Sigrún Elíasdóttir

Myrka Ísland

History IS ↓ 105 episodes

Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.

Author

Sigrún Elíasdóttir

Category

History

Podcast website

myrkaisland.buzzsprout.com

Latest episode

May 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hrakningar á heiðum 30.04.2021

Við vitum flest hvernig íslensk veður og villur geta leikið fólk, hvort sem er í fortíð, nútíð eða framtíð. Þess vegna skoðum við nokkur gömul og góð heilræði varðandi útbúnað og viðbrögð ef fólk kemst í hann krappann í íslenskri náttúru og heyrum svo ótrúlegu söguna af honum Kristni, manninum sem gekk í öfuga átt.

Niðursetningar og níðingsverk 23.04.2021

Okkur er alls ekki hlátur í hug í dag! Niðursetningar voru þeir lægstu af þeim lágu í gamla íslenska bændasamfélaginu og örlög þeirra voru algjörlega háð góðvild þeirra sem tóku þá að sér. Hinn 10 ára Páll Júlíus var ekki heppinn í úthlutun húsbænda um aldamótin 1900 og við vörum við viðfangsefni þáttarins sem inniheldur misþyrmingar á barni. Vinsamlegast knúsið börnin ykkar aukalega í dag!

Fróðárundrin 16.04.2021

Nú skoðum við það sem kallað hefur verið "einn magnaðasti draugagangur íslenskrar bókmenntasögu". Það voru undarlegir atburðir sem gerðust á Snæfellsnesi í kringum árið 1000 og hafa verið nefnd Fróðárundrin. Erum við að tala um illa anda, sefasýki alls heimilisfólksins eða bara sjúkdóm vegna óhreinlætis?

Eyvindur og Halla 09.04.2021

Það er komið að okkar eigin útileguglæpapari sem arkaði um hálendi Íslands fram og til baka, hvort sem var gangandi, ríðandi eða á handahlaupum; Eyvindi og Höllu. Þau náðu að búa áratugum saman  að mestu utan samfélags mannanna á 18.öld. Við reynum að fá einhvern botn í sögu þeirra, líf, bústaði og ákvarðanatökur og síðast en ekki síst að reyna að skilja þjóðsögurnar frá raunveruleikanum.

Kynjaskepnur á landi 02.04.2021

Léttur og ljúfur þáttur um þjóðsagnakenndar furðuskepnur sem geta sést á landi en dvelja alla jafna í vatni.  Förum yfir hvernig hægt er að þekkja þær og bregðast við árásum þeirra eða kænsku. Kannski höfum við kenningar um uppruna og ástæður þessara sagna, kannski alls ekki.

Dhoon strandið II 26.03.2021

Hér kemur seinni hluti af dramatískri frásögn af björgunarafrekinu við Látrabjarg þegar 12 skipverjum af breska togaranum Dhoon var bjargað í land við ótrúlega erfiðar aðstæður. Nú fáið þið að vita hvort allir komu heilir heim!

Dhoon strandið I 19.03.2021

Velkomin í þriðju seríu Myrka Íslands! Fyrsti þátturinn reyndist svo langur að við breyttum honum í tvo þætti. Við erum stödd í skammdegi, slyddu og kulda árið 1947 þegar breski togarinn Dhoon strandaði við Látrabjarg. Sagan af björgun skipbrotsmanna er svo ævintýraleg og mögnuð að orðið "hetjudáð" á vel við.

Myndskreytt sögustund Myrka Íslands 18.02.2021

Enn einn aukaþátturinn á meðan beðið er eftir að þriðja sería fari í vinnslu. Þátturinn tengist myndlistarsýningu sem verður á ferðinni um Vesturland 2021 þar sem sýndar eru myndir sem gerðar voru fyrir kynningar á þáttunum. Við rifjum upp gamlar sögur og heyrum  einhverjar nýjar líka. Anna Dröfn var því miður í veikindaleyfi en Sigrún fékk góðan gest í spjall, Sigurstein Sigurðsson arkitekt. Þátt...

