Hljóðkirkjan
Draugar fortíðar
Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.
Author
Hljóðkirkjan
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 4, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#173 Óvinkonur Guðs - Sérstakur gestur: Dr. Yngvi Leifsson 03.01.2024 1:18:56
Við höfum áður minnst á ólíkar nálgunaraðferðir sagnfræðinnar. Ein þeirra er einsagan. Þar skoða sagnfræðingar samfélagið og söguna frá einstaklingum. Oft er ekki um að ræða þjóðarleiðtoga eða ráðamenn. Frekar er það almenningur eða jafnvel fólk sem taldist vera neðarlega í goggunarröð samfélagsins. Í þessum þætti fáum við góðan gest í heimsókn en það er sagnfræðingurinn Yngvi Leifsson. Hann hefur...
#167 Ísrael - Palestína 3. þáttur - Intifada, PLO, Hamas og Hezbollah 11.12.2023 2:16:47
Árið 1987 sauð upp úr á Vesturbakkanum og Gaza. Ísraelar höfðu stóraukið umsvif á landnemabyggðum og hert mjög allt eftirlit. Palestínumenn hófu að kasta grjóti og var svarað með kúlnahríð. Í kjölfar þessarra átaka minnkaði mjög stuðningur við PLO en öfgafull samtök múslíma sem kölluðu sig Hamas fengu mikinn meðbyr. Í Líbanon fór að bera meira á herskárri hreyfingu sem kallast Hezbollah. Í þessum...
#166 Ísrael - Palestína 2. þáttur - Stríð á stríð ofan 11.12.2023 1:49:36
Ísraelsríki var stofnað í maí 1948 og hóf tilveru sína strax með því að berjast hatrammlega fyrir henni. Aðeins fáum klukkustundum eftir að sjálfstæðisyfirlýsingin var tilkynnt, réðust herir frá Egyptalandi, Sýrlandi, Líbanon og Írak inn í landið. Ísrael var þá að mestu án öflugra vina en nú sárvantaði þá vopn og verjur. Aðeins voru til vopn fyrir einn hermann af þremur. Í snarhasti tókst að kaupa...
#165 Ísrael - Palestína 1. þáttur - Síonismi og leiðin aftur til landsins helga 11.12.2023 1:51:22
Um þessar mundir standa yfir blóðug átök á Gaza-svæðinu. Allt frá stofnun Ísraels-ríkis árið 1948 hefur verið mikil ólga í kringum það. Við vildum skyggnast aðeins inn í þessa sögu. Hvers vegna er barist og hví var Ísraels-ríki stofnað nákvæmlega á þessum stað, við mikil mótmæli þeirra sem þar bjuggu fyrir? Til að fá heildarmynd verðum við að byrja ferð okkar mun fyrr. Þessi þáttur skoðar sköpun þ...
#169 Pólitík og fótbolti: Lutz Eigendorf, Matthias Sindelar o.fl. 06.12.2023 2:23:15
Við heyrum oft fólk segja að pólitík eigi ekki heima í listum og íþróttum. En er það rétt? Hafa listamenn í gegnum tíðina ekki bara verið mjög pólitískir heldur hreinlega haft áhrif á því sviði? Hafa Bob Dylan og Bubbi Morthens ekki verið pólitískir. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvernig fótbolti og stjórnmál hafa rekist á hvort annað. Við tökum fyrir þá Lutz Eigendorf og Matthias Sindelar. Fr...
#164 Saga Tíbet 01.11.2023 1:46:25
Tíbet á sér ríka og flókna sögu sem nær aftur til forsögulegra tíma. Ríkið Zhangzhung, sem var til á milli 500 f. Kr. og 625 e. Kr. er talið undanfari síðari tíma tíbetska konungsríkja. Tíbetska veldið var stofnað á 7. öld og stóð fram á 9. öld. Eftir tímabil sundrungar á 9.-10. öld og endurvakningu búddismans á 10.-12. öld, urðu til þrír af fjórum helstu skólum hins tíbetska búddisma. Tíbet varð...
#160 Strand togarans Friedrich Albert árið 1903 04.10.2023 1:33:00
Mörg skip hafa farist við Íslandsstrendur. Það er kaldranaleg tilhugsun að svartur sandur og hvítir jöklar hafa stundum verið það síðasta sem margir erlendir sjómenn sáu áður en hafið og kuldinn tóku líf þeirra. Stundum gerast atvik sem maður getur þó ekki annað en gapað yfir. Þátturinn í dag fjallar um slíkan viðburð sem átti sér stað fyrir 120 árum. Þá strandaði þýskur togari á einum allra verst...
#156 Þorskastríðin. 1. þáttur: Aðdragandi 06.09.2023 1:46:24
Á 20. öld átti Ísland í hatrammri deilu um fiskveiðilögsögu við margar þjóðir. Hörðust var deilan við Bretland sem sendi sjálfan flotann í þrígang á Íslandsmið til að skakka leikinn. Bretar göntuðust með að ekki væri nóg að það væri "Cold War", heldur væri nú komið "Cod War", eða þorskastríð. Nafnið hefur fest sig í sessi þrátt fyrir að þetta hafi á engan hátt verið stríð, í fullri merkingu þess o...
