RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Samstaða gegn Pútín, alheimslyfjaskortur og tuttugu ára innrás í Írak 20.03.2023 30:00
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Mikið af gögnum liggja fyrir varðandi handtökuskipun alþjóðasakamáladómstólsins gegn Vladimír Pútín. Mikil samstaða er meðal aðildarríkja dómstólsins að sögn Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Róbert Jóhannsson tók saman. Forstjóri Landsvirkjunar segir að svo virðist sem sjálfstæður vilji stofnana geti komið í veg fyrir nauðs...
Pútín ákærður, stórframkvæmdir í Hafnarfirði, vantraust á Macron 17.03.2023 30:00
Spegillinn 17. Mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Alþjóðasakamáladómstóllinn í Haag gaf í dag út handtökuskipun gegn Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna stríðsglæpa í Úkraínu. Auk hans er þess krafist að Maria Alekseyevna Lvova-Belova verði handtekin, en hún er yfir skrifstofu réttinda barna sem er undir em...
16.03.2023 30:00
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Forsætisráðherra segir að niðurstaða umboðsmanns Alþingis um samráðsleysi við rafvopnavæðingu lögreglunnar hafi ekki áhrif á stöðu dómsmálaráðherra, en er enn þeirrar skoðunar að málið hefði átt að vera rætt í ríkisstjórn áður en það var lögfest. Alma Ómarsdóttir talaði við Katrínu Jakobsdóttur. Íslensk erfðagreining braut ekk...
Fordómar í garð foreldra með fötlun, kafbátar og orkuskipti 15.03.2023 30:00
Dómsmálaráðherra segir álit umboðsmanns Alþingis um rafbyssuvæðingu lögreglunnar ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ráðherra. Hann er ósammála álitinu um að bera hefði þurft málið undir ríkisstjórn. Embætti landlæknis hefur svipt sálfræðing starfsleyfi eftir að hann gerðist sekur um alvarleg brot í starfi. Hann er meðal annars sagður hafa gert ADHD-greiningar sem hvergi fengust viðurkenndar. Ragnar...
Ráðherrar í Kiev, andleg líðan ungmenn og orkuskipti 14.03.2023 30:00
Friðarhugmyndir Úkraínumanna verða ræddar á leiðtogafundi í Reykjavík í maí. Það ræðst ekki fyrr en rétt fyrir fundinn hvort Volodomyr Zelensky verður viðstaddur í eigin persónu. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra áttu fund með Volodmyr Zelensky og ráðamönnum í Kiev í dag. Ríkið og sveitarfélögin stefna að því að uppfæra samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sum verkefnin voru vanáætluð í upph...
Olía flæðir inn til landsins, hörmungar í Tyrklandi og bankahrun í BNA 13.03.2023 8:57
Formaður loftslagsráðs segir ekki nauðsynlegt að fórna hagvexti til að draga úr olíunotkun. Orkuskiptin þurfi að ganga hraðar. Ísland nær ekki markmiðum sínum í loftslagsmálum meðan innflutningur á olíu er eins mikil og raun ber vitni. Tölur Orkustofnunnar sýna að olíunotkun hefur aukist talsvert að undanförnu, en slær þó ekki met, eins og Samtök iðnaðarins halda fram. Joe Biden Bandaríkjaforseti...
Sjómenn fella samning, hryðjuverkamáli vísað frá. árás í Hamborg 10.03.2023 30:00
Spegillinn 10. mars 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Öll félög innan Sjómannasambands Íslands að skipstjórnarmönnum undanskildum felldu nýgerðan kjarasamning. Kjörsókn var fjörutíu og átta prósent. Af þeim kusu tæp þrjátíu og tvö prósent með nýjum kjarasamningi en sextíu og sjö prósent á móti. Um eitt prósent tók ek...
09.03.2023 30:00
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magússon Rússlandsher drap minnst níu óbreytta borgara í Úkraínu í morgun, í mestu loftárásum í margar vikur. Íslendingur í Kyiv vaknaði við sprengjugný. Eftir nokkurra ára ferðabann hafa kínversk stjórnvöld ákveðið að leyfa aftur sölu á pakkaferðum til fjörutíu landa, þar á meðal Íslands. Fyrir heimsfaraldur voru Kínverjar fjórði fjölm...
