Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands
Til skjalanna
Hvað er Þjóðskjalasafn Íslands? Forvitnileg skjöl, sögulegir viðburðir og nýjar rannsóknir
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: heimildir.is
Autor
Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands
Kategoria
Strona podcastu
Ostatni odcinek
8 lip 2026
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Berklar á Íslandi 08.07.2026 53:53
Helgi Biering ræðir við dr. Erlu Dóris Halldórsdóttur um bók hennar Berklar á Íslandi. Berklaveiki var mikið mein í íslensku samfélagi og var dánartíðni berklasjúklinga hér á landi meðal þeirra hæstu í Evrópu. Veikin lagðist einkum þungt á ungt fólk og voru ungar konur í meirihluta þeirra sem létust af völdum hennar. Í þættinum er farið yfir sögu berkla á Íslandi, afleiðingar veikinnar og baráttu...
Vorráðstefnur Þjóðskjalasafns Íslands 26.06.2026 19:37
Árleg vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands fór fram 3. júní síðastliðinn og var það í áttunda sinn sem ráðstefnan var haldin. Í þættinum ræða Heiðar Lind Hansson, fagstjóri gagnaskila og eftirlits og Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður, um tilurð ráðstefnunnar, þróun hennar og fyrri ráðstefnur. Þemu vorráðstefnanna hafa verið fjölbreytt og endurspeglað þau mál sem hafa verið efst á baug...
Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar 1874-1903 06.05.2026 36:15
Unnar Ingvarsson fagstjóri ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um nýjan vefgagnagrunn um alþingiskosningar á árunum 1874–1903, sem opnaður var þann 1. maí á vef Þjóðskjalasafns Íslands. Þar má finna upplýsingar sem varpa ljósi á kosningar, frambjóðendur og stjórnmálaþróun á fyrstu áratugum íslensks lýðræðis. Í þættinum er fjallað um tilurð gagnagrunnsins, hvaða heimildir liggja honum að baki o...
Strand spítalaskipsins Sankti Páls á Meðallandsfjörum árið 1899 30.03.2026 31:35
Í þessum þætti ræðir Símon Sverrisson við Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur sagnfræðing og verkefnastjóra heimildaútgáfu á Þjóðskjalasafni Íslands um strand franska spítalaskipsins Sankti Páls. Sankti Páll var með glæsilegri skipum sem komu á Íslandsmið en það var þrímastra seglskip sem strandaði í sinni þriðju ferð til Íslands árið 1899. Hið fagra skip vakti eðlilega mikla athygli þar sem það lá í fjöru...
Draugaskipið Jamestown 24.02.2026 28:31
Símon Sverrisson ræðir við Helga Biering þjóðfræðing og skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um rannsóknir hans á strandi Jamestown árið 1881. Þann 26. júní árið 1881 strandaði seglskipið Jamestown við Hvalsnes á Reykjanesi. Skipið sem var á leið frá Bandaríkjunum til Liverpool á Englandi var fullt af timbri af mismuanndi tegundum svo sem harðvið. Ólukka virtist fylgja skipinu en úti á rúmsjó dat...
Vald hinna veiku 28.01.2026 48:56
Unnar Ingvarsson fagstjóri á Þjóðskjalasafni ræðir við Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands, um rannsóknir hans á þorskastríðunum og væntanlega bók hans, Vald hinna veiku . Útfærsla efnahagslögsögu Íslands á 20. öld leiddu iðulega til átaka við Breta, sem mótmæltu þeim áformum harðlega. Deilurnar náðu hámarki þegar kom til átaka á fiskimiðunum sjálfum, þar...
Fröken Dúlla: Ævisaga 18.12.2025 31:22
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur um nýjustu bók hennar sem nefnist Fröken Dúlla: Ævisaga. Í bókinni fer Kristín Svava yfir ævi og störf Jóhönnu Knudsen hjúkrunar- og lögreglukonu sem þekktust er fyrir vinnu sína fyrir lögreglu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Kristín Svava segir í viðtalinu meðal annars frá heimildaöflun, vinnslu og aðdraganda bókarinnar.
