Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Author
Sölvi Tryggvason
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 5, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#173 Lukka Pálsdóttir með Sölva Tryggva 19.03.2023 1:27:53
Lukka Pálsdóttir er eigandi Greenfit, sem sérhæfir sig í heilsufarsmælingum. Lukka er menntaður sjúkraþjálfari sem hefur oftar en einu sinni skipt um takt í lífinu og tekið stökkið til að elta ástríðuna. Í þættinum fara Sölvi og Lukka yfir stórmerklegt lífshlaup Lukku, fyrirtækjarekstur, að þora að taka áhættur og auðvitað allt það helsta í lífsstíl og heilsu.
#172 Þór Guðna snýr aftur 15.03.2023 1:45:26
Þór Guðnason hefur unnið við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í áratugi. Í þessum þætti ræða Sölvi og Þór um heilsu, menningarheima til forna, hugvíkkandi efni, kerfið og fleira.
#171 Einar Carl með Sölva Tryggva 12.03.2023 1:28:24
Einar Carl Axelsson er stofnandi Primal Iceland. Einar er einnig fyrrverandi landsliðsmaður í Taekeondo, sem skipti um takt eftir að hafa hryggbrotnað á 5 stöðum. Hann neyddist til að leita allra leiða til að geta hreyft sig eðlilega á ný. Það ferðalag endaði með stofnun Primal Iceland, þar sem unnið er með alla þætti heilsu.
#170 Fiskikóngurinn með Sölva Tryggva 05.03.2023 1:06:31
Kristján Berg, oft kallaður Fiskikóngurinn hefur í áratugi verið einn stærsti fisksali Íslands. Í þættinum ræða Kristján og Sölvi um andlega heilsu, vinnusemi, reskstur fyrirtækja og auðvitað fiskinn.
#169 Iva Adrichem með Sölva Tryggva 26.02.2023 1:28:19
Iva Marín Adrichem er söngkona og lögfræðinemi sem segir skoðanir sínar umbúðalaust. Iva, sem hefur verið blind frá fæðingu, var nýverið slaufað af Ferðamálastofu fyrir skoðanir sínar. Í þættinum ræða Iva og Sölvi um pólariseringu, hatursorðræðu, minnihlutahópa, frelsi til skoðana og margt fleira.
#168 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 22.02.2023 1:10:33
Brynjar Níelsson er lögfræðingur, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um umsvif ríkisins, stóra bróður, innflytjendamál, réttrúnað og margt fleira.
#167 Evert Víglunds með Sölva Tryggva 19.02.2023 1:11:51
Evert Víglundsson er eigandi Crossfit Reykjavík og hefur í áraraðir unnið við allt sem snýr að hreyfingu og heilsu. Í þættinum fara Evert og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.
#166 Vilhjálmur Andri með Sölva Tryggva 15.02.2023 1:08:10
Vilhjálmur Andri Einarsson gjörbreytti lífi sínu með kælingu og öndun eftir að hafa verið orðinn illa haldinn af stanslausum verkjum, þunglyndi og mikilli notkun lyfja og áfengis. Í þættinum ræða Sölvi og Vilhjálmur ótrúlega sögu Vilhjálms, leiðina að bata og vinnuna við að hjálpa öðrum.
#165 Sara Pálsdóttir með Sölva Tryggva 12.02.2023 1:11:46
Sara Pálsdóttir er menntaður lögfræðingur sem var komin langt inn í fíkn, stöðuga verki og sjálfshatur þegar hún fann leiðina út. Eftir það var ekki aftur snúið og í dag hefur hún lagt lögfræðistörfin á hilluna og vinnur nú við að hjálpa fólki.
#164 Gummi Emil með Sölva Tryggva 09.02.2023 55:00
Guðmundur Emil Jóhannsson er einkaþjálfari og ástríðufullur um allt sem snýr að heilsu. Hann gjörbreytti lífi sínu eftir að hafa endað á spítala og glímt við erfið veikindi. Gummi Emil hefur vakið mikla athygli fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum og segist brenna fyrir það að hjálpa öðrum.
#163 Sveinn Hjörtur með Sölva Tryggva 05.02.2023 1:00:47
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson hefur marga fjöruna sopið. Sem barn upplifði hann morð á bróður sínum, sem markaði allt framhaldið. Hann fékk köllun til að hjálpa öðrum og starfaði lengi sem varðstjóri hjá 112, þar sem hann sá og upplifði hluti sem flestir sjá aldrei. Óafgreidd áföll enduðu svo með því að hann var orðinn 200 kíló og kominn í hjólastól. En eftir að hafa gjörbreytt lífi sínu hefur hann a...