Breytingar á atvinnuleyfi, miðlunartillaga samþykkt og orkuskipti 08.03.2023 30:00
Atvinnuleyfi starfsfólks frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða ekki lengur bundin atvinnurekanda heldur starfsfólkinu sjálfu, samkvæmt fyrirhuguðum breytingum á lögum um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman og talaði við Katrínu Jakobsdóttur, Málflutningur í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar fór fram í allan dag. Verjendur segja sakborningana aðei...
Hækkanir til forstjóra og innviðaráðherra um Vegagerðina 07.03.2023 30:00
Spegillinn 7. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Seðlabankastjóri hvetur til þjóðarsáttar til að kveða niður verðbólgu en laun forstjóra fyrirtækja í Kauphöllinni hækkuðu ríflega í fyrra. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir það vont að laun forstjóra hækki umfram önnur, ekki síst í núverandi umhverfi...
Eitrað fyrir stúlkum í Íran, rammaáætlun og löglegt verkbann 06.03.2023 30:00
Kröfur um gæði og öryggi eiga að vera í öndvegi hjá Vegagerðinni og taka þarf stefnumörkun stofnunarinnar fastari tökum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Vegagerðina. Kostnaður vegna sálfræðiþjónustu starfsfólks barna- og menntamálaráðuneytisins meira en tífaldaðist á síðustu fimm árum. Kostnaður annarra ráðuneyta var mun lægri. Verkbannsboðun Samtaka atvinn...
Sjóðir hersins að tæmast, hæfi fjármálaráðherra og bitlausar þvinganir 03.03.2023 30:00
Svæðisforingi Hjálpræðishersins segir að svo geti farið að hætt verði að bjóða upp á heitan mat í hádeginu. Þeim sem leita til hersins hefur fjölgað mikið undanfarna mánuði og sjóðirnir eru að tæmast. Arnar Björnsson talaði við Hjördísi Kristinsdóttur. Nauðsynlegt er að bjóða upp á sólarhringsþjónustu fyrir heimilislausar konur, til að minnka líkur á að þær verði fyrir ofbeldi. Ekkert úrræði er ti...
Borgarskjalasafn lagt niður, Samfylkingin eykur fylgi og vindorkuver 02.03.2023 9:15
Spegillinn 02.03. 2023 Borgarráð samþykkti í dag að leggja niður Borgarskjalasafn og hefja viðræður við Þjóðskjalasafn um sameiginlega vörslu gagna. Borgarstjóri telur að breytingin eigi eftir að auka aðgengi að skjölum. Samfylkingin mælist með mest fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, annan mánuðinn í röð. Stuðningur við ríkisstjórnina dvínar og hefur ekki mælst minni. Nýsamþykkt endurskoðuð þjóðarö...
Fleiri andlát vegna covid en talið var og miðlunartillaga 01.03.2023 30:00
Landlæknir telur líklegt að dauðsföll vegna covid hafi verið um fjögur hundruð í fyrra, ekki rúmlega tvöhundruð eins og talið hefur verið til þessa. Kjaraviðræður BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands við hið opinbera virðast í uppnámi. Ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu í deilu SA og Eflingar í morgun. 250 fjár og 12 geitur drápust þegar fjárhús brann til kaldra kola á bænum Unaósi í Hja...
28.02.2023 30:00
Spegillinn 28. febrúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Ríkisstjórnin telur ekki tímabært að grípa inn í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins með lagasetningu. Enn er vonast til að deilan leysist við samningaborðið. Alma Ómarsdóttir ræddi við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson fjármá...
Verðbólga og kjaramál 27.02.2023 30:00
Spegillinn 27. febrúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Settur ríkissáttasemjari leitar samkomulags um nýja miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífisns. Fundur deilenda er boðaður klukkan átta. Magnús Norðdahl, lögmaður Alþýðusambands Íslands segir framganga ríkissáttasemjara í síðustu miðlunartillögu hafi...
Ár frá því að innrás Rússa hófst í Úkraínu 24.02.2023 30:00
Forseti Úkraínu segir að Úkraínumenn eigi sigurinn vísan gegn Rússum að því gefnu að Vesturlönd standi við loforð sín um aðstoð. Ár er síðan innrás Rússa hófst í Úkraínu. Formenn aðildarfélaga ASÍ segja að það stefni í óefni í gerð næstu kjarasamninga. Framganga ríkisstjórnarinnar er gagnrýnd harðlega í ályktun þeirra. Settur ríkissáttasemjari segist sæta lagi með að leggja fram miðlunartillögu í...
