Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

History IS ↓ 152 episodes

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

Author

Hljóðkirkjan

Category

History

Podcast website

draugarfortidar.podbean.com

Latest episode

Feb 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#24 Englands ofurgnægð af hreysti 28.10.2020

Hví er orrustan við Agincourt 1415 svo greypt í þjóðarsál Breta? Hví segja sumir sagnfræðingar að riddaramennskan hafi dáið þennan dag? Hví er enski langboginn alltaf nefndur í sömu andrá og Agincourt? Þetta allt, og meira til, í Draugum fortíðar í dag!

#23 Flaugar og fjölkynngi 21.10.2020

Ævi hans varð stutt en einstaklega viðburðarrík. Inn í sögu hans blandast geimferðakapphlaup stórveldanna, galdrakukl, kynsvall, Vísindakirkjan og vigt á Landspítalanum sem bara hreinlega hlýtur að vera biluð! 

#22 Paraskavedekatriaphobia 14.10.2020

Í þessum þætti ræða Baldur og Flosi viðburð sem ber upp u.þ.b tvisvar á ári. Hví hræðast hann svo margir? Hver er saga hans? Ef þú þjáist af þeirri fóbíu sem þátturinn er nefndur eftir, ja...þá gætir þú fundið fyrir kvíða eða hreinlega ofsahræðslu!

#21 Vetrarstríðið 07.10.2020

Fyrir um 80 árum barðist litla Finnland fyrir lífi sínu gegn risaveldinu Sovétríkjunum. Stríðið er merkilegt í alls konar samhengi og ekki síst viðbrögð Íslendinga við því.

#20 Nýaldarnasistinn sem Hekla huggaði 30.09.2020

Enn og aftur er fjallað um afar sérstaka manneskju með afar sérstaka heimsmynd. Nasismi og austræn heimspeki er ekki eitthvað sem maður tengir saman í fyrstu en í augum sumra er þetta nátengt. Já, og svo kemur íslenska eldfjallið Hekla við sögu.

#19 Útlagar á eyðilandi 23.09.2020

Baldur og Flosi skoða í þessum þætti það fólk sem einhverra hluta vegna gat ekki lifað í sátt við samfélagið á öldum áður og leitaði til fjalla. Sérstaklega er sjónum beint að frægasta útlaga Íslandssögunnar.

#A3 Georg stórnefur 19.09.2020

Í aukaþætti dagsins ræða Baldur og Flosi þjóðvegaræningjann Georg stórnef, undarleg örlög hans og þá sérstaklega toppstykkisins.

#18 Pólska stríðshetjan frá Dalvík 16.09.2020

Hann flutti til Íslands 1974 og bjuggust flestir við því að líf hans yrði rólegt og eðlilegt. En örlögin tóku í taumana og skyndilega var Pólverjinn ungi dreginn inn í harkaleg átök gegn einu frægasta herveldi sögunnar.

#17 Blekkingarmeistarinn frá Barcelona 09.09.2020

Hann vildi koma að gagni í baráttunni gegn alræðisöflunum en enginn vildi aðstoð hans. Því ákvað hann að gera þetta sjálfur. Baldur og Flosi ræða hér um einstakan mann sem kenndi sjálfum sér og varð einn besti njósnari sögunnar.

#16 Hinn svarti satansseyður 02.09.2020

Fyrir óralöngu tók geitahirðir í Eþíópíu eftir því að geitur hans hegðuðu sér undarlega. Baldur og Flosi ræða hér um nokkuð sem fór sigurför um heiminn, vakti gleði en einnig deilur og var jafnvel bannað á ýmsum stöðum.

#15 Vargar í Vestmannaeyjum 26.08.2020

Hverjir voru þeir, hvers vegna komu þeir og hvaðan? Baldur og Flosi ræða einn þekktasta atburð Íslandssögunnar. Við vörum við óhugnaði.

#A2 Draugar forviða 23.08.2020

Í þessum aukaþætti er sjónum beint að ástandi sem allir, bæði menn og málleysingjar, þekkja. Það getur verið gífurlega ánægjulegt en einnig svo átakanlegt að fólk býr þess aldrei bætur.

