Sigrún Elíasdóttir

Myrka Ísland

History IS ↓ 105 episodes

Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.

Author

Sigrún Elíasdóttir

Category

History

Podcast website

myrkaisland.buzzsprout.com

Latest episode

May 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sögur af söndum 04.04.2024

Í sendnum fjörum Suðurlands má finna margar dularfullar sögur af yfirnáttúrulegum fótsporum og fyrirbærum. Þar fyrir utan býður þátturinn upp á heilmikinn haturspóst. Ekki aðeins vegna landafræði, heldur vegna mögulegra rangfærslna um vita og brýr landsins, að ógleymdri blessaðri málfræðinni. Það er af nógu að taka!

Galdra Imba 29.03.2024

Erfiðar konur hafa löngum þótt óþægilegar og þá getur verið gott að saka þær um nornaskap. Svo var um Ingibjörgu nokkra Jónsdóttur sem var uppi á hinni stórhættulegu 17. öld. Eftir að maður hennar hafði verið ásakaður um galdra, fluttist galdraorðið yfir á hana og spunnust um Imbu ótrúlegust þjóðsögur á  meðan hún lifði.

Uppboð á Ströndum 21.03.2024

Uppboð voru sorgleg og undarleg "skemmtun" í íslensku samfélagi áður fyrr. Við kíkjum á eitt þekkt uppboð ef svo má segja, af Kambi á Ströndum. Sem er ekki síst áhugavert vegna þess hversu vandræðalega stutt er síðan það gerðist. Gott er að vara við andkapítalísku reiðiranti þáttarstýru í lok þáttar. Gæti farið fyrir brjóstið á einhverjum hreintrúarsinna. Ég lofa þó hvorki bót né betrun...

Arnes Pálsson flökkukarl 15.03.2024

Þessi er hálfgerður spin off þáttur af gamla Höllu og Eyvindar þættinum okkar. Því þar brá fyrir aukapersónunni Arnesi Pálssyni sem mér fannst eiga skilið sinn eigin þátt. Til eru margar skemmtilegar þjóðsögur af honum, þótt hann virðist aðallega hafa verið einhver skítablesi.

Vafasamar gamansögur 08.03.2024

Það er eins og allir í gamla daga hafi verið eins og ég; með myrkur í sálinni en bros á vör.  Flestir þekkja sögurnar af Bakkabræðrum og við kynnum fleiri persónur til leiks. Eins og hjónin sem tímdu ekki að gefa vinnufólkinu að borða og maðurinn sem fæddi kálf.

Lögheimili drauga 01.03.2024

Velkomin í áttundu Myrku seríuna! Við byrjum á þætti sem var tekinn upp fyrir framan áhorfendur á Bara Fest, haustið 2023. Þess vegna er hljóðið ekki sem allra best en við vonum að fólk láti það ekki stoppa sig í að velta vöngum yfir búsetusvæðum drauga og hvort, og þá hvaða reglur gilda um lögheimili þeirra. Við komumst að því að partý getur verið svo gott að húsið fer af þakinu, læknis og lyfjaþ...

Ókindin 14.08.2023

Síðasti þátturinn í 7.þáttaröð fjallar um ógeðfelldar íslenskar barnagælur! Við Anna fengum liðsauka frá Gunnhildi Völu til að flytja nokkrar vel valdar vísur sem áður hrelldu börn og kannski fullorðna. Helstu persónur og leikendur sem hægt er að nefna eru krummi, boli, Grýla og Leppalúði. Þátturinn var tekinn upp fyrir framan áhorfendur í Snorrastofu í Reykholti í Borgarfirði og styrktur af Menni...

Morð í Móðuharðindum 06.08.2023

Við förum um víðan völl og snertum á meindýraplágu í Ástralíu, dónalegum Íslendingum, samstöðu með unglingum og handsnúnu mafíósatölvu Sigrúnar sem sannarlega er ekki 17 ára, heldur aðeins frá árinu 2017! Aðal umfjöllunarefnið er samt sem áður bandalag þriggja ungra Breiðdælinga á einhverjum versta tíma Íslandssögunnar, sem endaði sannarlega óheppilega.

