Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

History IS ↓ 152 episodes

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

Author

Hljóðkirkjan

Category

History

Podcast website

draugarfortidar.podbean.com

Latest episode

Feb 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#93 Refsivöndur Guðs 23.02.2022

Rómverska heimsveldið stóð í um 1000 ár og náði að eignast fjölmarga óvini á þeim tíma. Sumir voru hættulegri en aðrir en sá sem þessi þáttur er um olli þeim miklum vandræðum og skelfingu. Nafn hans var Attila og hann var konungur Húna. Rómverjar gáfu honum meira að segja nafn þáttarins sem á frummálinu var "Flagellum Dei." Í þessum þætti skoðum við Atla og Húna hans ögn og reynum að komast að því...

#92 Konan með lampann 16.02.2022

Flest höfum við líklega heyrt minnst á Florence Nightingale. Hún er almennt talin mikill frumkvöðull í hjúkrun og átti einna stærstan þátt í að breyta viðhorfi almennings á Vesturlöndum og víðar til greinarinnar. Hún lagði grunninn að nútíma hjúkrunarfræði sem víðast hvar er nú kennd á háskólastigi.   Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarn...

#91 Týr kemst í hann krappan 09.02.2022

Þann 6. maí 1976 gerðist atvik á hafi úti sem hefði hæglega getað breytt Íslandssögunni. Þetta er eitt alvarlegasta atvikið í þorskastríðunum svokölluðu og mátti hársbreidd muna að flaggskip Landhelgisgæslunnar skyldi ekki sökkva og mannfall verða. Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Rokksafn Íslands sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Draugann...

#90 Bjartari en þúsund sólir 02.02.2022

Anatoli Bugorski var að athuga bilun í stærsta eindahraðli Sovétríkjanna árið 1978. Þá var hann skotinn í hnakkann. Ekki með byssukúlu heldur brást öryggiskerfið all illilega og Bugorski fékk banvænan geisla á ljóshraða í gegnum höfuð sitt. Þetta skot innihélt margfalt meira magn af geislun en nokkur maður á að þola. Talið er að geislamagnið hafi verið hátt í 300.000 röntgen en 500 röntgen er nóg...

#89 Guð er dauður! 26.01.2022

Af fjölmörgum heimsspekingum sem hafa reynt að leiðbeina okkur í gegnum táradalinn og tilvistarkreppuna, er Friedrich Nietzsche líklega einn sá þekktasti og áhrifamesti. Flest okkar þekkjum fræga frasa hans eins og til dæmis nafn þáttarins. En hvað átti Nietzsche við er hann sagði Guð dauðan? Hvað meinar hann er hann segir að við eigum að reyna að verða ofurmenni? Var Nietzsche nasisti og gyðingah...

#88 Nostradamus: Sjáandi eða svikahrappur? 19.01.2022

Véfréttir, sýnir, bölbænir, berdreymni eða spádómar. Í gegnum mannkynssöguna hefur ekki verið skortur á fólki sem hefur talið sig sjá lengra en nefið nær. Þó er nokkuð athyglisvert að af öllum þeim frægu spámönnum sem hafa birst í gegnum tíðina, þá gnæfir einn yfir öllum hinum: Nostradamus. Þó að hann hafi nú legið í gröf sinni í fjórar og hálfa öld hefur orðspor hans lítið dvínað. Hvað veldur því...

#87 Uppgjöf er ekki í boði 12.01.2022

Á Vesturlöndum erum við vön því að heyra sögur af hermönnum sem gáfust upp og voru þá meðhöndlaðir samkvæmt alþjóðalögum um meðferð stríðsfanga, svokallaðri Genfar-samþykkt. Ekki hafa þó allar þjóðir samþykkt þessi lög. Einnig má finna ýmislegt hrollvekjandi í menningu ýmissa landa, hvað varðar stríð og uppgjöf. Sums staðar er það, að gefast upp fyrir óvininum, álitið svo mikil smán að viðkomandi...

#86 Joseph Beyrle 05.01.2022

Sögusviðið er seinni heimsstyrjöld 1944 -1945. 19 ára gamall drengur frá Michican-fylki í Bandaríkjunum kastar sér niður í fallhlíf yfir Frakklandi. Hann er fljótt tekinn til fanga og færður í þýskar fangabúðir. Þaðan reynir hann ítrekað að sleppa og tekst það nokkrum sinnum en alltaf handsamaður aftur. Í eitt skiptið nær hin illræmda Gestapó honum og hann er heppinn að lifa af þau kynni. Að lokum...

