RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ópíóíðafíkn, útrýming riðu, forseti ASÍ, kosningar í Tyrklandi 28.04.2023

Spegillinn 28. Apríl 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra boðar að 170 milljónum króna verði veitt í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóíðafíknar. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur samþykkt tillögu yfirdýralæknis um breytta aðferð við að útrýma riðu. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að grípa til bráðaaðger...

Seinni hálfleikur á þingi ASÍ, skjalamál og funhiti á Spáni 27.04.2023

Innviðaráðherra segir viðbúið að finna verði nýtt húsnæði fyrir allt að 3 þúsund hælisleitendur á næstu misserum. Hann mælti í dag fyrir frumvarpi um að hægt verði að nota húsnæði sem ekki er ætlað til búsetu. Guðmundur Felix Grétarsson er nú á sterkum sterakúr til að geta haldið handleggjunum. Líkaminn gerði sig líklegan til að hafna útlimunum sem hann fékk grædda á sig fyrir tveimur árum. Þjóðsk...

Kröfur BSRB, húsnæðismál, leiðtogafundur, Breiðafjarðarferja, Úkraína 26.04.2023

Spegillinn 26. apríl 2023 Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Útsendingastjórn frétta: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Félagar ellefu aðildarfélaga BSRB greiða atkvæði um verkfallsaðgerðir í maí vegna kjaradeilu við Samband íslenskra sveitarfélaga. Lögmaður sambandsins segir kröfur BSRB ómálefnalegar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess á Alþingi að gripið...

Ópíóíðafíkn, leiðtogafundur, myndskeið af ofbeldi 25.04.2023

Dauðsföll vegna ópíóíða gætu orðið fleiri í ár en nokkru sinni, segir Valgerður Rúnarsdóttir forstjóri Vogs. Ungt fólk leitar í auknum mæli á sjúkrahúsið vegna ópíóíða. Á leiðtogafundi Evrópuráðsins í maí verður áhersla lögð á hvernig draga megi Rússa til ábyrgðar vegna Úkraínu, segir Þórdís Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra. Fólk sem vinnur á stofnunum í grennd við fundarstaðinn, Hörpu, hefur...

Börn í fangelsi, lesblinda og óöld í Súdan 24.04.2023

Verjandi 17 ára stúlku sem sætir gæsluvarðhaldi vegna morðsins í Hafnarfirði furðar sig á því að henni skuli ekki hafa verið sleppt eftir yfirheyrslur í gærkvöld. Hún sé vitni í málinu, ekki gerandi. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að hjúkrunarfræðingar sýni stjórnvöldum rauða spjaldið með því að samþykkja naumlega fyrsta kjarasamninginn í tíu ár. Koma verði í veg fyrir flótta úr...

Manndráp í Hafnarfirði, olíubrennsa í loðnuvinnslu, gervigreind 21.04.2023

Spegillinn 21. Apríl 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Lögreglan hefur lokið yfirheyrslum yfir fjórum mönnum, sem voru handteknir eftir að karlmaður á þrítugsaldri lést eftir stunguárás í Hafnarfirði í gærkvöld. Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim, en verið er að fara yfir rannsóknargögn. Alma Ómarsd...

Lofstlagsmál, riða, Súdan, villtur lax og alinn, og Evrópuráðsfundur 19.04.2023

Spegillinn 19. apríl 2023 Enn er leitað að stað til að urða um sjö hundruð kindahræ frá Syðri Urriðaá í Miðfjarðarhólfi. Veirufræðingur á tilraunastöðinni á Keldum segir urðun besta kostinn ef ekki er hægt að brenna hræin. Um þrjú hundruð almennir borgarar hafa fallið í Súdan, í átökum sem stigmagnast með degi hverjum. Vatn og matur er víða af skornum skammti og erfitt að koma særðum undir læknish...

Skipsstrand, riða og Alþýðusambandsþing 18.04.2023

Spegillinn 18. apríl 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Þorbjörn Gísla Kolbrúnarson. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Erlent flutningaskip strandaði við Ennishöfða á Húnaflóa í dag. Magnús Pálmar Jónsson stýrimaður og sigmaður hjá Landhelgisgæslunni segir áhöfnina bera sig vel og ekki þörf á að flytja fólk frá borði. Ekki verður reynt að losa skipið í kvöld. Amanda...

