Sögufélag
Blanda – hlaðvarp Sögufélags
Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: podcasters.spotify.com
Autor
Sögufélag
Kategoria
Strona podcastu
Ostatni odcinek
10 lip 2026
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
#62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi 10.07.2026 1:25:22
Förufólk í Laugarnesi: Fyrir um hundrað árum settist dularfull fjölskylda að í Laugarnesi með vísi að dýragarði. Fljótlega voru þau talin sígaunar og vöktu mikla athygli víða um land. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson hefur skoðað sögu þeirra og rekur hér þessa ævintýralegu frásögn í samtali við Markús Þórhallsson.
#61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára 29.06.2026 1:30:54
Bandaríkin verða 250 ára í sumar og af því tilefni ræddi Markús Þórhallsson við Val Gunnarsson sagnfræðing um upphaf þessa volduga ríkis, sögu þess og þróun.
#60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi 03.06.2026 34:11
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur um bók hennar, Þurfamenn fá mannréttindi, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi, með sérstakri áherslu á Reykjavík, en í forgrunni er þýðingarmikil breyting á fátækralögum árið 1927 og breyttar hugmyndir um mannréttindi þeirra sem þurftu að þiggja opinbera aðst...
#59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn 03.06.2026 43:24
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Arnþór Gunnarsson um bók hans, Hringvegurinn, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó og hefst á hinni sögulegu vígslu Skeiðarárbrúar 1974 en með henni var lokið við hringveginn um Ísland, sem lengi hafði ekki verið til í villtustu draumum landsmanna.
#58 Þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi 13.05.2026 1:00:07
Markús Þórhallsson ræðir við sagnfræðiprófessorana Erlu Huldu Halldórsdóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur um þær þjóðaratkvæðagreiðslur sem haldnar hafa verið á Íslandi. Þær leggja einkum áherslu á viðamikla og óvenjulega þjóðaratkvæðagreiðslu um lýðveldisstofnun og upptöku nýrrar stjórnarskrár árið 1944.
#57 Sumarliði R Ísleifsson og Grænland 24.04.2026 1:15:07
Mannlíf og stjórnmál nútímans á Grænlandi, hörð náttúruöflin og ævintýraheimur norðursins ber vitaskuld á góma ásamt fjölmörgu öðru forvitnilegu í samtali Sumarliða R Ísleifssonar prófessors emeritus og Markúsar Þórhallssonar fréttamanns og sagnfræðings.
#56 Ný og spennandi ritröð Sögufélags væntanleg 16.02.2026 25:13
Gunnar Þór Bjarnason, Kristín Svava Tómasdóttir og Rósa Magnúsdóttir ræða um Seríu Sögufélags, nýja ritröð stuttra bóka sem hefur göngu sína í vor, en hún er byggð á dönsku ritröðinni 100 danmarkshistorier.
#55 Samfélag átjándu aldar – Hvað segja þau okkur? 29.01.2026 1:12:16
Jón Kristinn Einarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, þjóðskjalavörð og fyrrv. forseta Sögufélags, um rannsóknir hennar á samfélagi átjándu aldar. Þau spjalla um þéttbýlismyndum á Íslandi fyrir tíma iðnvæðingar, ullarvinnslu og viðreisnaráætlanir átjándu aldar, efnahagshugsun upplýsingarinnar, kameralisma og ýmislegt fleira.
#54 Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir um Piparmeyjar 02.12.2025 48:37
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sagnfræðing og höfund bókarinnar Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi . Bókin er jöfnum höndum saga ógiftra íslenskra kvenna og saga Reykjavíkurstúlkunnar Thoru Friðriksson, skarpgreindrar konu með stóra drauma sem hún fékk ekki tækifæri til að láta rætast fyrr en á miðjum aldri, eftir að hún var búin að...
#53 Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga? 25.11.2025 54:42
Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga. Allt um það í þessum nýja Blönduþætti Sögufélags. Markús Þórhallsson ræðir við Pál Björnsson, sagnfræðing og prófessor við Háskólann á Akureyri, um nýjustu bók hans, Dagur þjóðar: Þróun 17. júní hátíðarhalda á 19. og 20. öld. Páll greinir frá hvernig 17. júní varð að þjóðhátíðardegi Íslendinga snemma á 20. öld, segir frá öðrum dögum sem...
