Söguskoðun hlaðvarp
Söguskoðun
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.
Author
Söguskoðun hlaðvarp
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 7, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
51 - Julius Caesar II. hluti 16.06.2022 1:13:27
Í þessum 50-51. þætti hlaðvarpsins í tveimur hlutum ræða Ólafur og Andri ævi og störf mögulega eins frægasta manns sögunnar. Julius Caesar hefur verið sagður einn merkasti stjórnmálaskörungur og herstjórnandi vestursins. Hann var upphafsmaður rómverska keisaradæmisins og eftir hann liggja djúp spor í söguvitund okkar heimshluta. Í seinni hlutanum ræða Ólafur og Andri feril Caesars frá því hann ger...
49 - Rússneska keisaradæmið 24.05.2022 1:40:47
Þessi þáttur er sjálfstætt framhald síðasta þáttar um uppruna Rússlands sem stórveldis. Pétur mikli færði höfuðborg keisaradæmisins frá Moskvu, þriðju Róm, vestur til Pétursborgar í upphafi 18. aldar og er sú breyting táknræn fyrir þá áherslu sem Rússar fóru nú að leggja á Evrópu á öllum sviðum. Á 18. öld varð rússneska keisaradæmið að evrópsku stórveldi. Árið 1812 stóðu Rússar uppi sem sigurveg...
48 - Þriðja Róm 12.05.2022 1:23:18
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri sögu Rússlands á miðöldum og frameftir til þess að skoða hvaðan þetta mikla veldi kemur, en hegðun Rússa sem stórveldi hefur verið mikið í umræðunni síðustu misseri. Stórfurstadæmið Moskva reis undan valdi Mongóla og austrómversku kirkjunnar á 15. öld og þandist hratt út. Rússland varð þegar fram liðu stundir að einu stærsta ríki veraldar. Samhliða þessu varð...
47 - Strategikon og herkænska Austrómverja 18.03.2022 1:19:46
Hernaður er mikið í deiglunni þessa dagana svo við höldum okkur á þeim nótunum að sinni. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hernað og herkænsku Austrómverska ríkisins en þetta gríska áframhald Rómarveldis átti í stöðugum ófriði við nágrannaþjóðir sína á öllum hliðum, nær stanslaust frá 6. öld og fram á 15. öld. Rómverjar höfðu mikla aðlögunarhæfni, bjuggu vel af digrum sjóðum gulls og óhætt...
46 - Rússarnir koma! 07.03.2022 1:48:51
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri innrás Rússa í Úkraínu sem er í brennidepli þessa dagana. Við erum að upplifa sögulega tíma og margir spá því að átökin í Úkraínu og uppgangur kalda stríðins milli vesturlanda og Rússlands sé upphafið að nýju sögulegu tímabili í Evrópu. Fréttaritari hlaðvarpsins í herbúðum NATO í Norður-Noregi segir frá því sem gengið hefur á í fjarvist hlaðvarpsins síðustu v...
45 - Leitin að eyjunni hans Ingólfs 10.01.2022 1:34:02
Í desember síðastliðnum kom út ný bók um landnám Íslands: Eyjan hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson. Í bók Ásgeirs eru meðal annars settar fram kenningar um veiðimennsku og útflutning rostungsafurða á Landnámsöld, en þær hugmyndir eru frekar nýlegar í rannsóknum á landnáminu. Um þetta hefur Bergsveinn Birgisson skrifað í bók sinni Leitin að svarta víkingnum sem kom út á íslensku árið 2016, en Bergsv...
44 - Jólaþáttur 2021 - Jólasögur með Söguskoðunarbræðrum 23.12.2021 2:21:04
Jólasveinar, jólabjór, heiðin jól, neysluhyggja og kapítalismi, jólahefðir, fæðing frelsarans, jólahirðfífl, paradísareyjar, jólalambið og jólagölturinn, jól í skotgröfum og jól undir kommúnismanum. Allt þetta og meira til ræða Söguskoðunarbræður í þessum jóla-special hlaðvarpsins fyrir jólin 2021. Upphafsstef: Þrjú á Palli - Það á að gefa börnum brauð. Af plötunni: Hátíð fer að höndum ein, 19...
43 - Hinsegin saga 12.12.2021 1:34:33
Réttindabarátta hinsegin fólks hefur náð fram miklum sigrum og viðhorfsbreytingum á Íslandi síðastliðna áratugi, og sú þróun er enn að eiga sér stað mjög hratt í okkar samtíma. Saga hinsegin fólks hefur verið blóði drifin vegna fordóma og ofsókna, og í sagnaritun hingað til hefur oft verið skautað yfir hinsegin veruleika vegna túlkunar sagnfræðinga eða skorts á heimildum. Nú er hins vegar öldin ön...
42 - Slésvíkurvandinn 03.12.2021 1:24:47
Frá miðbiki þarsíðustu aldar og fram á fyrri hluta þeirrar síðustu var stórt vandamál við landamæri Þýskalands og Danmerkur. Hertogadæmin tvö, Slésvík og Holstein, sem verið höfðu í persónusambandi við danska konunginn frá miðöldum, voru orðin að heitu bitbeini milli grannþjóðanna tveggja. Það þurfti tvö stríð og eina heimsstyrjöld til að leysa Slésvíkurvandann svokallaða, en svo nefndist vandamál...
41 - Ágústínus, hernaður og frjáls vilji 15.11.2021 1:39:53
Söguskoðun snýr aftur með nýtt season eftir talsvert hlé. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um heilagan Ágústínus frá Hippo, kirkjuföður og einn af áhrifamestu hugsuðum vestrænnar heimspeki. Ágústínus var uppi á síðfornöld, um það leyti er Rómarveldi var að líða undir lok í vestrinu og kristin kirkja var að fæðast. Hann er alla jafna talinn upphafsmaður kaþólsku kirkjunnar og voru heimspekiken...
40 - Þrjátíu ára stríðið 05.08.2021 1:27:10
Þessi þáttur er einnig aðgengilegur með hljóði og mynd á YouTube . Hlaðvarpið Söguskoðun snýr snögglega aftur úr sumarfríi með sérstakan sumar-special í tilefni þess að báðir meðlimir hlaðvarpsins eru staddir á sama stað - í óklipptri upptöku frá Borgarbókasafni. Í þessum fyrsta þætti hlaðvarpsins bæði í hljóði og mynd ræða Ólafur og Andri um Þrjátíu ára stríðið sem skók Þýskaland árin 1618-164...
39 - Baráttan um land Eiríks rauða 28.05.2021 1:17:33
Þegar Dansk-norska ríkið liðaðist í sundur eftir Napóleonsstyrjaldirnar árið 1814 varð Noregur hluti Svíþjóðar en Danir héldu yfirráðum yfir eyjunum á Atlantshafi: Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Rúmri öld síðar, á fyrri hluta 20. aldar, voru Norðmenn upprennandi veldi á norðurslóðum og Íslendingar stóðu í sjálfstæðisbaráttu og höfðu áætlanir um útrás á fiskimiðin. Þessar gömlu samveldisþjóðir de...
38 - Heimildaspjall II - Var Gamli sáttmáli uppspuni? 26.04.2021 1:48:32
Í þessum framhaldsþætti um heimildir ræða Ólafur og Andri um Ólafur og Andri um ýmsar tegundir heimilda og hvar þær er að finna. Gamli sáttmáli er tekinn til rækilegrar umræðu í ljósi rannsóknar Patriciu Pires Boulhosa frá 2005, sem hélt því fram að sáttmálinn væri ekki skrifaður árið 1262, heldur nokkrum öldum síðar. Er hægt að segja að þessi grundvallarheimild um sögu Íslendinga sé uppspuni? Ef...
37 - Heimildaspjall I - Af skinni á skjáinn 19.04.2021 1:30:51
Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um heimildir vítt og breytt. Allt starf sagnfræðinga byggist á notkun heimilda og eru þær gluggi okkar inn í fortíðina. Þegar fram líða stundir breytist verk sjálfra sagnfræðinganna í frumheimildir um þeirra eigin tíma, og þannig heldur hringrás heimildanna áfram. Rætt er um heimildagildi, sanngildi heimilda og aðgengi að heimildum, allt frá handritasöfnun á 1...
36 - Genghis Khan og veldi Mongóla 03.04.2021 1:28:24
Hirðingjaþjóðir Mið-Asíu hafa alltaf spilað rullu í sögu Evrópu og Austur Asíu beint og óbeint. Hræringar þeirra hafa komið af stað breytingum í báðum heimshlutum sem lengst av voru ótengdir, og einnig hafa þessar þjóðir verið brú á milli heimshlutanna þar sem viðskipti og sjúkdómar fengu að breiðast út. En steppuþjóðirnar hafa þó alltaf haft á sér ógnvænlega ímynd í Evrópu og Asíu og skapað mikin...
35 - Nýja Róm 24.03.2021 1:27:08
Þegar Vestrómverska ríkið féll með Rómarborg árið 476 e. kr. lifði Austrómverska ríkið áfram í mörg hundruð ár. Í raun lifði ríkið allt fram til ársins 1453 þegar borgin Konstantínópel, Nýja Róm, féll í hendur Tyrkja. Oft hefur Austrómverska ríkið, eða Býsanska ríkið, fallið í skuggann í sögunni. Gibbon kallaði Býsanska ríkið eina samfellda sögu spillingar og niðurifs - eins konar hægan dauða í þú...
34 - Var Ísland nýlenda? 07.03.2021 1:27:16
Árið 1944 varð Ísland sjálfstætt lýðveldi og rofnuðu þá síðustu böndin á milli Íslendinga og Danakonungs. Oft hefur því verið fleygt fram eftir unnið sjálfstæði að Ísland hafi verið dönsk nýlenda á fyrri öldum, og hafa fræðimenn rannsakað íslenska menningu og sögu með gleraugum eftirlendufræðanna. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um nýlendur og stöðu Íslands innan danska ríkisins frá lokum si...
33 - Siðaskiptin og síðasti Íslendingurinn 09.02.2021 1:35:13
Lengi hefur verið litið á Jón Arason, síðasta kaþólska biskupinn á Íslandi, sem þjóðhetju sem barðist gegn erlendu valdi, en hann og synir hans voru hálshöggnir árið 1550. Jón Sigurðsson kallaði nafna sinn eftirminnilega "síðasta Íslendinginn" í þessu samhengi, og síðasta mann fornaldarinnar. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um siðaskiptin sem sögulegt fyrirbæri, eða siðbótina - eða...
32 - Ísland og nasisminn 25.01.2021 1:34:34
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um íslenska nasista og tengsl þýskra nasista við Ísland á árunum fyrir síðari heimsstyrjöld. Ekki hefur mikið borið á sagnfræðilegri umræðu um þetta málefni síðastliðna áratugi, en mikil gróska var í útgáfu bóka fyrir um það bil 30 árum síðan, um íslenska nasista heima og erlendis og njósnir og ráðabrugg þýskra nasista á íslandi. Í þættinum er rætt um Flokk þj...
31 - Fall Rómarveldis og upphaf miðalda 11.01.2021 1:23:32
Söguskoðun snýr aftur ef dágott jólafrí á nýju ári 2021! Í dag spjalla Ólafur og Andri m.a. um tímabilaskiptingu sögunnar og þann atburð sem talinn er marka upphaf evrópskra miðalda og var vafalaust einn mest mótandi atburður í sögu álfunnar: Fall Rómarveldis. Róm var ekki byggð á einum degi, og ekki féll Rómarveldi daginn sem síðasta keisaranum var steypt af stóli árið 476. Hvenær féll Rómarveld...
30 - Pælingar um sögu og samtíma 07.12.2020 1:07:23
Í þættinum í dag ætluðu Andri og Ólafur að ræða meira um fornaldarsögu, en vegna anna urðu úr nokkuð samhengislausar og handahófskenndar umræður um sögu og samtíma. Við sögu kemur m.a. doktorsnám, tímaritaútgáfa, sagnfræðihlaðvörp og sagnfræðiráðstefnur, COVID-19 og hugmyndafræði og stjórnmál nútímans í sögulegu samhengi. Einnig er rætt um skjalaheimildir og skjalasöfn í nútíð fortíð, og framtíð....
29 - Þegar Alexander lagði Persaveldi 25.11.2020 1:31:32
Í þættinum í dag halda Andri og Ólafur til fornaldar og ræða um fornaldarsögu, aðdráttarafl hennar og áskoranir sem tengjast henni. Fókusinn er á mögulega einn frægasta mann fornaldar, og þann sem stundum hefur verið kallaður ein sú frægasta veraldlega mannkynssögupersónan. Það er Alexander III Makedóníukonungur - betur þekktur sem Alexander hinn mikli, en hann lagði undir sig hinn þekkta heim á ö...
28 - Íslenska söguendurskoðunin 15.11.2020 1:21:25
Undir lok síðustu aldar var mikið rætt um sögukennslu og framreiðslu sögunnar á Íslandi. Íslenskir sagnfræðingar höfðu þá á síðustu áratugum 20. aldar skorað á hina hefðbundnu söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar, sem ríkt hafði á Íslandi frá 19. öld, um að þjóðin hafi í aldanna rás staðið sameinuð gegn náttúruöflunum og erlendu valdi í gegnum gullöld, niðurlægingartímabil og endurreisn. Íslenska sög...
Leiðin til Hiroshima - Þríleikur 06.11.2020 4:13:53
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði...
27 - Japan í síðari heimsstyrjöld 28.10.2020 1:34:36
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.