RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ráðherra um brottvísunarbúðir, Andakílsárvirkjun og loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna 11.11.2025

Það væri óheiðarlegt að kalla fyrirhugaðar brottvísunarbúðir eitthvað annað en þvingunarráðstöfun, segir dómsmálaráðherra. Hún telur sig ekki þurfa að hlusta á yfirhalningu frá fínum mönnum í Háskóla Íslands um að hlutirnir séu ekki eins og þeir séu varðandi námsmannaleyfi erlendra nemenda - hún hafi gögn og yfirlýsingar sem sýni að bregðast þurfi við. Bændur, veiðimenn og sumarhúsaeigendur í Borg...

Ríkislögreglustjóri hættir og afsagnir hjá breska ríkisútvarpinu 10.11.2025

Sigríður Björk Guðjónsdóttir gekk á fund dómsmálaráðherra í ráðuneytinu við Skúlagötu 4 klukkan eitt í gær. Niðurstaða fundarins var að hún myndi hætta sem ríkislögreglustjóri en yrði í staðinn sérfræðingur í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi hjá ráðuneytinu. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra. Mikill styr stendur um breska ríkisútvarpið BBC, en um h...

Stóll ríkislögreglustjóra hitnar, losun gróðurhússlofttegunda og eignarnám ekki fyrirhugað 07.11.2025

Eftir nærri fimm ára tafir segir forstjóri Landsnets kominn tíma til að ljúka undirbúningi fyrir Blöndulínu þrjú - nýja háspennulínu frá Blönduvirkjun til Akureyrar. Þótt enn sé ósamið við þriðjung landeigenda á línuleiðinni sé eignarnám ekki uppi á borðum. Reyna verði til þrautar að ná samningum. Staða Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur sem ríkislögreglustjóri virðist vera orðin mjög snúin og hún nýt...

Vegurinn yfir Öxi, loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna og ríkislögreglustjóri. 06.11.2025

Þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, fékk fyrst veður af 160 milljóna viðskiptum ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtækið Intru ráðgjöf, á mánudagskvöld í síðustu viku, beið hún ekki boðanna. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, var kölluð á teppið og langlundargeð ráðherrans var ekki mikið. Eftir fund í ráðuneytinu voru Sigríði gefnir fimm dagar til að svara ítarlegri upplýsingab...

Kosningar í Bandaríkjunum og hafstraumar í norðurhöfum 05.11.2025

Demókrötum gekk vel í kosningum í Bandaríkjunum í gær. Zohran Mamdami sigraði í borgarstjórakosningum í New York, í Virgíníu vann Abigail Spanberger ríkisstjóraefni þeirra sannfærandi sigur og í New Jersey fékk Mikie Sheriill frambjóðandi demókrata álíka niðurstöðu. Tillaga demókrata um að draga ný kjördæmamörk sem eru talin þeim hagstæð var samþykkt og allt er þetta talið merki um að tæplega einu...

Vændi, skemmtiferðarskip og stækkun ESB 04.11.2025

Sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni segir það hafa verið vonbrigði þegar lögreglan fékk ekki heimild hjá dómstólum til að fylgjast með vændisstarfsemi í grónu íbúðarhverfi í Reykjavík. Útlit er fyrir hrun í komu skemmtiferðaskipa til landsins á næstu tveimur árum ef stjórnvöld halda til streitu fyrirhugaðri gjaldtöku á þessi skip. Áhrifanna gætir hjá ferðaþjónustu og hafnarsjóðum sveitarfélaga...

Neyðaraðstoð seytlar inn á Gaza en streymir ekki, áminningar til starfsmanna sveitarfélaga og eiturlyfjastríð 03.11.2025

Þrátt fyrir að í vopnahléssamkomulaginu sé kveðið á um óhindrað streymi lífsnauðsynlegra hjálpargagna inn á Gaza, þar á meðal grundvallarnæringar fyrir börn sem soltið hafa heilu hungri mánuðum saman, þá er raunveruleikinn annar, segir Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi sem er nýkomin frá Palestínu. Um 100 starfsmenn hjá fimm stærstu sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu hafa ver...

Jón Gnarr um stöðu Grænlands, vörn Karls Wernerssonar og Belgía að verða dópríki 31.10.2025

Þing Norðurlandaráðs hefur staðið alla vikuna í Stokkhólmi. Þar er fundað á vettvangi Norðurlandanna, þar með talið Vestnorræna ráðsins sem Lögþing Færeyja, landsþing Grænlands og Alþingi stofnuðu. Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar er formaður Vestnorræna ráðsins og sat þingið nú í fyrsta skipti. Hann segir alveg ljóst að pólitísk staða Grænlands sé sterk og að Grænland sé að verða vinsælasta stelpan...

