Sigrún Elíasdóttir

Myrka Ísland

History IS ↓ 105 episodes

Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.

Author

Sigrún Elíasdóttir

Category

History

Podcast website

myrkaisland.buzzsprout.com

Latest episode

May 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gullskipið 27.10.2022

Í upphafi 6. seríu förum við í fjársjóðsleit! Því fyrir 400 árum strandaði glæsilegt hollenskt skip á Suðurlandi sem hvarf svo bara í sandinn og enginn lagði á minnið hvar það sást síðast. Um það hafa síðan spunnist sögur og vonir og þrár ævintýra og athafnamanna um að finna óskemmt skipið í sandinum, fullt af gersemum. 

Sumarauki 22 15.07.2022

Til að sanna að við séum enn á lífi gerðum við þátt um ferðalög, lífið, baska og ekkert! Ég fann 20 ára gamalt háskólaverkefni sem ég varð að deila með Önnu og öðrum sem vilja heyra um samskipti Íslendinga við Baska. Haturspóstar vegna "á Bolungarvík" vinsamlegast afþakkaðir. Við vitum þetta en virðumst samt sem áður eiga erfitt með að gera þetta rétt...

Guríður Símonardóttir 12.05.2022

Fimmtugasti Myrki þátturinn fjallar um Guðríði "bad ass" Símonardóttur sem var rænt ásamt tæplega 400 Íslendingum af sjóræningjum árið 1627 og flutt í þrælahald í Barbaríinu í Algeirsborg.  Af þessu heyrðum við í tveimur þáttunum í 4. seríu. En þar endar saga Guðríðar alls ekki því hún átti eftir að komast aftur til Íslands löngu síðar og hneyksla landann. Glöggir áheyrendur geta heyrt a...

Þorir þú til læknis? 05.05.2022

Það er heldur betur flissþáttur í dag! Annað er varla hægt þegar kafað er ofan í kukl og kerlingabækur á Íslandi á 18. og 19.öld. Ég leyfi mér að efast um andlega og líkamlega heilsu landsmanna í ljós þeirra fráleitu hugmynda um lækningamátt hinna ýmsu saurtegunda og dýrainnyfla. Við skoðum allskonar hugmyndir um "lækningar" samkvæmt Jónasi frá Hrafnagili, hvort sem þær voru mikið eða lí...

Fyrstu Íslandsvinirnir 29.04.2022

Stundum er gestsaugað glöggt og í gegnum tíðina höfum við bæði elskað og hatað að lesa lýsingar erlendra gesta á landi og þjóð. Fátt gleður okkur og móðgar okkur jafn mikið og það sem sá mikilvægi hópur hefur að segja um okkur. Við skoðum nokkra af breskum fyrirmönnum sem komu hingað á 18. og 19. öld og höfðu skoðanir á lifnaðarháttum okkar og hvað það er sem helst hefur nýst nútíma sagnfræðingum...

Einar, Sólborg og Höfði 22.04.2022

Málið er stórt í dag! Fáir menn hafa gnægt svo yfir þjóðlífinu á Íslandi eins og Einar Benediktsson var um aldamótin 1900. Hann var allstaðar og hafði skoðanir á öllu. Aflaði sér mikilla vina og mikilla óvina. Enda var hann stórbrotinn hæfileika maður á mörgum sviðum. En stórbrotið fólk er líka brothætt og það var Einar líka. Við skoðum hið svokallað Sólborgarmál í Þistilfirði sem hafði mikil áhri...

Af Stuttu Siggu 14.04.2022

Enn er ég rám sem regindjúp en það stoppar okkur ekki í að segja ykkur frá lífi og örlögum óvenjulegrar konu sem kölluð var Stutta Sigga. Uppeldi hennar var nöturlegt og hluta af ævi sinni tilheyrði hún hinu alræmda flökkufólki sem var þjóðflokkur sem Íslendingar óttuðust meira en heimsendi og gera kannski enn í dag. Við lesum söguna upp úr Grímu hinni nýju og heyrum mörg ljómandi falleg íslensk o...

Sæmundur fróði 07.04.2022

Þátturinn okkar í dag er tileinkaður minningu helstu klappstýru þessara þátta og vini okkar Önnu, honum Árna pípara sem lést fyrir stuttu. Til að við hefðum einhverja burði til að halda uppteknum hætti ákvað ég að taka fyrir létt efni, en það eru þjóðsögur af Sæmundi fróða sem uppi var á 11. og 12. öld. Helst segir frá viðureignum hans við kölska sjálfan sem ekki virtist nú vera skarpasta ljósaper...

