Sigrún Elíasdóttir
Myrka Ísland
Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.
Author
Sigrún Elíasdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
May 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hallmundur og hellarnir 08.05.2026 1:19:53
Við eigum afmæli! Af því tilefni heiðrum við uppruna okkar dreifbýlistúttanna og einbeitum okkur að uppsveitum Borgarfjarðar. Í þessum hundraðasta Myrka Íslands þættinum förum við ekki-jarðfræðingarnir yfir æsispennandi hraunbreiðuna Hallmundarhraun við Langjökul. Sagnfræði, kolefnimælingar, hellagerð, ferðamannabransi og goðafræði í bland við fornbókmenntir, þjóðfræði og aðrar lygasögur þar sem...
Morðabelgur 01.05.2026 1:22:53
Því miður vill það brenna við að morð eru framin á okkar litlu eyju. Mjög góðar skráningar og heimildir eru um þetta leiðinda athæfi hér. Við skoðum tvö afar ólík morðmál sem þó ekki eru svo langt frá okkur í tíma. Annað er frá 1891, þar sem durgurinn Jón fer á kostum. Hitt málið er frá 1929, þar sem hlífðargleraugu, ferðamaður og enn einn Jóninn leikur aðalhlutverk. Hversu marga Jóna þarf til að...
Fannbarið fé 24.04.2026 1:22:27
Eitt af svakalegustu óveðrum síðari tíma skall á landinu haustið 2012 sem hefur því miður ekki hlotið neitt sögulegt sérnafn ennþá. Norð Austurland varð sérstaklega illa úti í þessari tveggja daga stórhríð og mundu hvorki elstu menn, né veðurfræðingar þeirra aðra eins ofankomu að hausti. Svo óheppilega vildi til að fé var enn á fjalli og við tók þrotlaus vinna við að leita að og draga upp fé úr fö...
Verbúðin Ísland 17.04.2026 1:43:42
Anna mætir til leiks með rafsuðuhanska og hjálm til að verjast meintum músagangi í stúdíóinu. Fyrir utan allt annað sem við tölum um, var ætlunin að ræða aðallega um fiskveiðar Íslendinga fyrr á öldum. Verið viðbúin að komast að uppruna ýmissa málshátta og orðatiltækja og hlusta á útúrdúra um formæður og krabbamein. Upp kemst að alhæfingar Sigrúnar um þorpamyndun á Íslandi, eigi alls ekki við rök...
Af vandamálum presta 10.04.2026 1:22:00
Nú er komið að því að við veitumst að þjóðkirkjunni fyrr og síðar! Ekki í fyrsta skipti reynar, en Sigrún sló saman í samtíningsþátt af því skemmtilegasta frá svokölluðum 17. og 18. aldar prestastefnum. Prestastefnur voru, og eru eflaust enn, einhverskonar samkomur vígðra presta (einnig kallað LARP) þar sem lagt var á ráðin um hvernig ætti að taka á ýmsum málum, sérstaklega siðferðismálum. Kirkju...
Krunk, krunk hrafnar 03.04.2026 1:24:33
Sigrún er krumma aðdáandi mikill og getur ekki staðist mátið að tala um hann í óratíma. Þessi ódrepandi Batman norðursins virðist geta lifað af kjarnorkuvetur á loftinu einu saman. Hann hefur lifað í nábýli við okkur frá landnámi og af honum hafa sprottið ótal sögur og þjóðsagnaminni. Sumt er ágætlega skynsamlegt en annað virðist tóm vitleysa.
Úr snjóflóði 27.03.2026 1:01:36
Saga dagsins gerist á fyrri hluta 20.aldar, í hinum stórmerkilegu Öræfum í Skaftafellssýslu og sögumaðurinn af merkum stofni. Eflaust náðum við að móðga alla sem þaðan eru ættaðir, minnst 12 ættliði aftur í tímann. Ungur maður fór eitt sinn í eftirleit við annan mann í leit að sauðum í Breiðamerkurfjalli. En lenti fljótlega í sannkölluðum hremmingum sem töfðu verulega fyrir verkefninu. Við fáum sm...
Þúsundkallinn Brynjólfur 19.03.2026 1:27:39
Í Marvelheiminum/Íslandssögunni höfum við í ótal þáttum rekist á aðal stjörnu þáttarins; Sjálfan þúsundkallinn, Brynjólf Sveinsson, sem var biskup 1639-1674. Sigrún talar óvenju hratt og mikið, nánast þar til röddin gefur sig. Nær engan vegin að halda sig við kirkjulegt efnið. Umræður fara um víða velli með viðkomu í spuna, manntölum, salsadansi, þrískiptingu valds, myrkfælni, njósnastarfsemi, leg...