Gerviverktaka og húsnæðisaðgerðir 30.10.2025

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri var í hópi þeirra forstjóra ríkisstofnana sem fengu dreifibréf frá fjármálaráðuneytinu í ágúst á síðasta ári þar sem stofnanir ríkisins voru beðnar um að forðast alla gerviverktöku; hún væri ólögmæt. Eini starfsmaður Intru ráðgjafar, sem ríkislögreglustjóri var í tugmilljóna viðskiptum við og nánast eini verkkaupi, var með tölvu og netfang hjá embæ...

Viðskipti ríkislögreglustjóra við Intru ráðgjöf og forsetakosningarnar í Argentínu 29.10.2025

Spegillinn hefur síðustu daga fjallað um umfangsmikil viðskipti ríkislögreglustjóra við ráðgjafafyrirtækið Intru ráðgjöf. Þau hafa verið gagnrýnd og dómsmálaráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í gær að áferð málsins væri ekki góð. Hún ítrekaði þau skilaboð eftir fund sinn með ríkislögreglustjóra í dag. En hvað segir ríkislögreglustjóri? Freyr Gígja Gunnarsson ræddi ítarlega við Sigríði Björk Gu...

Ríkislögreglustjóri og Austurland vill vera metið að verðleikum 28.10.2025

Stjórnendaráðgjafinn, sem ríkislögreglustjóri greiddi 160 milljónir fyrir ráðgjafarstörf, var ráðinn tímabundið í fullt starf tveimur dögum eftir að fréttastofa óskaði eftir því að fá afhentar tímaskýrslur og reikninga vegna vinnu hennar fyrir embættið. Ríkisendurskoðandi segir málið bera þess merki að innri endurskoðun og innra eftirlit ríkislögreglustjóra hafi ekki verið eins og lög kveði á um....

Þúsundþjalasmiður ríkislögreglustjóra og óvæntar kosninganiðurstöður í Argentínu 27.10.2025

Ríkislögreglustjóri hefur síðustu fimm ár keypt þjónustu af ráðgjafafyrirtækinu Intru ráðgjöf fyrir 160 milljónir. Hvorki var gerður skriflegur samningur við fyrirtækið né farið í útboð en klukkutímarnir hlaupa á þúsundum. Síðastliðin tvö ár hefur eini starfsmaður félagsins verið nánast í fullu starfi á háu tímakaupi við að flytja embættið, fara í skoðunarferðir í húsgagnaverslanir, panta gardínur...

Hversu þungt er Norðurálshöggið, rjúpnaskyttur og kjötsmygl 24.10.2025

Íslenskt efnahagslíf stendur frammi fyrir nokkrum áskorunum; Norðurál þarf að takmarka sína framleiðslu, Play fór á hausinn og PCC á Bakka hefur ekki verið starfrækt í nokkra mánuði. Fjármálaráðherra var í beinni útsendingu. Það getur verið freistandi fyrir hagsýna Svisslendinga að fara yfir landamærin og næla sér í franskt kjötmeti sem er þar miklu ódýrara. Það getur líka verið dýrkeypt að vera g...

Vandi kísilvers PCC á Bakka og umræðan um ungmenni og skólamál 23.10.2025

Forstjóri PCC á Bakka segist ekki sjá betur en að versta sviðsmynd varðandi framtíð kísilverksmiðjunnar sé að raungerast. Hann býst ekki við að hægt verði að hefja rekstur aftur fyrr en í fyrsta lagi í lok sumars 2026. Um 20 manns verða við störf á Bakka í vetur. Mikið er rætt um skólamál og ungmenni í fjölmiðlum. Sú umræða er oftar en ekki undir neikvæðum formerkjum en hvað finnst krökkum sem eru...

´Moskítóflugur á Íslandi og samskipti Íslands og Grænlands 22.10.2025

Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði, segir að koma moskító-flugna til landsins yrði líklega ekki jafn óþægileg fyrir landsmenn og þegar lúsmýið nam hér land. Tegundin sé þekkt fyrir að stinga bæði menn og dýr, en sé ekki smitberi lífshættulegra sjúkdóma á norðurhveli jarðar. Ólöf Rún Erlendsdóttir ræðir við Gísla Ísland og Grænland eru nánir grannar en samstarf þeirra og samskip...

Líkleg formannsefni Framsóknar og fyrrverandi Frakklandsforseti í fangelsi 21.10.2025

Leið Lilju Alfreðsdóttur að formannsstóli Framsóknarflokksins er ekki jafn greið og margir telja. Skorað hefur verið á oddvita flokksins í Reykjavík að gefa kost á sér og í einu af höfuðvígjum flokksins renna margir hýru auga til Willums Þórs Þórsson. Tveir þingmenn eru sömuleiðis að þreifa fyrir sér. Fjöldi fólks safnaðist saman við heimili Nicolas Sarkozy fyrrverandi Frakklandsforseta í morgun t...