Riða, gervigreind, skuldir, verföll í Noregi og Súdan 17.04.2023

Matvælaráðherra segir að engin önnur leið sé fær en að skera fé þar sem riða greinist Formaður deildar sauðfjárbænda hjá bændasamtökunum segir óásættanlegt ef bændum á Urriðaá verður gert að klára sauðburð áður en fé verður skorið. Nauðsynlegt sé að finna lausn á förgunarvanda á riðusýktum bæjum. Háskólanemendur hafa gerst uppvísir að því að láta gervigreind skrifa fyrir sig mastersverkefni. Sviðs...

Riðuveiki nyrðra, efasemdir um bóluefni, flutningar til og frá landinu 14.04.2023

Spegillinn 14. apríl 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Staðfest er að riðusmit greindist á öðrum bæ í Miðfjarðarhólfi - bænum Syðri-Urriðaá. Lóga þarf 720 fjár. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við Sigurborgu Daðadónnur, yfirdýralækni hjá Matvælastofnun. Baugur Bjólfs, stór útsýnispallur á Bæjarbrún ofan Seyðisf...

Eldvarnir, ópíóíðafaraldur, náttúruvá og friðlýst svæði 13.04.2023

Spegillinn 13.04. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórnandi fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Slökkviliðið telur brýnt að fá auknar heimildir til að skoða íbúðarhúsnæði í útleigu. Dæmi eru um að leigjendur veigri sér við því að kvarta vegna ónógra brunavarna af ótta við að missa húsnæðið. Tveir starfshópar innviðaráðuneytisins hafa unnið að útf...

Handtekinn í Brasilíu, björgun Reykjanesbæjar og loftárásir í Mjanmar 12.04.2023

Íslenskur maður var handtekinn í Brasilíu í morgun í umfangsmiklum aðgerðum. Hald var lagt á 65 kíló af kókaíni og 225 kíló af hassi. Íslensk lögregluyfirvöld komu að aðgerðunum í morgun. Kristín Sigurðardóttir tók saman og talaði við Karl Steinar Valsson. Einhverjir þeirra sem eiga hlut að Bankastræti Club-málinu tengjast vopnuðum átökum á Dubliner og í Bankastræti í mars. Þetta segir yfirlögregl...

Vantar hjarta- og lungnalækna, skil við 18 ára aldur hjá fötluðu fólki 11.04.2023

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Fastráðnir hjarta- og lungnaskurðlæknar á landinu eru aðeins tveir en þyrftu að vera fjórir til fimm. Erlendir læknar í verktöku hafa verið fengnir til að brúa bilið en það er dýrt og veldur álagi, segir Vigdís Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri hjarta-, æða og krabbameinsþjónustu Landspít...

Niceair gerir hlé, fleiri koma frá Venesúela og vanlíðan ungmenna 05.04.2023

Flugfélagið Niceair hefur gert hlé á starfsemi sinni og aflýst flugi frá og með morgundeginum. Framkvæmdastjóri félagsins segir framhaldið óvíst en það sé ekki gjaldþrota. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson. Fimmtán hundruð manns frá fjörutíu og þremur löndum hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá áramótum. Fleiri komu frá Venesúela en Úkraínu. Alma Ómarsdótti...

Finnar komnir í NATO, Trump ákærður og riðusmit er reiðarslag 04.04.2023

Spegillinn 4. apríl 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Stór og sögulegur dagur segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra um Atlantshafsbandalagsaðild Finna; ekki síst fyrir Norðurlandasamstarfið. Aðildin er Tobiasi Billström utanríkisráðherra Svía fagnaðarefni, hann segir ekkert standa í vegi þess...

Riða, kosningar í Finnlandi og fordómar á vinnumarkaði 03.04.2023

690 kindum verður lógað á bænum Bergsstöðum í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu eftir að riða greindist á bænum. Þetta er í fyrsta sinn sem riða greinist í Miðfjarðarhólfi. Valur Grettisson sagði frá. Konur koma meira en helmingi sjaldnar fyrir en karlar í auglýsingu fyrir Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta. Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna gera athugasemd við auglýsinguna og vilja að konum s...

Úrhelli fyrir austan, kynferðisafbrot, Trump ákærður eftir helgi 31.03.2023

Spegillinn 31. mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Um 300 manns fá ekki að fara heim til sín í nótt vegan rýminga á Austfjörðum. Á bilinu 70-80 snjóflóð hafa fallið þar síðustu daga. Mikil úrkoma hefur verið og spáð er rigningu fram yfir hádegi á morgun. Ásta Hlín Magnúsdóttir sgði frá og talaði við Minney Sig...