Tröllasögur 29.07.2023

Við höfum áður rætt álfa, margar tegundir drauga og hinar ýmsu kynjaskepnur úr íslenskum þjóðsögum en ekki mikið farið í sígildar tröllasögur. Sigrún segir nokkrar minna þekktar sögur af ýmsum toga þótt það sé almenn kvenkyns slagsíða á íslenskum tröllasögum þar sem tröllkarlar viðrast hafa dáið út mun fyrr en kvenkynið sem fól vissulega í sér áskorun fyrir þær sem eftir lifðu. 

Guðmundur góði 21.07.2023

Hver kannast ekki við Gvendarbrunna hér og þar um landið? Þeir eru tilkomnir vegna blessunar Guðmundar Arasonar Hólabiskups, oftast kallaður Guðmundur góði. Hann spígsporaði um landið með staf og stólu og blessaði vatnsból, vegi og björg, með hundruði förukvenna og fátæklinga í eftirdragi. Hann var furðufugl, meinlætamaður sem sennilega hefði aldrei átt að komast í stjórnunarstöðu og var jafnvel k...

Skiptineminn Satan 01.07.2023

Í tilefni af 66. myrka þættinum langaði mig að ræða við ykkur um Satan! Úr varð einhver samtíningur um komu Satans inn í líf Íslendinga og hvernig hann hvarf þaðan aftur eftir nokkur hundruð góð ár. Við förum um víðan völl, langt aftur í tímann, til útlanda, í kirkjudanspartý, löngu dauður biskup auglýsir óvart bæði nammi og bjór og við komumst loksins að því hvaðan lúsmýið er komið!

Strand Friedrich Alberts á Skeiðarársandi 30.06.2023

Í janúar árið 1903 strandaði þýskur síldarbátur við Ísland með 12 manna áhöfn, á Skeiðarársandi. Skipverjar lifðu strandið í rauninni af en eftirleikurinn er eins og besta Hollywood handrit. Fátt sem gleður Sigrúnu eins mikið og að detta niður á svona góða hrakningasögu sem hefur upp á allt að bjóða; vonlaust íslenskt vetrarveður, vonleysi, læknaleysi, rúm á sleðum, limlestingar og almennan hetjus...

Dillons hús 23.06.2023

Litla krúttlega húsið sem nú hýsir kaffisölu Árbæjarsafnsins á sér áhugaverða, rómatíska en á köflum ógeðfellda sögu. Sigrún og Anna keyrðu alla leið í Stykkishólm til að ræða það mál á Narfeyrarstofu fyrir framan áhorfendur á myrkum dögum í vetur. 

Særingar og forneskja 23.06.2023

Hver kannast ekki við að þurfa að verja búfé sitt fyrir tófubiti, sefa óvini sína eða vanta peninga? Hér er lausnin komin; allt um hvernig þú getur létt þér lífið með hinum ýmsa galdri og særingum.

Ólöf ríka 09.06.2023

Það gleður okkur alltaf að finna góðar sögur af áhugaverðum konum og ekki verra ef það er frá 15. öld, sem er tímabil sem við höfum ekki fjallað mikið um vegna heimildafátæktar frá þeim tíma. Sögurnar af hirðstjórafrúnni og skörungnum Ólöfu ríku á Skarði á Skarðsströnd eru því sennilega stórlega ýktar, en skemmtilegar engu að síður!

Hvítárvallabaróninn 08.06.2023

 Rétt fyrir aldamótin1900 kom til Íslands undarlegur förumaður sem kallaði sig barón. Hann skapaði ótal kjaftasögur og kenningar og hleypti ferskum vindum í landann. Við reynum að komast að því hvort maðurinn var snillingur eða bara tæpur á geði.

Morðin á Sjöundá 30.12.2022

Loksins kemur að þessum þætti! Ekki aðeins síðasta þætti sjöttu séríu og síðasta þætti ársins, heldur hunskaðist Sigrún loksins til að taka þetta mál fyrir sem hefur lengi staðið til og verið óskað eftir. Tvo dauðföll verða í Rauðasandshreppi á Vestfjörðum og sveitin logar í kjaftasögum. Við vitnum hægri vinstri í frásögn Gunnars Gunnarssonar í bókinni Svartfugl, sem fer ágætlega eftir heimildum o...