Staða Netanjahus og kvennaverkfall 20.10.2025

Vopnahléið sem samið var um 8. október á Gaza hangir nánast á bláþræði - líkt og reyndar framtíð Benjamín Netanjahús á forsætisráðherrastólnum í Ísrael. Bindur vopnahléið og lausn ísraelsku gíslanna í síðustu viku enda á stjórnmálaferil Netanjahús eða styrkir hann. Jón Björgvinsson hefur undanfarnar vikur verið í Ísrael og rætt við stjórnmálamenn og almenning um hvað taki við í stjórn landsins. Fi...

Staða íslenskunnar og aðför að fjölmiðlafrelsinu í BNA 17.10.2025

Nánast allir fjölmiðlar sem voru með aðstöðu í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og aðgang að fréttafundum þess rýmdu skrifstofur sínar og yfirgáfu ráðuneytið í vikunni. Þannig brugðust þeir við nýjum fjölmiðlareglum ráðuneytisins, sem þeim var gert að samþykkja en hverfa á brott ella. Bubbi skrifaði grein í Morgunblaðið í morgun þar sem hann húðskammaði íslenska stjórnmálamenn fyrir hvernig komið...

Úttekt á samningum borgarinnar og olíufélaga um bensínstöðvarlóðir 16.10.2025

Betur hefði mátt standa að upplýsingagjöf til borgarráðs þegar bensínstöðvasamningar Reykjavíkurborgar við olíufélögin voru samþykktir á tveimur fundum. Allir fulltrúar hefðu þó átt að vera meðvitaðir um að olíufélögin höfðu fjárhagslegan ávinning af samningunum. Margt virðist hins vegar hafa verið óljóst og annað hvorki skoðað né greint nægilega vel. Þetta kemur fram í úttekt innri endurskoðunar...

Launadeila Innheimtustofnunar og fyrrverandi forstjóra, raforkukerfi á Norðausturlandi og stríð fjölmiðla við bandaríska stríðsráðuneytið 15.10.2025

Fyrrverandi forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaganna krefst þess að stofnunin greiði honum rúmar níutíu milljónir. Hann er með réttarstöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara sem er á lokastigi. Innheimtustofnun hafnar öllum kröfum og telur forstjórann fyrrverandi hafa valdið henni miklu tjóni með ákvörðunum sínum. Freyr Gígja Gunnarsson reifar málið. Talið er kosta allt að sjö og hálfum...

Viðvörunarbjöllur vegna Play og baráttan um kvótann 14.10.2025

Þegar Play lagðist á hliðina í lok september óskaði Spegillinn eftir þeim gögnum sem kynnu að hafa verið útbúin í tengslum við fjárhagsvandræði flugfélagsins og gjaldþrot frá forsætisráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu, atvinnuvegaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu. Ítrekað hafði verið fjallað um fjárhagsvandræði Play í fjölmiðlum en skyndilegt fall kom flestum í opna skjöldu. Nærri tuttugu þúsund far...

Spilafíkn, kvótaniðurskurður og rússnesk stjórnmál 13.10.2025

Það var til eilífðar - þangað til það var ekki lengur - þannig mætti ef til vill snara titli bókarinnar It was forever - until it was no more, bók um síðustu ár Sovétríkjanna, eftir rússnesk-bandaríska félagsfræðinginn Alexei Yurchak. Rússneski stjórnarandstæðingurinn Vladimir Kara-Murza segir titilinn lýsa því fullkomlega, hvernig breytingar á rússnesku stjórnskipulagi ganga fyrir sig. Hafrannsók...

10.10.2025
Íslenskur dómur varpa ljósi á lögleysuna á Gaza og öryggismálin á þingi 09.10.2025

Bæði Héraðsdómur Reykjaness og Landsréttur töldu hendur sínar bundnar í máli palestínsks manns sem héraðssaksóknari ákærði í sumar fyrir að beita eiginkonu sína og börn hrottalegu ofbeldi á Gaza. Málið varpar ljósi á þá flóknu stöðu sem íbúar á Gaza búa við sem líkja má við hálfgerða lögleysu. Öll skilyrði eru til að endurreisa íslenska kræklingarækt, sýni stjórnvöld vilja og stuðning, að mati sér...

Lögmæti hafnbanns og handtaka á Miðjarðarhafi, bútasaumur og biluð tæki á Landspítala og gullverð í hæstu hæðum 08.10.2025

Ísraelar hafa hindrað för skipa sem sigla með vistir til Gaza - handtekið fólk um borð og sent svo úr landi. Í morgun fóru ísraelskir hermenn um borð í skipið Conscience sem er hluti af friðarflotanum og handtóku meðal annarra tónlistarkonuna Möggu Stínu. Eru þær handtökur löglegar? Snjólaug Árnadóttir dósent við HR og sérfræðingur í Hafrétti svarar því. Bútasaumur er orð sem Runólfi Pálssyni fors...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.