Sögufélag

Blanda – hlaðvarp Sögufélags

History IS ↓ 50 episodes

Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.

Author

Sögufélag

Category

History

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi 10.07.2026

Förufólk í Laugarnesi: Fyrir um hundrað árum settist dularfull fjölskylda að í Laugarnesi með vísi að dýragarði. Fljótlega voru þau talin sígaunar og vöktu mikla athygli víða um land. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson hefur skoðað sögu þeirra og rekur hér þessa ævintýralegu frásögn í samtali við Markús Þórhallsson.

#61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára 29.06.2026

Bandaríkin verða 250 ára í sumar og af því tilefni ræddi Markús Þórhallsson við Val Gunnarsson sagnfræðing um upphaf þessa volduga ríkis, sögu þess og þróun.

#60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi 03.06.2026

Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur um bók hennar, Þurfamenn fá mannréttindi, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi, með sérstakri áherslu á Reykjavík, en í forgrunni er þýðingarmikil breyting á fátækralögum árið 1927 og breyttar hugmyndir um mannréttindi þeirra sem þurftu að þiggja opinbera aðst...

#59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn 03.06.2026

Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Arnþór Gunnarsson um bók hans, Hringvegurinn, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó og hefst á hinni sögulegu vígslu Skeiðarárbrúar 1974 en með henni var lokið við hringveginn um Ísland, sem lengi hafði ekki verið til í villtustu draumum landsmanna.

#58 Þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi 13.05.2026

Markús Þórhallsson ræðir við sagnfræðiprófessorana Erlu Huldu Halldórsdóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur um þær þjóðaratkvæðagreiðslur sem haldnar hafa verið á Íslandi. Þær leggja einkum áherslu á viðamikla og óvenjulega þjóðaratkvæðagreiðslu um lýðveldisstofnun og upptöku nýrrar stjórnarskrár árið 1944.

#57 Sumarliði R Ísleifsson og Grænland 24.04.2026

Mannlíf og stjórnmál nútímans á Grænlandi, hörð náttúruöflin og ævintýraheimur norðursins ber vitaskuld á góma ásamt fjölmörgu öðru forvitnilegu í samtali Sumarliða R Ísleifssonar prófessors emeritus og Markúsar Þórhallssonar fréttamanns og sagnfræðings.

#56 Ný og spennandi ritröð Sögufélags væntanleg 16.02.2026

Gunnar Þór Bjarnason, Kristín Svava Tómasdóttir og Rósa Magnúsdóttir ræða um Seríu Sögufélags, nýja ritröð stuttra bóka sem hefur göngu sína í vor, en hún er byggð á dönsku ritröðinni 100 danmarkshistorier.

#55 Samfélag átjándu aldar – Hvað segja þau okkur? 29.01.2026

Jón Kristinn Einarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, þjóðskjalavörð og fyrrv. forseta Sögufélags, um rannsóknir hennar á samfélagi átjándu aldar. Þau spjalla um þéttbýlismyndum á Íslandi fyrir tíma iðnvæðingar, ullarvinnslu og viðreisnaráætlanir átjándu aldar, efnahagshugsun upplýsingarinnar, kameralisma og ýmislegt fleira.

#54 Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir um Piparmeyjar 02.12.2025

Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sagnfræðing og höfund bókarinnar  Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi . Bókin er jöfnum höndum saga ógiftra íslenskra kvenna og saga Reykjavíkurstúlkunnar Thoru Friðriksson, skarpgreindrar konu með stóra drauma sem hún fékk ekki tækifæri til að láta rætast fyrr en á miðjum aldri, eftir að hún var búin að...

#53 Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga? 25.11.2025

Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga. Allt um það í þessum nýja Blönduþætti Sögufélags. Markús Þórhallsson ræðir við Pál Björnsson, sagnfræðing og prófessor við Háskólann á Akureyri, um nýjustu bók hans, Dagur þjóðar: Þróun 17. júní hátíðarhalda á 19. og 20. öld. Páll greinir frá hvernig 17. júní varð að þjóðhátíðardegi Íslendinga snemma á 20. öld, segir frá öðrum dögum sem...

#52 Kristín Svava Tómasdóttir um Fröken Dúllu 19.11.2025

Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa...

#51 Davíð Ólafsson og Mynd og hand. Skólasaga 1939-1999. 23.10.2025

Í þættinum ræðir Kristín Svava Tómasdóttir við Davíð Ólafsson, sagnfræðing og dósent við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, um nýútkomna bók hans og Arndísar S. Árnadóttur, Mynd og hand. Skólasaga 1939–1999. Í þættinum spjalla Kristín Svava og Davíð vítt og breytt um bókina og sögu Myndlista- og handíðaskóla Íslands, allt frá því að hann hóf að starfa í fjórum geymsluherbergjum í kjallar...

#50 Jón Karl Helgason og Tindátarnir 06.10.2025

Forsíðugrein Sögu að þessu sinni fjallar um myndabókina Tindátanna eftir Nínu Tryggvadóttur og Stein Steinarr sem Ragnar í Smára gaf út árið 1943. Í Blöndu að þessu sinni ræðir Haukur Ingvarsson við höfund greinarinnar, Jón Karl Helgason bókmenntafræðing. Meðal þess sem ber á góma er sú merkilega forspá sem í bókinni felst. Nína og Steinn spá þar ekki aðeins fyrir um endalok Adolfs Hiltlers heldur...

#49 Anna Agnarsdóttir og sjálfsævisaga Klemensar Jónssonar 26.09.2025

Í þessum þætti Blöndu ræðir Markús Þórhallsson við Önnu Agnarsdóttur, prófessor emerítus í sagnfræði, um sjálfsævisögu Klemensar Jónssonar sem Sögufélag gefur út og hún ritstýrir ásamt Áslaugu systur sinni. Klemens var af fátæku fólki kominn sem tryggði honum þó þá bestu menntun sem möguleg var á seinni hluta 19. aldar. Þessi föðurafi systranna komst til metorða á umbrota- og breytingatímum í ísle...

#48 Vilhelm Vilhelmsson um Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld 11.07.2025

Var vistarbandið ánauð og vinnuhjú þrælar? Um það skeggræða höfundur bókarinnar Sjálfstætt fólk. Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld, Vilhelm Vilhelmsson og Markús Þórhallsson.

#46 Skafti Ingimarsson um Nú blakta rauðir fánar 27.06.2025

Ævar Kjartansson ræðir við höfundinn, Skafta Ingimarsson, um bók hans, Nú blakta rauðir fánar, m.a. hvers vegna kommúnistahreyfingin á Íslandi var jafn öflug og raun ber vitni einnig um valdabaráttuna innan hreyfingarinnar og togstreituna milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar, sem fram kom í starfi hennar.

#47 Valgerður Pálmadóttir um Mörk - Norræna sagnfræðiþingið 13.-15. ágúst 27.06.2025

Mörk (grænser / borders) er yfirskrift Norræna sagnfræðingaþingsins sem haldið verður í Háskóla Íslands dagana 13–15 ágúst. Dagskráin er gríðarlega fjölbreytt og spennandi en meðal efna sem fjallað verður um eru: Samskipti manna og dýra, umhverfissaga, stríð og friður, menning og stjórnmál miðalda, kalda stríðið í nýju ljósi, söguskoðun, minni og stjórnmál, áskoranir í sögukennslu og norræn einsög...

#42 Guðmundur Jónsson og Ástand Íslands um 1700 26.06.2025

Hverjir áttu Ísland? Jón Kristinn Einarsson ræðir við Guðmund Jónsson, ritstjóra bókarinnar,  Ástand Íslands um 1700 , í glænýjum Blönduþætti. Þeir fara vítt og breitt um sviðið og velta upp hvernig var að búa á gamla Íslandi, landi bænda og sjómanna, höfðingja og almúgamanna. Bókin er samstarfsverkefni sjö fræðimanna og byggir á stórmerkilegum heimildum, jarðabókinni, kvikfjártalinu og manntalinu...

