RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

13.04.2026

Mikill fögnuður braust út víða í Ungverjalandi þegar ljóst var að ríkisstjórn Viktors Orbans hefði tapað fyrir Tisza-flokki Peters Magyars. Spegillinn ræddi við Maríönnu Csillaq í Búdapest. Ríkisstjórnin ætlar að styðja sveitarfélagið Múlaþing við að leysa þann vanda sem skapast hefur í atvinnumálum Seyðfirðinga. Hátt í 100 störf hurfu frá Seyðisfirði þegar Síldarvinnslan hætti þar allri útgerð og...

Efnahgasaðgerðir og 10 ára atvinnustefna ríkisstjórnarinnar og þingkosningar í Ungverjalandi. 10.04.2026

Ríkisstjórnin kynnti í dag tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum og einnig atvinnustefnu til næstu tíu ára. Efnahagsaðgerðirnar felast í tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti og þá á að efla verðlagseftirlit ASÍ svo fylgjast megi enn frekar með verðhækkunum á annari neysluvöru. Með atvinnustefnunni er markmiðið að brjótast út úr stöðnun í efnahagslífinu. Styðja á við fyrirtæki með mikla...

NATO, ungar borgir - aldnar sveitir, orkuskipti í landbúnaði 09.04.2026

Bandaríkjaforseti hefur að undanförnu skaðað trúverðugleika Nato meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseti hefur náð að gera á margra ára tímabili. Þetta er mat Petr Pavel Tékklandsforseta og fyrrverandi hershöfðingja og formanns herforingjaráðs NATO á stöðunni sem upp er komin innan bandalagsins eftir árás Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran. Pavel segir gagnrýni Trumps ósanngjarna. Ævar Örn Jóseps...

Gunnar Bragi um aðildarviræður við ESB, erlendur áróður og 08.04.2026

Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur falið lögmanni sínum að krefja utanríkisráðuneytið um gögn og samskipti vegna aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu og lúkningu hennar á þeim tíma sem hann var utanríkisráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Gunnar Braga. Þrír fjórðu aðspurðra í könnun sem gerð var fyrir fjölmiðlanefnd og Netvís um lýðræði og skautun í vetur se...

Afarkostir Bandaríkjaforseta í Íransstríði og gróf notkun á gervigreind 07.04.2026

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn á samfélagsmiðli sínum og skrifaði að svo gæti farið að siðmenningu í Íran yrði tortímt í nótt og hún risi aldrei aftur upp. Hann vildi það ekki en það væri líklegt. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að taka verði yfirlýsingar Trumps alvarlega en telur þær endurspegla gremju forsetans yfir óvæntum gangi stríðsins við Íran. Þýskaland hefur nöt...

Icelandair vill kaupa Fly Play Europe, sameining Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og manntal á Indlandi. 01.04.2026

Icelandair upplýsti í morgun að félagið ætti í viðræðum um kaup á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe þar sem helstu verðmætin eru flugrekstrarleyfi á Möltu. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir kaupin geta falið í sér tækifæri til aukins sveigjanleika í starfseminni og til að einfalda flota Icelandair hér á landi. Um helgina lágu fyrir úrslit í kosningum um sameiningu Árneshrepps og Kald...

Orkukrísa, sjávarhiti og aldraðir Norðurlandabúar 31.03.2026

Átökin í Mið-Austurlöndum og hækkandi orkuverð hefur kostað Evrópusambandsríkin um fjórtán milljarða evra undanfarin mánuð, sagði Dan Jörgensen orkumálastjóri ESB eftir neyðarfund um ástandið sem haldinn var í dag. Hann segir nauðsynlegt að draga úr eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti; ástandið eigi eftir að vara í langan tíma, jafnvel þótt samið verði um frið á morgun Ný og viðamikil samantekt á þ...

Breytt viðhorf til lögreglu - og í lögreglu; hnignun fiskistofna í hlýnandi Norðurhöfum 30.03.2026

Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, telur það ekki til marks um ótta meðal lögreglumanna þótt þeir skrifi ekki lengur undir lögregluskýrslur með nafni. Þetta merki miklu frekar að þeir vilji vernda friðhelgi einkalífs síns og fá tækifæri til að skilja lögreglubúninginn eftir í vinnunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir breyttar aðstæður og breytt viðhorf til lögreglustarfa við Fj...

Strandsiglingar, frönsk hetja og varnaræfing við skrifborðið 27.03.2026

Fjallað verður um skrifborðsæfinguna Winter Storm 2030 sem haldin er á vegum Nato í París,þar verður unnið úr sviðsmyndum um það hvernig átök í norðri gætu hafist og þróast, og ekki síst hvernig bregðast ætti við og berjast við ískaldar aðstæður á norðurslóðum. Við fjöllum líka um beinagrind sem fannst nýverið og er talin vera af einni fræknustu hetju franskra bókmennta. Og svo eru það strandsigli...

