Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

History IS ↓ 152 episodes

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

Author

Hljóðkirkjan

Category

History

Podcast website

draugarfortidar.podbean.com

Latest episode

Feb 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#69 Egill Skalla-Grímsson 08.09.2021

Djáknar fengu að velja um 3 íslendingasögur sem Draugarnir gætu tekið fyrir og Agli tókst að sigra þar Laxdælu og Gísla sögur Súrssonar. Egill er ein ótrúlegasta persóna íslenskra miðaldabókmennta. Hann er víkingur, ofbeldisfullur og ofstopafullur. Þó á hann sér aðra hlið því hann er mikið skáld og er líður á söguna kemur betur í ljós að í hinum kalda víkingi má einnig finna tilfinningar og ást. E...

#68 Eyðimerkurstríðið 01.09.2021

Síðari heimsstyrjöldin bar nafn með rentu, enda var barist víðs vegar um jörðina, á landi, í lofti og bæði ofan og neðansjávar. Ein sérstæðustu átökin áttu sér stað í Norður-Afríku milli herja Ítalíu og Þýskalands annars vegar og Bretlands hins vegar. Sá ófriður hefur fengið á sig nokkurs konar ljóma og ævintýrablæ. Reyndin var þó önnur og oft var það landið sjálft sem reyndist stríðsaðilum erfiða...

#A8 Frír örþáttur af Patreon 27.08.2021

Margir hafa verið að spyrja okkur út í hvurslags þætti við erum að gera á Patreon og við ákváðum því að þessi grámyglulegi föstudagur væri kjörið tækifæri til að færa ykkur einn af þeim aukalega í hlustirnar. Þetta er þátturinn „#Ö6 Símhringitónar og þaulskipulögð umræðuefni“ og hann fór upphaflega í loftið þann 19. maí síðastliðinn. Þættirnir eru orðnir 20 talsins nú þegar og þið getið skoðað mál...

#67 Lán í óláni 25.08.2021

Þessi þáttur snýst um fyrirbrigði sem flestum er hugleikið. Það má segja að fáir hlutir séu þráðir jafn heitt og gæfan. Á þessu eru margar hliðar. Ólán er að ýmsu leyti náskylt láni og bara hin hliðin á teningnum. Í sumum trúarbrögðum og goðafræði er það sami guðinn eða gyðjan sem stjórnar því hvort maður er heppinn eða óheppinn. Nær allir menningarheimar eiga sér slík goð og í Japan eru það hvork...

#66 Versti vinur mannsins 18.08.2021

Fá dýr eiga jafn mikla sögu í samskiptum við manninn eins og úlfurinn. Það sést greinilega á þeim aragrúa þjóðsagna þar sem þetta merkilega dýr kemur við sögu. Yfirleitt er úlfurinn tákn hins illa og má nefna þar t.d. hinn ógnvænlega Fenrisúlf sem mun bana Óðni við endalok heimsins, samkvæmt norrænni goðafræði. Úlfurinn er þó einnig tákn um tryggð og hollustu enda eru fá spendýr sem mynda jafn ste...

#65 Barn í brunni 11.08.2021

Um miðjan október 1987 gleymdi bandaríska þjóðin öllum áhyggjum af stórveldadeilum eða efnahagsþrengingum. Aðeins ein frétt var efst í allra hugum. Hin 18 mánaða gamla Jessica McClure hafði fallið í gamla og þrönga brunnholu. Björgunarfólk vann baki brotnu við að bjarga barninu en tíminn var alls ekki á þeirra bandi. Bandaríska þjóðin, ef ekki allur heimurinn, fylgdist grannt með gangi mála. Í þes...

#64 Kvenskörungur í Kænugarði 04.08.2021

Í mannkynssögunni er að finna marga sterka leiðtoga. Hershöfðingja sem leiddu menn sína gegn ofurefli liðs eða ríkisstjóra sem héldu þjóð sinni samhentri í gegnum hungursneyðir og illt árferði. Nær alltaf eru þetta karlmenn. Konum hefur sjaldnast verið ætlað neitt stjórnunarhlutverk. Því vekur það alltaf athygli að rekast á konur í sögubókum sem gerðu allt þetta sem talið er upp hér á undan og mei...

#63 Óðs manns æði á úthafinu 28.07.2021

Lengi hefur hafið heillað fólk. Ekki aðeins er það matarkista og mikilvæg flutningaleið. Það hefur einnig sérstakt aðdráttarafl sem erfitt er að lýsa í orðum. Þessi rennblauta eyðimörk hefur verið mörgu skáldinu yrkisefni og fólk sem dvalist hefur mánuðum saman á úthafinu hefur lýst alls konar hugbreytingum sem það hefur orðið fyrir. Svo er einnig um manninn sem við segjum frá í þessum þætti. Hann...

