RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Úttekt á umfangi bælingarmeðferðar, losunarheimildir flytjenda og stöðupróf 04.03.2026

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar til skoðunar og meta hvort tilefni sé til að hefja frumkvæðisathugun. Dómsmálaráðherra hefur beðið skrifstofu jafnréttismála að gera úttekt á umfangi bælingarmeðferðar sem allsherjar-og menntamálanefnd mæltist til að yrði gerð fyrir þremur árum. Á sama tíma og ETS losunarkerfið var rætt á Alþingi í dag, voru fulltrúar...

Pollrólegur sjúkrahússforstjóri í Ryadh og kjarnorkuvopn Frakka 03.03.2026

Sérfræðingar óttast að ófriðarbál í Miðausturlöndum breiðist út. Forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Ryadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, er pollrólegur þótt dróna hafi verið skotið á sendiráð Bandaríkjanna í borginni. Næsta hálfa öldin verður tímabil kjarnorkuvopna, sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti í ræðu sem hann flutti á aðalkafbátastöð franska flotans, heimahöfn þeirra kafbáta sem búnir eru...

Púðurtunna að springa í Mið-Austurlöndum og Davíðs Oddssonar minnst 02.03.2026

Átök í Miðausturlöndum hafa breiðst út frá því Bandaríkin og Ísrael gerðu árás á Íran á laugardag og drápu erkiklerkinn Ali Khameni. Ísraelar gerðu árásir á Teheran höfuðborg Írans aftur í dag og Íranar hafa gert árásir víða og til átaka hefur komið í Líbanon milli Hezbolla og Ísraela. Oft hefur verið talað um Miðausturlönd sem púðurtunnu, kveiktu árásirnar um helgina í tundrinu, rætt við Kjartan...

Kjörnir fulltrúar hreinsaðir út, stríð milli Pakistan og talíbana og ferðin til Kænugarðs 27.02.2026

Stjórnmálaferill fólks er að verða styttri og styttri og það færist í vöxt að flokkarnir leiti út fyrir sínar raðir. Stjórnmálaprófessor segir lítið hafa verið gert úr stjórnmálastarfi í þjóðmálaumræðunni. Stjórnvöld í Pakistan lýstu í morgun formlega yfir stríði gegn nágrannaríkinu Afganistan og undirstrikuðu ásetning sinn með loftárásum á herbækistöðvar talibana í nokkrum stærstu borgum landsins...

Kosningar í Danmörku, þjóðaratkvæði um Evrópusambandsviðræður 26.02.2026

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur kom löndum sínum á óvart í dag með því að boða til þingkosninga eftir tæpar fjórar vikur, þriðjudaginn 24. mars. Kjósendur viti fyrir hvað hún standi, sagði hún, og það, hvort hún haldi áfram sem forsætisráðherra, velti fyrst og fremst á því, hversu sterkt umboð kjósendur gefa flokki hennar, Jafnaðarmönnum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jórunni EInarsdót...

Gróðureldar, ástand jökla og íslenska óperan 25.02.2026

Þriggja daga barátta slökkviliðs Borgarbyggðar við Mýraelda árið 2006 brýndi viðbragðsaðila í að huga sérstaklega að hvernig vinna ætti á gróðureldum, segir slökkviliðsstjórinn. Hætta á þeim eykst með lengri þurrkatímabilum og breyttri búsetu í dreifbýli. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Heiðar Örn Jónsson, slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð. Á vef Veðurstofunnar segir að jökulárið 2024 - 25 haf...

Fjögur ár frá innrás Rússa í Úkraínu 24.02.2026

Fjögur ár eru liðin frá innrás Rússa í Úkraínu. Dagur B. Eggertsson og Diljá Mist Einarsdóttir fóru yfir stóru myndina í hljóðveri en austur í Úkraínu, í höfuðborginni Kyiv, er Björn Malmquist staddur. Han tók viðtal Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, þegar hún kom út af fundi hjá bandalagi hinna viljugu þjóða, og spurði hana fyrst hvað færi í gegnum hugann á forsætisráðherra Íslands þegar...

Fjögurra ára stríð í Úkraínu og sundrung á vinstri vængnum 23.02.2026

Látlausar árásir Rússa og leit að veilum í vörnum Úkraínumanna hafa ekki skilað Rússum miklu á víglínunni. Þeir hafa stöðugt bætt í árásir á borgaralega innviði til að veikja barátturþrek Úkraínumanna segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur. Margir, yst á vinstri væng stjórnmálanna, bundu vonir við að þeir flokkar sem náðu ekki kjöri í síðustu þingkosningum tækju saman höndum og byðu samei...

Leikhlé á þing, viðbrögð Íslands við loftslagsbreytingum og verksmiðja sett í skúffu 20.02.2026

Kjördæmavika hefst í næstu viku og þá má segja að þingmenn taki leikhlé, hitti kjósendur, fari yfir hvað hafi verið gert og hvað eigi eftir að gera. Magnús Geir Eyjólfsson, þingfréttaritari RÚV, býst við miklum spretti fram í maí þegar gert verður hlé vegna sveitastjórnarkosninga. Nærri þriggja milljarða króna líforkuver sem til stóð að reisa við Eyjafjörð, hefur verið sett á ís og vefsíðu þess ve...

Samgönguáætlun, loftslagsmál, havarí í bresku hirðinni 19.02.2026

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins telur samgönguáætlun innviðaráðherra hafa verið afhjúpaða sem hreinræktað kjördæmapot. Þingmaður Samfylkingarinnar segir umfjöllun síðustu daga brýna þingmenn að vanda vel til verka. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Jens Garðar Helgason og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Loftslagsráð Evrópusambandsins hvetur ráðamenn þar til að búa sig undir allt að 3,3 gráðu hlýnun...

Loftslagsmál, byggðakvóti og umdeildur körfuboltaþjálfari 18.02.2026

Veðurlag hefur um margt verið óvenjulegt í vetur. Hér voru hlýindi langt fram eftir hausti en miklar froststillur og þurrkur einkenna byrjun þessa árs. Óvenju hlýtt hefur verið á Grænlandi en óvenju kalt í Danmörku og Norður-, Mið- og Austurevrópu almennt - og líka óvenjuþurrt. Í sunnanverðri álfunni hefur hins vegar gengið á með úrhellisrigningu og miklum flóðum. Að hve miklu leyti má rekja þetta...

Vegagerðin ekki jafn bjartsýn og ráðherra, hannyrðir og andóf og sérfræðingar vara þriggja gráðu hækkun 17.02.2026

Innviðaráðherra vill að framkvæmdir við Fljótagöng hefjist strax í byrjun næsta árs en Vegagerðin telur að til að hægt verði að hefja framkvæmdir sumarið 2027 þurfi allt að ganga upp og ekkert rými verði fyrir utanaðkomandi tafir. For- og verkhönnun Fljótaganga hefur verið flýtt en göngin verða á mesta jarðskjálftasvæði landsins. Í nýrri skýrslu eru ráðamenn í Evrópu hvattir til að búa lönd sín, s...

Innviðaráðherra og ákvörðunin um Fjarðagöng, sjálfstæðisbarátta Grænlendinga og könnun á búsetu Grindvíkinga 16.02.2026

Innviðaráðherra viðraði áhuga sinn á Fjarðagöngum strax síðasta sumar. Hann virðist hafa slegið Fjarðarheiðargöng út af borðinu í september. Vegagerðin staldraði við hugmyndir ráðherrans um að rannsakaðir yrðu þrír nýir jarðgangakostir á Vestfjörðum. Eyjólfur Ármannsson var ekki búinn að sitja lengi í stól ráðherra þegar starfsmenn ráðuneytisins óskuðu eftir minnisblaði frá Vegagerðinni um forgang...

Sigurður Ingi loðinn í svörum og meira af Kúbustjórn í ólgusjó 13.02.2026

Sigurður Ingi Jóhannsson vaknar á mánudag sem óbreyttur þingmaður þegar flokkurinn hefur kosið sér nýjan formann. Honum líður ágætlega með sína ákvörðun sem var lengi í fæðingu. Hann er loðinn í svörum um hvað gerist næst. Engin fyrri bandalagsríki Kúbu virðast ætla eða geta komið þarlendum stjórnvöldum til bjargar. Kúbverjar eru mjög háðir innfluttri olíu, ekki bara fyrir samgöngur og iðnað heldu...

Loftslagsmál og sveitarfélög, Kúbustjórn í kröppum sjó, prjónahúfur og pólitík 12.02.2026

Aðgerð C10 í byggðaáætlun fjallar um aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga. Verkefni sem Byggðastofnun leiðir í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Eins og gefur að skilja er þar verið að undirbúa sveitarfélög í að takast á við nýjan veruleika sem breytt veðurfar hefur í för með sér. Ágúst Ólafsson ræðir við Ragnhildi Friðri...

Sveitarstjórnarkosningar nálgast, Evrópubúar snúa baki við Bandaríkjunum 11.02.2026

Tveir mánuðir eru þar framboðsfrestur fyrir sveitarstjórnarkosningar rennur út, það er 10. apríl og kosið verður til sveitarstjórna laugardaginn 16. maí. Þótt enn sé tími til stefnu eru framboðin að taka á sig mynd, sérstaklega í stærri sveitarfélögum, og þar með skýrist hverjir leiða í vor. Anna Kristín Jónsdóttir reifar kosningarnar framundan með Evu Marín Hlynsdóttur prófessor. Könnun sem gerð...

Fjölþjóðlegur smyglhringur upprættur, vandi leikskóla í Reykjavík og smábátaútgerð 10.02.2026

Lögregla á Íslandi og meginlandi Evrópu, handtók í liðinni viku tuttugu og fjóra menn í samræmdum aðgerðum gegn hópi glæpamanna sem smygluðu kókaíni frá Suður-Ameríku til Spánar og þaðan áfram til Íslands. Handtökurnar voru afrakstur nær eins árs rannsóknar lögreglu á Íslandi og í Litáen, í samstarfi við hvorutveggja Europol og Eurojust, og með aðkomu spænskra, danskra og belgískra lögregluembætta...

Gætu verið komin goslok en of snemmt að fullyrða og fasteignakaup útlendinga 09.02.2026

Það er hálft ár síðan síðasta gosi á Sundhnjúksgígaröðinni lauk en mikil skjálftavirkni hefur verið við Eldey síðustu daga. Benedikt G. Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga á Veðurstofunni telur ólíklegt að gjósi við Eldey á næstunni, þar sjáist engin merki gosróróa. Uppi á Reykjanesskaga heldur kvikusöfnun áfram undir Svartsengi en hefur hægt á henni. Kvikuhlaup og eldgos er enn talið líklegt en...

Vont orðið verra, Vesturbakkinn og hagsmunirnir við Hítará 06.02.2026

Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, vonar að komið sé að vendipunkti í þessari umræðu. Heilbrigðiskerfið hafi verið vanfjármagnað í lengri tíma og í því samhengi nefnir hún skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítalann sem kom út fyrir rúmu ári. Þar hafi verið bent á lausatök og úrræðaleysi, að yfirsýn skorti og fjármagnaða heildaraðgerðaáætlun. Það vita færri - en þó...

Róttækra aðgerða þörf á LSH, Keir Starmer í ólgusjó og farþegaskipin 05.02.2026

Stjórnendur Landspítalans hafa varað við því um nokkurt skeið að það stefndi í óefni á sjúkrahúsinu. Í þremur minnisblöðum sem þeir hafa sent ráðherra á síðustu vikum kemur fram að vandinn á spítalanum ógni heilsu aldraðra og tafarlausra aðgerða er krafist. Hart er sótt að Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands vegna skipunar hans á Peter Mandelson í sendiherrastöðu þrátt fyrir tengsl þess síðarn...

Verðbólga og vextir slá ekki á neysluna, Grænland og sagan til sjálfstæðis 04.02.2026

Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í morgun að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum. Þrátt fyrir að verðbólgan hafi verið þrálát og vextir mjög háir virðist það ekki bíta í budduna hjá stórum hópi fólks. Freyr Gígja Gunnarsson kannar hverju þetta sætir og ræðir við þau Ernu Björg Sverrisdóttur og Kolbein Hólmar Stefánsson. Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands segir Íslendinga þurfa að...

Hrist upp í ráðuneyti, blikur á hótellofti og skandalar í norskri konungshöll 03.02.2026

Þegar Inga Sæland tók við mennta- og barnamálaráðuneytinu eftir hrókeringar innan ríkisstjórnarinnar var ljóst að hún væri komin þangað til að breyta. Hún tók með sér ráðuneytisstjóra og hrist upp í ráðuneytinu með skipulagsbreytingum. Mikill fjöldi hótelherbergja bætist við í höfuðborginni á næstunni en gestum á hótelum hefur fækkað í vetur. Formaður fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu telur blik...

Viðræður Landsnets við landeigendur, aukin kynferðisbrot gegn börnum og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. 02.02.2026

Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir að mörgu að hyggja eigi að breyta vinnubrögðum við undirbúning nýrra hápsennulína og samningum við landeigendur. Samningaleiðin sé í flestöllum tilfellum betri en eignarnám. Landsnet stendur víða frammi fyrir andstöðu við lagningu á nýjum háspennulínum, nú síðast í Borgarfirði og Húnavatnssýslum. Í nýjum tölum frá lögreglunni kemur fram að í fyrra var t...

Davíð gegn Golíat utan vallar og umdeildu vindmyllurnar á Þórshöfn 30.01.2026

Inná vellinum er ekki sanngjarnt að bera Ísland og Danmörku við baráttu Davíðs og Golíats. Utan vallar á samlíkingin frekar við; danska handboltasambandið malar gull þessa dagana á meðan HSÍ berst í bökkum. Þýskt íslenskt fyrirtæki vill reisa vinorkuver með 74 vindmyllum í nágrenni við Þórshöfn á Langanes. Hugmyndirnar mælast ekkert sérstaklega vel fyrir hjá íbúum sem hittu fulltrúa fyrirtækisins...

Daglegt líf í stríðshrjáðri Úkraínu, stóraukinn loðnukvóti á Íslandi 29.01.2026

Í nótt og í morgun gerðu Rússar dróna- og eldflaugaárásir á borgir og bæi vítt og breitt um Úkraínu, eins og þeir hafa gert nánast daglega síðustu vikur. Í gær drápu þeir fimm manns í árás á farþegalest og en í nótt drápu þeir tvær manneskjur og særðu fjögur, þar af tvö börn, í árás á íbúðablokk í útjaðri höfuðborgarinnar Kænugarðs eða Kíev . Veðrið þar er afar íslenskt í dag, grátt yfir, súldviðr...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.