#151 Landbúnaður í Albaníu 02.08.2023 1:56:21
Flosi hefur oft sagt að hægt sé að gera nær allt áhugavert, nema mögulega landbúnaðarsögu Albaníu. Þetta er svona göngugrína (e. running gag) sem hlustendur þekkja ágætlega. Í hverjum þætti fá styrktaraðilar á Patreon að velja um þrjú umfjöllunarefni. Hið hlutskarpasta verður svo tekið fyrir í einum þætti. Það er Flosi sem sér um að koma með tillögur að þætti. Hins vegar er frestunarárátta hans st...
#147 Barnið í loftbelgnum 07.06.2023 1:20:26
Þann 15. október 2009 fékk neyðarlína Bandaríkjanna óhugnanlegt símtal. Hinum megin á línunni var skelfingu lostinn faðir. Með grátinn í kverkunum sagði hann sex ára son sinn hafa farið inn í heimasmíðaðan loftbelg sem hefði losnað og væri nú kominn í mörg hundruð metra hæð. Viðbragðsaðilar víðs vegar voru kallaðir út og m.a. sendi Þjóðvarðliðið eina Black Hawk herþyrlu í leitina. Betur fór en á h...
#142 Konurnar í lífi Hitlers 03.05.2023 2:45:04
Þegar þeirri spurningu er kastað fram hver sé mögulega versta manneskja sem verið hefur uppi, kemur nafn Adolf Hitlers fljótt upp. Hann leiddi þjóð sína og raunar veröldina alla út í verstu og mannskæðustu styrjöld sögunnar. Ofstækisfullar skoðanir hans voru fullar af hatri og illsku. Það er erfitt að ímynda sér að þannig maður hafi getað elskað. Þó er það svo að Adolf Hitler átti í ástarsamböndum...
#138 Laxdæla saga 05.04.2023 2:16:46
Styrktaraðilar á Patreon fengu að velja um þrjár Íslendingasögur: Gunnlaugs saga Ormstungu hlaut aðeins 18% atkvæða. Gísla saga Súrssonar fékk 37%. Það var því ljóst að flest vildu heyra okkur taka fyrir Laxdæla sögu sem fékk 45%. Hún er ein af þessum stóru. Við höfum áður fjallað um Njáls sögu, Grettis sögu og Egils sögu. Því má segja að við séum nú búnir að fullkomna þessa yfirferð. Laxdæla er a...
#133 Terry Jo Duperrault 01.03.2023 1:35:24
Duperrault hjónin bjuggu í Wisconsin ásamt þremur börnum sínum. Þar er veturinn afar kaldur og þau hafði lengi dreymt um að fara í ferðalag á hlýjar slóðir á þeim tíma. Sumarið 1961 höfðu þau safnað fyrir draumaferðinni: Siglingu frá Florida til Bahamaeyja. Þau leigðu bát og fengu Julian Harvey til að stjórna fleyinu. Eiginkona Harvey kom einnig með og ætlaði að sjá um matreiðslu. Þetta átti að ve...
#129 Grettir Ásmundarson 01.02.2023 2:01:38
Í þessum þætti skoðum við aðalsöguhetju Grettis sögu sem er ein sú þekktasta af Íslendingasögunum. Raunar verður að spyrja sig hvort rétt er að nota orðið „hetja“ yfir Gretti því hann var glæpamaður og útlagi. Vissulega drýgði hann hetjudáðir og tókst á við ill öfl sem enginn annar réði við. Þó er það harmurinn sem ræður ríkjum í Grettis sögu. Hún er saga manns sem hafði margt til brunns að bera,...
#125 Nikola Tesla 04.01.2023 2:05:00
Lengi vel var serbneski uppfinningamaðurinn Nikola Tesla þekktur sem maður sem hafði hugsað stórt en ekki komið megninu af hugmyndum sínum í verk. Samt var og er óumdeilt að hann hafi lagt sitt af mörkum á þeim tíma er vísinda og uppfinningamenn voru að leggja drög að þeirri vinnu sem átti eftir að skila okkur nútímafólkinu hreint stórkostlegum uppfinningum sem ekkert okkar gæti hugsað sér að vera...
#LD3 Hernámið á Austfjörðum 07.12.2022 2:15:13
Baldur og Flosi fóru til Reyðarfjarðar í boði Fjarðabyggðar og Menningarstofu Fjarðabyggðar og fylltu þar gamlan hermannabragga af fólki. Síðan var farið að ræða hernámið í seinni heimsstyrjöld og sérstaklega var sjónum beint að Austfjörðum. Hvaða hlutverki gegndu Reyðarfjörður og Seyðisfjörður? Hvernig voru samskipti heimamanna og þessara ungu drengja sem voru langt frá heimkynnum sínum í harðbýl...
#121 Íslandsvinurinn Pike Ward 02.11.2022 53:20
Seint á 19. öld kom hingað Englendingur sem vildi kaupa fisk af Íslendingum. Englendingar voru á þessum tíma uppfullir af heimsveldishroka og vinsældir þeirra litlar víðast hvar. Ísland var þar engin undantekning. Enskir togaramenn vanvirtu ítrekað landhelgina og ollu skaða á veiðarfærum heimamanna og hikuðu ekki við að beita ofbeldi. Hvað var það þá í fari Pike Ward sem olli því að Íslendingar tó...
#117 Byltingin á Haítí 05.10.2022 2:56:42
Líklega þekkja flestir til byltinganna í Ameríku 1776 og Frakklandi 1789. Þessir atburðir eru oft nefndir sem mikilvægt skref í átt að frelsi og lýðræði í veröldinni. Vissulega eru þetta merkisatburðir og höfðu gífurleg áhrif. Þó vill oft gleymast að þessar þjóðir veittu ekki öllum í ríkinu frelsi og réttindi. Í ríkjunum voru enn margar milljónir fólks sem höfðu verið svipt frelsi sínu og það brey...
#113 Hin djöfullega skelfing 07.09.2022 1:50:53
Á fyrrihluta níunda áratugar reið einkennilegt fár yfir Bandaríkin. Foreldrar, forráðamenn og kennarar unglinga þóttu greina þess augljós merki að myrkrahöfðinginn sjálfur væri að ná tökum á þeim. Það þóttist sjá greinileg merki um fórnarathafnir og aðrar myrka starfshætti sem tengjast illþýði helvítis. Frétta - og spjallþættir voru uppfullir af umræðu um "satanic panic" og svo rammt kvað að þessu...
#108 Flóabardagi 03.08.2022 1:28:48
Sturlungaöld er mesta ófriðartímabil í sögu Íslands. Þá hafði valdajafnvægi riðlast og sterkustu ættir landsins gerðust aðsópsmeiri í að eignast jarðir og öðlast völd. Sumir hafa lýst þessu tímabili sem hreinræktaðri borgarastyrjöld þó frekar hafi þetta verið valdabarátta í samfélagi sem enn byggðist upp á einhverskonar ættbálkaskipan. Mannskæðustu orrustur Íslandssögunnar voru háðar á þessum tíma...
#104 Harmsaga æfi minnar 06.07.2022 3:02:48
Árið 1945 kom út ævisaga Jóhannesar Birkiland. Hún bar titil sem vart á sinn líka í Íslandssögunni. Bókin heitir "Harmsaga æfi minnar - Hvers vegna ég varð auðnuleysingi". Líklega hefur aldrei komið út bók á verri tíma. Hún átti ekkert erindi við almenning á þessum tíma. Fólk var uppnumið og spennt í hinu nýja lýðveldi, fullt af eldmóði tilbúið að takast á margvísleg og erfið verkefni hinnar ný-sj...
#99 Paolo og plastbarkinn 01.06.2022 1:53:42
Í þessum þætti skoðum við ítalska skurðlækninn Paolo Macchiarini. Hann þótti á sínum tíma einn fremsti læknir veraldar og var talið að aðgerðir hans myndu lyfta grettistaki og valda byltingu í líffæraígræðslum. Svo reyndist ekki vera og Macchiarini er nú miðpunktur í einu mesta hneykslismáli í gjörvallri sögu læknisfræðinnar. Það mál teygir jafnvel anga sína til Íslands því einn af þeim sem var sv...
#95 Ólöf gerist eskimói 04.05.2022 2:03:37
Flestum er okkur kennt að það sé ljótt að ljúga. Hins vegar eru margir sammála um að lífið getur verið torfæra og sjálfsagt að fólk bjargi sér eins vel og það getur, svo lengi sem það bókstaflega skaði ekki annað fólk. Ólöf Sölvadóttir beitti lyginni óspart sér í hag. Henni til varnar má þó benda á að hún hafði ekki fengið góða vöggugjöf. Ólöf var dvergur og fædd á 19. öld, þegar eitt mesta harðær...
#94 Flotinn ósigrandi 27.04.2022 2:17:33
Þann 28. maí árið 1588 lögðu um 150 skip af stað frá Lissabon. Markmið þeirra var að fara til Hollands og sækja þar innrásarlið sem átti að ráðast á England. Þessi leiðangur er kyrfilega greyptur í enska þjóðarsál sem stórfenglegur sigur Englands á einu mesta herveldi þessa tíma, að þetta hafi verið Davíð gegn Golíat. En er það raunin? Var England eitthvað aflminni en Spánn? Af hverju voru Spánver...
Tilkynning um pásu 03.03.2022 2:43
Við ætlum í smá pásu. Við munum samt halda Patreon-inu gangandi. Ef þið hafið áhuga á að skoða það betur finnið þið það hér: https://www.patreon.com/draugarfortidar Heyrumst síðar! 🖤
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.