Miklabæjar Solveig 18.03.2022

Löng og flókin ástarsaga beinagrinda gæti verið ágætis lýsing á sögu Solveigar og séra Odds á hinni skelfilegu 18.öld. Þetta var harmsaga sem ásótti sveitir norðanlands í marga áratugi, jafnvel árhundruð. Hversu margar beinagrindur er hægt að finna óvænt í kirkjugarði og hver á hvaða bein?

Þarf alltaf að vera morð? 10.03.2022

Já, Anna mín, það þarf allavega að vera morð öðru hverju í ógeðisþáttum eins og okkar. Við bregðum okkur í sakamála leik vegna tveggja morðmála. Þau eiga ekkert sameiginlegt nema það að hafa bæði verið framin það herrans ár 1704. En við getum lofað þungaðri konu, framhjáhaldi, líkskoðunum, dularfullri hempu og það sem allir elska; manni sem klikkar á tylftareið! Ekki reið, nei; eið!!

Torfi í Klofa 04.03.2022

Mig langaði svo að finna eitthvað áhugavert og skemmtilegt að segja ykkur Önnu frá 15. öldinni, sem er kennd við Englendinga og er yfirskyggð af því leiðinlegasta sem til er í allri sagnfræði; Verzlunarsögu!! En ég fann rustamenni og dólg þar sem varð að þjóðsagnapersónu þótt hann hafi sannarlega verið til í alvöru. Torfi heitir maðurinn, kenndur við Klofa! Hann reið um héruð Sunnanlands og var ro...

Þverárundrin 24.02.2022

Við hefjum 5.þáttaröð með ógeði! Það er kannski viðbúið en mér finnst þetta samt óvenju ógeðfellt mál vegna þess að það inniheldur ill örlög dýra.  Það sat í mér þegar ég var krakki. Spakir menn eru kallaðir saman til að leika rannsóknarlögreglur í breskum sjónvarpsstíl þegar kindur taka að hrökkva upp af með ónáttúrlegum hætti á Litlu-Þverá í Húnavatnssýslu. Er illskeyttur ærsladraugur á ferðinni...

Frostaveturinn 1918 24.12.2021

Síðasti þáttur í fjórðu þáttaröðinni okkar! Við reynum að vera jólalegar og fundum kuldalega stemningu í frostavetrinum 1918. Skoðum aðeins þennan alræmda vetur sem í rauninni var aðeins fáránlega kaldur janúarmánuður þar sem hvert kuldametið á fætur öðru var slegið.  Eins komumst við að því til hvers vesti eru. 

Valtýr á grænni treyju 17.12.2021

Það er frjálslegt spjall um þjóðsögu/morðmál frá Austurlandi í dag. Saga sem ég  heyrði nýlega vegna þess að hinn harði vetur sem brast á eftir aftöku Valtýs var kallaður Valtýsvetur. Sitt sýnist hverjum um sannleiksgildi þjóðsögunnar og Sigrún hefur, ótrúlegt en satt, skoðanir á því hver hafi myrt Símon sendisvein.

Velkomin í Barbaríið! 10.12.2021

Eftir að Grindvíkingum, Austfirðingum og Vestmannaeyingum hafði verið smalað eins og búfénaði ofan í maga austurlensku víkingaskipanna, tók við hryllilegt ferðalag í hið svokallaða Barbarí; Sjálft Tyrkjaveldið. Örlög hinna 350 Íslendinga og Dana sem rænt var góðviðris sumarið 1627 urðu æði misjöfn.

Tyrkjarán hið fyrra 02.12.2021

Einn áhugaverðasti og magnaðasti viðburður Íslandssögunnar (ég veit að ég segi þetta oft...) er klárlega Tyrkjaránið! Það sem færri kannski vita er að áður en "Tyrkirnir" fóru til Vestmannaeyja létu þeir greipar sópa annarsstaðar á Íslandi. Þar leynast margar æsilegar sögur og óhugnaður. Sigrún talar svo mikið, er með óvenju mikið málstol, aðdraganda, og sögulegan bakgrunn, að við náum e...

Sígildar draugasögur 25.11.2021

Er ekki kominn tími á einn laufléttan fliss þátt um sígilda íslenska drauga eftir allt dramað undanfarið?  Við skoðum hvernig hin íslenska draugasaga varð til og þróaðist með tímanum. Heyrum af Höfðabrekku-Jóku, Írafells-Móra og að sjálfsögðu Djáknanum af Myrká.

Móðuharðindin 18.11.2021

Hér kemur þá hinn helmingurinn af Skaftáreldasögunni; sjálf Móðuharðindin, sem eru merkilegt nokk, ekki harðindi einnar slæmrar móður eins og einhverjir hafa haldið! Þetta er sá hörmungartími sem felldi sennilega hvað mest af íslensku þjóðinni og ekki síst af búfénaði landsins og herti genamengi íslenskra húsdýra til muna. Kafið í móðuna með okkur!

Skaftáreldar 12.11.2021

Það er komið að máli málanna! Skaftáreldarnir, gosið í Lakagígum 1783, eitt stærsta hraungos mannkynssögunnar, hvorki meira né minna! Fylgjumst með frásögn eldklerksins Jóns Steingrímssonar af því þegar iður jarðar opnast í "eldsveitunum" í Skaftafellssýslum. Ef einhvern tíman var tími til að trúa á heimsendi, þá var þetta líklega tíminn.

Aftökur 05.11.2021

Létt og skemmtilegt spjall um íslenskar aftökur fyrr og síðar! Íslendingar náðu að taka um 250 manns af lífi á snörpu aftökutímabili, nokkuð sem hefur verið skoðað í áhugaverður verkefni sem heitir Dysjar hinna dæmdu. Kafið í drykkingarhylinn og klifrið upp í gálgann með okkur!

Ertu geðveikur? 29.10.2021

Geðveila, sturlun, geðveiki, sinnisveiki, brjálsemi; allt eru þetta dásemdir sem mannshugurinn hefur boðið okkur upp á svo lengi sem maðurinn hefur verið við lýði. Við Anna skoðum meðferð og kenningar um andleg veikindi á fyrri öldum því við höfum á þeim skoðanir, í bland við almenna útúrdúra um tannviðgerðir. 

Myrki Bubbi 21.10.2021

Fyrsti þáttur í 4. seríu var tekinn upp í beinni á Bara Bar í Borgarnesi þannig að það er smá umhverfishljóð í kringum okkur en færir okkur Bara stemningu. Bubbi Morthens hefur verið manna duglegastur að yrkja um hörmungar Íslandssögunnar og tilvalið að skoða aðeins hvað hefur orðið honum innblástur. Tónlistaratriðin hafa verið klippt út.

Spánverjavígin 21.05.2021

Fyrir rúmum 400 árum tóku nokkrir vaskir menn á Vestfjörðum upp á því að murka lífið úr tugum skipbrotsmanna sem höfðu orðið þar strandaglópar yfir vetur. Atburðurinn hefur gengið undir nafninu Spánverjavígin þótt þar hafi alls ekki verið um Spánverja að ræða, heldur baskneska hvalveiðifangara. Um er að ræða einstakt fyrirbæri í íslenskri sögu; fjöldamorð á erlendum borgurum. Það er áhugavert að r...

Sölvi Helgason 14.05.2021

Við erum voða lítið myrkar í dag, bara frekar bjart yfir okkur! Við skoðum aðeins lífhlaup okkar frægasta sérvitrings, Sölva Helgasonar. "Var hann helgur maður eða latur flækingshundur?" spurði Magnús Eiríksson og það er ágæt spurning og svarið er sennilega að hann var hvorugt  en samt svo miklu meira. Sennilega hittu Sólstrandargæjarnir frekar naglann á höfuðið því Sölvi var klárlegar &...

Blóðskömmin og Sunnefa 07.05.2021

Íslenska orðið blóðskömm var notað yfir samlífi fólks sem ekki mátti sænga saman samkvæmt kirkjunni.  Slíkt komst yfirleitt ekki upp nema barn kæmi undir og refsingar við slíku voru harðar og skipti engu hvort samþykki eða ofbeldi hefði komið við sögu.  Í þessu samhengi skoðum við eitt langdregnasta sakamál Íslandssögunnar, Sunnefumálin svokölluð, þar sem systkinin Sunnefa og Jón Jónsbörn voru sök...

Listen to the Myrka Ísland podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.