#162 Arnar Þór með Sölva Tryggva 31.01.2023 1:42:50
Arnar Þór Jónsson er lögfræðingur og varþingmaður. Í þættinum ræða Arnar og Sölvi um hlutverk ríkisnis, Mikilvægi þess að vera hugrakkur, fasisma, frelsi og fleira.
#161 Ásdís Olsen með Sölva Tryggva 29.01.2023 1:11:47
Ásdís Olsen hefur um árabil starfað við fjölmiðla, kennslu og fleira. Hún er þekkt fyrir að fara óhikstað sínar eigin leiðir og varpa ljósi á minna þekktar hliðar samfélagsins. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um fjölmiðlana, getuna til að fara eigin leiðir, samfélagsmál og margt fleira.
#160 Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva (Hluti 2) 24.01.2023 1:00:22
Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem þurfti að gjörbreyta lífi sínu eftir mikla erfiðleika. Í þættinum ræða Sölvi og Þórarinn ótrúlegt ferðalag Þórarins til bata, skömm hjá karlmönnum, frelsi frá áliti annarra og margt fleira.
#159 Þórarinn Ævars með Sölva Tryggva (Hluti 1) 23.01.2023 55:53
Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem var kominn algjörlega á botninn í mikla lyfjafíkn og djúpt þunglyndi. Í þættinum lýsir hann ótrúlegri atburðarrás sem á endanum varð til þess að hann spyrnti sér frá botninum og náði bata.
#158 Axel Pétur með Sölva Tryggva 22.01.2023 1:14:35
Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru talsvert langt fyrir utan boxið. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta í samsæriskennigum. Allt frá stofnun seðlabankanna, hátíð aflanna sem ráða og ríkasta eina prósentinu yfir í næstu spádóma Axels.
#157 Eva Hauks og Jón Steinar með Sölva Tryggva 16.01.2023 1:09:13
Eva Hauksdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson eru bæði lögmenn og þekkt fyrir að gefa engan afslátt á sannfæringu sinni. Í þættinum ræða þau um réttarkerfið, getuna til að standa með sannfæringu sinni, hætturnar við lögregluríki og alræði og margt fleira.
#156 Matti Ósvald með Sölva Tryggva 11.01.2023 1:05:12
Matti Ósvald er markþjálfi og heilsuráðgjafi. Í þættinum ræða Sölvi og Matti um sögu Matta, karlmennsku í nútímanum, leiðir til að ná jafnvægi og margt fleira.
#155 Erla Bolladóttir með Sölva Tryggva 08.01.2023 1:04:18
Erla Bolladóttir sat mánuðum saman í gæsluvarðhaldi og eingangrun sem ung kona vegna eins umtalaðasta sakamáls Íslandssögunnar, Geirfinnsmálsins. Íslenska Ríkið greiddi henni nýlega miskabætur vegna málsins. Í þættinum fer Erla yfir málið allt, lífshlaup sitt, sátt við örlögin og fleira.
#154 Sara María með Sölva Tryggva 04.01.2023 1:09:50
Sara María Júlíusdóttir er fatahönnuður og lífsstílsráðgjafi sem stundar nú mastersnám í hugvíkkandi efnum, fyrst Íslendinga. Í þættinum ræða Sara María og Sölvi um byltinguna sem er í gangi bæði hér og í heiminum öllum.
#153 Sigurjón Ernir með Sölva tryggva 01.01.2023 1:25:16
Sigurjón Ernir Sturluson er ofurhlaupari og afreksíþróttamaður. Í þættinum fara Sigurjón og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira.
#152 Herbert Guðmundsson með Sölva Tryggva 26.12.2022 1:05:24
Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, ótrúlegt lífshlaup hans og margt fleira.
#151 Geir H.Haarde með Sölva Tryggva 18.12.2022 55:07
Geir H.Haarde er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Geir og Sölvi um hrunið, landsdómsmálið, fundina með Pútín og Trump, pólariseringu í samfélaginu og margt fleira.
#150 Óttar og Jóhanna með Sölva Tryggva 13.12.2022 1:11:39
Hjónin Óttar Guðmundsson og Jóhanna Þórhallsdóttir höfðu þekkst í áratugi þegar þau urðu par. Í þættinum ræða þau um lykilinn að farsælu sambandi, hvað gefur lífinu gildi, pistla Óttars og margt fleira.
#149 Hannes Hólmsteinn með Sölva Tryggva 11.12.2022 1:17:03
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er háskólaprófessor og rithöfundur. Í þættinum ræða Sölvi og Hannes um hugrmyndafræði í stjórnmálum, stöðu upplýsingamiðla, nýja bók Hannesar og margt margt fleira.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.