RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hverju skilar lækkun sakhæfisaldurs, stríðið um sannleikann og Íslenska óperan svarar 28.01.2026

Lækka á sakhæfisaldur í Svíþjóð í þrettán ár fyrir alvarlega glæpi á borð við morð. Rætt hefur verið í nokkur misseri um lækkun sakhæfisaldursins og umdeilt hvort hún skili árangri en sænsk stjórnvöld hafa talið þetta virka í baráttu við skipulögð glæpasamtök, Foxtrott til dæmis, sem æ oftar fái ungmenni og börn til óhæfuverka. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur bendir á að reynslan í Danmör...

Eldfim ummæli Rutte, stríðið um sannleikann og átök um Þjóðaróperu 27.01.2026

Ummæli Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í gær hafa vakið athygli - Rutte sagði það draumsýn að ríki Evrópu eða Evrópusambandið gætu séð um eigin varnir án Bandaríkjanna. Björn Malmquist fréttamaður heyrði ummælin falla og fylgdist með umræðunum í framhaldinu. Það er ekkert nýtt að stjórnvöld, stórfyrirtæki og aðrir hagsmunaaðilar ljúgi að almenningi í gegnum fjölmiðla sem þeir...

Bjarni Benediktsson tekur við SA, kosningar í Mjanmar 26.01.2026

Samtök atvinnulífsins tilkynntu í morgun að þau hefðu ráðið Bjarna Benediktsson sem nýjan framkvæmdastjóra. Bjarna þarf ekki að kynna til leiks; hann sat á Alþingi í 22 ár og var einn aðsópsmesti en um leið umdeildasti stjórnmálaforingi landsins. Sem fjármálaráðherra í áratug var hann áhrifamikill í íslensku efnahagslífi og hafði sterkar skoðanir á mikilvægi aðila vinnumarkaðarins fyrir stöðugleik...

Spenna fyrir prófkjör og friðarráð Trumps 23.01.2026

Á morgun verður kosið um nýjan oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík í fyrsta skipti í tuttugu ár, það er líka nokkuð ljóst hverjir vilja leiða eitt elsta stjórnmálaafl Íslands og í gær teiknaðist upp ágætis mynd af því hvernig stjórn og stjórnarandstaða vilja bregðast við breyttri heimsmynd eftir atburði síðustu daga. Magnús Geir Eyjólfsson og Eiríkur Bergmann Einarsson ræða stöðuna. Augu heimsin...

Alþjóðamál á Alþingi og í Davos; Grænland, Bandaríkin, Úkraína, Gaza ... 22.01.2026

Utanríkisráðherra flutti munnlega skýrslu um stöðu alþjóðamála á fimmtudag, þar sem hún lýsti gjörbreyttri stöðu í heimspólitíkinni, og þingmenn stjórnarandstöðu svöruðu málflutningi hennar. Samstaða var um óbilandi stuðning við Grænlendinga gegn ásælni Bandaríkjaforseta í land þeirra, en tekist var á um hvernig það yrði best gert. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman umræður dagsins. Í framhaldinu ræ...

Trump margnefndi Ísland í Davos og málarekstur gegn mótmælendum hvalveiða 21.01.2026

Donalds Trumps var beðið með mikilli eftirvæntingu á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss. Hann talaði þar í annan klukkutíma - fór mikinn um efnahagsundur sem ætti sér stað í Bandaríkjunum en talaði líka um utanríkismál. Bandaríkin hefðu áratugum saman ausið fé í NATO en ekkert fengið til baka og nú bæði hann um Grænland. Trump nefndi Ísland mörgum sinnum í ræðunni og átti þar að öllu...

Edition-málið, Trump á Davos og þjónusta sveitarfélaga 20.01.2026

Alþjóðakerfinu er mikil hætta búin um þessar mundir segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og ekki síst róa Vladimír Pútin og Donald Trump að því öllum árum að kollsteypa því með valdi og hótunum um beitingu valds og viðskiptaafls. Leiðtogar heims koma saman í litlum skíðabæ í Sviss um þessar mundir og þar ætlar Trump hvergi að hvika frá áformum um innlimun Grænlands. Þótt almennt sé tali...

Tollastríð í uppsiglingu vegna Grænlands, andstaða við Holtavörðuheiðarlínu 3 og átök um tilfærslu verkefna milli ráðherra 19.01.2026

Áhrif tollastríðsins sem geisað hefur á alþjóðavettvangi hafa ekki verið mjög mikil á íslensk fyrirtæki heilt yfir. Þó er það misjafnt segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Mikil og vaxandi óvissa í heimshagkerfinu þýði að stjórnvöld verði að styrkja samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Landeigendur og ábúendur á þriðja tug jarða í Húnaþingi hafa bundist samtökum um að ha...

Endurnýjaðar sveitarstjórnir, megrunarlyfin og veitingastaðir. Og glös sem valda tjóni á ráðuneytisbílum 16.01.2026

Meira en helmingur fulltrúa í sveitarstjórnum var kosinn fyrsta sinni í síðustu kosningum og horfur á að svo verði aftur í vor. Endurnýjunarhlutfallið í sveitarstjórnum hefur verið um 60% í kosningum undnafarið og það er hátt í alþjóðlegu samhengi segir Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði. Álagið á sveitarstjórnarmenn sé mikið og umbunin ekki endilega í samræmi við það. Áhrif mikilla...

Setti hljóða er hún las dóminn, og framleiðsla kynferðislegra mynd á Grok 15.01.2026

Einn helsta sérfræðing í kynferðisbrotamálum setti hljóða þegar hún las dóm um skilorðsbundna refsingu sem karlmaður á fertugsaldri hlaut fyrir langvarandi ofbeldi gagnvart sambýliskonu sinni. Maðurinn hefur nú verið ákærður fyrir gróf kynferðisbrot gegn dóttur konunnar. Umræðan um framleiðslu á kynferðislegu efni með aðstoð gervigreindar fer vaxandi, gervigreindarfyrirtækið Grok, hyggst takmarka...

Ráðamenn á rökstólum um Grænland, spretthópur klofnaði 14.01.2026

Stórpólitískt drama milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands - þetta er yfirskrift fréttavaktar Danmarks Radio með fundi þeirra Vivian Motzfeldt og Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherrum Grænlands og Danmerkur, með J.D. Vance varaforseta Bandaríkjanna og utanríkisráðherranum Marco Rubio. Halla Hrund Logadóttir þingmaður og Vilborg Ása Guðjónsdóttir ræða um fundinn, viðhorf vestra og afstöðu G...

Veikluð klerkastjórn, úrslitastund á Grænlandi og styrkveiting Ingu Sæland 13.01.2026

Magnús Þorkell Bernharðsson prófessor og sérfræðingur í málefnum Miðausturlanda segir líkurnar á falli klerkastjórnarinnar í Íran meiri en oft áður. Umfang mannskæðra mótmæla undanfarna daga koma honum verulega á óvart og viðbrögð stjórnvalda líka. Þau hafi vissulega verið mjög hörð, segir hann, en ekki jafn skjót og ákveðin og oft áður. VIð stöndum í miðju stormsins sagði Jens-Frederik Nielsen fo...

Breytt viðhorf til kynferðisbrota, mönnun heilbrigðisstétta og leiðir til að letja Trump frá yfirtöku Grænlands 12.01.2026

Kynferðisbrot gegn börnum eru einn viðkvæmasti brotaflokkurinn og það er regla frekar en undantekning að fjölmiðlar fái fyrst veður af þeim þegar ákæra er gefin út eða dómur fallinn. Fátítt er að sakborningar séu nafngreindir. Þetta virðist vera að breytast. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing. Mannekla í heilbrigðiskerfinu hefur verið rædd um árabil. Í nýjum T...

Brotthvarf Bandaríkjanna og Mercosur-samningur samþykktur 09.01.2026

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í vikunni að Bandaríkin hygðust segja sig frá starfi og fjármögnun 66 alþjóðastofnana, -samtaka og -sáttmála af ýmsu tagi, þar sem starfsemi þeirra og markmið samræmdust ekki stefnu og hagsmunum Bandaríkjanna. Í 31 tilfelli eru þetta stofnanir og undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna, en 35 eru sjálfstæðar, fjölþjóðlegar stofnanir og samtök sem Bandaríkin hafa...

Hvað ef Bandaríkin hertaka Grænland? Og: Fólk og aðstæður í Grindavík 08.01.2026

Fátt ef nokkuð er meira rætt í okkar heimshluta akkúrat núna en ítrekaðar hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að yfirtaka Grænland, með góðu eða illu, hvað sem Danir eða Grænlendingar kunna að hafa við það að athuga, enda sé það bráðnauðsynlegt fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Hvað gerist ef Trump stendur við stóru orðin? Liðast NATO í sundur og hvað gerist þá? Og hver verða áhrifin hér? Æ...

Ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland, Bandaríkjamenn hertaka rússneskt olíuskip, Kárahnjúkavirkjun í 20 ár 07.01.2026

Bandarísk stjórnvöld með Donald Trump í fararbroddi hafa undanfarna daga margítrekað áhuga sinn á því að yfirtaka Grænland, hreinlega innlima það í Bandaríkin, og að fáist það ekki í gegn með góðu, þá sé alltaf möguleiki að beita hreinlega hervaldi. Þetta hefur að vonum vakið hörð viðbrögð á Grænlandi og í Danmörku, og mun víðar. En hvað má lesa í þessar mis-herskáu yfirlýsingar Trumps. hvert er p...

Fatlaðir stefna Reykjavíkurborg, Grænlendingar um ásælni Bandaríkjaforseta og baráttan við riðuna 06.01.2026

Um áramót tók gildi reglugerð sem hefur það að markmiði að útrýma riðuveiki í íslensku sauðfé. Gamlar aðferðir við að leita uppi riðusmit verða úr sögunni en þess í stað rækta bændur fjárstofn með mótstöðu gegn riðuveiki. Við fjöllum líka um viðbrögð stjórnarandstöðunnar á Grænlandi við ásælni Bandaríkjaforseta - hún sakar formann landsstjórnar um kjarkleysi. Sjö fatlaðir einstaklingar hafa stefnt...

Viðbrögð við aðgerðum Bandaríkjamanna í Venesúela 05.01.2026

Alþjóðamálin eiga sviðið; árás Bandaríkjamanna á Venesúela og brottnám Nicolasar Maduros forseta, viðbrögð alþjóðakerfisins og íslenskra ráðamanna og ekki síst hvort líklegra sé að Bandaríkin innlimi Grænland nú en áður. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra segir fyllstu ástæðu til að taka áhuga Bandaríkjaforseta á Grænlandi alvarlega og telur að það hefði verið flók...

Loðnuleit og áróðursmaskína Rússa 02.01.2026

Loðnurannsóknir hefjast á mánudaginn þegar rannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur af stað í árlegan könnunarleiðangur Hafrannsóknastofnunar. Ferðinni er heitið norður og austur fyrir land til að kanna hversu langt loðnan er gengin inn í landhelgina. Vika er áætluð í þennan leiðangur og með vitneskju úr honum verður hægt að leggja drög að heildarmælingu á loðnunni. Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstj...

Ögurstund og reynsluleysi - árið 2025 í stjórnmálum gert upp 30.12.2025

Er árið 2025 minnisstætt fyrir stjórnmálastéttina? Í það minnsta gerist ekki oft að borgarstjórn springi, ráðherra segi af sér og kjarnorkuákvæði sé beitt á Alþingi á einu og sama árinu. Að ógleymdu brotthvarfi eins aðsópsmesta en líka umdeildasta stjórnmálaforingja landsins. Árið er gert upp og rýnt í komandi ár með þeim Eiríki Bergmann og Evu H. Önnudóttur.

Aftökum fjölgar í heiminum, réttindi frumbyggja á norðurslóðum 29.12.2025

Mun fleiri sakamenn hafa verið teknir af lífi á þessu ári en í fyrra, og það þrátt fyrir að 2024 hafi verið óvenju blóðugt ár á dauðadeildum fangelsa heimsins. Vitað er um hátt í tvö þúsund aftökur það sem af er þessu ári, samanborið við um 1.500 í fyrra. Þessi þróun er þvert á þróun síðustu ára, þar sem aftökum hefur fækkað jafnt og þétt í takt við fækkun þeirra ríkja sem enn eru með dauðarefsing...

Bæjarstjórnarmálin á Akureyri og afkastamiklir ráðgjafar ráðgjafarfyrirtækisins Athygli. 22.12.2025

Hvað gerir ráðherra þegar hann þarf að takast á við erfiðar spurningar frá fjölmiðlum, vill ganga úr skugga um að ræðan sem hann á að flytja sé skiljanleg og að réttar áherslur sé að finna í fréttatilkynningu sem senda á út? Ef marka má kaup ráðherra ríkisstjórnarinnar á ráðgjafarþjónstu er líklegast að ráðherrann leiti til ráðgjafarfyrirtækisins Athygli eftir svörum. Línur eru aðeins farnar að sk...

Áfallaþolinn fíkniefnamarkaður og viðskipti í tollaheimi Trumps 19.12.2025

Spegillinn fjallaði í vikunni um kókaín sem smyglað hefur verið til landsins á árinu; lögreglan á Suðurnesjum hefur aldrei séð annað eins magn, á fjórða tug dóma hafa fallið fyrir kókaínsmygl og tíu sitja í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið gripnir með efnið á landamærunum. Hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru skráð 210 mál frá árinu 2023 þar sem lagt hefur verið hald á neysluskammt af kókaín...

Áform Niceair 2,0 um Akureyrarflug, minnkandi framlög til neyðaraðstoðar og fjárhagsstuðningur ESB við Úkraínu. 18.12.2025

Martin Michael, forstjóri Niceair 2,0, virðist ekki sérlega þekktur í flugheiminum og efasemdir hafa heyrst eftir kynningarfund hans á Akureyri á þriðjudag. Eins og hann hefur kynnt áform um að hefja flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar er ekki um að ræða flugfélag í eiginlegum skilningi, eða einhvers konar flugrekstur, segir Jón Karl Ólafsson, sem hefur áratuga reynslu af flugrekstri og ferðaþ...

Kókaín flutt inn í stórum stíl, minnkandi neyðaraðstoð á tímum vaxandi neyðar 17.12.2025

Eftirspurn eftir kókaíni á Íslandi virðist óþrjótandi og efnið berst til landsins úr öllum áttum. Áhersla Bandaríkjastjórnar á fentanyl-faraldurinn er talin ein helsta ástæða þess að kókaínsmygl þrífst betur en áður. Lögregla og tollgæsla hafa haldlagt á annað hundrað kílóa af kókaíni það sem af er þessu ári. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið. Neyðarlistinn - The Emergency Watchlist - er ský...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.