#52 Kristín Svava Tómasdóttir um Fröken Dúllu 19.11.2025 41:16
Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa...
#51 Davíð Ólafsson og Mynd og hand. Skólasaga 1939-1999. 23.10.2025 40:34
Í þættinum ræðir Kristín Svava Tómasdóttir við Davíð Ólafsson, sagnfræðing og dósent við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, um nýútkomna bók hans og Arndísar S. Árnadóttur, Mynd og hand. Skólasaga 1939–1999. Í þættinum spjalla Kristín Svava og Davíð vítt og breytt um bókina og sögu Myndlista- og handíðaskóla Íslands, allt frá því að hann hóf að starfa í fjórum geymsluherbergjum í kjallar...
#50 Jón Karl Helgason og Tindátarnir 06.10.2025 28:09
Forsíðugrein Sögu að þessu sinni fjallar um myndabókina Tindátanna eftir Nínu Tryggvadóttur og Stein Steinarr sem Ragnar í Smára gaf út árið 1943. Í Blöndu að þessu sinni ræðir Haukur Ingvarsson við höfund greinarinnar, Jón Karl Helgason bókmenntafræðing. Meðal þess sem ber á góma er sú merkilega forspá sem í bókinni felst. Nína og Steinn spá þar ekki aðeins fyrir um endalok Adolfs Hiltlers heldur...
#49 Anna Agnarsdóttir og sjálfsævisaga Klemensar Jónssonar 26.09.2025 58:15
Í þessum þætti Blöndu ræðir Markús Þórhallsson við Önnu Agnarsdóttur, prófessor emerítus í sagnfræði, um sjálfsævisögu Klemensar Jónssonar sem Sögufélag gefur út og hún ritstýrir ásamt Áslaugu systur sinni. Klemens var af fátæku fólki kominn sem tryggði honum þó þá bestu menntun sem möguleg var á seinni hluta 19. aldar. Þessi föðurafi systranna komst til metorða á umbrota- og breytingatímum í ísle...
#48 Vilhelm Vilhelmsson um Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld 11.07.2025 48:57
Var vistarbandið ánauð og vinnuhjú þrælar? Um það skeggræða höfundur bókarinnar Sjálfstætt fólk. Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld, Vilhelm Vilhelmsson og Markús Þórhallsson.
#46 Skafti Ingimarsson um Nú blakta rauðir fánar 27.06.2025 54:36
Ævar Kjartansson ræðir við höfundinn, Skafta Ingimarsson, um bók hans, Nú blakta rauðir fánar, m.a. hvers vegna kommúnistahreyfingin á Íslandi var jafn öflug og raun ber vitni einnig um valdabaráttuna innan hreyfingarinnar og togstreituna milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar, sem fram kom í starfi hennar.
#47 Valgerður Pálmadóttir um Mörk - Norræna sagnfræðiþingið 13.-15. ágúst 27.06.2025 33:04
Mörk (grænser / borders) er yfirskrift Norræna sagnfræðingaþingsins sem haldið verður í Háskóla Íslands dagana 13–15 ágúst. Dagskráin er gríðarlega fjölbreytt og spennandi en meðal efna sem fjallað verður um eru: Samskipti manna og dýra, umhverfissaga, stríð og friður, menning og stjórnmál miðalda, kalda stríðið í nýju ljósi, söguskoðun, minni og stjórnmál, áskoranir í sögukennslu og norræn einsög...
#42 Guðmundur Jónsson og Ástand Íslands um 1700 26.06.2025 52:25
Hverjir áttu Ísland? Jón Kristinn Einarsson ræðir við Guðmund Jónsson, ritstjóra bókarinnar, Ástand Íslands um 1700 , í glænýjum Blönduþætti. Þeir fara vítt og breitt um sviðið og velta upp hvernig var að búa á gamla Íslandi, landi bænda og sjómanna, höfðingja og almúgamanna. Bókin er samstarfsverkefni sjö fræðimanna og byggir á stórmerkilegum heimildum, jarðabókinni, kvikfjártalinu og manntalinu...
#41 Hrafnkell Lárusson og Lýðræði í mótun 26.06.2025 56:22
Það fer vel á því að ræða um mótun lýðræðis á 80 afmælisári lýðveldisins. Nýr þáttur að Blöndu kominn í loftið. Jón Kristinn Einarsson og Hrafnkel Lárusson spjalla um bók Hrafnkels, Lýðræði í mótun. Þar spjalla þeir um vöxt frjálsra félaga og samtaka á árabilinu 1874-1915 og hvernig almenningur, með þátttöku sinni í þeim, setti mark sitt á íslenska samfélags- og lýðræðisþróun. Hvernig breytingar...
#39 Kobeinn Rastrick um 30. marz 1949 26.06.2025 35:17
Í þættinum ræðir Katrín Lilja við Kolbein Rastrick sem ritaði grein við forsíðumynd Sögu tímarits Sögufélagsins sem kom út í lok árs 2023. Í greininni, sem er byggð á BA-ritgerð Kolbeins úr kvikmyndafræði, greinir Kolbeinn kvikmyndir sem teknar voru af óeirðunum við Austurvöll 30. mars 1949, daginn sem umræður voru á Alþingi um inngöngu Íslands í NATO.
#45 Viðurkenningarhafinn Erla Hulda Halldórsdóttir og saga Sigríðar Pálsdóttur. 28.02.2025 50:49
Bókin, Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1808 -1871, sem hlaut viðurkenningu Hagþenkis nú á dögunum er til umfjöllunar í nýjum Blöndu þætti Sögufélags. Bragi Þorgrímur Ólafsson og Erla Hulda ræða saman um sögu Sigríðar Pálsdóttur, sem skildi eftir sig vitnisburð um ævi sína í formi 250 bréfa sem hún skrifaði bróður sínum, Páli Pálssyni stúdent, 1817-1871. Þessi bréf, og viðamikið br...
#44 Gunnar Tómas Kristófersson og íslensk kvikmyndasaga 21.02.2025 51:34
Þátturinn er helgaður íslenskri kvikmyndasögu. Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur á Kvikmyndasafni Íslands og doktorsnemi í kvikmyndafræði, hefur verið ötull við að skrifa í tímaritið Sögu undanfarin ár. Hann hefur birt greinar um fyrstu konurnar sem leikstýrðu kvikmyndum á Íslandi, Ruth Hanson og Svölu Hannesdóttur, og um kvikmyndagerð Vigfúsar Sigurgeirssonar. Nýjasta grein hans mun birtas...
#43 Drottningin í Dalnum 19.12.2024 1:14:36
Markús Þórhallsson ræðir við Eggert Ágúst Sverrisson um nýútkomna bók hans Drottningin í Dalnum. Þetta er fyrsta bók Eggerts á þessum vettvangi. Hann lauk námi í viðskiptafræðum 1974 og starfaði að mestu við fjármál og vátryggingar á starfsferli sínum. Þegar hann lét af störfum fór hann í nám í sagnfræði og lauk BA námi 2019. Þá hóf hann að skrifa þessa einstöku bók sem er gott heimildarrit sem br...
#40 Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Ólympíuleikarnir 1948 27.11.2024 30:16
Sumarólympíuleikarnir í London árið 1948 voru merkilegir fyrir margra hluta sakir. Vegna seinni heimsstyrjaldarinnar höfðu ekki verið haldnir Ólympíuleikar í 12 ár, en aðstæður í London voru erfiðar svona stuttu eftir stríð og stundum er talað um „meinlætaleikana“ af þeim sökum. Þetta voru líka fyrstu sumarleikarnir sem Ísland keppti á eftir lýðveldisstofnun og Íslendingar höfðu metnað til að stan...
#38 Haraldur Sigurðsson um Samfélag eftir máli 01.02.2024 1:25:43
Haraldur Sigurðsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Í þessum þætti Blöndu ræðir hann við Einar Kára Jóhannsson um víðfeðmt efni bókarinnar. Samfélag eftir máli fjallar um skipulag borgar, bæja og þorpa á Íslandi á 20. öldinni. Í aðra röndina er rakin saga skipulagsgerðar og þéttbýlis og í hina hugmyndasaga skip...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS