RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sprengingar, njósnarar og fljúgandi furðuhlutir 13.02.2023

Ríkissáttasemjari er tilbúinn að víkja í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Efling þyrfti ekki að skila kjörskrá vegna miðlunartillögu hans. Áfellisdómur, að mati formanns Eflingar. Allir vegir til og frá Tálknafirði eru lokaðir vegna vatnavaxta og Snæfellsnesvegur er við það að rofna. Tveir voru fluttir á slysadeild eftir að sprenging varð í...

Ákærur vegna árásar í Bankastræti Club, rannsókn lokið á Blönduósi 10.02.2023

Spegillinn 10. febrúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn Útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Tuttugu og fimm eru ákærðir í tengslum við hnífaárásina á skemmtiustaðnum Bankastræti Club í Reykjavík í nóvember í fyrra. Einn þeirra er ákærður fyrir tilraun til manndráps og tíu fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru í málinu. Sólveig...

Kvika og Íslandsbanki í eina sæng og 20 þúsund látin eftir skjálfta 09.02.2023

Viðræður um sameiningu Íslandsbanka og Kviku um sameiningu eru að hefjast. Samruninn myndi stækka efnahagsreikning Íslandsbanka um 20 prósent. Um tuttugu þúsund manns hafa fundist látin í Tyrklandi og Sýrlandi vegna jarðskjálftana á mánudag. Mikil eyðilegging blasir við íslenskum björgunarsveitarmönnum sem eru í Tyrklandi. Enn finnst fólk á lífi í rústunum Síðasta vaxtahækkun Seðlabankans er í boð...

Samkomulag ríkissáttasemjara og Eflingar; stýrivaxtahækkun 08.02.2023

Ásakanir hafa gengið á víxl milli stjórnenda Íslandshótela og verkfallsvarða Eflingar um verkfallsbrot og hótanir. Samkomulag náðist á milli ríkissáttasemjara og lögmanns Eflingar í dag varðandi kjörskrá félagsins. Róbert Jóhannsson tók saman, rætt við Aðalstein Leifsson ríkissáttasemjara. Annarri umræðu um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lauk nokkuð óvænt á Alþingi í dag þegar þingmenn Pírata...

Kjaradeilur og sjókvíaeldi 07.02.2023

Spegillinn 7. febrúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknmaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Staðfest er að á sjöunda þúsund fórst í jarðskjálftum í Tyrklandi og Sýrlandi í gær, en óttast er að þau séu miklu fleiri. Íslenskt björgunarlið flýgur til Tyrklands í kvöld. Oddur Þórðarson sagði frá. Ríkissáttasemjari segir Eflingu bera lagalega...

Hryðjuverkamáli vísað frá, jarðskjálftar, kjaradeilur og fiskeldi 06.02.2023

Spegillinn 06.02. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Hryðjuverkamálinu svonefnda var í dag vísað frá dómi þar sem dómari komst að þeirri niðurstöðu að ákæran væri svo óskýr að sakborningar gætu ekki gripið til viðhlítandi varna. Minnst fimmtán hundruð manns létu lífið í jarðskjálfta í Tyrklandi í nótt og mo...

Deila Eflingar og SA, deilan um TF-SIF, N4 gjaldþrota. 03.02.2023

Spegillinn 2. febrúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn Útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Dómsmálaráðherra og forstjóri Landhelgisgæslunnar sátu fyrir svörum á fundum utanríkismála- og fjárlaganefnda Alþingis í dag vegna tillögu dómsmálaráðherra um að selja TF SIF flugvél Gæslunnar. Formenn nefndanna segja mörgum spurningum ósvarað. Georg Lárusson fors...

Sala TF SIF, Samfylking stærst flokka, búvörusamningar og votlendi 02.02.2023

"Róttækar" og "afdrifaríkar" eru orðin sem forstjóri Landhelgisgæslunnar notaði í samskiptum við dómsmálaráðuneytið um nauðsynlegar niðurskurðarleiðir ef ekki fengjust frekari fjárheimildir. Meðal hugmynda voru sala flugvélar og varðskips. Samfylkingin fær mest fylgi allra flokka í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup í fyrsta sinn síðan 2009 og mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Velferðarráð Reykjavíkur...

TF-SIF seld, sorpmál í ólestri og mótmæli í Frakklandi 01.02.2023

Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir það gríðarleg vonbrigði og mikla afturför að þurfa að selja eftirlitsflugvélina TF-SIF . Hún sé ein af grunnstoðum gæslunnar. Húsleit stendur yfir í strandhúsi Bandaríkjaforseta í Delaware. Húsleitin er sú þriðja á tveimur mánuðum, en áður hafa fundist leynileg skjöl á skrifstofu forsetans og á heimili hans. Komi til verkfalls Eflingar tæmast eldsneytistankar be...

Ofnýtt einangrun, efnahagshorfur heimsins og villta vindmylluvestrið 31.01.2023

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var á Alþingi í dag sökuð um að láta almenning bera allan kostnað vegna aukinnar verðbólgu. Stjórnarandstaðan krefst þess að ríkisstjórnin taki ábyrgð. Ísland verður eins og villta vestrið ef vindorka fellur utan rammaáætlunar, segir verkefnisstjóri Landverndar. Hann sakar hagsmunasamtök orkufyrirtækja um að afvegaleiða umræðu um þessi mál. Formaður lögmannafél...

Óveður og miðlunartillaga ríkissáttasemjara 30.01.2023

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir Austan stormur með snjókomu er skollinn á landinu sunnan- og vestanverðu. Appelsínugul viðvörun er í gildi fá Vestfjörðum suður og austur með landinu allt að Djúpavogi að höfuðborgarsvæðinu undanskildu. Þar er gul viðvörun fram á nótt en víða er bæði blint og hált. Magnús Geir Eyjólf...

