Sölvi Tryggvason

Sölvi Áskriftarþættir

Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir

Author

Sölvi Tryggvason

Category

Education

Latest episode

Jul 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#198 Gunnar Smári með Sölva Tryggva 25.06.2023

Gunnar Smári Egilsson er þrautreyndur blaðamaður, ristjóri og samfélagsrýnir. Í þættinum stikla Sölvi og Gunnar Smári á stóru um stöðuna í samfélaginu, menningarstríðið, stéttskiptingu og margt fleira.

#197 Hafþór Júlíus með Sölva Tryggva 21.06.2023

Hafþór Júlíus Björnsson er aflraunamaður, leikari og samfélagsmiðlastjarna um allan heim. Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Hafþór um feril Hafþórs, Game of Thrones, aflraunirnar og margt fleira.

#196 Sara Páls snýr aftur 18.06.2023

Sara Pálsdóttir er lögfræðingur, sem nú starfar nær eingöngu sem dáleiðari. Sara var langt leidd í fíkn, verkjum og sjálfshatri þegar hún fann leiðina út og  eftir það var ekki aftur snúið. Sara snýr aftur til Sölva og fara þau yfir allt frá leiðum til að bæta andlega heilsu yfir í sögu Söru og samfélagsmál.

#195 Kalli Snæ snýr aftur 14.06.2023

Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem var útskúfað í faraldrinum fyrir að tala gegn línu stjórnvalda. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera og segir læknum hafa verið bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og næstu skref.

#194 Þorbjörg Hafsteinsdóttir með Sölva Tryggva 11.06.2023

Þorbjörg Hafsteinsdóttir er hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öllu sem snýr að heilsu. Bækur hennar hafa vakið athygli víða um heim og Þorbjörg var vel á undan sinni samtíð í mörgu sem hún fjallar um í bókunum. Í þættinum ræða Sölvi og Þorbjörg um lífshlaup Þorbjargar, heilsu, samfélagsmál og fleira.

#193 Götustrákar með Sölva Tryggva 06.06.2023

Bjarki Viðarsson og Aron Mímir Gylfason eru götustrákar. Þeir hafa báðir komið til baka inn í lífið eftir áralanga neyslu og vilja nú láta gott af sér leiða. Í þættinum ræða Sölvi og götustrákar um lífshlaup strákanna, skilaboð samfélagsins, tilganginn og margt fleira.

#192 Guðrún Bergmann snýr aftur 04.06.2023

Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og margt fleira. Í þættinum fara Sölvi og Guðrún yfir samfélagsmál, heilsu, fjölmiðla, samsæriskenningar og fleira.

#191 Ben Brown með Sölva Tryggva 30.05.2023

Benjamin Brown er frumkvöðull sem hefur farið eigin leiðir í lífinu. Hann náði hratt nærri milljón fylgjendum á samfélagsmiðlum, en var settur í bann fyrir að gagnrýna aðgerðir í heimsfaraldrinum. Í þættinum ræða Sölvi og Ben um karlmennsku, hugrekki, breytingarnar í heiminum og margt fleira.

#190 Ólafur Halldórsson með Sölva Tryggva 28.05.2023

Ólafur Halldórsson gjörbeytti lífi sínu eftir bakpokaferðalag um Afríku sem endaði með því að hann stofnaði munaðarleysingjaheimili í Kenýa. Hann hafði í áraraðir ferðast um allan heim í leit að bestu fíkniefnum veraldar, meðal annars í Marokkó,Indlandi og Pakistan. Á ótrúlegan hátt náði hann að komast til baka úr neyslunni og í dag er líf hans helgað starfinu í Afríku.

#189 Gunnar Wium með Sölva Tryggva 21.05.2023

Gunnar Wium kennari og hlaðvarpsstjórnandi hefur marga fjöruna sopið. Allt frá mikilli neyslu sem sendi hann alveg á botninn yfir í andlega vakningu. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um stórmerkilega sögu Gunnars, lyfjafyrirtækin, hugvíkkandi efni, stöðu samfélagsins og margt fleira.

#188 Sigmundur Stefánsson með Sölva Tryggva 16.05.2023

Sigmundur Stefánsson hefur hlaupið tugi maraþonhlaupa eftir að hafa fengið hjartaáfall og síðar krabbamein. Hann segir læknana fyrst hafa sagt sig ruglaðan, en nú sé hann notaður sem skólabókardæmi um það sem er mögulegt. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um ótrúlegar þrekraunir, hugarfar, leiðir til að sigrast á erfiðleikum og fleira.

#187 Haraldur Erlendsson með Sölva Tryggva 14.05.2023

Haraldur Erlendsson er þrautreyndur geðlæknir sem vann um árabil í Bretlandi. Í þættinum ræða Sölvi og Haraldur um fjórða valdið, kerfin, lýðræði, geðheilsu þjóðarinnar og margt fleira.

#186 Guðni Gunnars snýr aftur 10.05.2023

Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Hann hefur svo áratugum skiptir unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Í þættinum ræða hann og Sölvi um andlega og líkamlega heilsu, vegferð Guðna, helstu verkefni fólks í átt að betra lífi og margt fleira.

#185 Sigmundur Davíð með Sölva Tryggva 07.05.2023

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Sölvi og Sigmundur um menningarstríð, stjórnmálamenn, að þora að segja hug sinn og margt fleira.

#184 Krummi mínus með Sölva Tryggva 03.05.2023

 Í áður óbirtum þætti ræða Sölvi og Krummi um magnaðan feril Krumma, rokkið, lífsstílinn, hæðirnar og lægðirnar. Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson er betur þekktur sem Krummi í Mínus. Eftir ótrúlega velgengni rokksveitarinnar Mínus um allan heim kom harkaleg lending eftir misjafnan lífsstíl í kringum rokkið. Í þættinum ræða Sölvi og Krummi meðal annars um tónlistina, djammið, ótrúlegan lífsstíl í kr...

#183 Tryggvi Hjalta með Sölva Tryggva 30.04.2023

Tryggvi Hjaltason, greinandi og gagnasérfræðingur hefur vakið mikla athygli í þjóðmálaumræðunni undanfarið. Í þættinum ræða Tryggvi og Sölvi um menntakerfið, snjallsímanotkun, aga, trú og trúarbrögð og margt fleira.

#182 HJ Elite með Sölva Tryggva 23.04.2023

Hlynur Jónsson er hótelstjóri og skemmtikraftur sem hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtileg innslög á samfélagsmiðlum. Í þættinum ræða Hlynur og Sölvi um álit annarra, ferðalög, baráttu Hlyns við bakkus og margt fleira.

#181 Hallgrímur Helgason með Sölva Tryggva 20.04.2023

Hallgrímur Helgason er einn þekktasti rithöfundur Íslandssögunnar. Í áður óbirtum þætti ræða Hallgrímur og Sölvi um magnaðan feril Hallgríms, samfélagsmál, listsköpun og margt fleira.

#180 Guðjón Heiðar snýr aftur 16.04.2023

#180 Guðjón Heiðar snýr aftur Guðjón Heiðar Valgarðsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir skoðað alls milli himins og jarðar þegar kemur að samsæriskenningum. Í þættinum ræða Sölvi og Guðjón um allt það helsta sem er að gerast í upplýsingaflæði fyrir utan meginstraumsfjölmiðlana.

#179 Guðmundur Ingi með Sölva Tryggva 10.04.2023

Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu, félags fanga. Hann sat sjálfur í fangelsi í 16 ár fyrir fíkniefnasmygl, bæði í Danmörku og á Íslandi, en er nú frjáls maður. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um fangelsi og fangelsismál og hliðar samfélagsins og mannlegs eðlis sem fæstir vilja skoða. Þeir fara yfir sögu Guðmundar sjálfs, hvernig hann endaði á rangri braut og hvað við getum gert til...

#178 Einar Bárða með Sölva Tryggva 06.04.2023

Einar Bárðason er löngu orðinn landsþekktur sem lagasmiður og umboðsmaður. Þessum fjölhæfa manni er margt til lista lagt. Í áður óbirtum þætti fara Sölvi og Einar yfir feril Einars, getuna til að sigrast á erfiðleikum, að finna neistann og margt margt fleira.

#177 Helgi Áss með Sölva Tryggva 02.04.2023

Helgi Áss Grétarsson varð stórmeistari í skák aðeins 17 ára gamall. Hann er lögfræðingur og hefur vakið athygli fyrir sterkar skoðanir á samfélagsmálum sem oft ganga gegn meginstraumnum.

#176 Ferðin til Tansaníu 29.03.2023

Sölvi fór nýverið til Tansaníu, þar sem hann tók meðal annars viðtal við athafnamann sem fæddist þar í landi, flúði svo land til Bretlands þar sem hann bjó um tíma í almenningsgörðum og á meðal útigangsfólks. En smám saman náði hann að koma sér út úr erfiðleikunum og í dag á hann og rekur hótel og veitingastaði bæði á Ítalíu og Zanzibar.  

#175 Halldór Einarsson með Sölva Tryggva 26.03.2023

Halldór Einarsson oft kenndur við Henson er athafnamaður af lífi og sál sem hefur át ótrúlega viðburðarríkt líf. Í þættinum fer hann yfir magnaðar sögur úr öllum heimshornum og helstu sorgir og sigra í gegnum tíðina.

#174 Hemmi Hreiðars með Sölva Tryggva 24.03.2023

Hermann Hreiðarsson er einn þekktasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar. Í áður óbirtum þætti fara Sölvi og Hemmi yfir magnaðan feril Hermanns, sögur úr bransanum og margt margt fleira.

Listen to the Sölvi Áskriftarþættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.