#85 Málmurinn sem mótaði mannkynið 29.12.2021

Þáttur dagsins fjallar um samband mannkynsins við efni. Nánar tiltekið ákveðinn málm. Erfitt er að ímynda sér heiminn og allt það sem mannkynið hefur áorkað ef fólk hefði aldrei náð að höndla þetta efni sem forfeður okkar og mæður trúðu að væri gjöf frá guðunum. Hér er ekki um að ræða glitrandi gull, skínandi silfur eða krúttlegan kopar. Málmurinn sem mótaði mannkynið er hið gráa og harða STÁL. Þa...

#84 Japan verður stórveldi 22.12.2021

Í þessum mánuði var þess minnst í Bandaríkjunum að 80 ár voru liðin frá því að keisaraveldið Japan réðst með herafli gegn þeim. Bandaríkjamenn tala oft um þessa árás sem huglausa og að hún hafi komið fullkomlega á óvart. Bandaríkin hafi ekki átt neitt sökótt við Japan. Getur það verið? Árið 1853 sigldi bandarískur floti til Japan og hótaði öllu illu, fengju þeir ekki sínu framgengt. Hvað gekk þeim...

#83 Átökin á Norður-Írlandi 15.12.2021

Í þessum þætti er fjallað um átökin á Norður-Írlandi sem Írar kalla vanalega "The Troubles". Íslendingar eru vanir því að þurfa að kljást við óblíð náttúruöfl. Sem betur fer höfum við sama sem ekkert kynnst því að eiga í illdeilum við aðrar þjóðir. Hvað þá að hópar innan þjóðarinnar sjálfrar berist á banaspjótum. Ein nágrannaþjóð hefur aftur á móti fengið að kynnast því allt of vel. Það eru íbúar...

#82 Hefnd af himnum ofan 08.12.2021

Líklega hafa fæst okkar upplifað sanna hefndarlöngun. Hér er átt við hefnd sem sprottin er af djúpstæðu hatri. Löngun til að valda fólki alvarlegum skaða eða dauða. Belgíski baróninn Jean de Selys Longchamps brann af hatri. Hatrið í honum dofnaði ekki, þvert á móti. Að lokum lét hann til skarar skríða. Baróninn hafði yfir að ráða einni fullkomnustu vígvél samtímans. Hefndaraðgerð hans myndi hafa á...

#81 Litli risinn 01.12.2021

Strax í barnæsku var ljóst að Richard Flaherty yrði dvergvaxinn. Hann mátti þola mikla stríðni og erfiðleika vegna vaxtarlagsins. En Richard sneri vörn í sókn, hóf að æfa bardagalistir af miklum móð og ákvað að gerast hermaður. Hann fékk undanþágu til að komast í herinn en þá var Richard aðeins 144 sentimetrar. Þetta stöðvaði ekki Richard sem rakaði til sín heiðurspeningum fyrir frækilega framgöng...

#80 Draugar 24.11.2021

Stuðningsfólk okkar á Patreon fær reglulega að velja um nokkur efni sem þau vilja heyra okkur taka fyrir. Að þessu sinni stóð valið á milli þriggja fyrirbæra úr íslenskum þjóðsögum en það voru draugar, tröll og huldufólk. Skemmst er frá því að segja að draugarnir sigruðu með yfirburðum. Það er kannski vel við hæfi. Bæði passar það vel við nafnið á hlaðvarpinu en einnig spilar það mögulega inn í að...

#79 Togaraskelfirinn 17.11.2021

Flestum er kunnugt um fiskveiðideilur við Bretland og fleiri ríki á seinni hluta 20. aldar sem í daglegu tali eru kölluð "þorskastríðin." Þetta vandamál nær þó mun lengra aftur enda var það þegar á síðmiðöldum að útlendingar hófu að senda hingað fiskiskip. Iðnbyltingin gerði það þó að verkum að í lok 19. aldar voru þetta ekki lengur seglskip, heldur stórir stáltogarar sem létu greipar sópa, Íslend...

#78 Plast 10.11.2021

Erfitt er að ímynda sér hvernig heimurinn var áður en plast var fundið upp. Matarílát voru iðulega úr postulíni, viði og jafnvel málmi. Auk þess voru alls kyns dýraafurðir notaðar í miklum mæli. Plastið er ótrúlegt efni, svo endingargott að það tekur margar aldir að brotna fullkomlega niður. Það þýðir að nær allt plast sem hefur verið framleitt er enn á plánetunni í einhverjum mæli. En þessi kostu...

#77 STASI Football Club 03.11.2021

Erfitt er að lýsa kalda stríðinu og því ástandi sem var í Evrópu á þeim tíma, fyrir þeim er ekki upplifðu þetta. Annar þáttastjórnenda man eftir þessum tíma og kannski sérstaklega eftir ákveðnu landi í Austurblokkinni sem ekki er lengur til en það var Alþýðulýðveldið Austur-Þýskaland. Þar var afar illræmd leynilögregla sem sá um öryggi ríkisins. Hún hét Staatssicherheitsdienst en var iðulega köllu...

