RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Búið að vinna hættumat fyrir alla íbúabyggð, makríll og leiðtogafundur ESB 16.12.2025

Efnismikil skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík fyrir þrjátíu árum leit dagsins ljós í gær; hún varpar meðal annars ljósi á hvernig sveitarfélög á þessum tíma voru mörg hver vanbúin til að verjast stórhættulegum ofanflóðum. Það var til að mynda vitað að á tíu stöðum, þar sem snjóflóðahætta var viðvarandi, var aðeins á einum stað þar sem eftirlit var fullnægjandi; Ísafirði. Hæ...

Rannsókn á aðdraganda og eftirmálum snjóflóðs á Súðavík 1995 15.12.2025

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík fyrir þrjátíu árum leit dagsins ljós í dag. Þar kom í ljós að sveitarfélögum á landinu var lítt gefið um hættumöt vegna snjóflóðahættu, þeim var mætt með efasemdum og menn vildu ekki horfast í augu við hættuna af snjóflóðum. Samskiptaörðugleikar voru í almannavarnarnefnd Súðavíkuhrepps nóttina sem flóðið féll og nefndarmenn vissu ekki hver...

Bandaríkin og Venesúela, Úkraína og svar NTÍ við bréfi ráðuneytis 12.12.2025

Náttúruhamfaratrygging Íslands óttast að það skaði bæði traust og trúverðugleika hennar ef hún þurfi að sækja bætur til sinna endurtryggjenda vegna kostnaðar við björgunaraðgerðir í Grindavík, eins og hugmyndir fjármálaráðuneytisins ganga út á. Þetta kemur fram í svarbréfi stjórnar stofnunarinnar sem hún sendi ráðuneytinu í september. Mörg ár hefði tekið að byggja upp þetta samband og traust - ekk...

Samskiptagögn úr Samherjamáli 11.12.2025

Tæknimönnum á vegum héraðssaksóknara tókst í mars á síðasta ári að finna afrit gamalla samskiptagagna á gamalli tölvu Jóhannesar Stefánssonar. Meðal annars afrit af gömlum, löngu glötuðum farsíma Jóhannesar. Þúsundir skilaboða, sem Jóhannes sendi, en líka þau skilaboð sem hann fékk send á nokkurra ára tímabili. Til dæmis samskipti Jóhannesar við marga af þeim níu fyrrverandi samstarfsmönnum hans,...

Ísland sniðgengur Eurovision, HS Orka um kostnaðarþátttöku í varnargörðum 10.12.2025

Ríkisútvarpið tekur ekki þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á næsta ári. Af tilkynningu útvarpsstjóra má ráða að þetta sé ekki síst gert vegna þeirrar miklu andstöðu jafnt listamanna sem almennings hér á landi við það, að Ísraelar taki þátt. Deilur um þessa annars ástsælu keppni eru ekkert nýtt og sniðganga hennar - meðal annars og ekki síst vegna þátttöku Ísraela - ekki heldur, eins og...

Áfall þegar stjórnarmaður var settur í gæsluvarðhald, morð á blaðamönnum og sameiningarmál 09.12.2025

Formaður Félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd segir það hafa verið áfall þegar stjórnarmaður í félaginu var handtekinn nýverið og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mikilvægt sé þó að gera greinarmun á þeim sem lögreglan vísi burt á landamærunum og síðan hinum sem koma til Íslands í leit að alþjóðlegri vernd. Kosningu um sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar lýkur á laugardag. 1.850 íbúa...

Lögmaður í gæsluvarðhaldi, samgönguáætlun og valdaskipti í Sýrlandi. 08.12.2025

Gunnar Gíslason, lögmaður á fertugsaldri, segir fjarstæðukennt að hafa setið í gæsluvarðhaldi og einangrun í nærri þrjár vikur vegna grunsemda lögreglunnar á Norðurlandi eystra um að tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Hann hafnar því alfarið að tengjast slíkri glæpastarfsemi og ætlar ekki að láta framgöngu lögreglunnar gagnvart sér, yfir sig ganga átölulaust. Samgönguáætlun er fjármögnuð svo lan...

Leitað að nýjum leiðtoga, árásir á Skuggaflota og samfélagsmiðlabann í Ástralíu 05.12.2025

Samfylkingin í Reykjavík stendur á krossgötum. Hún þarf að velja sér leiðtoga í höfuðborginni í fyrsta skipti í nærri tuttugu ár. Forsætisráðherra vill halda þar völdum og er sögð vera á höttunum eftir nýjum oddvita. Það bar til í liðinni viku, undan Senegalströndum, að ráðist var á tyrkneska olíuskipið Mersin, líklega með sprengjudrónum. Skipið er í eigu tyrknesku útgerðarinnar Besiktas shipping...

