði næsthæsta endugreiðsla fyrir kvikmyndaverkefni frá upphafi. Innviðaráðherra hyggst með nýju lagafrumvarpi sjá til þess að greiddur verði fasteignaskattur af öllum mannvirkjum sem reist eru til orkuframleiðslu hér...

Lögbundinn íbúafjöldi sveitarfélaga, fyrsta haustlægðin að skella á og málefni Vélfags og meint tengsl við Rússland. 25.09.2025

Ivan Kaufmann, kaupsýslumaður frá Liechtenstein, hefur stefnt utanríkisráðherra fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Hann krefst þess að ákvörðun ráðuneytisins, um að meina honum að taka sæti í stjórn Vélfags í byrjun mánaðarins, verði felld úr gildi. Hann segir ráðuneytið hafa meðhöndlað sig eins og svikahrapp. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um breytingar á sveitars...

Lykkjuhneykslið á Grænlandi, samgöngur á Vestfjörðum og menningarstríð Bandaríkjanna og Evrópu 24.09.2025

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-Frederik Nielsen formaður grænlensku heimastjórnarinnar báðust formlega afsökunar á lykkjuhneykslinu í dag við athöfn í Katuq menningarhúsinu í Nuuk. Fjöldi kvenna var við athöfnina og sumar stóðu í sorgarklæðum því reiðin og sársaukinn hverfur ekki. Anna Kristín Jónsdóttir fylgdist með fundinum og ræddi við Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastj...

Viðkvæmir flugvellir og næðir um Starmer 23.09.2025

Þótt enn sé langt eftir af kjörtímabilinu á breska þinginu er tekið að næða um Keir Starmer, leiðtoga Verkmannaflokksins og forsætisráðherra. Fimm ráðherrar í ríkisstjórn hans hafa sagt af sér eftir hneykslismál og á meðan eykst fylgið við Reform-flokk Nigel Farage - við kynnum okkur stöðuna í breskum stjórnmálum á eftir. En fyrst eru það flygildin yfir Kastrup-flugvelli. Óvíst er hverjir flugu dr...

Samingar við lækna ólögmætir og netþrjótar herja á flugsamgöngur 22.09.2025

Bæjarstjórinn á Akureyri segist hafa áhyggjur af breyttri heilbrigðisþjónustu eftir að verktakasamningum við sérgreinalækna á sjúkrahúsinu þar í bæ var sagt upp. Heilbrigðisráðuneytið bað forstjóra heilbrigðisstofnana að fækka samningum sem gætu falið í sér gerviverktöku. Netárás um helgina, sem setti starfsemi flugvalla í Evrópu úr skorðum, var áminning um hversu mikilvægar netvarnir eru; og það...

Dýrara að verða íslenskur ríkisborgararéttur og 19. refsipakki ESB 19.09.2025

Nítjándi refsipakki Evrópusambandsins gegn Rússum var kynntur í dag, sambandið ætlar að skrúfa fyrir allt rússneskt gas og herða aðgerðir gegn skuggaflotanum. Og Deilur um mögulegar virkjanir í skagfirskum jökulám hafa blossað upp að nýju Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir bið þeirra sem hafa sótt um íslenskan ríkisborgararétt óásættanlega. Vísbendingar eru um að það lága verð sem fólk grei...

Danir vígbúast og verkalýðshreyfingin vill vera með í ráðum eigi að breyta atvinnuleysisbótakerfinu 18.09.2025

Vatnaskil hafa orðið hjá dönskum stjórnvöldum í öryggis- og varnarmálastefnu. Danir ætla að kaupa langdræg vopn, efla loftvarnakerfi og innviði á Grænlandi. Þeir eru þó ekki einir um að setja meira fé í varnir og öryggismál því sú er þróunin víða í Evrópu. Forsvarsmönnum í verkalýðshreyfingunni líst illa á að ríkisstjórnin vilji stytta tímabil atvinnuleysisbóta um ár og afnema áminningarskyldu hjá...

Uppgangur öfgamanna og vannýttar fjárfestingar í stóriðju 17.09.2025

Hópur Íslendinga aðhyllist ofbeldisfulla hugmyndafræði og aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra segir deildina reglulega fá ábendingar um tengsl Íslendinga við slíkar hugmyndir; Það getur tekið mörg ár að berja í brestina þegar loka þarf stórum fyrirtækjum og segja upp fjölda fólks. Fjárfestar töpuðu tugum milljarða á stóriðjurekstri í Helguvík og nú er allt gert til að...

Landhernaður og þjóðarmorð Ísraelsstjórnar 16.09.2025

Ísraelsstjórn réðst í dag inn í Gaza-borg á sama tíma og rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sakaði hana um þjóðarmorð. Þetta er í fyrsta skipti sem alþjóðastofnun notar slíkt hugtak um stríðsrekstur Ísraela á Gaza - við ætlum að ræða hvað felst í þessu hugtaki og hvaða skyldur ríki eins og Ísland hafa til að koma í veg fyrir þjóðarmorð við Kára Hólmar Ragnarsson, dósent við Háskóla Íslands...