#41 Hrafnkell Lárusson og Lýðræði í mótun 26.06.2025

Það fer vel á því að ræða um mótun lýðræðis á 80 afmælisári lýðveldisins. Nýr þáttur að Blöndu kominn í loftið.  Jón Kristinn Einarsson og Hrafnkel Lárusson spjalla um bók Hrafnkels,  Lýðræði í mótun. Þar spjalla þeir um vöxt frjálsra félaga og samtaka á árabilinu 1874-1915 og hvernig almenningur, með þátttöku sinni í þeim, setti mark sitt á íslenska samfélags- og lýðræðisþróun. Hvernig breytingar...

#39 Kobeinn Rastrick um 30. marz 1949 26.06.2025

Í þættinum ræðir Katrín Lilja við Kolbein Rastrick sem ritaði grein við forsíðumynd Sögu tímarits Sögufélagsins sem kom út í lok árs 2023. Í greininni, sem er byggð á BA-ritgerð Kolbeins úr kvikmyndafræði, greinir Kolbeinn kvikmyndir sem teknar voru af óeirðunum við Austurvöll 30. mars 1949, daginn sem umræður voru á Alþingi um inngöngu Íslands í NATO.

#45 Viðurkenningarhafinn Erla Hulda Halldórsdóttir og saga Sigríðar Pálsdóttur. 28.02.2025

Bókin,  Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1808 -1871, sem hlaut viðurkenningu Hagþenkis nú á dögunum er til umfjöllunar í nýjum Blöndu þætti Sögufélags.   Bragi Þorgrímur Ólafsson og Erla Hulda ræða saman um sögu Sigríðar Pálsdóttur, sem skildi eftir sig vitnisburð um ævi sína í formi 250 bréfa sem hún skrifaði bróður sínum, Páli Pálssyni stúdent, 1817-1871.   Þessi bréf, og viðamikið br...

#44 Gunnar Tómas Kristófersson og íslensk kvikmyndasaga 21.02.2025

Þátturinn er helgaður íslenskri kvikmyndasögu. Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur á Kvikmyndasafni Íslands og doktorsnemi í kvikmyndafræði, hefur verið ötull við að skrifa í tímaritið Sögu undanfarin ár. Hann hefur birt greinar um fyrstu konurnar sem leikstýrðu kvikmyndum á Íslandi, Ruth Hanson og Svölu Hannesdóttur, og um kvikmyndagerð Vigfúsar Sigurgeirssonar. Nýjasta grein hans mun birtas...

#43 Drottningin í Dalnum 19.12.2024

Markús Þórhallsson ræðir við Eggert Ágúst Sverrisson um nýútkomna bók hans Drottningin í Dalnum. Þetta er fyrsta bók Eggerts á þessum vettvangi. Hann lauk námi í viðskiptafræðum 1974 og starfaði að mestu við fjármál og vátryggingar á starfsferli sínum. Þegar hann lét af störfum fór hann í nám í sagnfræði og lauk BA námi 2019. Þá hóf hann að skrifa þessa einstöku bók sem er gott heimildarrit sem br...

#40 Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Ólympíuleikarnir 1948 27.11.2024

Sumarólympíuleikarnir í London árið 1948 voru merkilegir fyrir margra hluta sakir. Vegna seinni heimsstyrjaldarinnar höfðu ekki verið haldnir Ólympíuleikar í 12 ár, en aðstæður í London voru erfiðar svona stuttu eftir stríð og stundum er talað um „meinlætaleikana“ af þeim sökum. Þetta voru líka fyrstu sumarleikarnir sem Ísland keppti á eftir lýðveldisstofnun og Íslendingar höfðu metnað til að stan...

#38 Haraldur Sigurðsson um Samfélag eftir máli 01.02.2024

Haraldur Sigurðsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Í þessum þætti Blöndu ræðir hann við Einar Kára Jóhannsson um víðfeðmt efni bókarinnar. Samfélag eftir máli fjallar um skipulag borgar, bæja og þorpa á Íslandi á 20. öldinni. Í aðra röndina er rakin saga skipulagsgerðar og þéttbýlis og í hina hugmyndasaga skip...

Listen to the Blanda – hlaðvarp Sögufélags podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.