Sögufélag
Blanda – hlaðvarp Sögufélags
Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.
Author
Sögufélag
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#37 Kristín Loftsdóttir um Andlit til sýnis 29.11.2023 40:35
Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði, segir hlustendum Blöndu frá nýrri bók sinni Andlit til sýnis. Í bókinni er lítið safn á Kanaríeyjum í brennidepli en þar má finna brjóstafsteypur af fólki frá ólíkum stöðum heimsins sem gerðar voru á nítjándu öld. Þar á meðal eru brjóstmyndir sjö Íslendinga.
#35 Kristjana Kristinsdóttir um Lénið Ísland 07.07.2023 28:09
Í þættinum ræðir Jón Kristinn við Kristjönu Kristinsdóttur um bókina Lénið Ísland sem kom út árið 2021. Bókin er byggð á doktorsritgerð hennar og er mikilvæg grunnrannsókn á vanræktu tímabili í Íslandssöguni.
#34 Sjón um sögulegan skáldskap 22.06.2023 53:52
Rithöfundurinn Sjón hefur skrifað margar sögulegar skáldsögur. Í þessum þætti ræðir hann við Einar Kára um hvernig hann nýtir sér frumheimildir og nýjustu rannsóknir í sagnfræði. Hann ræðir einnig viðhorf sitt til sögunnar og muninn á stöðu fræðimannsins og skáldsins.
#33 Páll Björnsson um 17. júní og framhaldslíf Jóns Sigurðssonar 16.06.2023 44:54
Í tilefni þjóðhátíðardagsins ræðir Jón Kristinn við Pál Björnsson um framhaldslíf Jóns Sigurðssonar í sögulegu minni landsmanna. Lagt er út af bók Páls, Jón forseti allur? sem kom út árið 2011 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár.
#29 Guðni Th. Jóhannesson um Stund milli stríða 07.03.2023 49:46
Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og forseti Íslands, ræðir bók sína Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961-1971 við Markús Þórhallsson. Upptaka fór fram á bókakvöldi eftir aðalfund Sögufélags þann 21. febrúar 2023. Guðni segir meðal annars að saga landhelgismálsins sé þjóðarsaga og að forðast skal að reisa glæstar vörður þegar slík mál eru tekin fyrir. Hann segir frá breyttum áherslu...
#28 Hjalti Snær Ægisson um Sýnisbók þess að Ísland var ekki barbaraland 11.01.2023 54:43
Jón Kristinn ræðir við Hjalta Snæ Ægisson bókmenntafræðing, sem er einn aðstandenda nýrrar útgáfu á ritinu Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland, heldur land bókmennta og menningar eftir Jón Thorchillius (1697-1759). Jón ritaði verkið rétt fyrir miðbik átjándu aldar sem svar við níðskrifum erlendra manna um Ísland. Hún hefur þó aldrei komið fyrir sjónir almennings fyrr en nú.
#27 Helgi Þorláksson um Sögustaði 16.12.2022 43:40
Jón Kristinn ræðir við Helga Þorláksson um nýútkomna bók hans Á Sögustöðum, um Ísland sem nýlendu, söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar, samband Íslands við Danmörku, Guðmund góða Arason og ýmislegt fleira.
#26 Kristín Svava Tómasdóttir um Farsótt 17.10.2022 52:05
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir um bókina Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25. Í bókin er sögð saga sjúkdóma, lækninga og tilrauna til að vernda samfélagið gegn sóttum. Þetta er saga borgar og velferðarkerfis en ekki síst saga af fólki. Aðalpersónan er þó gamla timburhúsið sem byggt var árið 1884 sem fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga. Síðar var það gert að farsóttaspítala, geðsjúkrahúsi og seinast...
#25 Hafdís Erla Hafsteinsdóttir um Mennina með bleika þríhyrninginn 20.09.2022 1:01:46
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Hafdísi Erlu Hafsteinsdóttur um hinsegin sögu og Mennina með bleika þríhyrninginn: Frásögn homma af vist sinni í fangabúðum nasista á árunum 1939-1945 , sem nýlega kom út hjá Sögufélagi. Hafdís Erla ritaði eftirmála að bókinni þar sem hún fjallar um ferðalag bleika þríhyrningsins frá fangabúningum samkynhneigðra manna til baráttutákns hinsegin fólks, kynjakerfi Þrið...
#23 Bergsveinn Birgisson um ritstuld og svarta víkinginn 04.07.2022 1:00:21
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Bergsvein Birgisson um viðhorfsgrein hans í Sögu 1 2022. Þar fer Bergsveinn yfir ásakanir sínar um ritstuld eða rannsóknastuld á hendur Ásgeiri Jónssyni og andmæli bæði Ásgeirs og Helga Þorlákssonar þegar málið var lagt fyrir Siðanefnd Háskóla Íslands. Þá er fjallað um bók hans, Leitin að svarta víkingnum , og rannsóknir á Geirmundi Heljarskinn. Einnig berst talið a...
#22 Hrafnkell Lárusson um Íslenska dyggðarsamfélagið undir lok 19. aldar 13.05.2022 56:18
Markús Þorhallsson ræðir við Hrafnkel Lárusson um grein hans, Íslenska dyggðarsamfélagið í lok 19. aldar, sem birtist í Sögu LIX - 2 2021. Hrafnkell Lárusson skrifar um einkenni, áhrif og hnignun þess sem hann kallar íslenska dyggðasamfélagið og það hvernig viðurkenndar dyggðir, trúarhugmyndir og siðferðisviðmið tóku breytingum á Íslandi um aldamótin 1900, með sérstakri áherslu á frumheimildir frá...
#20 Anna Agnarsdóttir og Hrefna Róbertsdóttir um 120 ára afmæli Sögufélags 07.03.2022 41:08
Í tilefni af 120 ára afmæli Sögufélags ræðir Markús Þoórhallsson við Önnu Agnarsdóttur, fyrrum forseta félagsins, og Hrefnu Róbertsdóttur núverandi forseta. Margt ber á góma, til að mynda stofnun og þróun félagsins í gegnum árin og margt skemmtilegt sem í vændum er. Sögufélag fagnaði 120 ára afmæli, 7. mars 2022. Félagið var stofnað árið 1902 með það að markmiði að gefa út tímarit, heimildarit og...
#19 Kristjana Vigdís um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu 16.12.2021 52:04
Í þessum þætti af Blöndu ræðir Kristjana Vigdís Ingvadóttir sagnfræðingur um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu. Hún ræðir um tungumálið frá ýmsum áhugaverðu sjónarhornum, hvort alltaf hafi verið öruggt að íslenskan héldi velli og ástæður þess að svo fór. Eins setur hún stöðu íslenskunnar í fortíð í samhengi við stöðu hennar í samtímanum og jafnvel í framtíðinni. Kristjana Vigdís hefur veri...
#18 Davíð Ólafsson um Frá degi til dags 06.12.2021 49:52
Í þessum þætti af Blöndu spjallar Davíð Ólafsson sagnfræðingur um efni nýju bókarinnar hans sem heitir Frá degi til dags og er 27. bindið í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Umræðuefnið er í aðra röndina eðli og umfang dagbókaritunar á Íslandi um tveggja alda skeið, frá 1720 til 1920 og hins vegar allar þær raddir alþýðufólks sem heyrst hafa í skrifum sagnfræðinga frá því um 1970. Þr...
#14 Þorsteinn Vilhjálmsson um mannkynbætur á Íslandi 07.09.2021 41:07
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Þorstein Vilhjálmsson um grein hans, Betra fólk: Tengsl takmarkana barneigna og mannkynbóta í íslenskri orðræðu 1923-1938, sem birtist í vorhefti Sögu 2021. Í greininni er fjallað um hugmyndir um getnaðarvarnir í mannkynbóta skyni frá fyrstu skrifum Guðmundar Hannessonar, í læknablaðið 1923, þar til slíkt ratar í íslenska löggjöf á síðari hluta fjórða áratugarins. V...
#13 Jón Karl Helgason um Ódáinsakur 07.07.2021 46:00
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Jón Karl Helgason um bók hans Ódáinsakur: Helgifesta þjóðardýrlinga sem kom út hjá Sögufélagi árið 2013. Jón ræðir íslenska þjóðardýrlinga, á borð við Jónas Hallgrímsson, Jón Sigurðsson og Halldór Laxness, hvernig þeir fengu þetta hlutverk, hvað það þýðir og hvernig það hefur þróast. Einnig tengir hann sögu þeirra við aðra þjóðardýrlinga í Evrópu og segir frá alþjóð...
#12 Kristín Svava Tómasdóttir um vorhefti Sögu 2021 18.06.2021 44:46
Markús Þórhallsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur, ritstjóra, um innihald vorheftis Sögu 2021. Saga - tímarit Sögufélags kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi. Auk Kristínar Svövu ritstýrir Vilhelm Vilhelmsson Sögu. Þetta fyrra hefti 2021 er óvenju þykkt og í því eru fjórar ritrýndar greinar, 14 ritdómar, svar við...
#11 Sverrir Jakobsson um Væringja 03.05.2021 37:59
Í ellefta þætti fáum við til okkar Sverri Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands. Á síðasta ári kom út bók eftir Sverri hjá forlaginu Palgrave Macmillan sem ber heitið The Varangians: In God's Holy Fire , en þar rekur Sverrir sögu norrænna manna í austurvegi, og varpar nýju ljósi á ýmislegt í þeim efnum.
#10 Hafdís Erla um landnám kynjasögunnar 26.04.2021 26:31
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir skrifaði grein í hausthefti Sögu 2020 sem ber heitið „Landnám kynjasögunnar“. Þar leggur hún út af grein sem Margrét Guðmundsdóttir ritaði í aldamótahefti Sögu árið 2000 um sagnaritun kvennasögu á 20. öld. Hafdís tekst á við sama verkefni hér, en beinir sjónum sínum að kynjasögu og sambúð hennar við kvennasögu á fyrstu tveimur áratugum tuttugustu aldar.
#8 Sveinn Máni Jóhannesson um vísindi og ríkisvald í Bandaríkjunum 07.04.2021 36:29
Í áttunda þætti Blöndu fáum við til okkar Svein Mána Jóhannesson sagnfræðing. Umræðuefnið er doktorsritgerð hans, sem hann varði við Cambridge-háskóla árið 2018. Hún fjallaði um ríkisþróun í Bandaríkjunum á fyrri hluti nítjándu aldar og ber heitið "The Scientific-Military State, Science and the Making of American Government, 1776-1855". Sveinn færir þar rök fyrir því að bandarískir ráðamenn hafi n...
#7 Kristín Svava Tómasdóttir um hausthefti Sögu 2020 22.12.2020 44:13
Í sjöunda þætti fáum við til okkar Kristínu Svövu Tómasdóttur, annan ristjóra Sögu. Hún ræðir við okkur um splunkunýja Sögu - haustheftið 2020.
#6 Áslaug Sverrisdóttir um Sögu Heimilisiðnaðarfélagsins 17.12.2020 57:25
Í sjötta þætti Blöndu ræðir Dr. Áslaug Sverrisdóttir við Markús og Jón Kristin um bók sína Handa á milli. Saga Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913–2013 . Hún segir okkur frá uppruna heimilisiðnaðar á Íslandi, hvernig Heimilisiðnaðarfélagi hefur reynst landsmönnum vel á krepputímum, gullaldarárum félagsins áratugina eftir seinni heimsstyrjöld og því hvernig félagið hefur breyst og þróast í takt við...
#2 Stutt kynning á bókum ársins 2020 27.11.2020 31:01
Markús og Jón Kristinn ræða bækur Sögufélags á árinu 2020. Útgáfan í ár er fjölbreytt. Bókin Konur sem kjósa fjallar um íslenska kvenkjósendur í heilda öld, Handa á milli eftir Áslaugu Sverrisdóttur segir sögu Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913–2013 og fimmta bindi Landsnefndarinnar fyrri koma vinnugögn nefndarinnar sjálfrar fyrir sjónir almennings í fyrsta skipti.
#1 Hvað er Sögufélag? 27.11.2020 50:33
Í þessum fyrsta þætti er saga og starfsemi Sögufélags kynnt. Markús Þórhallsson ræðir við Brynhildi Ingvarsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins, Hrefnu Róbertsdóttur forseta og Írisi Ellenberger, höfund sögu Sögufélags.
#0 Kynningarþáttur 27.11.2020 25:06
Blanda var upprunalega heiti tímarits sem Sögufélag gaf út á árunum 1918–1953. Markmið Blöndu voru að fræða og upplýsa almenning, og að bera söguna á borð í aðgengilegum búning. Hlaðvarpið Blanda er afrakstur MA-verkefnis Markúsar Þórhallssonar í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, og markmið hinnar nýju Blöndu eru um margt þau sömu og tímaritsins. Hér ræðir Jón Kristinn við Markús um til...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.