Föstudagurinn Dimmi 13.01.2021

Aukaþáttur! Við fengum að vera í dómnefnd í sagnakeppni Föstudagsins Dimma því hann er rafrænn í ár! Lesum tvær góðar sögur sem okkur fannst eiga heima í þættinum og jafnvel tengjast okkur aðeins og því sem við höfum fjallað um. Varað er við innihaldi seinni sögunnar, sem innheldur lýsingar á kynferðisofbeldi.

Leitin að vorinu - á bakvið tjöldin 08.12.2020

Öðruvísi þáttur að þessu sinni þar sem Sigrún gerist óforskömmuð í jólabókaflóðinu og kynnir sína eigin bók. Leitin að vorinu er að vísu síðan í fyrra en er fyrirrennari Týnda barnsins sem kemur fyrir þessi jól. Þar sem Sigrún er sjúk í þjóðsögur og goðsagnaverur langar hana að segja frá bakgrunni einhverra þeirra fyrirbæra sem koma fyrir í bókinni og hvaðan hugmyndirnar koma.

Grýla lifir! 21.11.2020

Síðasti þáttur annarrar seríu er fullur af mannætum, óstaðfestum kenningum, ljóðalestri og jafnvel söng! Hver er Grýla í okkar samfélagi, hvaðan kemur hún og hvert er hún eiginlega að fara? Eitt er samt víst; hún er alls ekki dauð!

Svartidauði 13.11.2020

Við komumst ekki hjá því að fjalla um plágur. Nú er það plága pláganna, Plágan með stórum staf. Það er ótrúlegt en satt ekki Covid 19, heldur Svartidauði. Fyrir meira en 500 árum lagði plágan milljónir manna af velli í Evrópu og Asíu en barst seint og um síðir til litla Íslands og gerði þar usla í tveimur faröldrum á 15.öld.

Reynistaðabræður 06.11.2020

Fá íslensk mál hafa í gegnum tíðina valdið eins miklum heilabrotum og feygðarför bræðranna Bjarna og Einars Halldórssona frá Reynistað í Skagafirði ásamt þremur öðrum mönnum. Finnum við Anna Dröfn svarið við því hvað gerðist á Kili árið 1780? Það er hæpið. Líklegra er að við spyrjum bara fleiri spurninga. Eins og hver hárreitir prest og hvernig dettur hönd af manni?

Kötlugos 28.10.2020

Er til fallegra íslenskt orð en "hamfarahlaup"? Það er ólíklegt en það er líka ólíklegt að það sé gaman að upplifa hamfarahlaup á eigin skinni. Katla getur boðið upp á slíkt og við rifjum upp hennar síðust sýningu fyrir 102 árum síðan.

Ókindur í hafi 23.10.2020

Við erum málglaðar og flissandi á siglingu um höfin í kringum Ísland. Þar bíða okkar eitraðir fiskar, illhveli, lifandi eyjar og mæður í stórum stíl! Heimkoma er sannarlega ekki örugg úr þessari ferð og það er bókað að Landafræðilögreglan mun vilja ná tali af okkur ef við komumst aftur í land....

Reimleikar í Hvítárnesi 16.10.2020

Allt frá byggingu sæluhússins í Hvítárnesi hafa gengið um það draugasögur. Margir hafa á þeim skoðanir og þegar hefur verið skrifuð BA ritgerð um þær. Hvernig stendur á þessum þrálátu sögusögnum sem lítið lát virðist vera á? Eru gestir upp til hópa ímyndunarveikir eða eru þarna einhverjar óhamingjusamar sálir sem vilja segja gestum eitthvað?

Birnir ganga á land 09.10.2020

Það var mun algengara áður fyrr að hvítabirnir gengu á land á Íslandi og af því eru til margar sagnir og þjóðsögur. Við förum því um víðan völl í sögunni; frá landnámi og alveg fram í nútímann að þessu sinni. Þáttur sem mun hræða alla sem ekki voru þegar orðnir hræddir við hvítabirni eftir að hafa horft á Nonna og Manna á sínum tíma!