Bárður Snjáfellsás 13.03.2026 1:40:56
Sigrún fær munnræpu og býður upp á fáránlega langa spin off Íslendingasögu, sem vill eiginlega frekar vera ævintýri. Það er skömm að því að búa svo nálægt Snæfellsnesi og þekkja ekki þessa sögu. Fjölskylduböndin eru á flækjustigi á pari við Bílastæðaverði Fóstbræðra og við sögu koma barnaperrar, vígahundar, galdramenn, gráðugir draugar, kristnisjúkir konungar og fjölmörg ný og skemmtileg orð í orð...
Morð fyrir tvo 06.03.2026 1:01:41
Sakamálaþáttur frá 18. öld! Hvað gerir stjórnandi ekki til að gleðja morðóða hlustendur? Lítt þekkt og nánast ónotað morð fannst við heimildauppgröft, þar sem grjóthella virðist helsti sökudólgurinn og sögupersóna, hvort sem hún endaði í tveimur bútum eða sé enn í heilu lagi. Í Biskupstungunum var allavega heilmikið slúðrað um það sem virðist hafa verið nútímalegt hjónaband, og ótal margar útgáfur...
Auka þáttur! Ung, há, feig og ljóshærð, skrif Auðar Haralds 31.10.2025 1:10:30
Myrka Íslandi var boðið að marinera sig í kvenréttingamálum í eina klukkustund og tóku því fegins hendi! Þemað var konur, réttindabarátta og bókmenntir. Sigrún kaus að ræða um sitt helsta átrúnaðargoð og tótemdýr; Auði Haralds. Fyndnari og kaldhæðnari penna er erfitt að finna en hún gagnrýndi líka samtíma sinn og sagði frá sinni persónulegu reynslu sem féll oftar en ekki í grýttan jarðveg samborga...
Vesturfarar 02.10.2025 1:27:59
Það er komið að síðasta þætti 9. seríu! Þar sem við förum yfir ferðir Íslendinga yfir Atlantshafið fyrir um 150 árum, ástæður þeirra og afdrif. Í leiðinni sendum við leiðréttingar út í alheiminn, gagnrýnum sértrúarsöfnuði, breytum okkur í bæði jarð og veðurfræðinga, sönnum um leið að við erum hvorugt, íhugum heimþrá og þjóðerni og Sigrún óskar eftir ættingjum sem gætu hafa flust til Ameríku á lau...
Berklar 25.09.2025 1:11:33
Það er komið að einni þrautseigustu og skæðustu pest síðari tíma. Margar kynslóðir Íslendinga voru haldnar mjög djúpstæðum ótta við berklana sem gátu gert fólk að sjúklingum um árabil eða að öryrkjum ævilangt og fellt heilu fjölskyldurnar. Veðurguðirnir höfðu skoðanir á þessum þætti og gerðu sitt besta til að koma sér í útsendingu. Um miðbik þáttar þurftum við að færa Batmobile í betra skjól fyrir...
Vistarbandið; hið íslenska þrælahald? 19.09.2025 1:45:58
Í ljósi messufalls síðustu viku, töluðum við tvöfalt í þessum þætti! Um vistarbandið ógurlega, þrælahald, evrópskt kóngafólk, fordæmingu á verslun, landbúnaðarsamfélagið, eilífðar baráttuna um ódýrt vinnuafl, hörundssára bændastétt og æsilegar deilur um sjónvarpsþætti á Rúv. Nýyrði dagsins eru afbendismenn, skaufstofan og saurfíklar. Niðurstaðan er að samtal og endurmat á viðteknum söguskoðunum er...
Anna á Stóru Borg 04.09.2025 1:02:26
Við elskum konur og ekki síst ef þær heita Anna! Tíminn eftir siðaskiptin einkenndust af miklum eldmóði í siðferðismálum á Íslandi. Sem hentaði Önnu á Stóruborg, hefðarkonu á 16.öld sem átti margar hurðir, afar illa. Þar sem sá maður sem henni hugnaðist að giftast var ekki henni samboðinn samkvæmt Páli bróður hennar. Sem varð til þess að þau systkinin hófu margara ára störukeppni þar sem hvorugt v...
Aftaka Jóns Arasonar 29.08.2025 1:26:59
Langt og flókið mál en það er svo áhugavert og mikilvægt að langur þáttur gæti verið fyrirgefanlegur. Menn eru með frekju og dramaköst, klaga yfirmenn, stinga á sig jörðum, deyja úr fátækt, þröngva presta til trúskipta, tala tungum, stunda byssubardaga í kirkjum og hanna almennt ljómandi gott handrit fyrir HBO þáttaraðir. Það er nú aldeilis gott að karlmenn eru skynsamir og stjórnast aldrei af til...
Fleiri hrakningar á heiðum 22.08.2025 59:41
Hvað er þjóðlegra og napurlegra en að eigra einn síns liðs á íslenskri heiði? Sigrún er í það minnsta heilluð af slíkum sögum. Við förum til Skagafjarðar og fylgjumst með tveimur mönnum í eftirleitum á Hofs afrétt. Eða er það Hofsa frétt? Boðskapurinn er: ekki fara að heiman síma og nestislaus!
Spíritismi tekur land á Íslandi 15.08.2025 1:32:42
Spíritismi er málefni sem Sigrúnu hefur lengi langað að ræða á einhvern hátt. Hún fann nokkrar sögur af yfirnáttúrulegri reynslu en efnið er svo víðfeðmt og það var svo langt síðan þær Anna hittust að þátturinn varð óralangur því það gleymdist eiginlega að slökkva á upptökutækinu! Þið fáið því að heyra ýmislegt á bak við tjöldin en það er allt siðsamlegt og hollt tal um álfatrú, innri íhugun, andl...
Morð í Eyjum 07.08.2025 1:04:31
Við grófum upp óþekkt dauðsfall! Næstum í útlöndum, því atburðurinn gerðist í Vestmannaeyjum. Undarlegt mál sem hlýtur að vera morð. Við sögu koma mektar menn, skítlegur Dani, grunsamlegar konur, íbitin epli, forvitnar klöguskjóður, sögusagnir og við pirrum okkur að vanda yfir spurningum sem enginn spurði við yfirheyrslur á fólki í denn.
Björn Jórsalafari 31.07.2025 1:20:55
Hver elskar ekki að heyra að til hafi verið rosalega áhugaverð frásögn af ferðalagi en að hún sé því miður alveg týnd? Ekki Sigrún! Hún fær útundanótta af því að hafa misst af 600 ára gamalli ferðasögu. En er beinar heimildir þrýtur er alltaf hægt að fylla upp í með ágiskunum og klassískum skáldskap. Kannski er hún bara svona forvitin um sígillda upphafna ríkisbubba sem halda að þeir séu allra man...
Ljósufjöll 25.07.2025 58:28
Árið er 1986. Þetta var á þeim árum þegar slys lítilla flugvéla voru allt of algeng og kröfðust margra mannslífa. Skoðum eitt af þessum hræðilegast slysum, þegar lítil vél fórst á leið sinni frá Ísafirði til Reykjavíkur. Vegna ofsaveðurs voru björgunarstörf afar erfið en enn á ný sönnuðu björgunarsveitirnar gildi sitt í samfélaginu. Var einhverjum um að kenna að svona fór, hvernig voru siðferðisre...
Jörundur hundadagakonungur 02.05.2024 1:15:42
Síðasti þátturinn í áttundu seríu fjallar um fjárglæframanninn, spilafíkilinn, skipstjórann, landkönnuðinn, fangann, landnemann, löggæslumanninn, túlkinn, njósnarann, umbótamanninn, kaupmanninn og síðast en ekki sísts, æðsta ráðamann Íslands, Jörgen Jörgensen! Þótt aldrei hefði hann reyndar kallaði sig konung yfir einu eða neinu.
Ferðalangurinn Guðríður Þorbjarnardóttir 26.04.2024 1:24:01
Förum nánast til upphafs Íslandssögunnar að þessu sinni og kynnumst hinni víðförlu konu Guðríði Þorbjarnardóttur sem samkvæmt sögum ferðaðist um allan hinn þekkta heim víkingatímans; frá Vesturheimi til Rómar. Sem er áhugavert út af fyrir sig. Enn áhugaverðara er hvernig hún hefur verið notuð til landkynninga og í þjóðernislegum áróðri. Jafnvel hægt að færa rök fyrir því að hún hafi verið tekin í...
Rammíslensk óveður 19.04.2024 1:32:24
Enn köfum við í spurningalista Þjóðminjasafnsins sem eru hafsjór af frábærum heimildum. Í þessum þætti dugði mér þó að styðjast aðeins við einn sögumann, engan annan en Magnús frá Gilsbakka í Borgarfirði. Í spurningalistanum "Hamfarir" skrásetti hann fjöldann allan af óveðrum á 20.öldinni sem all flestir Íslendingar fyrr og síðar, kannast við lýsingarnar á.. Það er komið að því að Sigrún...
Má ég eiga við þig morð? 12.04.2024 1:01:23
Í miðjum Móðuharðindunum kom upp undarlegt mál á Suðurnesjum. Niðursetningurinn, og að okkar mati, breytingaskeiðskonan Elín tapaði lífi sínu við grunsamlegar aðstæður. Til að leysa úr málinu voru misgáfulegir menn sem gátu alls ekki orðið sammála um eitt eða neitt, enda blandaðir inn í klassíska, íslenska embættismannaflækju. Og hverjir liðu fyrir þá flækju aðrir en almúginn?
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.