Fjármálaáætlun og engin tengsl við Hamas hafa fundist við rannsókn Höfðaborgarmálsins 26.03.2026

Fjármálaáætlun til fimm ára var kynnt síðdegis, áfram er stefnt á hallalausum ríkisrekstri eða afgangi og aðhaldi sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra þegar áætlunin var kynnt. Sama dag birtust tölur sem sýna að verðbólga heldur áfram að hækka. Rætt við Örnu Láru Jónsdóttur, Samfylkingu og Guðlaug Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki um efnahagsmálin og ríkisrekstur. Ekkert hefur komið fram í...

Kosningar í Danmörku, ESB-umræður í utanríkismálanefnd 25.03.2026

Sósíaldemókratar - jafnaðarmenn - eru enn stærsti flokkurinn en töpuðu allra flokka mest af fylgi, 6.5 prósentum, og fengu rétt tæp 22 prósent atkvæða, sem er versta útreið sem þeir hafa fengið frá 1903. Venstre - hægriflokkurinn sem var með þeim í ríkisstjórn, tapaði líka miklu og fékk verstu kosningu frá stofnun flokksins, eða 10,1 prósent. Þriðji stjórnarflokkurinn tapaði mun minna fylgi en tap...

Kjörstöðum senn lokað í Danmörku, breytingar á bráðamóttöku og vegleg gjöf Haalands 24.03.2026

Kosningabaráttan í Danmörku var snörp því Mette Fredediksen, leiðtogi jafnaðarmanna og forsætisráðherra, boðaði óvænt til kosninga fyrir tæpum mánuði. Í gær sagðist um fimmtungur danskra kjósenda ekki vera búinn að gera upp hug sinn. Það er búist við spennandi kosninganótt því mjótt verði á munum milli rauðu og bláu fylkinganna, Hallgrímur Indriðason hefur fylgst með lokasprettinum. Til stendur að...

Bandaríkjaforseti í þröngri stöðu og ný sveitastjórnarlög 23.03.2026

Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í morgun að samningaviðræður stæðu yfir við ráðamenn í Íran, hann hefði af þeim sökum frestað frekari árásum á mikilvæga orkuinnviði í fimm daga- ef samningaviðræðurnar skiluðu ekki frekari árangri myndu Bandaríkin bara taka upp þráðinn á nýjan leik. Ráðamenn í Íran komu af fjöllum og könnuðust ekki við neinar viðræður. Sveitarfélögin hafa tekið við stórum og miklu...

Slagur við landeigendur, orkuöryggi vegna stríðsins í Íran og fyrsta viðtalið við Mette-Marit 20.03.2026

Ný lagaáform umhverfis-og orkuráðherra þýða að framkvæmdir við flutnings- og dreifimannvirki raforku gætu hafist samhliða samningaviðræðum um eignarnámsferli. Þar með styttist heildarframkvæmdatími um marga mánuði og jafnvel ár, fjármagnskostnaður lækki, áætlanir verði áreiðanlegri og áhætta vegna verðbreytinga minnki. Stjórnvöld um veröld víða þurfa að vera duglegri að brýna fólk og fyrirtæki til...

Gróðavon í almyrkva, kosið í Danmörku 24. mars, vanþóknun Bandaríkjanna á Alþjóðaglæpadómstólnum 19.03.2026

Almyrkvi verður á sólu í ágúst og verður óvíða meiri en á vestanverðu Íslandi. Ljósið í myrkrinu, í augum margra Íslendinga, er að fjöldi ferðafólks streymir hingað til að upplifa sortann - og fjölmargir freista þess að leigja út hús sín og íbúðir á uppsprengdu verði á þessum tíma. Seðlabankastjóri fagnar uppgripum fyrir hönd ferðaþjónustunnar og líkir þessu við loðnuvertíð. Mikið er í húfi fyrir...

Vaxtaákvörðun Seðlabankans, samstarf við ESB í varnarmálum og undanþágur í aðildaviðræðum við ESB. 18.03.2026

Meginvextir Seðlabankans voru hækkaðir úr 7,25% í 7,50% í dag og einhugur ríkti innan peningastefnunefndar að vaxtahækkun væri nauðsynleg. Það ræðst á næstu 167 dögum hvort forsendur kjarasamninga haldist og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, viðurkennir að hann hafi meiri áhyggjur en áður af forsenduákvæði kjarasamninga. Hann vill þó ekki spá um hvort stefni í harða kja...

Hærri vextir eða ekki, snjóflóðahætta og metfjöldi ákæra fyrir valdstjórnarbrot 17.03.2026

Hækkanir á flugfargjöldum og olíu knýja verðbólgu áfram að mati greinenda hjá Arion banka sem búast við því að stýrivextir haldist óbreyttir á morgun. Skiptar skoðanir eru hjá spámönnum bankanna um hvort vextir Seðlabankans hækki eða verði samir áfram. Það hefur verið óvissuástand vegna snóflóðahættu á Tröllaskaga og Vestfjörðum meira og minna í tæpa viku. Á fimmtudag snjóaði mikið í norðaustanátt...

Evrópusambandið og atkvæðagreiðslan í sumar, Trump vill hjálp í Hormússundi og gjöful loðnuvertíð 16.03.2026

Menntamálaráðherra neitaði að svara spurningu á Alþingi í dag um hvernig hún hygðist greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðsumars. Forsætisráðherra bað þingmenn um að ná sér niður og ræða málið málefnalega. Bandaríkjaforseti vill að bandamenn hans í NATO taki þátt í hernaðaraðgerðum á Hormússundi til að tryggja olíuflutninga en undirtektirnar hafa verið dræmar. Loðnuvertíðinni er lokið og g...

Leitin að hjúkrunarrýmum og mál gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum 13.03.2026

Um hundrað sjúklingar eru á Landspítalanum en bíða eftir því að komast í hjúkrunarrými og þrátt fyrir að leitað sé logandi ljósi að plássum um allt land hefur lítið gengið undanfarnar vikur. Í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um hópmorð er kveðið á um að ríkjum sem eiga aðild að honum beri skylda til að gera sitt til að koma í veg fyrir hópmorð og refsa þeim sem þau fremja. En hvernig eru færðar sönnur...

Síminn vill kaupa vísi og útvarpshluta Sýnar, Ísland hluti af málssókn á hendur Ísrael 12.03.2026

Síminn og Sýn tilkynntu í morgun að fyrrnefnda félagið hefði hug á að kaupa Vísi.is, annan af tveimur vinsælustu fréttavefjum landsins, og útvarpsstöðva Sýnar, meðal annars FM957 og Bylgjuna. Fyrir eigendur Símans er þetta rökrétt skref á þeirri leið sem félagið hefur verið á; fyrir stjórnendur Sýnar gæti þetta verið leiðin út úr tilvistarkreppunni sem félagið hefur verið í. Freyr Gígja Gunnarsson...

Hryðjuverkadómur ómerktur, kjarnavopn og öryggi þjóða 11.03.2026

Enn sér ekki fyrir endann á hryðjuverkamálinu svokallaða eftir að Hæstiréttur ómerkti sýknudóm Landsréttar og sendi málið þangað aftur. Ómögulegt er að segja til um það hvenær endanleg niðurstaða fæst um hvort tveir Íslendingar hafi verið að skipuleggja hryðjuverk eða ekki. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir málið við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing. Hver kjarnorkuafvopnunarsamningur stórveldann...

Enginn afsláttur gefinn segi Ísland já 10.03.2026

Umræðan um Evrópusambandið hefur verið fyrirferðarmikil undanfarna daga eftir að ríkisstjórnin kynnti þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segist hafa gert leiðtogum Evrópusambandsins grein fyrir því að verði niðurstaðan jákvæð þýði það ekki að Íslandi renni inn á hvaða forsendum er; Ísland verði selt fokdýrt.

Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðslu og um Evrópumál á Alþingi og óþarfa og dýrkeypt tækni 09.03.2026

Alþingismenn tókust fram eftir degi á um fundarstjórn forseta og komið var á sjötta tímann þegar utanríkisráðherra byrjaði að mæla fyrir tillögu sinn um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Mælendaskráin var fljót að fyllast þegar eiginlega umræða hófst. Framleiðendur verja margir miklu fé í að þróa nýja tækni, sem neytendur nýta sér svo ekki og telja jafnvel óþarfa en kostna...

ESB, úkraínsk börn og súkkalaðið sem er stolið í tonnavís 06.03.2026

Umræðan um Evrópusambandið og aðild Íslands að því fer oft í skotgrafirnar, bæði hjá stuðningsmönnum og andstæðingum. Framundan er þriðja umræðan á Alþingi þar sem tekist verður á um stöðu Íslands Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir það óumsemjanlegur hluti af friði í Úkraínu að Rússar skili þeim þúsundum barna sem þeir hafa kerfisbundið stolið. Nöfnum barnanna hefur í mörgum tilvika verið...

Vargöld í friðsælli Bláskógabyggð og stríð í Íran 05.03.2026

Júdókempa, garðyrkjufræðingur á sjötugsaldri og þrítugur Íslendingur sem nýverið var dæmdur fyrir tilraun til manndráps eru meðal sex sakborninga sem ákærðir eru fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og ræna af honum ævisparnaðinum. Martraðir eftir árásina halda vöku fyrir manninum. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. „Ég held að flestum Bandaríkjaforsetum frá íröns...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.