#14 Blöðruhlauparinn mikli frá Persíu 19.08.2020

Hér ræða Baldur og Flosi ótrúlegar áætlanir afar undarlegs manns. Spurningin er: Er rétt að hindra draum einhvers í að verða að veruleika, ef allir aðrir sjá að þetta er algjört feigðarflan og óðs manns æði?

#13 Einvígið mikla 1917 12.08.2020

Loftorrustur fyrri heimsstyrjaldar hafa verið litaðar miklum ljóma og flugmenn þóttu arftakar hinna gömlu riddara. Raunveruleikinn var þó grimmur og blóðugur. Í þessum þætti ræða þeir Baldur og Flosi lýsingu á loftorrustu frá manni sem sjálfur tók þátt í henni.

#12 Maðurinn í turninum 05.08.2020

Hann kvartaði yfir sífelldum höfuðverk og hryllilegum hugsunum en læknar gátu lítið hjálpað. Að lokum tók hann hræðilega ákvörðun.

#11 Aleinn á hafsbotni 29.07.2020

Vanalega bíður ekkert nema dauðinn þeirra sem sökkva með skipi niður á hafsbotn. Eða hvað?

#A1 Berfætti bandítinn 26.07.2020

Í dag fer fyrsti óvænti aukaþáttur Drauga fortíðar í loftið. Hann er með aðeins öðru sniði en þættirnir hingað til en er engu að síður í fullri lengd, já og vel það. Í dag ræða Baldur og Flosi hann Colton Harris Moore sem er betur þekktur sem Berfætti bandítinn. 

#10 Stelpur í stríði 22.07.2020

Orrustur og bardagar hafa löngum verið tengd við karlmennsku og konur taldar óhæfar í slíkt. Sagan sýnir þó aðra hlið á því.

#9 Elskaður faðir og morðingi 15.07.2020

Hvernig bregst þú við ef kletturinn í lífi þínu er alls ekki það sem hann virtist vera? Athugið! Sumt í þættinum gæti valdið óhugnaði.

#8 Ísland: Helvíti á jörðu 08.07.2020

Í þessum þætti ræða Baldur og Flosi svakalegustu náttúruhamfarir Íslandssögunnar og hnattræn áhrif þeirra.

#7 Dauðinn í háloftunum 01.07.2020

Í ár eru 80 ár frá einni mikilvægustu orrustu seinni heimsstyrjaldar. Hverjir voru „hinir fáu“ og hvernig í ósköpunum tengist þungarokkssveitin Iron Maiden þessu?

#6 Í iðrum jarðar 24.06.2020

Þáttur dagsins inniheldur engin morð né annað ofbeldi en efnið er þó óhugnanlegt, sorglegt og sérstaklega er fólk sem haldið er innilokunarkennd varað við.

#5 Hin eitraða Gloria 17.06.2020

Í næsta þætti halda þeir Baldur og Flosi áfram að ræða um hverfulleika lífsins og hvort landbúnaður í Albaníu á sjötta áratug síðustu aldar geti mögulega verið efni í hlaðvarp. Aðal umræðuefnið verður þó afar dularfullt mál sem enn veldur mörgum heilabrotum: Hví fór skyndilega allt í bál og brand á bráðamóttöku í Bandaríkjunum eitt febrúarkvöld árið 1994?

#4 Sjóveikir breskir drengir hernema Ísland 1940 10.06.2020

Hvað voru rúmlega 700 sjóveikir, breskir unglingar með alvæpni að aðhafast í Reykjavík snemma morguns þann 10. maí árið 1940? Hver var þýski SS-maðurinn í húsinu við Túngötu? Hvernig breyttu bakmeiðsli húsvarðarins Íslandssögunni? Þetta allt og meira til í Draugum fortíðar!

#3 Larry fer á flug 03.06.2020

Í dag fjalla Baldur og Flosi um daginn sem Larry Walters lét sinn stærsta draum rætast eftir 20 ára þrotlausa bið. Þann 2. júlí árið 1982 tókst Larry loks á flug.

Listen to the Draugar fortíðar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.