Á Brimarhólm með hann! 02.10.2020

Það eru fleiri sögur um glæpi og refsingu, Sigrún getur bara ekki hætt! Tíska, pólitík, kostnaður og hugmyndafræði upplýsingarinnar sveifluðu örlögum íslenskra fanga á fyrri öldum. Skyggnumst inn í aðstæður í íslenskum og dönskum fangelsum og hver veit nema kunningjar úr Húnaþingi líti við.

Síðasta aftakan 25.09.2020

Seinni hluti umfjöllunar um morðin á Illugastöðum og eftirmál þeirra sem leiddu til síðustu aftakanna á Íslandi árið 1830. Er eitthvað meira viðeigandi en alvondur sýslumaður, hvað eru skammir, munum við einhvern tíman hætta að velta fyrir okkur hvað gekk á á bænum Illugastöðum og hvað er þetta handrit langt?

Morðbrennan á Illugastöðum 17.09.2020

Eitt þekktasta sakamál Íslandssögunnar verður tekið fyrir í fyrsta þætti þessarar þáttaraðar. En aðeins að hluta til, því við skiptum því í tvennt, samt er þessi þáttur einn og hálfur tími! Þess má geta að við sendum þáttinn út í beinni útsetningu og þaðan kemur allt bull um að vera í mynd en við vonum að það hafi ekki mikil áhrif á heildarhlustun þáttarins.

Móðir mín í kví kví 15.05.2020

Eitt af því óhugnalegasta í íslenskum þjóðsögum eru sögur af barnadraugum, svokölluðum útburðum. En það sorglega er að það var oft sannleikskorn í sögnunum. Ýmislegt gerði það að verkum í gamla íslenska bændasamfélaginu að foreldrar sáu enga aðra leið en að farga nýfæddum börnum sínum. Hvað gæti mögulega rekið fólk út í slíkt?

Ærsladraugar 08.05.2020

Hugtakið ærsladraugur eða poltergeist, er frekar nýtt í íslensku og áður voru notuð orð eins og gangári, fjandi, djöflar, djöfulgangur eða annað til að lýsa óupplýstum og dularfullum atburðum sem seinna voru flokkaðir sem ærsladraugar. Við skoðum 3 hressa íslenska  ærsladrauga frá 18. og 19. öld sem voru vel skrásett af samtíðarfólki en engin skýring fannst á þrátt fyrir rannsóknir.

Axlar-Björn 01.05.2020

Það er komið að okkar eina sanna raðmorðingja; Axlar-Birni! Hann var víst ekki slæmur í öxlunum, heldur bjó hann á bænum Öxl á Snæfellsnesi fyrir 400 árum. Staðreyndir og sagnir gætu því eitthvað hafa skolast til á leiðinni en sagan er góð þrátt fyrir það.

Spænska veikin 1918 24.04.2020

Það hlaut að koma að því að við fjölluðum um mál málanna; pestin sem heimsótti okkur fyrir rúmum 100 árum og bar það villandi nafn, spænska veikin. Hún gerði mikinn usla á mjög skömmum tíma og eymdin í Reykjavík og öðrum kaupstöðum varð fólki minnisstæð lengi á eftir. Þetta er áhugavert að skoða í ljósi nútímans, ekki til að hræða heldur til að fræða og jafnvel til að velta fyrir okkur hvað við hö...

Fylgjur 18.04.2020

Það er létt yfir okkur Önnu og efninu að þessu sinni þegar við förum yfir nokkrar þekktar og minna þekktar, fylgjur. Sumar þeirra eru jafnvel nokkuð skondnar. Hvernig voru hugmyndir fólks um fylgju nýfædds barns tengdar gæfu þess í lífinu áður fyrr? Og hvenær snerist sú hugmynd upp í andhverfu sína með ættarfylgjunum?

Listen to the Myrka Ísland podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.