Jón Indíafari II 20.12.2022

Við höldum aftur til Danborg á Sri Lanka þar sem við skildum við Jón Ólafsson í síðasta þætti. Þar dvaldi hann í eitt ár og lenti í hinum ýmsu skemmtunum, uppákomum og hrakförum. Hann var þarna orðinn viðförlasti Íslendingur allra tíma og við fylgjum honum heim á leið aftur þar sem hann hafði safnað saman upplýsingum og sögum sem síðar varð að hinni 400 blaðsíðna ferðabók sem hér hefur verið vitna...

Jón Indíafari I 08.12.2022

Anna er enn að reyna að yfirtaka umræðurnar! Nú bættir hún við dagskrárliðnum "Anna les úr þjóðskránni" sem á eflaust eftir að slá í gegn í Austur Indíum, en þangað er ferðinni einmitt heitið í þætti dagsins! Hver man ekki eftir viðar og tekk búðinni Jóni Indíafara? Nefnd eftir Jóni Ólafssyni sem lengi vel var víðförlasti Íslendingurinn. Hann skrifaði 400 blaðsíðna reisubók sem ég þvældi...

Bróðurmorð 08.12.2022

Ósvífna Anna reynir að stela þætti dagsins með tali um Disneymyndir, áramótaskaup og Eyjólf bróður sinn! Þegar ég loksins kemst að, segi ég ykkur frá Eyjólfi sem var myrtur í Reykjavík, árið 1913. Ekki bróðir Önnu samt, hann var hvorki fæddur, né myrtur á þessum tíma og er að ég held enn á lífi. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma enda íbúar smábæjarins Reykjavíkur ekki vanir morðmálum. Æsifrét...

Galdra Loftur 01.12.2022

Þótt við hættum að brenna grunað galdrafólk á báli, var ekki þar með sagt að við hættum að segja af þeim sögur eða finnast galdrar spennandi. Síður en svo! Á 18. öld náðu sögusagnir af galdrafólki hámarki og þar af er sennilega frægastur Loftur nokkur, kenndur við galdra. Við heyrum söguna af honum og hvort einhver fótur hafi verið fyrir henni yfirleitt.

Kambsránið 23.11.2022

Við höldum áfram að segja sögur af fólki í Árnessýslu í upphafi 19. aldar. Þá riðu ekki kannski hetjur um héruð, skulum frekar kalla þá hraustmenni. Þar ber hæst heljarmennið Sigurð Gottsvinsson sem hefði vissulega getað nýtt hina miklu krafta sína til betri hluta en hann gerði. Ránið á Kambi var á sínum tíma stærsta sakamál sem komið hafði upp á Íslandi og í það flæktist margt fólk, margir Jónar...

Þuríður formaður 16.11.2022

Stígið um borð í sjálfstæðan fyrrihluta þáttar um mannlífið í Árnessýslu í byrjun 19. aldar. Hér stýrir Þuríður Einarsdóttir bátnum okkar og annarra á Höggstokkseyrarbakka, þegar það þótti ekkert tiltökumál þótt konur væru sjómenn. Þuríður var merkiskona sem kemur einnig við sögu í næsta þætti og því mikilvægt að kynnast henni áður en lengra er haldið.

Eyjafjallajökuls og Grímsvatnagos 10.11.2022

Við förum út á hálan jarðfræðiísinn hjá Eyjafjallajökli og Grímsvötnum í dag. Hamfarir eru ekki bara lengst í sögulegri fortíð okkar heldur eigum við fjöldan allan af virkum eldstöðvum sem minna sífellt á sig og halda okkur á tánum. Sigrún er óvenju málhölt og treg í þessum þætti enda er hún ekki með nein próf á tölur og stærðir nema um sé að ræða prjónaskap.

Tilberi og margýgja 03.11.2022

Við eigum svo mörg skemmtileg og falleg orð í íslensku, eins og þessi tvö; tilberi og margýgja! Því miður vill svo til að þau lýsa mjög ógeðfelldum fyrirbærum úr íslenskum þjóðsögum, sem er einmitt það sem gerir þau stórkosleg.  Eða allavega í okkar augum.

Listen to the Myrka Ísland podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.