Forsetinn til Kína, jafnréttisbarátta og Sameinuðu þjóðirnar 15.09.2025

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er á leið í heimsókn til Kína. Hernaðarsagnfræðingur telur að það yrði sérstakt ef forsetinn kæmi þar ekki á framfæri afdráttarlausri stefnu Íslands gagnvart innrásarstríði Rússa í Úkraínu. Endurómur af erlendum íhaldssömum viðhorfum að konur eigi að draga sig úr skarkala hins opinbera lífs og helga sig heimilisstörfum og barneignum, hljómar sífellt hærra hér á...

Óhjákvæmilegt að Ísland dragist inn í átök og PPP-málið 12.09.2025

Þverpólitískur samráðshópur kynnti í dag skýrslu um inntak og áherslur Íslands í varnar- og öryggismálum, málaflokki sem hefur fengið aukið vægi í allri umræðu, ekki síst eftir innrás Rússa í Úkraínu. Að skýrslunni stóðu þingmenn allra flokka nema Miðflokksins og skýrsluhöfundar voru sammála um að töluverð vinna væri framundan til að tryggja öryggi og varnir Íslands. Utanríkisráðherra sagði, þegar...

Skautun og pólitískt ofbeldi vestan hafs og þýskur þingmaður sviptur þinghelgi 11.09.2025

Charlie Kirk, sem var myrtur á fundi í Háskóla í Utah var kosningahvíslari Donalds Trumps hjá unga fólkinu en fyrst og fremst kristinn aðgerðasinni. Pólitískt ofbeldi er órjúfandi þáttur af bandarískri stjórnmálasögu og nú rís bylgja þess sem sér ekki fyrir endann á. Einn af þingmönnum þýska hægriflokksins AfD, Alternative fur Deutschland, var í dag sviptur þinghelgi, vegna gruns um að hafa þegið...

Rússneskir drónar rjúfa lofthelgi Póllands 10.09.2025

. Pólland hefur ekki verið nær stríðsátökum frá lokum seinna stríðs, sagði forsætisráðherra Póllands eftir að drónar frá Rússlandi voru skotnir niður í pólskri lofthelgi. Við ætlum að ræða þá stöðu sem upp er komin í Evrópu við þau Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, þingmann sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing en líka Friðrik Jónsso...

Þingmálaskráin og komandi þingvetur 09.09.2025

157 máli eru á þingmálaskránni, rúmlega þriðjungur þeirra er endurfluttur - sumum hefur verið lítillega breytt. Viðbúið er að fæst þessara mála verði að lögum. Þingflokksformennirnir Ragnar Þór Ingólfsson Flokki fólksins og Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki ræddu um komandi þing og skrána.

Fjárlagafrumvarp, aðhald eða óráðsía? 08.09.2025

Hallinn á fjárlagafrumvarpinu er áætlaður 15 milljarðar og stefnt er að hallalausum fjárlögum 2027 - markmið sem fjármálaráði finnst vera metnaðarfullt en og fjármálaráðherra segir að ekki megi þá verða nein áföll sem, hafa þó verið regla frekar en undantekning síðustu ár. Samtök iðnðarins eru ánægð með aðhaldið sem frumvarpið ber með sér en helsta markmiðið sé ða tryggja stöðugleika, lækka verðbó...

Þingið framundan og samstöðufundur gegn þjóðarmorði 05.09.2025

Þingsetning verður á þriðjudag. Síðasta þingi lauk með hvelli þegar umræðunni um veiðigjaldsfrumvap ríkisstjórnar var slitið. Hefur tekist að bera klæði á vopnin eða mæta þingmenn til leiks í vígahug? Sigmar Guðmundsson og Ólafur Adolfsson fara yfir stöðuna. Þjóð gegn þjóðarmorði heitir fjöldafundur sem boðaður hefur verið á sex stöðum á landinu á morgun; Reykjavík, Stykkishólmi, Ísafirði, Akureyr...

Norðurþing verður fyrir 700 milljóna tjóni vegna lokunar PCC á Bakka, Kína sýnir mátt sinn og megin og stærsta fríverslunarsvæði í heimi verður til 04.09.2025

Tjón sveitarfélagsins Norðurþings vegna stöðvunar kísilvers PCC á Bakka er metið á 700 milljónir króna. Sveitarstjórinn býst við raunhæfum lausnum við vandanum frá starfshópi sem á að skila af sér í næstu viku. Kína sýndi mátt sinn og megin á hersýningu í vikunni. Leiðtogi Kína tók sér líka afdráttarlausa stöðu með leiðtogum Rússlands og Norður-Kóreu. Skilaboð til alls heimsins segir alþjóðastjórn...

Forsætisráðherra um stuðning Norðurlanda og Eystrasaltsríkja við Úkraínu og formaður Framsóknarflokksins um lítið fylgi í skoðanakönnunum og sveitarstjórnarkosningar 03.09.2025

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að þrátt fyrir að aðstæður í Úkraínu séu skelfilegar hafi stríðið enn sýnt og sannað mikilvægi alþjóðasamstarfs. Það sem gerist í Rússlandi og Úkraínu snerti öryggi Íslands í pólitískum leik stórþjóða verði Ísland að passa að það verði ekki skilið eftir. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, viðurkennir að hann hafi áhyggjur af því að...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.