Söguskoðun hlaðvarp
Söguskoðun
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.
Autor
Söguskoðun hlaðvarp
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
7. Jul 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
125 - Hugmyndin um réttlátt stríð 07.07.2026 1:34:07
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hugmyndina um réttlátt stríð, sem er í dag einn af hornsteinum alþjóðakerfisins en á sér heimspekilegar rætur allt aftur til fornaldar. Frá Aristótelesi til Ágústínusar veltu spekingar fyrir sér hvenær réttlætanlegt væri að hefja stríð og hvernig ætti að haga sér í stríði. Þær hugmyndir sem mótuðust í fornöld og á miðöldum innan vestrænnar heimspeki þróuðus...
124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér? 24.06.2026 1:27:08
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um raunsæisstefnuna í alþjóðastjórnmálafræði sem greiningartæki til að skilja sögulega hegðun ríkja. Ólafur las bókina How States Think: The Rationality of Foreign Policy eftir John Mearsheimer og Sebastian Rosato og segir frá nálgun þeirra við að skilja ákvarðanatöku ríkja með gleraugum raunsæisstefnunnar. Mearsheimer hefur verið mikið í umræðunni vegna þeirr...
123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands 09.06.2026 1:06:52
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um biskupssetrið Skálholt sem var um sjö aldir einn helsti höfuðstaður landsins. Biskupsstóllinn í Skálholti var stofnaður árið 1056, skömmu eftir kristnitökuna á Íslandi. Skálholt varð miðstöð kirkjulegs valds og þróaðist jafnframt í auðugt stórbýli sem safnaði miklum eignum og varð eitt helsta mennta- og lærdómssetur landsins. Á blómaskeiði Skálholts á 13. ö...
122 - Danmörk-Noregur: Staða Noregs í Aldinborgararíkinu 15.02.2026 1:24:28
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um stöðu Noregs í danska konungsríkinu fyrir 1814. Danska konungsríkið, sem Ísland var hluti af, var fjölþjóðlegt og samsett konungsríki. Ríkið var stóð saman af Danmörku - með nýlendum sínum, Noregi - ásamt hjálendunum Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, og hertogadæmunum Slésvík og Holtsetalandi. Noregur og Danmörk gengu í eina sæng á miðöldum og frá 1537 var N...
121 - Um uppruna bandarísku þjóðarinnar 27.01.2026 1:35:09
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um uppruna bandarísku þjóðarinnar sem fyrst og fremst varð til upp úr landnámi breskra landema á 17. og 18. öld. Ólafur las bókina Albion's Seed: Four British Folkways in America eftir David Hackett Fischer og segir frá fjórum grunnstraumum landnema frá Bretlandseyjum til Nýja Englands, Pensylvaníu, Virginíu og Suðurríkjanna þriggja (Karólínunum og Georg...
120 - Jólaþáttur 2025 - Þorlákur helgi á Þorláksmessu 23.12.2025 1:07:43
Í dag er Þorláksmessa að vetri, 23. desember - síðasti dagur jólaföstu og aðventu. Í tilefni þess ræða Söguskoðunarbræður um Þorlák helga Þórhallsson (1033-1093), Skálholtsbiskup og verndardýrðling Íslands í kaþólsku kirkjunni - sem dagurinn er kenndur við. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .
119 - Konungsríkið Jerúsalem og krossfararíkin í austri 18.12.2025 1:55:28
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um krossafararíkin sem komið var á fót í Austurlöndum Nær í kjölfar fyrstu krossfararinnar 1095-1099. Konungsríkið Jerúsalem var stærst og mikilvægast krossfararíkjanna, enda var höfuðborg þess borgin helga. Í konungsríkinu lifðu múslimar og ýmsir kristnir trúarhópar, gyðingar, armenar, arabar og ítalskir kaupmenn, undir innfluttu lénskerfi frönsku- og latínu...
118 - Þýska riddarareglan og krossferðirnar í norðri 05.12.2025 1:37:49
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um Þýsku riddararegluna, einnig þekkt sem Tevtónska reglan eða Maríuriddarar, sem kom á fót þýsku landnema- og krossfararíki við Eystrasaltið á 13. öld. Þýska riddarareglan var stríðsmunkahreyfing, stofnuð í Palestínu eftir þriðju krossferðina um 1190. Hlutverk reglunnar var að hjúkra sjúkum krossförum og pílagrímum og berjast með krossförum í heilögu löndunu...