#62 Myrkrahöfðinginn 21.07.2021

Hann spilar stærri rullu í lífi fólk en það mögulega gerir sér grein fyrir. Hvort sem maður trúir á tilvist hans eða ekki, þá er erfitt að finna fullorðinn einstakling sem ekki kannast við a.m.k. eitt af þeim nöfnum sem hann hefur borið í gegnum tíðina: Belzebub, Lúsifer, Leviathan og það þekktasta: Satan. En hvaðan kemur Satan? Hver er hans saga? Hefur hann verið eins í gegnum aldirnar eða tekið...

#61 Skálmöld 14.07.2021

Oft er talað um hinar „myrku“ miðaldir. Það hlýtur því að vekja upp þá spurningu hvort eitthvað ljós hafi kviknað sem hrakti þetta myrkur á brott? Svarið við því er já. Ljósið kallast í daglegu tali Upplýsingin. Það er ein magnaðasta hugarfarsbylting í sögu mannkyns. Allt var endurskoðað, t.d. vísindi, heimspeki, trúarbrögð og lögfræði. Fólk fór að velta fyrir sér hlutverki og ekki síst: Hlutskipt...

#60 Að vera í ham 07.07.2021

Hvaðan kemur þetta orðatiltæki? Hvað er þetta „ham“? Í þessum þætti skoðum við sögu og uppruna þekktrar þjóðsagnaveru. Flosi segir Baldri frá sinni uppáhalds ófreskju. Það er fullt tungl á kaldri vetrarnóttu, í fjarska heyrast ógnvænleg ýlfur og öskur. Varúlfurinn er mættur.   Draugarnir eru á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum

#59 Sólarlitlir dagar 30.06.2021

Morð eru blessunarlega fágæt á Íslandi. Svo virðist sem morð hér á landi séu yfirleitt hálfgerð slys, framin í bræðiskasti, uppgjör glæpamanna eða einhver geðveila á hlut að máli. Skipulagðir og kaldrifjaðir morðingjar sem myrða aftur og aftur er sem betur fer eitthvað sem Íslendingar þekkja lítið til. Við þurfum meira að segja að fara langt aftur á 16. öld til að finna einn þannig. En hann er þar...

#58 Miskunnsama Messerschmitt 23.06.2021

Stríð og styrjaldir hafa því miður skipað stóran sess í sögu mannkynsins. Mitt í slíkri mannvonsku má þó finna dæmi um náð, miskunn og gott hjartalag. Í þessum þætti segjum við frá flugmönnunum Charlie Brown og Franz Stigler. Þeir hittust í háloftunum yfir Þýskalandi einn örlagaríkan dag í desember árið 1943. Þá voru þeir svarnir óvinir en urðu seinna svo nánir vinir að þeir litu á sig sem bræður....

#57 Villibörn 16.06.2021

Fjöldamargar sögur eru til af börnum sem hafa fundist í umsjá villtra dýra. Þessi börn hafa iðulega tekið upp hætti þessara uppalenda sinna og átt gífurlega erfitt með að aðlagast lífi á meðal mannfólks á ný. Í þessum þætti förum við yfir nokkrar slíkar sögur og skoðum hvað geti valdið því að börn lendi í umsjá dýra. Draugarnir eru á Patreon og bjóða nú upp á ársáskrift með góðum afslætti: https:/...

#56 Sólstormurinn mikli 1859 09.06.2021

Flestir glotta eða jafnvel hlæja ef minnst er á veður í geimnum. Þó er geimveðurfræði að færast í aukana og það er mikilvægt. Þeir stormar sem þar geisa geta haft mun meiri áhrif en stormar á jörðu niðri. Í þessum þætti tölum við um einn slíkan. Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa bent á að ef slíkur stormur myndi skella á jörðinni, yrðu það hamfarir af margfaldri stærðargráðu. Fellibylurinn Katrina...

#55 Beta fer í blóðbað 02.06.2021

Hvernig verður okkar minnst? Munu komandi kynslóðir ausa okkur lofi eða verðum við brennimerkt sem hreinræktuð illmenni, jafnvel mörg hundruð árum eftir okkar tíma? Verður það sannleikanum samkvæmt? Í þessum þætti tökum við fyrir sögu ungversku greifynjunnar Elizabeth Bathory. Hún hefur löngum verið talin ein viðurstyggilegasta manneskja sögunnar. Sögur eru um að hún hafi baðað sig í blóði ungmeyj...

#54 Úr Svarfaðardal í sirkuslíf 26.05.2021

Hvað gerir þú ef ljóst er að þú getur ekki stundað vinnu vegna fötlunar og hvert sem þú ferð glápa allir opinmynntir? Þáttur þessi fjallar um ævi og persónu Jóhanns Kristins Péturssonar sem er iðulega kenndur við Svarfaðardal. Hann var 234 sentimetrar og því hæsti Íslendingur sögunnar. Draugarnir eru á Patreon. Skoðið málið nánar hér: https://www.patreon.com/draugarfortidar Vefverslun Drauganna, b...

