Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

History IS ↓ 152 episodes

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

Author

Hljóðkirkjan

Category

History

Podcast website

draugarfortidar.podbean.com

Latest episode

Feb 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#A7 Draugar samtímans með Guðna Th. 27.03.2021

Flestir hafa þá mynd af sagnfræðingum að þeir sitji hoknir á skjalasöfnum og rýni í skruddur sem fjalla um eitthvað sem er löngu liðið. Sú er ekki alltaf raunin. Til er nokkuð sem heitir samtímasaga og spannar yfirleitt tímabilið frá lokum seinni heimsstyrjaldar til dagsins í dag. það getur hreinlega verið varasamt að stunda þá grein sagnfræðinnar. Viðmælandi okkar í þessum aukaþætti veit allt um...

#45 Svarta svalan 24.03.2021

Umfjöllunarefni þáttarins er maður að nafni Eugene Bullard. Hann var fæddur í suðurríkjum Bandaríkjanna árið 1895. Bullard var svartur á hörund og hann ákvað á barnsaldri að hann yrði að komast burt. Hann hafði heyrt föður sinn segja frá landi í Evrópu þar sem „litað“ fólk væri ekki ofsótt og myrt eins og var allt of algengt á heimaslóðum Bullards. Þangað ákvað Bullard að fara og við tók sérlega v...

#44 Ógnin í austri 17.03.2021

Nágrannar þeirra höfðu vitað af þeim í hundruðir ára en óttuðust þá ekki. Enda þóttu þeir á lægra menningarstigi og gerðu meira af því að berjast innbyrðis en herja á aðra. Einn maður átti eftir að breyta því algjörlega og leggja grunninn að stærsta og víðfeðmasta heimsveldi sögunnar.

#43 Sírópsflóðið mikla 10.03.2021

Flest þekkjum við náttúruhamfarir. Ef ekki af eigin reynslu, þá af afspurn. Yfirleitt er orðið „flóð“ tengt við vatn en getur verið að það hafi einhvern tíma orðið flóð sem innihélt síróp en ekki vatn? Það hljómar ótrúlega en slíkt hefur gerst og var allt annað en skemmtilegt fyrir fólkið sem lenti í þeim hryllingi.

#42 Fátækt fólk 03.03.2021

Flosi fékk nett áfall við að heyra að Baldur les ekkert „nema texta á Netflix“. Því fékk hann þá hugmynd að segja Baldri frá einni af sínum uppáhalds bókum og hví hann telur hana mikilvæga. Bókin lýsir ástandi á bæjum á Norðurlandi upp úr aldamótunum 1900. Sérstaklega er sjónum beint að þeim sem voru föst í fátæktargildru og þurftu að láta börn sín frá sér. Tryggvi Emilsson, höfundur bókarinnar, v...

#41 Með holu í höfði 24.02.2021

Þetta átti að vera venjulegur dagur í vinnunni. Einn lítill neisti breytti því allverulega. Raunar varð líf hans aldrei samt og allra síst hans geð og þróttur. Í þessum þætti skoðum við mál sem enn er, nærri tvöhundruð árum síðar, tilefni umræðna og virtra læknisgreina. Atriði í þættinum gætu valdið óhug.

#A6 Svik, svindl og sviðin jörð 20.02.2021

Í þessum aukaþætti er sagt frá manni sem var heldur áfjáður í frægð og frama, sama hvað það kostaði. Lygar og innantóm loforð voru honum engin hindrun. Margir telja hann mesta og versta svikahrapp sögunnar.

#40 Þöggun þjóðar 17.02.2021

Í þessum þætti skoðum við fortíðarvanda sem ýmsar þjóðir burðast með og þær aðferðir sem stundum eru notaðar til að fegra söguna. Eitt ákveðið land í Evrópu er sérstaklega tekið fyrir.

#39 Wilhelm Gustloff 10.02.2021

Flestir kannast við söguna af skipinu Titanic og örlagaríkri ferð þess vestur um haf árið 1912. Fæstir vita þó að miðað við versta skipsskaða sögunnar er mannfall í Titanic-slysinu lítið í samanburði. Af hverju höfum við þá svo lítið heyrt um Wilhelm Gustloff? Það er ákveðin skýring á því og við kryfjum þetta allt í þessum þætti.

#38 María og leyndardómur bikblendisins 03.02.2021

Hún vildi fara í háskóla og verða vísindamaður. Vandamálið var þó að konum var ekki leyft að stunda nám við háskóla í hennar heimalandi. En þessi magnaða manneskja lét það ekki stöðva sig, frekar en nokkuð annað. Í þessum þætti skoðum við sögu Marie Cure sem er óumdeilanlega einn merkasti vísindamaður sögunnar.

#37 Orrustan undarlega 27.01.2021

Maímánuður 1945. Adolf Hitler hefur framið sjálfsmorð og flestir þýskir hermenn gefist upp fyrir herjum Bandamanna. Þó berjast enn fanatískar sveitir SS-manna sem neita að trúa því að nasisminn sé úr sögunni. Í þessum þætti tökum við fyrir einn af seinustu bardögum stríðsins sem átti sér stað í austurrísku ölpunum. Hann skipti ekki sköpum í mannkynssögunni en þó hafa verið skrifaðar um hann bækur...

#36 Óði ýtustjórinn 20.01.2021

Hvað gerum við ef við teljum okkur vera beitt misrétti? Líklega reyna flestir að fara löglegu leiðina en hvað ef það virðist ekki duga? Þáttur dagsins fjallar um mann sem fannst hann hafa verið króaður af úti í horni. Að lokum taldi hann aðeins eina leið vera í boði. Það var leið hefndar og eyðileggingar.

#35 „Góðir farþegar, þetta er flugstjórinn sem öskrar.“ 13.01.2021

Í þessum þætti tökum við fyrir alveg hreint ótrúlegt og skelfilegt atvik. Þetta er þó einnig frásögn af hetjudáð og hreysti. Best er að vara fólk með flughræðslu við þættinum, sum atriði gætu valdið óhug.

#34 McNamara og ráðagerð 100.000 06.01.2021

Við vörum við því að umfjöllunarefni þáttarins er svo nöturlegt að það gæti hreinlega farið afar illa í suma. Árið 1966 gekk illa hjá Bandaríkjunum í stríðinu við Norður-Víetnam og suður-víetnamska skæruliða. Þörf var á fleiri hermönnum en ekki var hægt að skikka fleiri í herinn án þess að allt færi í bál og brand heima fyrir. Þá fékk Róbert McNamara varnarmálaráðherra ákveðna hugmynd. Sú hugdetta...

#33 Árans árið 30.12.2020

Áramótaþáttur okkar er með frekar léttu sniði. Við veltum því fyrir okkur hvaðan þessi hugmynd kemur, að skipta tímanum niður í hólf sem við köllum ár, mánuði, daga o.sv.frv. Draugar fortíðar þakka kærlega fyrir frábærar viðtökur á þessu hörmulega ári. 2020 virðist þegar orðið alræmt í minni og sögu.

#32 Jólin og járnkrossinn 23.12.2020

Það er komið að því að særa fram jóladrauga fortíðar. Þjóðverjar hafa löngum verið mikil jólaþjóð. Í desember árið 1914 logaði Evrópa þó í ófriði og flestir karlmenn fjarri heimilum sínum. Það stöðvaði þó ekki suma hermenn sem tókst í þessum ólíklegu aðstæðum að kalla fram sannkallaðan jólaanda.

#31 Mygludjús fyrir mannkynið 16.12.2020

Eins og venjulega var allt í drasli hjá honum. Skyndilega fann hann nokkuð sem hann hafði gleymt. Fyrir tilviljun kom hann auga á eitthvað einkennilegt. Sú tilviljun átti eftir að reynast mikilvæg fyrir mannkynið."

#30 Í klettaskoru, krepptir liggjum... 09.12.2020

Draugar fortíðar fjalla að þessu sinni um eitt þekktasta og dularfyllsta mál Íslandssögunnar. Hvað gerðist á hálendinu kalda síðla hausts árið 1780?

#29 Blóðug sverð undir rísandi sól 02.12.2020

Í þessum þætti verður ögn dreypt á sögu Japans og sérstaklega þjóðfélagsstétt sem nefndist Samurai. Við skoðum tvo af frægustu stríðsmönnum Japans en annar þeirra var kona. Það kemur nefnilega í ljós þegar nánar er að gáð að konur tóku virkan þátt í bardögum og vígaferlum í Japan til forna.

#A5 Hinn rafræni gapastokkur nútímans 28.11.2020

Á öldum áður tíðkaðist að dæma fólk til setu í gapastokki fyrir minni háttar brot. Hinn seki var þá festur á fótum en stundum einnig höndum. Gapastokkar voru ekki síst til háðungar og niðurlægingar og voru því yfirleitt á torgum í bæjum, svo allir sæju hinn seka. Fólk gat því tekið þátt í refsingunni með því að skopast að eða jafnvel pynta viðkomandi. Hér á Íslandi voru engin þorp og gapastokkar þ...

#28 Góði nasistinn frá Nanjing 25.11.2020

Stundum fellur gott fólk í þá gryfju að hrífast af varhugaverðri hugmyndafræði. Það henti manninn sem við fjöllum um í þessum þætti. Í heimalandi sínu er hann nær óþekktur en í stóru og fjölmennu ríki, langt frá heimkynnum hans, er hann þjóðhetja sem bjargaði þúsundum mannslífa. Vert er að vara við óhugnaði í þættinum.

#27 Barist til þrautar 18.11.2020

Flest höfum við heyrt um hetjulega baráttu Spartverja í Laugaskörðum árið 480 f.kr. Færri hafa líklega heyrt um orrustu í fjarrænu landi sem stendur okkur þó mun nær í tíma. Liðsmunurinn þar gerir það þó að verkum að þetta er eitt fræknasta dæmi sögunnar um herlið sem verst alveg til síðasta manns.

#26 Dularfull örlög Dupont de Ligonnès fjölskyldunnar 11.11.2020

Nú beinum við sjónum okkar að einu óhugnanlegasta og sorglegasta sakamáli síðustu ára. Hvað gerðist eiginlega í rólegu úthverfi í frönsku borginni Nantes í aprílbyrjun 2011?

#25 Drephlægilegur dauðdagi? 04.11.2020

Stundum er sem sorgin og gleðin séu systur því svo hárfín lína virðist milli hláturs og gráturs. Í þessum þætti ræða Baldur og Flosi hvort hlæja megi að dauðanum eða ekki. Við skoðum sérstaklega ákveðin verðlaun, kenndan við heimsþekktan náttúrufræðing. Ólíkt öðrum verðlaunum þá vill enginn hljóta þessi.

#A4 Myrkur og meinlegar verur 31.10.2020

Nú er komið að sérstökum aukaþætti. Menningarstofa Fjarðabyggðar kemur að hátíðinni "Dagar myrkurs" á þessum árstíma en Covid veiran hefur sett nokkur strik í reikninginn. Menningarstofa bað okkur Draugana að gera þátt fyrir sig. Við brugðumst vel við þeirri bón. Fjallað verður almennt um myrkrið og íslenskar þjóðsögur frá Austurlandi.  

Listen to the Draugar fortíðar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.