Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

History IS ↓ 152 episodes

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

Author

Hljóðkirkjan

Category

History

Podcast website

draugarfortidar.podbean.com

Latest episode

Feb 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland 04.02.2026

Í þessum þætti skoðum við sögu og samband tveggja orrustuflugmanna úr seinni heimsstyrjöld. Þeir voru ólíkir menn en náðu samt einkar vel saman. Þeir voru fyrst og fremst flugmenn. Er verstu manngerðu hamfarir sögunnar dundu yfir Evrópu svöruðu þeir kallinu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á  Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

#267 Röðull GK 07.01.2026

Þriðjudaginn 15. jan. 1963 lét togarinn Röðull GK úr höfn frá Reykjavík. Planið var að vera á veiðum í uþb 4 vikur á Mýrargrunni. Um hádegi á fimmtudaginn tilkynntu nokkrir skipverjar um ógleði og máttleysi. Þetta var upphafið að einu skelfilegasta mengunarslysi í sögu íslensks sjávarútvegs. Oft hefur þetta verið kallað „slysið sem gleymdist“. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á  Patre...

#264 Maður án heila 08.10.2025

Árið 2007 leitaði franskur maður til læknis. Ástæðan var þrálátur verkur í fæti. Læknirinn sendi manninn í ýmsar rannsóknir. Þar á meðal sneiðmynd af heila. Læknirinn fékk seinna hringingu frá röntgendeildinni þar sem hann var beðinn um að koma strax. Myndir af heila mannsins væru einkennilegar, svo ekki sé meira sagt. Lækninn rak í rogastans er hann sá sneiðmynd af höfði mannsins. Svo virtist sem...

#261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin 10.09.2025

Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér . Upp úr 1990 fór einn maður að láta að sér kveða í frönsku þjóðlífi og vakti mikla athygli. Hann virtist sérfræðingur um nokkuð sem Frakkar höfðu til þessa gefið lítinn gaum: Raðmorðingjar. Maður þessi var Stéphane Bourgoin. Hann var alveg ómenntaður en virtist hreinlega vita allt um þetta efni. Frakkar voru heillaðir af þessum einkennilega manni sem t...

#LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn 03.09.2025

Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér . Draugarnir lögðu í hann í upphafi árs 2025 og fóru vítt og breitt um landið. Þann 23. janúar var komið að Græna hattinum. Í það skiptið var uppákoman ekki eingöngu skráð í hljóði, heldur einnig í mynd. Þið getið hlustað á hann eða horft á hann á YouTube hér . Góða skemmtun! Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á  Patreon Vefverslun Drauganna...

#256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar? 06.08.2025

Í byrjun níunda áratugar varð vart undarlegrar vænisýki sem breyddist frá úthverfum Bandaríkjanna og var skyndilega á allra vörum. Það var hið svokallaða "Satanic Panic" sem sumir telja undanfara QAnon. Hræðslan beindist öll inn á við. Kenningar flugu um að Dungeons og Dragons hlutverkaspilið væri verkfæri Satans. Tölvuleikir voru að sækja í sig veðrið á þessum tíma og spilasalir spruttu upp. Hræð...

#251 Talídómíð: Hryllingur í töfluformi 02.07.2025

Seint á sjötta áratug kom ný tafla á markað sem kölluð var kraftaverkalyf. Hún hafði róandi áhrif og sló auk þess á ógleði. Sérstaklega voru barnshafandi konur hvattar til að taka töfluna gegn morgunógleði. Í dag líður langur tími frá því er nýtt lyf er þróað og þar til það er sett á markað. Regluverkið er orðið mun harðara en það var er Talídómíð kom á markað. Það er einmitt að stærstum hluta veg...

#247 Josephine Baker: Fyrsta svarta konan sem sigraði heiminn - Fyrri hluti 04.06.2025

Josephine Baker er einn áhrifamesti skemmtikraftur sögunnar. Auk þess að bæði hneyksla og hrífa Evrópubúa með sínum söng og dansi tók hún virkan þátt í baráttu gegn alræði og kynþáttaníði. Baker var fædd í Bandaríkjunum en eins og margir svartir íbúar þaðan, vildi hún flýja botnlausan rasismann þar. Hún hafði heyrt um ríki þar sem svartir voru þó álitnar mannverur. Fyrir þetta fólk lágu öll vötn t...

#244 Maðurinn í rotþrónni 14.05.2025

Í febrúar árið 1989 var japanska barnaskólakennaranum Yumi Tanaka brátt í brók og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið. Á stúdentagörðum þar sem hún bjó voru klósett frekar gamaldags. Í raun aðeins hola í gólfinu sem leiddi út í rotþró fyrir utan húsið. Sér til furðu tekur Tanaka eftir einhverju í salernisholunni. Það er skór af manni. Hún fór út til að athuga hvort hún sæi eitthvað betur. Fyr...