#76 Idi Amin 27.10.2021

Sumt í þessum þætti getur valdið óhug. Hann er enn í dag einn þekktasti einræðisherra sögunnar. Idi Amin rændi völdum í Úganda árið 1971. Við tók tímabil sem eldra fólk í landinu á enn erfitt með að ræða um. Stjórnarfarið einkenndist af taumlausri vænisýki og ótrúlegri grimmd. Í þessum þætti reynum við að skoða hvort mögulegt sé að einhverjar af þeim hræðilegu sögum sem gengu af Amin séu mögulega...

#LD1 Villta vestrið | Hljóðkirkjan & áhorfendur 22.10.2021

Það eru eflaust fá tímabil í mannkynssögunni sem hafa ratað jafn oft á blaðsíður skáldsagna, leiksviðið eða hvíta tjaldið, eins og hið svokallaða "villta vestur" á 19. öld. Nær allir jarðarbúar kannast við sögur af harðduglegum kúrekum, blóðþyrstum indíánum og illmennum sem skjóta hvorn annan með köldu blóði í harðvítugu einvígi þar sem skjótasta skyttan sigrar. En hvar endar raunveruleikinn og sk...

#75 Satan fer til Svíþjóðar 20.10.2021

Hin svokallaða "brennuöld" var tímabil á 17. öld sem einkenndist af mikilli vænisýki kristinna manna sem skyndilega sáu Satan og nornir hans í hverju horni. Klerkar og biskupar létu fangelsa, pynta og myrða fólk sem bjó yfir einhverri læknisfræðilegri þekkingu s.s. ljósmæður, grasalækna og raunar allt fólk sem þótti grunsamlegt og líklegt til að hafa selt hinum myrka herra sál sína. Jafnvel börn v...

#74 Drátthagi dráparinn 13.10.2021

Mikið vatn hefur runnið til sjávar hvað varðar réttindi samkynhneigðra og það getur verið erfitt fyrir nútímafólk að skilja hvernig aðstæður þeirra voru áður fyrr. Lög sem bönnuðu samræði fólks af sama kyni voru afnumin á Íslandi 1940 en flest ríki voru langt á eftir okkur í þessum efnum. Langt fram á áttunda áratuginn var samkynhneigð ólögleg í mörgum fylkum Bandaríkjanna. Ein borg varð nokkurs k...

#73 Skelfdi skógarhöggsmaðurinn 06.10.2021

Um kvöldið 5. nóvember árið 1975, í Arizona fylki í Bandaríkjunum, var skógarhöggsmaðurinn Travis Walton ásamt vinnufélögum sínum á leið heim eftir langan vinnudag. Þeir voru nokkrir saman í bifreið, spjölluðu og göntuðust við hvorn annan. Skyndilega sló þögn á mannskapinn. Í gegnum trjágróðurinn sáu þeir einkennilega birtu. Innan skamms komu þeir auga á afar stóran, disklaga málmhlut sem gaf frá...

#72 Arnarflug 29.09.2021

Þegar velgengni íslenska landsliðsins í handbolta var sem mest, vildu sumir útskýra það þannig að samkeppnin væri lítil því svo fáar þjóðir stunduðu íþróttina af einhverri alvöru. Hvort svo sé, skal ósagt látið en það hefur gerst að íþróttafólk hefur náð að komast á stórmót vegna þess að viðkomandi þjóð hafði nær enga iðkendur viðkomandi greinar. Ýmsir...nei, reyndar ALLIR ráku upp stór augu þegar...

#71 Lygum hæfa laun ill 22.09.2021

Jean-Claude Romand virtist lifa hinu fullkomna lífi. Hann var virtur læknir sem starfaði við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina í Genf. Hann ferðaðist mikið í sínu starfi, hitti reglulega mikilvægt fólk og þjóðþekktar persónur í frönsku þjóðlífi. Fjölskylda hans og vinir voru afar stolt af honum. Það var aðeins eitt vandamál: Ekkert af þessu var satt. Romand var ekki læknir og hafði aldrei unnið við...

#70 Súffragettur 15.09.2021

Barátta kvenna fyrir jafnrétti hefur staðið yfir öldum saman. Á seinni hluta 19. aldar urðu miklar breytingar til hins betra fyrir ýmsa jaðarhópa en konur virtust alltaf síðastar í röðinni. Um aldamótin 1900 voru konur í Bretlandi orðnar langþreyttar á því að BIÐJA með friðsamlegum hætti. Þeim fannst kominn tími til að HEIMTA á ofbeldisfullan máta. Þetta voru hinar stórmerkilegu og áhrifamiklu súf...

Listen to the Draugar fortíðar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.