#53 Dýr í stríði 19.05.2021

Mikið hefur verið talað um mannfall í seinni heimsstyrjöldinni en það vill gleymast að það var ekki aðeins mannfólk sem tók þátt í þeim hildarleik. Til dæmis notaði þýski herinn um þrjár milljónir hesta í því stríði. Dýr hafa frá upphafi verið þáttakendur í stríðum og erjum mannkynsins. Sum þeirra hafa meira að segja fengið stöðuhækkanir og æðstu heiðursmerki fyrir hetjulega framgöngu. Í þessum þæ...

#52 Gaur var kallaður Möddi fiðla 12.05.2021

Titill þáttarins eru upphafsorð Njáls sögu, löguð harkalega að nútímanum. Tungumál Íslendingasagna er töluvert ólíkt því sem tíðkast í dag, enda er um að ræða bókmenntir sem eru mörg hundruð ára. Við veltum því fyrir okkur hvort það hindri ungt fólk í að njóta þeirra. Flosi segir Baldri frá sinni uppáhalds Ísl.sögu sem er Njáls saga. Sérstaklega er ein sögupersóna þar honum hugleikin... Draugar fo...

#51 Undir rauðum fána 05.05.2021

Þessi fyrsti þáttur maímánaðar tekur einmitt fyrir fyrsta dag maímánaðar. Af hverju er ganga þennan dag undir rauðum fána? Hefur verkafólk alltaf unnið 8 stunda vinnudag? Af hverju var Coca Cola eitt sinn kallað „verkamannablóð“? Draugar fortíðar eru nú á Patreon: https://www.patreon.com/draugarfortidar Og hér er vefverslun: https://bit.ly/3aeV0ma

#50 Ráðagóðu Rússarnir 28.04.2021

Þeir sem ekki muna eftir köldu stríði Sovétríkjanna og Bandaríkjanna eiga eflaust erfitt með að gera sér í hugarlund hvernig það var. Veröldin öll upplifði þrúgandi spennu og kjarnorkuógn í marga áratugi. Er Sovétríkin féllu undir lok síðustu aldar, komu ýmis skjöl í ljós sem áður höfðu verið kyrfilega lokuð. Nöfn tveggja manna urðu þá þekkt á Vesturlöndum og margir supu hveljur er kom í ljós hvað...

#49 Salernissaga 21.04.2021

Við tökum svo mörgu í lífi okkar sem sjálfsögðum hlut. Í raun ættum við af og til að spyrja okkur þeirrar spurningar hvort öll þau tól og tæki sem við höfum, bæði til að auðvelda okkur lífið og verja okkur gegn t.d. slysum og veikindum, séu í raun svo sjálfsögð? Ef nánar er að gáð kemur oft í ljós að mikill fjöldi jarðarbúa býr ekki við munað sem við teljum sjálfsagðan. Að þessu sinni ræðum við ög...

#48 Stríðið um skreiðina 14.04.2021

Stundum hefur verið sagt að Ísland hafi alla tíð verið afskekkt, eyðilegt og að enginn hafi nokkurn tíma haft á því áhuga. Ekkert gæti verið fjær sanni. Í þessum þætti skoðum við atburði sem áttu sér stað, hér á landi, í byrjun 16 aldar. Þá börðust hér útlenskir menn, jafnt á sjó sem landi, svo að tugir eða jafnvel hundruðir féllu í valinn. Draugar fortíðar eru nú komnir á Patreon. Ekki panikka sa...

#47 Í klóm keisarans af Róm 07.04.2021

Rómaveldi hafa flestir væntanlega heyrt um. Það hafði gífurleg menningarleg áhrif og átti mjög stóran þátt í því að móta þá Evrópu sem við nú þekkjum. Rómverjar notuðust oft við nokkurs konar lýðræði en æðstur var keisarinn. Margir keisarar stóðu sig afar vel en aðrir alls ekki. Flosi segir Baldri hér frá þeim sem hann telur verstu Rómarkeisara sögunnar. Segja má að þema þáttarins sé um það að set...

#46 Hvíta rósin 31.03.2021

Um aldamótin síðustu var könnun í Þýskalandi og fólk beðið um að velja merkustu Þjóðverja sögunnar. Ung stúlka sem ýmsir utan Þýskalands kannast mögulega lítið við, var þar hærra á listanum en nöfn eins Johann Sebastian Bach, Goethe og Albert Einstein. Í löndum sem Þjóðverjar hernámu í seinni heimsstyrjöld, spruttu upp allskyns andspyrnuhópar. Þetta voru hugrakkir menn og konur sem lögðu líf sitt...

Listen to the Draugar fortíðar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.