#238 Hermaðurinn ódrepandi: Saga Adrian Carton de Wiart 02.04.2025

Adrian Carton de Wiart var belgísk-breskur herforingi sem varð algjör goðsögn innan breska hersins. Hann var svo ósérhlífinn að það jaðraði við sturlun. Hann særðist mörgum sinnum og oft alvarlega. Hann tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, þar sem hann varð fyrir alvarlegum meiðslum, meðal annars misst hann hægri hönd og auga, en hann hélt áfram að berjast þrátt fyrir þessa miklu skerðingar. Þrátt...

#234 Biblíusögur 05.03.2025

Fyrsti þáttur hvers mánaðar er í opinni dagskrá. Það er því vel við hæfi að sem flest ykkar nái að heyra fagnaðarerindið. Í þessum þætti velur Flosi nokkrar sögur úr einni af hans uppáhaldsbókum: Biblíunni. Gamla textamentið er í sérstöku uppáhaldi. Enda er nóg af alls konar furðulegum og fyndnum sögum sem þar má finna. Vert er samt að benda á að atriði í þættinum geta valdið óhug. Viltu heyra fle...

#230 Brjálaði baróninn: Sagan af Roman von Ungern-Sternberg 05.02.2025

Komið hefur fyrir að sérvitrir herforingjar hafi klofið sig frá aðalhernum í styrjöldum og umbreyst í stríðsherra með sitt eigið lið og farið sínu fram. Roman von Ungern-Sternberg er einn þessara manna og líklega einn sá einkennilegasti og alræmdasti. Hann fór að sjá sig sem einhverskonar holdgerving mongólska herforingjans Djengis Khan. Hann sauð saman stórundarlega blöndu af rússneskri réttrúnað...

#LD2 Víkingar 03.01.2025

Í tilefni af yfirvofandi ferðalagi Drauganna um landið síðar í mánuðinum er hér upptaka frá því að Draugarnir komu fram fyrir fullu húsi í Iðnó í október 2022. Góða skemmtun! „Hverjir voru þeir og hversvegna breyttist skoðun almennings á þeim svo rosalega? Frá víkingaöld var varla minnst á þá á annan hátt en sem algjörlega skelfilegt lið sem rændi, ruplaði, nam á brott og myrti fólk. Á 19. öld ver...

#225 Fimm verstu herforingjar sögunnar 01.01.2025

Margt er aðdáunarvert í sögu mannkynsins. Stórkostlegar uppgötvanir í vísindum, glæst listaverk og félagslegar umbætur. Því miður hafa átök og blóðsúthellingar einnig spilað stórt hlutverk. „Stríð er helsta hreyfiafl sögunnar“ - sagði rússneski byltingarleiðtoginn Leon Trotsky eitt sinn. Margir frægustu einstaklingar sögunnar voru herforingjar. Má nefna t.d. Napóleon og Alexander mikla. Að hafa st...

#221 Amnesty International 04.12.2024

Þessi þáttur er í óformlegu samstarfi við Amnesty International á Íslandi. Flosi hefur lengi verið stuðningsmaður samtakanna og 16 ára gamall skrifaði hann bréf til Nicolai Ceausescu, þáverandi alvalds í Rúmeníu og krafðist þess að samviskufangar yrðu látnir lausir. Íslandsdeildin fagnaði 50 ára afmæli þ. 15 september síðastliðinn. Vakin er athygli á herferð samtakanna sem ber yfirskriftina „Þitt...

#217 Selárdalur - 2. Þáttur: Gísli á Uppsölum 06.11.2024

Sjaldan gerist það að maður verði frægur á einni nóttu. Svo var þó bókstaflega um Gísla Oktavíanus Gíslason frá Uppsölum í Selárdal. Hann var nánast algjörlega óþekktur áður en Ómar Ragnarsson, landskunnur sjónvarpsmaður, bankaði upp á hjá honum árið 1981. Þátturinn Stiklur var sýndur á jóladag árið 1981. Þá var íslenskt samfélag að nútímavæðast hratt. Allir vildu eiga nýjustu tækin, hvort sem um...

#212 Fimmmenningarnir frá Yuba 02.10.2024

Þann 24. febrúar árið 1978 fóru fimm menn frá Yuba-sýslu í Kaliforníu á körfuboltaleik í Chico, nálægum bæ. Uppáhaldsliðið þeirra var að keppa og vildu þeir styðja það. Sjálfir áttu þeir að leika mikilvægan leik daginn eftir. Þeir glímdu allir við minniháttar þroskahamlanir. Þeir stóðu sig þó almennt ágætlega í að takast á við áskoranir lífsins. Þeir voru allir í sama körfuboltaliðinu og daginn ef...

#208 Súdan: Mesta mannúðarkrísa veraldar 04.09.2024

Afríkuríkið Súdan hefur vissulega kynnst átökum áður en eftir borgarastyrjöld sem hófst 2023, ríkir þar nú slík óöld að annað eins hefur varla sést á heimsvísu í lengri tíma. Um 50 milljónir búa í þessu stóra landi. Um 13 milljónir eru nú á vergangi og án heimilis. Í nágrannalöndunum og víðar eru nú um 3-4 milljónir flóttamanna. Þeir aðilar sem berjast um völdin hafa beitt skefjalausu ofbeldi og s...

#204 Fidel Castro 07.08.2024

Þrátt fyrir að vera leiðtogi smáríkis þá kom hann Kúbu ansi langt inn á leikborð alþjóðastjórnmála. Raunar var Kúba miðpunkturinn í deilu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna árið 1962 en þá saup öll veröldin hveljur. Aldrei nokkurn tíma var eins mikil hætta á kjarnorkustríði milli stórveldanna. Fidel Castro er ugglaust einn umdeildasti leiðtogi sögunnar. Hann reif þjóð sína upp úr fátækt og stórbætti h...

#199 Andrew Carlssin og aðrir tímaferðalangar 03.07.2024

Í marsmánuði árið 2003 handtók FBI, alríkislögregla Bandaríkjanna, mann að nafni Andrew Carlssin. Það vakti miklar grunsemdir hve vel honum hafði gengið í verðbréfaviðskiptum. Á aðeins tveimur vikum hafði hann hækkað 800 dollara í 350 milljónir. Þetta gat ekki verið tilviljun. Hart var sótt að Carlssin í yfirheyrslum. Fólk vildi vita um hans bandamenn í fjármálageiranum sem höfðu mögulega lekið up...

#195 Berlínarmúrinn 05.06.2024

Þáttur dagsins fjallar um eitt alræmdasta tákn kalda stríðsins og "Járntjaldið" illræmda sem aðskildi Evrópu í marga áratugi. Vestur-Berlín hafði algjörlega sérstöðu. Borgin tilheyrði Vestur-Evrópu en var stödd mitt í kommúnistaríkinu sem var Alþýðulýðveldið Þýskaland, einatt kallað Austur-Þýskaland. Árið 1961 hófu yfirvöld í Austur-Berlín að byggja múr sem aðskildi borgarhlutana í tæpa þrjá áratu...

#190 „Brjálaði Svíinn“: Stutt en viðburðarík ævi Göran Kropp 01.05.2024

Sumir lifa lengi en ævi þeirra er róleg og viðburðalítil. Svo var ekki hvað Göran Kropp varðaði. Hans drifkraftur var ást á fjallaklifri. Hann varð brátt vel þekktur í þeim heimi vegna mikillar útgeislunar en einnig sérvisku. Kropp var ekki hrifinn af því að fara auðveldustu leiðina. Hann leitaðist sífellt eftir nýjum og krefjandi áskorunum. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á  Patreon...

#186 Carlos Kaiser: Fótboltamaðurinn sem forðaðist fótbolta 03.04.2024

Svikahrappar og svindlarar hafa ætíð vakið sérstaka athygli og jafnvel aðdáun meðal almennings. Stundum er ekki annað hægt en að dáðst að hugkvæmni þeirra sem nýta sér persónutöfra og samskiptahæfni til að koma sér áfram í lífinu. Vissulega eru til svindlarar sem engin ástæða er til að dást að. Fólk sem markvisst nýtir sér jafnvel neyð annarra og hagnast á því. Carlos Henrique Raposo fellur ekki í...

#182 Norður-Kórea 1. þáttur: Járnhæll Japans, Kóreustríðið og Kim Il Sung 02.03.2024

Styrktaraðilar á Patreon fá í hverjum mánuði að velja á milli þriggja málefna. Að þessu sinni var stuðst við lýðræðisvísitölu breska tímaritsins The Economist. Valið stóð á milli þriggja ríkja sem reglulega verma botnsætið á þeim lista, teljast ein þau ólýðræðislegustu í heimi. Það voru Túrkmenistan, Sýrland og Norður-Kórea. Síðastnefnda ríkið varð hlutskarpast. Við beinum því nú sjónum að einu lo...

#178 Hægri umferð 07.02.2024

Sú var tíðin að sagnfræði fjallaði aðallega um hin „stóru efni“. Viðfangsefnin voru konungar, keisarar og heimsveldi. Eins og aðrar fræðigreinar hefur hún þróast og í dag má heyra talað um allskonar sögurannsóknir. Það er nefnilega oft áhugaverð saga á bakvið ýmislegt sem í fyrstu virðist ekki sérlega merkilegt. Hægri umferð var tekin upp á Íslandi þann. 26. maí 1968 á hinum svokallaða H-degi. Lan...

Listen to the Draugar fortíðar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.