Rýmingar, vantraust og landsliðsþjálfari rekinn 30.03.2023

Spegillinn 30. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir. Hús voru enn rýmd á Austfjörðum í dag vegna hættu á ofanflóðum. Hættustig er í gildi í Neskaupstað, á Seyðisfirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Fjöldi flóða hefur fallið í dag en ekki í byggð. Magni Hreinn Jónsson fagstjóri ofanflóða er á...

Illviðri, vantraust og fjármálaáætlun 29.03.2023

Appelsínugul veðurviðvörun gengur í gildi á Austfjörðum klukkan sjö vegna mikillar snjókomu. Reitur fjórtán var rýmdur að nýju á Seyðisfirði í dag. Viðbúið er að færð spillist og hætta á snjóflóðum aukist. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir tók saman. Hækka á tekjuskatt á fyrirtæki, hagræða í rekstri ríkisstofnana og draga úr opinberum framkvæmdum samkvæmt fjármálaáætlun sem kynnt var í dag. Þingmenn...

Áfram hættustig á Austfjörðum og fasteignamarkaður kólnar 28.03.2023

Spegillinn 28. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Guðrún Sólveig Sigurðardóttir, sem vaknaði upp við að fá snjóflóð inn um svefnherbergisgluggann sinn í Neskaupstað í gærmorgun segir tilfinninguna skrítna, en stuðningur samfélagsins skipti miklu. Rúnar Snær Reynisson kom sjóleiðina til Neskaupstaðar í dag. Hann...

Snjóflóð í Neskaupstað og verkföll og mótmæli í Ísrael 27.03.2023

Hættustig almannavarna vegna snjóflóða er í gildi í þremur bæjum á Austfjörðum. Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað snemma í morgun. Ólíkar tilfinningar vakna hjá Norðfirðingum í kjölfar flóðsins. Sum muna Norðfirðingar muna sumir eftir mannskæðum snjóflóðum þar í bænum fyrir tæpum 50 árum. Snjóflóðin í Neskaupstað féllu utan við varnargarða bæjarins. Viðbætur eru á teikniborðinu en stranda á fjárma...

Yfirlögregluþjónn til rannsóknar, eldur í Garðabæ, byggðalínan 24.03.2023

Spegillinn föstudaginn 24. Mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar ásakanir á hendur yfirlögregluþjóni hjá embættinu um kynferðislega áreitni. Maðurinn hefur lengi starfað sem lögreglumaður, meðal annars í kynferðisbrotadeild. Litlar upplýsingar fengust um málið hjá lögreglunn...

Sinubruni og átök vopnaðra manna í Reykjavík 23.03.2023

Spegillinn, 23. mars 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Sina brann á nærri 100 hekturum suður af Straumsvík í dag. Útihús og bíll urðu eldinum að bráð, slökkvilið er enn að störfum. Kristín Sigurðardóttir sagði frá og talaði við Finn Hilmarsson varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Björgunarsveitarmenn hafa leng...

Þjóðaröryggi og ungmennabúðum skellt í lás 22.03.2023

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans var harðlega gagnrýnd á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin þurfi að bregðast við. Umboðsmaður skuldara telur blikur á lofti og ástæða sé til að hafa áhyggjur af þeim sem skulda mikið. Boris Johnson segir að það hefði verið ómögulegt að virða samkomutakmarkanir í Downingstræti 10 vegna þrengsla. Hann kveðst hafa sagt þinginu satt og rétt frá - eftir því sem hann vissi á sínu...

Svört loftslagsskýrsla og svört lögregluskýrsla 21.03.2023

21 sakborningur í Bankastrætismálinu mætti fyrir dómara í dag í umfangsmestu þingfestingu sem sést hefur í héraðsdómi. Allir neituðu sök. Forsætisráðherra segir að stjórnvöld hafi ekki brugðist við af nægilegri festu í loftslagsmálum. Yfirmaður skrifstofu loftlagsþjónustu og aðlögunar segir nauðsynlegar mótvægisaðgerðir við loftslagsbreytingum ekki á færi einstaklinga, þær séu undir stjórnvöldum k...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.