Söguskoðun hlaðvarp
Söguskoðun
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.soguskodun.com
Author
Söguskoðun hlaðvarp
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 12, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
29 - Þegar Alexander lagði Persaveldi 25.11.2020 1:31:32
Í þættinum í dag halda Andri og Ólafur til fornaldar og ræða um fornaldarsögu, aðdráttarafl hennar og áskoranir sem tengjast henni. Fókusinn er á mögulega einn frægasta mann fornaldar, og þann sem stundum hefur verið kallaður ein sú frægasta veraldlega mannkynssögupersónan. Það er Alexander III Makedóníukonungur - betur þekktur sem Alexander hinn mikli, en hann lagði undir sig hinn þekkta heim á ö...
28 - Íslenska söguendurskoðunin 15.11.2020 1:21:25
Undir lok síðustu aldar var mikið rætt um sögukennslu og framreiðslu sögunnar á Íslandi. Íslenskir sagnfræðingar höfðu þá á síðustu áratugum 20. aldar skorað á hina hefðbundnu söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar, sem ríkt hafði á Íslandi frá 19. öld, um að þjóðin hafi í aldanna rás staðið sameinuð gegn náttúruöflunum og erlendu valdi í gegnum gullöld, niðurlægingartímabil og endurreisn. Íslenska sög...
Leiðin til Hiroshima - Þríleikur 06.11.2020 4:13:53
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði...
27 - Japan í síðari heimsstyrjöld 28.10.2020 1:34:36
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði...
26 - Lýðræði og fasismi í Japan 06.10.2020 1:17:49
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði...
25 - Opnun Japans 16.09.2020 1:27:29
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði...
24 - Landnám Íslands 25.08.2020 1:30:00
Hlaðvarpið Crymogæa snýr aftur úr sumarfríi undir nýju og öllu þægilegra nafni í framburði og ritun: Söguskoðun! Í þessum þætti ræða þeir félagar Andri og Ólafur um landnám Íslands sem mætti ætla að væri jafnvel einn mikilvægasti atburður Íslandssögunnar. Rætt er um ritheimildir og fornleifarannsóknir um landnámið og alls kyns kenningar og aðferðir aðrar sem fjalla um þetta mikla málefni. Töluverð...
23 - Um valdarán Napóleons 22.06.2020 1:23:07
Í þessum síðasta þætti Crymogæu fyrir sumarfrí ræða Ólafur og Andri áfram um Napóleon þar sem frá horfði þegar hann snéri heim frá Egyptalandi árið 1799 og hrifsaði völdin í Frakklandi. Rætt er um valdaránið þann 18. þokumánaðar (Brumaire), Napóleonsstyrjaldirnar og stofnun franska keisaradæmisins. Þá er einnig rætt um sagnaritun um þetta tímabil og kenningar marxista og síðari tíma byltingarmanna...
22 - Napóleon í Egyptalandi 09.06.2020 1:33:03
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um herför Napoleons Bonaparte til Egyptalands árið 1798, en þá var hann hershöfðingi fyrsta franska lýðveldisins sem átti í stríði m.a. við Breta. Leiðangurinn var fyrir margar sakir merkilegur atburður bæði í sögu Mið-Austurlanda og Frakklands en ekki síður fyrir sögu vísinda og fræða. Að endingu yfirgaf Napóleon menn sína og hélt heim þar sem hann rændi völd...
21 - Edward Said og óríentalisminn 27.05.2020 1:15:37
Í þættinum í dag taka Ólafur og Andri bókina Orientalism eftir bókmenntafræðinginn Edward Said til umræðu. Bókin kom út árið 1978 og hafði gríðarleg áhrif um allan heim en hún fjallar krítískt um orðræðu Vesturlanda í garð austursins bæði í fræðum (orientalisma) og í listum. Said er einn af upphafsmönnum eftirlendufræðanna og er hann vægast sagt umdeildur, enda spunnust miklar umræður á meðal Crym...
20 - Hvað ef...?: Efsaga og hjásaga 22.04.2020 1:17:00
Í þættinum í dag halda Ólafur og Andri áfram umræðum um ekki-sögu, og er nú rætt um "Hvað ef...?" sagnfræði. Vangaveltur um það sem hefði getað gerst hefur orðið vinsælt þema í bókmenntum og öðrum skáldskap en er einnig að mati margra sagnfræðinga nytsamlegt verkfæri til að rannsaka söguna. Á íslensku hafa hugtökin counterfactual history og alternate history verið þýdd sem efsaga og hjás...
19 - Gervisaga og gervisagnfræði 08.04.2020 1:20:55
Ólafur Hersir las bókina The Baltic Origins of Homer's Epic Tales; The Iliad, The Odyssey, and the Migration of Myth eftir Felice Vinci, staðráðinn í að hér væri á ferðinni "pseudohistory", eða það sem við höfum reynt að þýða sem "gervisaga". Í þættinum í dag er þessi kenning rædd, auk annarra misgáfulegra kenninga um sögu sem heyra til gervivísinda. Er höfundum þeirra alv...
18 - Hugleiðingar um kórónavírusinn 22.03.2020 44:47
Crymogæu fannst ekki annað hægt en að hlýða ákalli Landsbókasafns Íslands og annarra um að skrásetja hugleiðingar okkar um kórónavíruskrísuna vorið 2020, enda þegar ljóst að við erum að upplifa sögulega tíma. Þátturinn var tekinn upp í gegnum netið þann 22.03.2020. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube . Hægt er að styrkja hlaðvarp...
17 - Fernand Braudel og Annales-skólinn 18.03.2020 1:14:11
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um franska sagnfræðinginn Fernand Braudel og meistaraverk hans Miðjarðarhafið, sem kom út fyrir rúmlega hálfri öld síðan. Nafn Braudels og verk hans koma oft fyrir í yfirlitsritum um sögu sagnfræðinnar enda var hann einn af leiðtogum Annales-skólans franska. Annálaskólinn var um miðbik 20. aldar eitt helsta vígi félagsfræðilegrar sagnfræði, en tímaritið Annale...
16 - Íslenska þjóðveldið og rómverska lýðveldið 03.03.2020 1:12:41
Crymogæumenn snúa aftur til þess að ræða afar klassísk sagnfræðileg málefni að þessu sinni. Ólafur Hersir býður upp á athygliverðan samanburð á falli íslenska þjóðveldisins árið 1262 og falli rómverska lýðveldisins á 1 öld e.kr. Kenningar íslenskra sagnfræðinga um tilurð héraðsríkja og átök Sturlungaaldar eru ræddar auk þess sem endalok þjóðveldisins eru rædd í stærra samhengi ríkismyndunar á Ísla...
15 - Ísland í síðari heimsstyrjöld, nasistar og kommúnistar 06.02.2020 1:22:42
Í þessum þætti er haldið áfram þar sem frá var horfið í síðasta þætti um sagnaritun eftir endalok kommúnismans. Þeir Ólafur og Andri ræða um það hvernig sagnaritun um íslenska kommúnista hefur farið fram hér á landi frá hruni Sovétríkjanna. Ennfremur er rætt um það hvernig við Íslendingar minnumst síðari heimsstyjaldarinnar og hve sammála við höfum verið um söguskoðun stríðsins. Hlaðvarpið Sögusko...
14 - Fall Sovétríkjanna 21.01.2020 1:30:41
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um hrun Sovétríkjanna og aðdraganda þess 1985-1991. Rætt er um sögulega þýðingu þess atburðar og hvernig fjallað hefur verið um hann á þeim stutta tíma sem liðinn er síðan. Teknar voru fyrir tvær bækur sem síðasti aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, Mikhail Gorbatsjov skrifaði sjálfur árin 1987 og 2000. Hvaða hlutverk spilaði einstaklingurinn Gorbatsjov í...
13 - Endalok Ottomanveldisins 07.01.2020 1:25:22
Á árinu sem leið voru hundrað ár frá einum örlagaríkasta alþjóðaviðburði síðustu aldar - Parísarráðstefnunni árið 1919. Í þessum fyrsta þætti ársins ræða Ólafur og Andri um einn anga þeirra afleiðinga sem fyrri heimsstyrjöld hafði í för með sér en það var endalok hins aldagamla Tyrkjaveldis. Var þarna lagður grunnurinn að skipan Mið-Austurlanda eins og við þekkjum þau í dag, en á sama tíma bundinn...
12 - Hinar myrku miðaldir? 04.12.2019 1:22:22
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um miðaldir sem sögulegt tímabil í mannkynssögunni. Rætt er um hvernig tímabilið hefur birst okkur í sagnfræði og í poppkúltur, hvaða ímynd við höfum af miðöldum og hvaða þýðingu hafa þær fyrir nútímann. Bók Joseph Strayers, On the Medieval Origins of the Modern State, og kenning hans um uppruna nútímaríkisins er rædd í því samhengi. Hlaðvarpið Söguskoðun má n...
11 - Landráð og andspyrna í seinni heimsstyrjöld 17.11.2019 1:30:02
Í þessum þætti ræða Crymogæumenn vítt og breytt um landráð og andspyrnu í Evrópu undir hernámi þjóðverja í síðari heimsstyrjöld. Dregin eru fram ólík dæmi hernáms og andspyrnu frá Austur og Vestur Evrópu. Sérlega er vikið að reynslu Norðmanna og er þá m.a. rætt um bók Øystein Sørensens, Hitler eller Quisling, um hugmyndafræðilega strauma í Nasjonal Samling, flokki landráðmannsins Vidkun Quislings....
10 - Lærðir menn og handritasöfnun á 17. öld 06.11.2019 1:13:41
Ólafur las bókina Í spor Jóns lærða eftir Hjörleif Guttormsson og í kjölfar þess ræða Ólafur og Andri um menn lærdómsaldarinnar. Jón lærði Guðmundsson, Arngrímur lærði, Brynjólfur Sveinsson, Árni Magnússon og fleiri lærðir menn 17. og 18. aldar eru til umræðu í tengslum við fornfræðistörf og handritasöfnun. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebo...
09 - Norræna byggðin á Grænlandi 17.10.2019 1:29:00
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um norrænu byggðina í Grænlandi sem lifði í um 450 ár þar til hún lagðist af á leyndardómsfullan hátt um miðja 15 öld. Rætt er um samband fornleifafræði og sagnfræði og farið yfir sögulegar heimildir sem til eru um Grænland hið forna. Kenningar um brotthvarf norrænu byggðarinnar eru reifaðar - átti sér stað umhverfisslys eða útrýming á Grænlandi? Eru mögulega...
08 - Um Þjóðverja og Þýskaland 24.08.2019 1:22:22
Í Crymogæu í dag ræða Ólafur og Andri vítt og breytt um sögu Þjóðverja og aðra germanskra þjóða. Rætt er um þýska sagnaritun og söguskoðanir um þýska sögu og um stöðu Þýskalands innan Evrópu og Evrópusambandsins. Sonderweg: kenningin um hina "sérstöku" innreið Þjóðverja í nútímann frá Lúter til Hitlers er tekin fyrir og samband Þýskalands og Bretlands. Kynþáttahyggja, nasismi, lýðræði og...
07 - Landafundir og landnám í Nýja heiminum 26.03.2019 1:21:25
Í þessum síðasta þætti Crymogæu fyrir sumarfrí ræða Andri og Ólafur um Landafundina miklu í víðu og þröngu samhengi. Rætt er um orsakir og afleiðingar landafunda Evrópumanna í Nýja heiminum á 15. og 16. öld, tengslin við landafundi Íslendinga í Ameríku og samanburðinn við landkönnun Araba og Kínverja. Í framhaldi af því er bókin White Settler Reserve: New Iceland and the Colonization of the Canadi...
06 - Getur sagan ráðið framtíðina? II. hluti 03.03.2019 1:19:55
Í þessum þætti höldum við áfram með umræður um framtíðarspeki með hjálp kenningasmiða á borð við Francis Fukuyama, Yuval Harari og Karl Marx. Hér er einnig tekin fyrir nánar kenning Samuel Huntingon um Clash of Civilizations - og þar af leiðandi um mismunandi grundvallarsýn fólks um afstæði þróunnar mannlegs samfélags. Er kapítalisminn og vestrænt lýðræði endalok sögulegrar þróunar eða er kannski...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.