Kynning ráðherra rímar ekki við niðurstöður skýrslu, skólameistarar furðu lostnir og ESB hættir kaupum á rússaolíu og gasi - bráðum 04.12.2025

Fjarðagöng bæta ekki umferðaröryggi á sama hátt og Fjarðarheiðargöng og mynda ekki þá hringtengingu Austfjarða sem innviðaráðherra nefndi við kynningu nýrrar samgönguáætlunar. Þetta segir annar af höfundum skýrslu um jarðgangakosti á Austurlandi. Skólameistari Borgarholtsskóla ætlar ekki að hætta þegjandi og hljóðalaust eftir að menntamálaráðherra framlengdi ekki skipunartíma hans. Skólameistarar...

Samgönguáætlun og viðbrögð við henni 03.12.2025

Ræsum vélarnar er yfirskrift nýrrar samgönguáætlunar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynntu í morgun, ásamt stofnun innviðafélags. Áætlunin er fyrir árin 2026 til 2040 og innviðafélagið er stofnað um stærri samgönguframkvæmdir. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman það helsta úr kynningu þeirra. Seyðfirðingar sem Ágúst Ólafsson ræddi við á förnum vegi...

Hvernig verður kosið í Grindavík, ólga í Búlgaríu og þóknun Rio Tinto fyrir dóm 02.12.2025

Það eru tvö ár síðan Grindavík var rýmd. 10. nóvember 2023 bjuggu um 3.800 í bænum. Nú eru á níunda hundrað skráðir með lögheimili í Grindavík þó að þeir hafi ekki allir þar næturstað. Grindavíkurnefndin hefur lagt til að í sveitarstjórnarkosningum í vor verði þeim sem áttu lögheimili í Grindavík þegar rýmt var en hafa flutt sig síðan gefinn kostur á að melda sig inn á kjörskrá í Grindavík frekar...

Flutningsgetan og orkuþörfin og lögreglan á Suðurnesjum um brottfararstöð 01.12.2025

Gerð hefur verið orkuspá fyrir Ísland af Landsneti, Raforkueftirlitinu og Umhverfis- og orkustofnun. Þegar hún var kynnt var töluvert rætt um takmarkanir í flutningsgetu raforku og jafnvel þótt meira verði virkjað er ekki tryggt að hægt sé að koma orku til notenda. Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets segir að gera þurfi gangskör að því að bæta flutningskerfið, Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræ...

28.11.2025
Fæðuöryggi og neyðarbirgðir matvælaframleiðenda; Viðhorf og meðferð fíkniefna- og kynferðisbrota 27.11.2025

Öruggt framboð á matvælum er eitt af mikilvægustu hlutverkum stjórnvalda í flestum löndum og á flestum tímum, segir í inngangi að skýrslu Torfa Jóhannessonar doktors í landbúnaði og sérfræðings í fæðuöryggi og byggðamálum, Neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu. Torfi Jóhannesson, sérfræðingur í fæðuörykki og byggðamálum, segir það hafa komið sér mest á óvart hve berskjaldaður orkugeirinn...

Valdatafl í Valhöll, Þróun afbrota á Íslandi, staða efnahagsmála í ESB 26.11.2025

Útlit er fyrir að slagur um oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík geti orðið býsna harður. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, íhugar alvarlega að gefa kost á sér í leiðtogakjöri flokksins í lok janúar, leiðtogasæti sem Hildur Björnsdóttir, núverandi oddviti, ætlar ekki að gefa svo glatt eftir. Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir mögulegan leiðtogasl...

Þótti nóg um framgöngu Íslands og Noregs, ofbeldi gegn konum í netheimum og afkoma útgerðanna 25.11.2025

Hagsmunagæsla utanríkisþjónustu Íslands og Noregs í tengslum við verndartolla Evrópusambandsins á járnblendi var ein sú víðtækasta sem ráðist hefur verið í. Reyndar þótti embættismönnum ESB framganga vera slík að þeir sáu ástæðu til að kvarta undan henni. Konumorð eru ekki framin í tómarúmi, skrifar Sara Hendriks, framkvæmdastjóri Stefnumótunar Sameinuðu þjóðanna í málefnum kvenna, heldur eru þau...

Slagurinn um yfirráðin í borgarstjórn, friðaráætlun fyrir Úkraínu og umræða um Hafrannsóknastofnun á Alþingi 24.11.2025

Það er smám saman að komast mynd á það hvernig flokkarnir í Reykjavík ætla að raða á sína lista fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor. Slagurinn um yfirráðin í borginni er á milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, telur það ekki skipta sköpum fyrir ríkisstjórnina hverjir fara með völd í þessu langstærsta sveitarfélagi landsins. Friðaráætlun fyrir Ú...

Ofurvextir viðskiptabankanna og uppbygging á Bakka 21.11.2025

250 manns sóttu ráðstefnu í Norðurþingi og heyrðu af áformum um sókn í atvinnumálum og tækifærum til uppbyggingar á Bakka, ráðstefnan var haldin í skugga þess að þrír mánuðir eru síðan næststærsta vinnustaðnum í sveitarfélaginu, kísilveri PCC á Bakka, var lokað. Stefán Ólafsson, prófessor emeritus og sérfræðingur hjá Eflingu segir óeðlilega háa vextir bankanna, miklu frekar en krónan eða verðtrygg...

Varnaraðgerðir á Reykjanesskaga, fjölgun ofbeldisbrota gegn öldruðum og rússneskir úlfar í Finnlandi og Noregi 20.11.2025

Forsvarsmenn HS Veitna og Bláa lónsins komu af fjöllum þegar þeim barst matsbeiðni frá lögmanni fjármálaráðuneytisins, um kostnað af björgunaraðgerðum í Grindavík og mögulega þátttöku þeirra í þeim. Beiðninni er beint að HS Orku, HS Veitum, Náttúruhamfaratryggingum og Bláa lóninu. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segist ekki vera að rjúfa neina þjóðarsátt um almannavarnir. Afar mikilvægt...

Tollar ESB á málmblendi frá EES, stýrivaxtalækkun og mál ríkislögreglustjóra 19.11.2025

Utanríkisráðherrar EES ríkjanna verða á morgun í Brussel á fundi ráðherraráðs Evrópska efnahagssvæðisins. Fundurinn er haldinn í skugga þeirrar ákvörðunar um verndarráðstafanir sem Evrópusambandið ákvað á þriðjudaginn. Björn Malmquist fréttamaður ræddi þessi mál við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem kom til Brussel í dag. Seðlabanki Íslands lækkaði í dagstýrivexti um 0,25 prósen...

18.11.2025
Ofbeldi barna og glæpagengi, Lesturinn, æskan og íslenskan 17.11.2025

Það hefur komið á óvart hversu hratt aðferðafræðin hjá skipulögðum brotahópum í löndum eins og Svíþjóð, að nota börn og ungmenni til að fremja glæpi, hefur náð til Íslands. Það sem gerist á öðrum Norðurlöndum er að gerast hér, segir Katrín Sif Oddgeirsdóttir, sérfræðingur hjá ríkislögreglustjóra. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við hana. Af fáu hafa Íslendingar meiri áhyggjur en íslenskri tungu. Sama...

Skipulagðir brotahópar hafa fest sig í sessi og hvað með þýska herinn? 14.11.2025

Greiningardeild ríkislögreglustjóra gaf í dag út sína fyrstu skýrslu í fjögur ár um skipulagða brotastarfsemi. Hún staðfestir að þessi starfsemi hafi fest sig kyrfilega í sessi hér á landi sem sést kannski best á því að brotahópum hefur fjölgað um helming á áratug; í dag er talið að þeir séu tuttugu - þetta eru mis-fjölmennir og mis-skipulagðir hópar en allir með einbeittan brotavilja; sumir byggj...

Aðstæður á Vesturbakkanum, borgarstefna Íslands 13.11.2025

Nýjustu fréttir frá Vesturbakkanum eru ekki góðar: Fjöldahandtökur, stöðugar árásir óg skemmdarverk ísraelskra landræningja og morð ísraelskra hermanna á tveimur börnum. Þetta er daglegt brauð fyrir palestínska íbúa Vesturbakkans, sem Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Rauða krossins heimsótti í vikunni. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hann. Alþingi samþykkti í síðasta mánuði þingsá...

Stanslaust landris við Öskju, vígbúnaður Bandaríkjamanna á Karíbahafi og mál Samherja í Namibíu 12.11.2025

Niðurstaða rannsakenda, hér á landi og í Namibíu, er að meintar mútugreiðslur Samherja til namibískra áhrifamanna, séu talsvert hærri en áður hafði verið talið. Þetta herma heimildir fréttastofu. Nú, sléttum sex árum eftir að Kveikur í samstarfi við Wikileaks, Stundina, Al-Jazeera og namibíska dagblaðið The Namibian, fjölluðu fyrst um ásakanir um stórfelld mútubrot tengd starfsemi Samherja í Namib...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.