38 ár í Þjóðskjalasafni 11.12.2025 42:17
Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ræðir við Kristjönu Kristinsdóttur skjalavörð, fyrrum sviðsstjóra í Þjóðskjalasafni og fyrrum lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands. Kristjana hefur unnið á Þjóðskjalasafni Íslands frá árinu 1988 en mun í lok árs láta af störfum. Í þessum þætti ræðir Kristjana um það hvernig hún fór að vinna við skjalavörslu, viðhorf til skjalavörslu og hvað breyst h...
Vinnukona, ómagi, stúlka og frú 30.10.2025 53:32
Helgi Biering ræðir við sagnfræðinginn Atla Björn Jóhannesson um MA-ritgerð hans, Vinnukona, ómagi, stúlka og frú . Ritgerðin fjallar um konur sem skrifuðu undir áskorun Hins íslenska kvenfélags árið 1895 - fyrstu skipulögðu kvenréttindakröfuna á Íslandi á landsvísu. Konur úr öllum stéttum tóku þátt. Þátttakan var misjöfn eftir landshlutum og fór eftir einstaklingsframtaki á hverjum stað. Þáttur...
Minja- og sögufélag Grindavíkur. Að varðveita sögu og menningu. 03.06.2025 42:52
Í þessum þætti ræðir Helgi Biering við Hall Jónas Gunnarsson, eina af driffjöðrum Minja- og sögufélags Grindavíkur. Farið er yfir upphaf félagsins, hið mikilvæga starf við söfnun, skráningu og miðlun heimilda og minja.
Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna 28.04.2025 43:12
Helgi Biering ræðir við Þórunni Marel Þorsteinsdóttur sagnfræðing um rannsókn hennar á lausamennsku. Þórunn skrifaði BA ritgerð sem heitir Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna: Afbrot og siðferði á Akureyri 1810 – 1840. Eftir að einokunarverslun lauk og kaupstaðir tóku að myndast á Íslandi í upphafi 19. aldar, hófst þéttbýlismyndun þar sem atvinnuleit dró fólk að verslunarstöðunum. Þó...
Aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja frá 1964 27.03.2025 33:52
Í febrúar árið 1964 var unnin aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja vegna mögulegrar hættu af völdum náttúruhamfara. Jón Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur vann skýrsluna fyrir dr. Ágúst Valfells þáverandi forstöðumann almannavarna ríkisins. Skýrslan nýttist svo þegar gaus í Vestmannaeyjum þann 23. janúar 1973. Helgi Biering ræðir við þá Jón og dr. Ágúst varðandi skýrslun...
Ættfræði og tækni 27.02.2025 51:41
Íslendingar hafa löngum haft mikinn áhuga á ættfræði, en hvernig geta tölvunarfræði og tæknilausnir auðveldað ættfræðirannsóknir? Í þessum þætti fara Helgi Biering og Agnar Guðmundsson, tölvunarfræðingur og áhugamaður um ættfræði út um víðan völl, um tengsl ættfræði og tækni, gagnagrunna, skjalavörslu og forvitnilegar uppgötvanir í ættfræðinni.
Cornell háskóli. Saga, söfn og aðgengi. 16.01.2025 39:43
Ólafur Arnar Sveinsson sviðsstjóri fræðslu og rannsókna hjá Þjóðskjalasafni Íslands ræðir við Elaine L. Westbrooks yfirbókavörð Cornell háskólabókasafnsins. Á meðal þess sem rætt er um er traust til safna, Willard Fiske safnið sem hefur að geyma bækur og handrit á íslensku, aðgengi að gögnum og áhugaverða sögu Cornell háskóla. Þátturinn er á ensku.
Jólasiðir þá og nú 16.12.2024 31:45
Helgi Biering ræðir við dr. Margréti Gunnarsdóttur skjalavörð um hefðir, siði og venjur Íslendinga í kringum jól og áramót. Margrét, sem er höfundur ævisögu Ingibjargar Einarsdóttur, eiginkonu Jóns Sigurðssonar, fræðir hlustendur um það til dæmis hvernig jólahaldi var háttað á heimili þeirra hjóna við Austurvegg í Kaupmannahöfn. Áhrif erlendis frá, einkum frá Danmörku, hafa augljóslega náð til la...
Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703 27.11.2024 22:27
Helgi Biering ræðir við Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um BA ritgerð hennar frá árinu 2020 sem ber heitið Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703 . Kvikfjártalið er einstök heimild um búskarparhætti og samfélagsgerð á Íslandi í byrjun 18. aldar. Meðal þess sem fram kemur í þættinum er greiðsla vegna kúgjaldaleigu, sauðir með höfuðsótt, skattaafslá...
Blái skjöldurinn 23.10.2024 33:18
Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits hjá Þjóðskjalasafni Íslands um Bláa skjöldinn. Blái skjöldurinn er alþjóðlegt tákn um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum og er að ýmsu að hyggja í þeim málum í dag. Einnig koma við sögu viðbragðsáætlanir, rafræn gögn, rýmingarstefna og Norður-Kórea.
Heimsókn til Gdansk í Póllandi 30.09.2024 44:00
Helgi Biering ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði um námsferð starfsmanna Þjóðskjalasafns Íslands til Gdansk í Póllandi. Tilgangur ferðarinnar var heimsókn í eitt af útibúum Þjóðskjalasafns Pólands, fræðast og kynnast þeim sem starfa við skjalavörslu. Einnig var rætt um áskoranir í skjalavörslu og bornar saman bækur. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er þroskastig skjala,...
Netógnir dagsins í dag 12.08.2024 38:47
Heiðar Lind Hansson ræðir við Bjarka Þór Sigvarðsson fagstjóra ástandsvitundar hjá CERT-IS um netöryggi í leik og starfi í dag. Gagnagíslataka, tvöföld fjárkúgun, árásarkeðjur og gagnaöryggi er meðal þess sem rætt er um í þættinum.
Þjóðlendurannsóknir 24.06.2024 26:03
Helgi Biering ræðir við Ólaf Arnar Sveinsson fagstjóra fræðslu og rannsókna og Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur skjalavörð um Þjóðlendurannsóknir sem farið hafa fram á Þjóðskjalasafni Íslands í um tuttugu ár.
„Þessi frægu glæpamál“ 15.05.2024 43:52
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Jón Torfason og Má Jónsson um nýútkomna bók þeirra Þessi frægu glæpamál. Í þættinum ræða þau um ein þekktustu morðmál Íslandssögunnar en það eru morðin á Sjöundá og Illugastöðum.
Út á brún og önnur mið 17.04.2024 38:40
Helgi Biering ræðir við Hauk Aðalsteinsson rithöfund og skipasmið um bókina Út á brún og önnur mið. Útgerðarsaga Vatnsleysustrandarhrepps til 1930. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er verbúðalíf, skipasmíðar, spítalafiskur og hvalveiðar í net.
Trump, varðveisla og aðgengi að opinberum skjölum. 22.03.2024 31:25
Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands um rannsóknir bandarísku alríkislögreglunnar og kærur á hendur Donald Trump vegna opinberra skjala sem fundust á heimili hans. Í því samhengi ræða þau um hvaða reglur gilda um opinber gögn á Íslandi.
Skjalafréttir 10 ára 19.02.2024 21:12
Helgi Biering ræðir við Árna Jóhannsson skjalavörð um fréttabréf Þjóðskjalasafns Íslands Skjalafréttir. Fyrsta tölublað Skjalafrétta kom út 14. janúar árið 2014 og því fagnar það 10 ára afmæli um þessar mundir.
Dómabókagrunnur Þjóðskjalasafns 17.01.2024 44:00
Skjalaverðirnir Jón Torfi Arason, Helga Hlín Bjarnadóttir og Yngvi Leifsson ræða saman um sögulega efnisskrá dómabóka sýslumanna, svokallaðan dómabókagrunn, sem unnið hefur verið að á Þjóðskjalasafni síðastliðin 16 ár og er nú senn að ljúka.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS