Söguskoðun hlaðvarp
Söguskoðun
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.
Author
Söguskoðun hlaðvarp
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 7, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
75 - Fasismi og nasismi í Austurríki 14.12.2023 2:08:44
Þátturinn byrjar á 24 mínútu. Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Austurríkis á árunum milli stríða, 1918-1938. Austurríki-Ungverjaland var 50 milljón manna fjölmenningarríki sem hrundi eftir fyrri heimsstyrjöld, þjakað af þjóðernisdeilum. Árið 1918 var hið nýja Austurríki 6 milljón manna smáríki með ofvaxna höfuðborg, og glímdi við pólitiskan óróa og efnahagsörðugleika. Árið 1934 var ko...
74 - Keltar á Íslandi 23.10.2023 1:30:03
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Kelta á Íslandi og keltnesk áhrif á íslenska menningu, tungumál og sögu. Norrænir menn komust í mikil tengsl við Kelta á Bretlandseyjum um það leyti er Ísland var að byggjast á árunum 800 til 1000. Enginn vafi leikur á því að hluti landnámsmanna voru frá Bretlandseyjum og af keltneskum uppruna og hefur þetta verið óumdeilt. Ekki allir eru þó sammála um þa...
73 - Galdrar, brennur og galdrafár 26.09.2023 2:04:31
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn galdrafárið í Evrópu og galdramálin á Íslandi á 17. öld. Í Evrópu voru tugir þúsunda meintra norna og galdramanna brennd á báli, eða tekin af lífi með öðrum hætti fyrir það að stunda svartagaldur og hvítagaldur. Langstærstur fjöldi þeirra voru konur. Á Íslandi voru 22 brennd á báli fyrir ástundun galdurs, þar af ein kona. Galdrafárið á Íslandi, ef svo mætti...
72 - Silkivegurinn 31.08.2023 1:31:20
Andri og Ólafur koma saman í þættinum í dag til að ræða silkiveginn í víðu og þröngu samhengi. Silkivegurinn er nafið sem loðað hefur við leiðina frá Miðjarðarhafinu (Evrópu og Rómarveldi), í gegnum Mið-Austurlönd og Mið-Asíu og til Kína á fornöld og á miðöldum fram til ca. 1500. Á þessu svæði fór fram verslun, m.a. með silki, en einnig fór þar um straumur hugmynda, trúarbragða, menninga, tungumál...
71 - Býsanska lýðveldið 22.08.2023 1:32:37
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri kenningu sagnfræðingsins Anthony Kaldellis um "býsanska lýðveldið" sem hann birti í bók sinni The Byzantine Republic sem kom út árið 2015. Kaldellis er góðvinur hlaðvarpins enda hefur hann oft borið á góma þegar rætt er um málefni Austrómverska ríkisins. Segja má að bækur hans The Byzantine Republic og Romanland séu uppistöðurit í hans leiðangri að...
70 - Sumargleði Söguskoðunarbræðra 17.06.2023 1:26:09
Söguskoðunarmenn komu saman í eigin persónu, í annað sinn síðan hlaðvarpið hóf göngu sína, og ræddu heima og geima áður en haldið var í sumarfrí. Þessi þáttur er aðgengilegur með hljóði og mynd á Youtube: https://youtu.be/NADuRUF6xn0 Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .
69 - Konungsríkið Kongó 30.05.2023 1:22:55
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur miðaldakonungsríkið Kongó í Mið-Afríku sem stofnað var undir lok 14. aldar og leið ekki formlega undir lok fyrr en á 20. öld. Fá miðstýrð ríki voru til staðar í Afríku sunnan Sahara fyrir nýlenduvæðinguna, en konungsríkið Kongó varð til við samruna ættbálka og samþjöppun valds í kringum höfuðstaðinn Mbanza-Kongo sem nú er í norðanverðri Angóla. Kongó varð flj...
67 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu I. hluti 16.05.2023 1:20:13
Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega. Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruni...
68 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu II. hluti 16.05.2023 1:16:50
Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega. Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruni...
66 - Heródótos og Persastríðin 27.04.2023 2:02:13
Heródótos frá Kalikarnassos er kallaður faðir sagnfræðinnar (og faðir lyganna). Í þættinum í dag hverfum við aftur til fornaldar og skoðum það sem kallað hefur verið fyrsta eiginlega sagnfræðiverkið í vestrænni sagnaritunarhefð, en það er saga Heródótosar af Persastríðinum milli Grikkja og Persa árin 499 til 449 f. kr. Persaveldi var mesta heimsveldi sem sést hafði á þessum tíma, en Grikkland var...
65 - Ancien Régime: Frakkland á barmi byltingar 07.04.2023 1:50:34
Franska byltingin hófst árið 1789 og er hún jafnan talin á meðal merkustu atburða mannkynssögunnar. Byltingin varð til í umróti nýrra hugmynda í landi sem bar einkenni mikils félagslegs óréttlætis. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur þetta samfélag sem stundum er kallað Ancien Régime - gamla stjórnin, með áherslu á síðasta franska Búrbónakonunginn, Loðvík XVI, en hann var tekinn af lífi af bylt...
64 - Um söguskoðun og sögustaði 21.03.2023 1:13:29
Fyrir jólin kom út ný bók eftir Helga Þorláksson, Á sögustöðum , þar sem fjallað er um sex fræga sögustaði á Íslandi, sögu þeirra og framsetningu sögunnar. Bókin vakti mikla athygli enda er beint sjónum að mikilvægu stefi í íslenskri sagnfræði sem er söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar og samspil akademískrar sagnfræði og almennrar söguvitundar. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri bók Helga, og...
63 - Hvað var þetta svokallaða Heilaga rómverska ríki? 22.02.2023 1:28:06
Heilaga rómverska ríki hinnar þýsku þjóðar hefur oft borið á góma hér í hlaðvarpinu, enda spannar saga þess 1000 ár í hjarta Evrópu. Saga þessa ríkis hófst með krýningu Karlamagnúsar sem nýs Rómarkeisara í vestrinu árið 800, og það leið undir lok þegar nýr keisari frönsku byltingarinnar réðist inn í Þýskaland 1806 og nýr keisari Austurríkis lagði frá sér krúnu Karlamagnúsar í hinsta sinn. Ólafur...
62 - Brúðukeisarinn 09.02.2023 1:17:09
Í þættinum í dag segir Ólafur frá Aisin Gioro Puyi sem var síðasti keisari Kína. Puyi fæddist á miklum umrótartímum og ber ævi hans þann vott. Hann var settur af sem keisari þegar Kína varð lýðveldi árið 1912 og bundinn var endir á yfir 2000 ára sögu kínverska keisaradæmisins. Puyi varð á stríðsárunum leppur Japana í Mansjúríu fram til 1945, og eftir 15 ára fangavist og endurmenntun endaði hann æv...
61 - Deus vult! Fyrsta krossferðin II. hluti 30.01.2023 1:16:38
Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni h...
60 - Deus vult! Fyrsta krossferðin I. hluti 28.01.2023 1:29:33
Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni he...
59 - Bastarðurinn 1066 11.01.2023 1:25:56
Á jóladag 1066 var Vilhjálmur bastarður hertogi af Normandí, krýndur konungur Englands. Rúðujarlinn hafði þá leitt innrás franskra og normanskra riddara til Englands, sem yfirbuguðu húskarla síðasta engilsaxneska konungsins, Haralds Guðnasonar í hinni víðfrægu orrustu við Hastings. Englendingar hafa síðustu aldir þakkað Ermasundinu sérstöðu sinni sem eyju, varin árásum frá meginlandinu, en innrá...
58 - Síðasti einvaldurinn 06.12.2022 1:46:10
Fyrr á þessu ári ræddum við sögu rússneska keisaradæmisins frá fæðingu þess á miðöldum og fram að þeim tíma er Rússland varð evrópskt stórveldi á 18. og 19. öld. Í þessum þætti ljúkum við þríleiknum með því að ræða fall keisaradæmisins og líf og störf síðasta keisarans. Nikulás II Rússakeisari er stundum talinn síðasti konungborni einvaldurinn í Evrópu, þótt um þetta megi deila. Hann barðist gegn...
57 - Stutt greinargerð um Ísland 1593 17.11.2022 1:18:58
Arngrímur Jónsson lærði er gamalkunnur góðvinur þáttarins. Arngrímur var höfundur fyrsta Íslandssöguritsins, Crymogæa , sem kom út á latínu árið 1609. Sem ungur og upprennandi fræðimaður árið 1592 var Arngrímur í Kaupmannahöfn þar sem hann hafði kynnst sagnfræðingum sem höfðu mikinn áhuga á íslenskum fornsögum. Hann hafði með í fórum handrit að bók sem var svo gefin út árið eftir, einnig á latínu....
56 - Af varúlfum og morðingjum 31.10.2022 1:05:23
Í anda hrekkjavökunnar koma Söguskoðunarmenn saman í dag til þess að ræða varúlfa, raðmorðingja og annað skelfilegt. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér .
55 - Tyrkjaránið 02.10.2022 1:41:06
Tyrkjaránið er vafalaust einn óhuggulegasti atburður Íslandssögunar. Sumarið 1627, á tímum gríðarlegra hallæra og fátæktar á Íslandi, og á hápunkti hins harða lúterska réttrúnaðar, gerðu sjóræningjar (eða víkingar) frá Norður-Afríku, sem þá tilheyrði veldi Tyrkjasoldáns, strandhögg á nokkrum stöðum á Íslandi. Þeir fóru um rænandi hendi, myrtu fólk, brenndu hús og numu á brott hátt í 400 Íslendinga...
54 - Eric Hobsbawm: Tvíbyltingin, langa 19. öldin og stutta 20. öldin 15.09.2022 1:24:49
Eric Hobsbawm (1917-2012) er í hópi fremstu sagnfræðinga 20. aldar. Þekktastur er hann fyrir stórvirki sín um "löngu 19. öldina" 1789-1914, og framhaldið um öld öfganna, "stuttu 20. öldina" 1914-1991. Hobsbawm var kommúnisti alla sína tíð og var einn af fremstu fánaberum marxískrar söguskoðunar úr hópi sagnfræðinga. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | sogus...
53 - Vetrarstríðið 12.07.2022 1:34:27
Í þessum síðasta þætti hlaðvarpsins á þessari önn ræða Ólafur og Andri um innrás Sovétríkjanna í Finnland í nóvember 1939, og hið þriggja mánaða langa vetrarstríð sem eftir fylgdi. Fjölmargir illa búnir Rússar urðu hinum "hvíta dauða" að bráð þennan frostavetur, og hin eftirtektarverða vörn Finna vakti aðdáun um heim allan. Vetrarstríðið hafði þær afleiðingar að Noregur og Danmörk dróg...
52 - Innrásin á Kýpur 1974 29.06.2022 1:18:46
Í júlí árið 1974 gerðu Tyrkir innrás í Kýpur og hefur hernám þeirra á norðurhluta eyjarinnar staðið yfir í 47 ár. Innrásin er mjög umdeild og hefur verið harðlega gagnrýnd af alþjóðasamfélaginu. Tyrkir segjast hafa verið að vernda tyrnkeska minnilutan á eyjunni, sem hafði verið ofsóttur af Grikkjum, en kýpríska þjóðvarðliðið, stutt af herforingjastjórn Grikkja, hafði skömmu áður framið valdarán me...
50 - Julius Caesar I. hluti 16.06.2022 1:06:40
Í þessum 50. þætti hlaðvarpsins í tveimur hlutum ræða Ólafur og Andri ævi og störf mögulega eins frægasta manns sögunnar. Julius Caesar hefur verið sagður einn merkasti stjórnmálaskörungur og herstjórnandi vestursins. Hann var upphafsmaður rómverska keisaradæmisins og eftir hann liggja djúp spor í söguvitund okkar heimshluta. Í fyrri hlutanum ræða Ólafur og Andri ævi Caesars fram að því er hann ge...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.