Ákært í hoppukastalamáli, deilt um miðlunartillögu, grágæsaveiðibann 27.01.2023

Spegillinn 27. janúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Fimm hafa verið ákærðir fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna fjögurra barna sem slösuðust í hoppukastala á Akureyri fyrir átján mánuðum. Forseti bæjarstjórnar á Akureyri er meðal sakborninga, samkvæmt heimildum fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá. Sta...

Miðlunartillaga og skriðdrekar 26.01.2023

Miðstjórn ASÍ ræðir nú um ákvörðun ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Stjórn Eflingar lýsir vantrausti á ríkissáttasemjara. Hættustigi Almannavarna var lýst yfir á Patreksfirði í dag eftir að krapaflóð féll inn í bæinn. Enginn slasaðist í flóðinu, sem kom úr sama farvegi og mannskætt flóð sem varð fyrir fjörutíu árum. Níu Palestínubúar létu...

Katrín og Scholz, loftslagskvíði og veiruskita 25.01.2023

Forsætisráðherra segir kröfur Tyrkja og vinnubrögð í tengslum við umsókn Finna og Svía um aðild að Nató alls ekki viðeigandi. Katrín og kanslari Þýskalands funduðu í Berlín í dag þar sem innrás Rússa í Úkraínu bar hæst. Bandaríkjamenn ætla að senda Abrams skriðdreka til Úkraínu. Sífellt fleiri ríki heita vopnasendingum til landsins. Lægðir eru væntanlegar á færibandi yfir landið á næstu dögum. Þei...

Kjaradeila Eflingar við SA og breytingar á útlendingalögum. 24.01.2023

Spegillinn 24. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Davíð Torfi Ólafsson framkvæmdastjóri Íslandshótela telur að starfsmenn þar samþykki ekki verkfallsboðun Eflingar. Bjarni Pétur Jónsson talaði við hann. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra harma bæði að...

Verkfallsboðun Eflingar og eitranir vegna nikótínpúða 23.01.2023

Spegillinn 23. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Atkvæðagreiðsla um verkfall 300 félagsmanna í Eflingu sem vinna á Íslandshótelum byrjar á morgun. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar býst við að verkfallsboðun fyrir 7. febrúar verði samþykkt. Kristófer Oliversson formaður Félags fyrirtækja í...

Deila Eflingar og SA, skíðalyfta bilaði, stuðningur við Úkraínu. 20.01.2023

Spegillinn 20. janúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Samninganefndir Eflingar og Samtaka atvinnulífsins til fundar á þriðjudag. Töluvert ber í milli að sögn Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara og deilan er stál í stál. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við hann. Tuttugu manns sátu fastir í lyftu í Hlíðarfja...

Dómsmálaráðherra um rafbyssur og vegur rofinn vegna asahláku 19.01.2023

Spegillinn 19. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. Kona á fertugsaldri varð úti ofarlega í Mosfellsbæ í óveðrinu sem gekk yfir rétt fyrir jól. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra segir að heimild til lögreglu um notkun rafbyssa sem gefin var undir áramót hafi verið lengi í undirbúningi og enginn felul...

Hryðjuverkamál, þyrluslys og minni tekjur af bílum 18.01.2023

Dómari í hryðjuverkamálinu íhugar að vísa hryðjuverkalið málsins frá. Báðir sakborningar neituðu sök við þingfestingu í dag. Læknir sem grunaður er um að valda sex sjúklingum ótímabærum dauða er aftur kominn til starfa á Landspítala. Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt að fara í tímabundið átaksverkefni í samráði við sjálfstætt starfandi barnalækna og barnageðlækna til þess að stytta biðlista eftir...

Auðlindin okkar og norrænt samstarf 17.01.2023

Spegillinn, 17. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir. Ágreiningur um veiðigjald og hvernig megi hámarka hag samfélagsins af sjávarútvegi verður áfram þrætuepli, að mati Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem hefur tekið við sextíu bráðabirgðatillögum starfshópa og vonar að þær skerpi sýn. Lokatillögur þeirr...

Rafmagnsleysi, þjóðarhöll og mafíuforingi handtekinn 16.01.2023

Rafmagnslaust var á öllum Suðurnesjum í rúma tvo klukkutíma í dag. Rafmagn er komið á að nýju en enn er bið á að heitt og kalt vatns streymi í öll hús. . Hjúkrunarfræðingur sem ákærð er fyrir að verða sjúklingi á geðdeild að bana neitar sök. Hún er ákærð fyrir að þvinga næringardrykk ofan í sjúklinginn. Breska ríkisstjórnin hefur beitt neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að frumvarp um kynrænt s...

Bráðaþjónusta, heimgreiðslur í Hafnarfirði. lúxushótel við Skálafell 13.01.2023

Spegillinn föstudaginn 13. janúar 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Í dag var gefin út skýrsla um bráðaþjónustu í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Í skýrslunni eru lagðar fram 39 tillögur að breytingum og umbótum sem hægt er að ráðast í á næstu árum á ýmsum sviðum eins og mönnun, sjúkraflutningum, þjónustu utan höfuðborgarsvæ...

HM að hefjast, matarsóun og hungursneyð 12.01.2023

Spegillinn 12. janúar 2023. Náttúruverndarsinnar fagna því að framkvæmdaleyfi Hnútuvirkjunar hafi verið fellt úr gildi. Sveitarstjóri í Skaftárhreppi segist vera vonsvikinn. Íslenska karlalandsliðið í handbolta er í þann mund að reima á sig skóna og klína harpixi í lófann. Fyrsti leikur liðsins á heimsmeistaramótinu er í kvöld gegn Portúgal. Þrátt fyrir vitundarvakningu og áskoranir er ennþá einum...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.