Hugvíkkandi efni, grænmetis skömmtun og rammaáætlun 5 23.02.2023 30:00
Hundruð milljóna tjón varð í bruna fiskeldisfyrirtækis á Tálknafirði í morgun. Slökkvilið er enn að störfum. Tveir slösuðust í brunanum. Áhyggjur eru um að verkföll Eflingar muni hafa áhrif á um 2000 manns á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu, fáist ekki undanþága til að fá afgreitt bensín fyrir starfsfólk. Dómsmálaráðherra vill skoða hvort hægt sé að nota hugvíkkandi efni til að hjálpa afbrot...
Verkbann, nándarhryðjuverk og kynferðisofbeldi áhrifavalda 22.02.2023 30:00
Samtök atvinnulífsins samþykktu verkbann á alla félaga í Eflingu með miklum meirihluta atkvæða. Verkbann tekur gildi eftir rúma viku. Lögreglustjórinn á Austurlandi hvetur fólk á svæðinu til þess að auka meðvitund sína um mögulegt Öskjugos og kynna sér leiðbeiningar. Leiðtogar níu Atlantshafsbandalagsríkja í Austur-Evrópu heita hver öðrum stuðningi ef hernaðarógn steðjar að í ríkjum þeirra. Þeir h...
Endurskoðun vinnulöggjafar og ræða Vladimírs Pútíns 21.02.2023 9:50
Spegillinn 21. febrúar 2023 Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Alþýðusamband Íslands hefur fengið frest til að afla gagna og vinna greinargerð í máli Ólafar Helgu Adolfsdóttur gegn ASÍ, Samtökum atvinnulífsins og íslenska ríkinu. Magnús Norðdahl, lögmaður ASÍ, segir niðurstöðu Landsréttar um að Eflingu beri ekki að afhenda f...
Vinnudeila SA og Eflingar harðnar enn og Joe Biden í Úkraínu 20.02.2023 9:00
Spegillinn 20. febrúar 2023 Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra segir ekki hafa verið rætt í ríkisstjórn að setja lög á kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segist hafa þungar áhyggjur af stöðu...
Bankavextir hækka, óveður í Danmörku, hæsta einkunn í hjúkrunarfræði 17.02.2023 30:00
Spegillinn 17. febrúar 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Fundi samninganefndar Eflingar og Samtaka atvinnulífsins lauk hjá ríkissáttasemjara á sjötta tímanum í dag. Honum verður fram haldið klukkan tíu í fyrramálið. Samninganefnd Eflingar frestaði í gærkvöld öllum verkföllum fram á miðnætti aðfaranætur mán...
Lagasetning ekki í aðsigi, Pence og spilliefni í sjóinn 16.02.2023 30:00
Forsætisráðherra segir stjórnvöld ekki ætla að grípa inn í kjaraviðræður með lagasetningu að svo stöddu. Grannt sé þó fylgst með framvindu verkfalla. Komið er að úrslitastund um hvort formlegum kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins verður fram haldið. Stjórn og trúnaðarráð Eflingar situr nú á fundi Sænska lögreglan hefur synjað tveimur umsóknum um leyfi til að brenna Kóraninn í Stokkhól...
Verkföll, deila Pólverja og ESB, afsögn Sturgeon, vargöld í Svíþjóð 15.02.2023 30:00
Spegillinn 15.02. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Settur ríkissáttasemjari hefur fundað með samninganefndum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins síðan klukkan níu í morgun. Hann segir að setið verði fram á kvöld, svo lengi sem eitthvert gagn er af því. Formaður Samtaka atvinnulífsins segir það óhóflega bj...
Bætir í verkföll Eflingar og vinnuréttarsérfræðingur 14.02.2023 30:00
Spegillinn 14. febrúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Verkfall Eflingarstarfsmanna, sem hefst að óbreyttu á morgun, gæti valdið því að bensínstöðvar verði tómar fyrir helgi, með tilheyrandi samgöngutruflunum. Ef verkfallið dregst á langinn hefði það meðal annars áhrif á akstur Strætó. Alma Ómarsdóttir tók saman...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.