Benedikt bókaútgáfa
Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu
Í Sólinni er rætt um bækur sem koma út hjá Benedikt bókaútgáfu. Höfundar lesa úr og segja frá verkum sínum og góðir gestir spjalla um þýddar bækur.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fríða Þorkelsdóttir ræðir Kæri fáviti eftir Virginie Despantes 25.06.2026 40:40
Upptaka frá Sólarkvöldi í Skáldu 18. júní 2026. Einar Kári Jóhannsson ræðir við Fríðu Þorkelsdóttur um skáldsöguna Kæri fáviti eftir Virginie Despentes, í íslenskri þýðingu Kristínar Jónsdóttur. Um bókina: Þrjár ólíkar raddir segja frá – útskúfaður rithöfundur, þekkt leikkona og róttækur femínisti. Í gegnum tölvupóstsamskipti þeirra fáum við innlit í heim gegnsýrðum af kynbundinni valdbeitingu, af...
Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman um Þyngsta frumefnið 15.12.2025 46:04
Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman Stefánsson um fimmtu ljóðabók hans; Þyngsta frumefnið. Upptakan var gerð fyrir framan fullan sal af fólki í Skáldu bókabúð 5. nóvember 2025.
Sigríður Hagalín ræðir Vegur allrar veraldar 08.12.2025 41:57
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Sigríði Hagalín Björnsdóttur um skáldsöguna Vegur allrar veraldar - Skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald af Hamingja þessa heims - Riddarasaga. Þau ræða söguna, sagnaritun, heimildir og söguleganskáldskap.
Dagur Hjartarson ræðir Frumbyrjur 25.11.2025 30:23
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Dag Hjartarson um skáldsöguna Frumbyrjur. Um bókina: Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir Fröken Dúllu: Ævisögu Jóhönnu Knudsen 18.11.2025 40:59
Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla: Ævisaga Jóhönnu Knudsen sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti...
Sif Sigmarsdóttir ræðir Allt sem við hefðum getað orðið 10.11.2025 36:44
Sif Sigmarsdóttir ræðir við Helgu Ferdinands um skáldsöguna Allt sem við hefðum getað orðið. Bókin fjallar um þrjár konur og leyndarmál sem leiðir þær saman. Blaðamaðurinn Lilja fær veður af því að hún sé líklegt fórnarlamb niðurskurðar. Þegar henni er falið að fjalla um nýútkomna bók um Annie Leifs, eiginkonu tónskáldsins Jóns Leifs, vakna hjá henni grunsemdir. Getur verið að mislyndi skjalavörðu...
Fríða Ísberg um Huldukonuna 07.11.2025 40:45
Fríða Ísberg ræðir við Einar Kári Jóhannsson um skáldsöguna Huldukonan. Þau ræða hvernig er að fylgja eftir fyrstu skáldsögu með bók númer tvö, fortíðarþrá, nútímavæðingu, rómans og margt fleira.
Natasha S. spjallar um Mara kemur í heimsókn 30.04.2025 34:54
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Natöshu S. um nýjustu ljóðabók hennar, Mara kemur í heimsókn. Bókin fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand í gamla heimalandi ljóðmælanda.
Fríða Ísberg spjallar um Stargate eftir Ingvild Rishøi 10.12.2024 55:14
Fríða Ísberg spjallar við Einar Kára Jóhannsson um skáldsöguna Stargate eftir Ingvild Rishøi. Stargate er jólaævintýri frá Noregi sem hefur farið sigurför víða um heim og endaði meðal annars á lista Oprah Winfrey yfir bækur ársins 2024. Fríða ræðir líka um útkomu Merkingar á ensku í sumar, kunningsskap þeirra Ingvild Rishøi og áhuga sinn á bókmenntum frá Norðurlöndum.
Eva Rún Snorradóttir spjallar um Eldri konur 25.11.2024 41:39
Eva Rún Snorradóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Eldri konur. Þau ræða þráhyggju höfundar fyrir eldri konum, bókmenntahátíðina Queer Situations og að kerlingabylting sé leiðin til að breyta heiminum til betri vegar.
Eva Rún Snorradóttir les úr Eldri konur 19.11.2024 5:14
Eva Rún Snorradóttir les úr sinni fyrstu skáldsögu, Eldri konur.
Þórdís Gísladóttir spjallar um Aðlögun og þýðingar 08.11.2024 43:13
Þórdís Gísladóttir ræðir við Einar Kára Jóhannsson um ljóðabókina Aðlögun. Þau ræða líka feril Þórdísar og þýðingar hennar á tveimur nýjum bókum, Þessir djöfulsins karlar eftir Andrev Walden og Æsku eftir Tove Ditlevsen.
Þórdís Gísladóttir les úr Aðlögun 08.11.2024 9:47
Þórdís Gísladóttir les ur sinni sjöttu ljóðabók, Aðlögun.
Halla Þórðardóttir spjallar um Sólin er hringur 08.11.2024 21:40
Halla Þórðardóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu ljóðabókina sína Sólin er hringur. Þau ræða um feril Höllu hjá Íslenska dansflokknum og hvernig dansinn smitast yfir í ljóðlistina.
Halla Þórðardóttir les úr Sólin er hringur 08.11.2024 2:45
Halla Þórðardóttir les úr sinni fyrstu ljóðabók, Sólin er hringur.
Jón Kalman Stefánsson les úr Himintungl yfir heimsins ystu brún 23.10.2024 3:56
Jón Kalman Stefánsson les upphafið á sinni fimmtándu skáldsögu; Heimintungl yfir heimsins ystu brún
Jón Kalman Stefánsson spjallar um Himintungl yfir heimsins ystu brún 23.10.2024 31:34
Jón Kalman Stefánsson spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fimmtándu skáldsögu; Himintungl yfir heimsins ystu brún. Þeir ræð Spánverjavígin, vinnubrögð rithöfunda, fræð úti í heimi og rapptónlist.
Tómas Ævar Ólafsson les úr Breiðþotum 23.10.2024 5:38
Tómas Ævar Ólafsson les valin kafla úr skáldsögunni Breiðþotur.
Tómas Ævar Ólafsson spjallar um Breiðþotur 23.10.2024 43:32
Tómas Ævar Ólafsson spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Breiðþotur. Þeir ræða uppgang öfgahugmynda, uppvöxt á Akranesi, gagnaleka og ást á pizzum!
Brynja Hjálmsdóttir les úr Friðsemd 23.10.2024 13:19
Brynja Hjálmsdóttir les upphafið á skáldsögunni Friðsemd.
Brynja Hjálmsdóttir spjallar um Friðsemd 23.10.2024 41:48
Brynja Hjálmsdóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Friðsemd. Einnig ræða þau um áhrif B-mynda, hrylling, uppáhaldshöfunda og nýja Nóbelsskáldið.
Dagur Hjartarson les úr Sporðdrekum 23.10.2024 9:37
Dagur Hjartarson les valin kafla úr skáldsögunni Sporðdrekar.
Dagur Hjartarson spjallar um Sporðdreka 23.10.2024 32:32
Dagur Hjartarson ræðir við Einar Kára Jóhannsson um nýjustu skáldsöguna sína; Sporðdrekar, bókmenntir, barnabækur, Nóbelsskáld og líf rithöfunda.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.