117 - Hellenisminn og arftakar Alexanders 21.11.2025 1:38:26
Í þættinum í dag halda Söguskoðunarmenn aftur til fornaldar til að ræða um hellenimsann sem var tímabilið í sögu Grikklands og Mið-Austurlanda eftir dauða Alexanders mikla og fram að öld Rómaveldis. Þegar Alexander lést árið 323 f.kr. eftirlét hann engan erfingja sem gat tekið við hinu gríðarstóra víðfeðma ríki sem hann hafði lagt undir sig frá Balkanskaga til Indlands. Ríkið skiptist upp í smærri...
116 - Um sósíalísku Júgóslavíu 1943-1992 07.11.2025 1:47:17
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Júgóslavíu eftir seinni heimsstyrjöld og fram að falli kommúnismans. Þátturinn er sjálfstætt framhald af þætti 89 - Um Júgóslavíu 1918-1941 . Skæruliðar kommúnista undir stjórn landsföðurins Josip Broz Tito sameinuðu þjóðarbrot Júgóslavíu eftir miklar blóðsúthellingar seinni heimsstyrjaldar og endurreistu fjölþjóðlega ríkið á nýjum grunni. Sósíalíska Júgós...
115 - Kalda stríðið og þriðja heimsstyrjöldin II. hluti 25.10.2025 1:30:35
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar. Kalda stríðið var hugmyndafræðileg barátta tveggja ofurvelda sem skiptu heiminum á milli sín eftir endalok seinni heimsstyrjaldar. Í hálfa öld stóðu vígvélar NATO og Varsjárbandalagsins andspæni...
114 - Kalda stríðið og þriðja heimsstyrjöldin I. hluti 25.10.2025 1:22:43
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar. Kalda stríðið var hugmyndafræðileg barátta tveggja ofurvelda sem skiptu heiminum á milli sín eftir endalok seinni heimsstyrjaldar. Í hálfa öld stóðu vígvélar NATO og Varsjárbandalagsins andspæni...
113 - Íslam og arftakar Múhameðs: Hinar ýmsu greinar íslams 03.10.2025 1:49:24
Í þættinum í dag fjalla Ólafur og Andri um íslam og hinar ýmsu hreyfingar og trúfélög innan íslamstrúar. Íslam er næstfjölmennustu trúarbrögð heims með yfir tvo milljarða fylgjendur. Eftir landvinninga og trúboð Múhameðs spámanns á 7. öld og útþennslu kalífadæmisins klofnaði hreyfingin fljótt í tvær höfuðgreinar, súnní og sjía íslam. Síðan þá hafa margar hreyfingar og hópar komið fram, eins og dr...
112 - Hundadagabyltingin 1809 18.09.2025 1:19:58
Í þætinum í dag ræða Andri og Ólafur um einn óvenjulegasta atburð Íslandssögunnar, þegar Jörgen Jörgensen (Jörundur Hundadagakonungur) rændi völdum á Íslandi sumarið 1809 og lýsti yfir ótímabæru sjálfstæði Íslands. Sagan hefur verið innblástur skálda og höfunda, og hefur einnig verið mikið um hana fjallað á hinu fræðilega sviði. Jörundur kom með enskum kaupmönnum í miðri Napóleonsstyrjöld sem vild...
111 - Íran-Írak stríðið 25.07.2025 1:13:19
Í framhaldi af síðasta þætti um írönsku byltinguna ræða Andri og Ólafur í dag eitt af mannskæðustu stríðum 20. aldarinnar – stríðið milli Írans og Íraks 1980–1988. Saddam Hussein hóf forsetatíð sína í Írak með því að ráðast inn í Íran haustið 1980 í kjölfar írönsku byltingarinnar og þeirrar upplausnar sem þá ríkti í landinu. Stríðið stóð í átta ár og kostaði hundruð þúsunda mannslífa. Það var háð...
110 - Íranska byltingin 1979 11.07.2025 2:18:16
Í hlaðvarpinu í dag ræða Ólafur og Andri um írönsku byltinguna árið 1979, þegar síðasti keisari Írans (sha) var steypt af stóli og stofnað var róttækt íslamskt lýðveldi undir klerkastjórn. Íranska byltingin var afdrifaríkur atburður í nútímasögu Mið-Austurlanda. Ekki aðeins varð byltingin til þess að 2500 ára gömul stofnun íranska keisarans leið undir lok, heldur breyttist Íran á skömmum tíma úr e...
109 - Danmörk og Svíþjóð og baráttan um Norðurlönd 27.06.2025 1:25:29
Í þættinum í dag fjalla Andri og Ólafur um langvarandi og blóðuga togstreitu Danmerkur og Svíþjóðar um yfirráð í Skandinavíu og við Eystrasalt, frá endalokum Kalmarsambandsins til Napóleonsstyrjaldanna. Stundum er sagt að fá ríki hafi háð jafn margar styrjaldir sín á milli og Danmörk og Svíþjóð. Á tímabilinu 1500–1800 háðu þau að minnsta kosti tíu stríð, með misjöfnum árangri, auk þess sem þau tók...
108 - Páfinn: Um biskupinn í Róm frá Pétri postula til nútímans 13.06.2025 2:01:36
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarbræður sögu páfadæmisins, þessa fornu stofnunar sem hefur gegnt lykilhlutverki í kristinni trú og evrópskri sögu öldum saman. Mögulega er páfadómurinn eitt elsta embætti sem enn er mannað í okkar heimshluta, og varla fór framhja neinum þegar nýr páfi var kjörinn nú fyrir skömmu. Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um þróun og sögu páfans, löggildingu hans sem arf...
107 - "Ástandið": Sambönd íslenskra kvenna við hermenn í seinni heimsstyrjöld og viðbrögð yfirvalda 09.05.2025 1:36:23
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hið svonefnda "ástand" á Íslandi í seinni heimsstyrjöld: Ástarsambönd íslenskra kvenna og breskra og bandarískra hermanna, og afskipti íslenskra yfirvalda af því. Hernámið hafði gríðarlegar samfélagslegar breytingar í för með sér fyrir Ísland. Með komu hernámsliðsins 1940-1941 streymdu tugir þúsunda hermanna til landsins og þegar mest lét var fjöl...
106 - Um samúræja og sjóguna í Japan 11.04.2025 1:26:39
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um samúræjana – stríðsmenn gamla Japans og táknmyndir japanskrar menningar. Samúræjarnir voru kjarninn í japönsku lénsskipulagi og áttu gullöld sína á Tokugawa tímabilinu (1600–1868), þegar Japan var sameinað undir sterku miðstjórnarvaldi sjógúnanna. Þetta tímabil einkenndist af friði, einangrunarstefnu og blómaskeiði í menningu, listum og heimspeki. Samúr...
105 - Ítalía í seinni heimsstyrjöld og stórveldisbrölt Mussolinis II. hluti 21.03.2025 1:16:54
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943. Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttis...
104 - Ítalía í seinni heimsstyrjöld og stórveldisbrölt Mussolinis I. hluti 21.03.2025 1:19:04
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943. Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttis...
103 - Markús Árelíus: Heimspekikóngurinn og síðasti gullaldarkeisari Rómar 06.03.2025 1:41:58
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um Markús Árelíus, keisara og heimspeking, sem stundum er kallaður síðasti gullaldarkeisari Rómaveldis. Stjórn hans markaði lok tímabils friðar og stöðugleika í ríkinu, en einnig upphaf hnignunar. Markús Árelíus var ekki aðeins valdamikill keisari heldur einnig hugsuður í anda stóuspekinnar. Í riti sínu, Hugleiðingar , sem ekki var ætlað til birtingar, spegla...
102 - Íslenska skattlandið: Gamli sáttmáli, Noregsveldið og upphaf konungsvalds á Íslandi 20.02.2025 1:46:03
Í þættinum í dag skoða Söguskoðunarmenn innreið konungsvalds og upphaf íslenzka skattlandsins þegar íslenskir höfðingjar gengu Noregskonungi á hönd á 13. öld. Konungsvald á Íslandi hefur alltaf verið fyrirferðarmikið atriði í íslenskri sögu, enda er sá tími mjög svo tengdur sjálfsmynd þjóðarinnar, afnámi þjóðveldisins og svo stofnun þjóðríkisins. Þegar Ísland varð hluti af norska konungsríkinu átt...
100 - Í návígi á norðurslóðum 20.12.2024 1:46:12
Þessi þáttur er aðgengilegur með hljóði og mynd á Youtube . Í tilefni hundraðasta þáttarins komu Söguskoðunarbræður saman í egin persónu í herstöðvarbænum Setermoen i Norður-Noregi og ræddu um sagnfræði, heimspeki, norðurslóðir, gervigreind, heimsmálin og áfram mætti telja. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrk...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet