Sölvi Tryggvason

Sölvi Áskriftarþættir

Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir

Author

Sölvi Tryggvason

Category

Education

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#148 Sara Odds með Sölva Tryggva 08.12.2022

Margrét Sara Oddsdóttir er lögfræðingur, yogakennari og markþjálfi. Í þættinum ræða hún og Sölvi um skuggavinnu, ástríðu, leiðir til að bæta sjálfan sig, stöðu drengja og margt fleira.

#147 Geir Ólafs með Sölva Tryggva 05.12.2022

Geir Ólafs kom inn í íslenskt tónlistarlíf með krafti, svo að eftir var tekið. Í þættinum ræða Sölvi og Geir um feril Geirs, sönginn fyrir Pútín, tengingarnar við Kólombíu, kvíða, náungakærleik og margt fleira.

#146 Wayne Paul með Sölva Tryggva 01.12.2022

Wayne Paul er sérfræðingur í hreyfingu og rekur nú Movelab, sem hefur það að markmiði að hjálpa fólki að bæta hreyfigetu sína. Wayne kom upphaflega til Íslands sem ferðamaður, en varð ástfanginn af landinu og settist hér að. Í þættinum ræða hann og Sölvi um hreyfingu, heilsu, leiðir til að bæta sig og margt fleira.

#145 Einar Kárason með Sölva Tryggva 29.11.2022

Einar Kárason er einn farsælasti rithöfundur Íslands og hefur gefið út ógrynni bóka sem notið hafa mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Einar og Sölvi um HM í fótbolta, ristkoðun í listum og bókmenntum, feril Einars og margt fleira.

#144 Kristján Einar með Sölva Tryggva 25.11.2022

Kristján Einar Sigurbjörnsson er nýkominn til Íslands eftir að hafa setið 8 mánuði í fangelsi á Spáni. Í fangelsinu upplifði hann hræðilega hluti sem flestir geta bara ímyndað sér úr bíómyndum. Í þættinum segir hann söguna alla.

#143 Inga Sæland með Sölva Tryggva 21.11.2022

Inga Sæland er formaður Flokks fólksins. Í þættinum ræðir hún um hvað þarf að laga í íslensku samfélagi, hvað gerist á bakvið tjöldin á Alþingi, sorgina eftir að hafa misst 3 unga ástvini og margt margt fleira.

#142 Nicolai Engelbrecht með Sölva Tryggva 16.11.2022

Nicolai Engelbreght er ungur maður sem um áraraðir var fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, en fann svo leiðina út og hjálpar nú föngum og öðrum við að bæta líf sitt. Í þættinum fer hann yfir árin í undirheimunum, hvernig hann hefur reynt að bæta fyrir brot sín, karlmennsku og margt fleira.

#141 Hjalti Úrsus með Sölva Tryggva 14.11.2022

Hjalti Úrsus Árnason er einn öflugasti aflraunamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræðir hann um gullaldarárin í kraftasportinu, æfingarnar og ferðalögin með Jóni Páli og réttarmorðið á syni hans, sem nýlega lést aðeins 29 ára að aldri.

#140 Margrét Friðriksdóttir með Sölva Tryggva 09.11.2022

Margrét Friðriksdóttir rekur fréttamiðilinn  frettin.is. Hún hefur verið mjög umdeild fyrir skoðanir sínar á undanförnum árum. Í þættinum ræðir hún föðurmissirinn, tímann þegar hún flakkaði um Indland í leit að svörum, hvatvísina og margt fleira.

#139 Kristján Jóhannsson: Um ástina, fjölmiðlahneykslið og stærstu stundirnar 07.11.2022

Kristján Jóhannsson er þekktasti óperusöngvari Íslandssögunnar. Hann hefur sungið í mörgum af stærstu listahúsum heims í áratugi. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján ótrúlegan feril Kristjáns, árin áður en stóra tækifærið kom, fjölmiðlatryllinginn í kringum styrktartónleikana um árið og margt margt fleira.     

#138 Sigga Kling snýr aftur 01.11.2022

Sigríður Klingenberg er löngu orðin landsþekkt fyrir stórmerkilegan fatastíl, spádóma og skemmtanir um allt land. Í þættinum ræða Sigga og Sölvi um ótrúlegar sögur af Siggu, getuna til að standa með sjálfum sér og margt margt fleira.

#137 Sergio Moreno með Sölva tryggva (Ferðin til Kólumbíu) 27.10.2022

Sergio Moreno er ungur maður sem fæddist í versta fátækrahverfinu í Medellin í Kólombíu . Sölvi tók viðtalið þegar hann var sjálfur á ferðalagi í Suður-Ameríku. Sergio vann sig út úr fátæktinni og rekur nú ferðaþjónustui. Í þættinum lýsir hann því hvernig var að sofna við skotbardaga sem barn, sjá lík á götunum, eiga vini í verstu glæpaklíkum Kólombíu og mörgu fleiru.

#136 Tinna Marína með Sölva Tryggva 24.10.2022

Tinna Marína Jónsdóttir hefur unnið til verðlauna í lyftingum aðeins örfáum árum eftir að hafa greins með MS-sjúkdóminn. Eftir að hafa farið niður í 45 kíló og farið í djúpan dal, hefur hún unnið upp þrek, líkamlegan styrk og jákvætt hugarfar á undraverðan máta. Í þættinum fara Sölvi og Tinna yfir vegferð Tinnu, allt frá keppni í Idol stjörnuleit fram á daginn í dag. 

#135 Þór Guðnason með Sölva Tryggva (Hluti 2) 17.10.2022

Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.

#134 Þór Guðnason með Sölva Tryggva (Hluti 1) 17.10.2022

Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.

#133 Guðni Gunnars með Sölva Tryggva 15.10.2022

Guðni Gunnarsson hefur í áratugi starfað við allt sem snýr að andlegri og líkamlegri heilsu bæði á Íslandi og erlendis. Í þættinum ræða Sölvi og Guðni um feril Guðna, árin í Los Angeles, leiðir til að bæta heilsu og margt fleira.

#132 Guðjón Heiðar með Sölva Tryggva 13.10.2022

Guðjón Heiðar Valgarðsson er eins konar andlit samsæriskenninga á Íslandi. Eftir að hafa haft frekar hefðbundnar skoðanir á unga aldri varð kúvending eftir atburðina 11. september 2001. Síðan þá hefur Guðjón Heiðar efast um mjög margt sem er borið á borð fyrir okkur. Í þættinum ræða hann og Sölvi um samsæriskenningar, upplýsingaflæði, fjölmiðla og fleira.

#131 Haffi Haff með Sölva Tryggva 10.10.2022

Hafsteinn Þór Guðjónsson eða Haffi Haff skaust fram á sjónarsviðið eftir vaska framgöngu í undankeppni Eurovision. Síðan þá hefur hann komið fram víða og vakið athygli hvert sem hann fer. Í þættinum fara Sölvi og Haffi yfir feril Haffa,  pólariseringu í samfélaginu, trúnna, það að mega vera öðruvísi og margt fleira.

#130 Erna Ýr með Sölva Tryggva 05.10.2022

Erna Ýr Öldudóttir blaðamaður hefur oft vakið athygli fyrir að ganga gegn meginstraumnum í ýmsum málum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn í fjölmiðlum, stöðuna í heimsmálum, samfélagsgerðina á Íslandi og margt fleira.

129# Kristinn Sigmarsson með Sölva Tryggva 03.10.2022

Kristinn Sigmarsson er ungur maður sem hefur sérhæft sig í öllu sem snýr að heilsu og bættum lífsstíl. Eftir að hafa ætlað að taka eigið líf aðeins 15 ára gamall lagði hann allt í sölurnar til að finna hamingjuna og starfar nú við að hjálpa fólki. 

#128 Iaroslav með Sölva Tryggva 29.09.2022

Iaroslav Lekhterov Kom hingað frá Úkraínu eftir að hafa flúið stríðið í heimalandinu. Eiginkona hans og barn komust úr landi, en honum var meinað að fara yfir landamærin. Eftir að hann náði loks að flýja bað konan hans um skilnað. Hann ákvað því að flytja til Íslands. Í þættinum ræðir hann um dagana sem spreningarnar byrjuðu, ótrúlegt ferðalag til að komast úr landi og hvernig það er að vera komin...

#127 Hafsteinn Núma með Sölva Tryggva 26.09.2022

Hafsteinn Númason hefur gengið í gegnum meira en flestir. Hann hefur misst 4 börn, þar af 3 í snjóflóðinu á Súðavík, auk þess að lenda svo sjálfur í alvarlegu slysi. Í þættinum ræða Hafsteinn og Sölvi um atburðina fyrir vestan, þrautseigju, trúna á guð, tilgang og margt fleira.

#126 Þórhildur með Sölva tryggva 19.09.2022

Þórhildur Magnúsdóttir er verkfræðingur sem vakið hefur athygli fyrir að tala opinberlega um að vera í opnu ástarsambandi. Í þættinum ræða Sölvi og Þórhildur um sambönd, afbrýðissemi, samfélagsnorm og margt fleira.    

#125 Jón Steinar með Sölva Tryggva 14.09.2022

Jón Steinar Gunnlaugsson er hæstaréttarlögmaður og prófessor í lögfræði. Hann hefur vakið athygli í gegnum árin fyrir að segja skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Jón Steinar um samfélagsmál, fíkniefni, dómstóla og margt fleira.    

#124 Arnþrúður Karls með Sölva Tryggva 12.09.2022

Arnþrúður Karlsdóttir hefur starfað við fjölmiðla í 40 ár. Hún var líka ein fyrsta lögreglukona Íslands, er með 3 háskólagráður og var afrekskona í íþróttum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn, allt frá stofnun Rásar 2 til áranna 20 á Útvarpi Sögu.  

Listen to the Sölvi Áskriftarþættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.