Bergþór Másson

Skoðanabræður

www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.

Author

Bergþór Másson

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Apr 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#311 Skoðanir Prettyboitjokko 26.04.2024

Patrik Snær Atlason er Prettyboitjokko og hann sest í ráðuneyti Skoðanabræðra þessa vikuna. Það er meira í manninn spunnið en bara glimmer og peningar, hann hefur ákveðnar hugsjónir og hugmyndir sem vert er að laða fram í dagsljósið. Persónuleg krísa hans fótboltamanns og fyllibyttu, eitrað umhverfi, að finna sjálfan sig á ný, fjárfestingar, peningamál til framtíðar, hugsjónin um að funda með Jóni...

#310 *FRÍR AFMÆLISÞÁTTUR* Sársaukafullt hlustunarpartí á fyrsta þáttinn frá 2019 19.04.2024

Í þætti vikunnar lögðu bræðurnir það á sig að hlusta á fyrsta þátt Skoðanabræðra frá apríl 2019 – fimm árum eftir útgáfuna á fimm ára afmæli þessa fremsta hlaðvarps landsins. Óhjákvæmilegt var við þær aðstæður að leggja niður fyrir sér þá hugmyndastrauma sem mótað hafa bræðurna og þeir mótað þá á móti á viðburðaríkum hlaðvarpsferli. Ekki var laust við að menn þjáðust töluvert við að skyggnast aftu...

#309 Betri tíð með blóm í haga 12.04.2024

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Farið yfir stjórnmál, forsetakosningar og upprisa SDG. Einnig snert á því konsepti að aflæra hugmyndir og halda huganum opnum. Gervigreind og einkaherir. Komiði með, tjékkum á þessu. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

#308 Vekjaraklukkan er að hringja 05.04.2024

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Vakningin virðist engan enda ætla að taka. Það er ekkert annað hægt en að gefa í. Hérna tölum við kvótakerfið og gamalt hugarfar Bergþórs gagnvart því, hvernig maður eigi að losa sig undan áliti skrílsins og skilgreiningu Earl Nightingale's á skapandi fólki. Hvað er að vera skapandi? Lúseralistamaður eða king?

#307 Skoðanir Guðmundar Emils Jóhannssonar 29.03.2024

Páskaþáttur, gjörið svo vel. Það var löngu tímabært að fá hinn andlega jöfur Guðmundur Emil að borðinu að nýju og fara yfir þá vakningu sem nú stendur yfir. Hér eru menn að sniffa ammóníak og taka ábyrgð á sjálfum sér. Víkingar vakna – það er verk að vinna. Þátturinn í heild sinni er á https://www.patreon.com/skodanabraedur

#306 Það hræðilegasta sem Bergþór hefur séð 22.03.2024

Hér er hvatt til endurvakningar vísnahefðarinnar - og nefndir til sögunnar ungir menn sem eru nokkuð líklegir á því sviði, Bergþór fer yfir upplifun sína af ferðalögum til Indlands og Bandaríkjanna, við höldum áfram að veita skýrar leiðbeiningar að andlegri vakningu; önnur spurning í þessu: Er hið norræna velferðarkerfi til þess fallið að hvetja til andlegra afreka eða er það bara fjöldaframleiðsl...

#305 Öll eru vöknuð 15.03.2024

Hér er stiklað á stóru: Heimildin.is fjallaði um það að Valkyrjurnar séu vaknaðar, DVD (Decision, Vision, Discipline), mikilvægi þess að búa sér til sýn, Steini V, hugmyndir um karlmennsku, kynjafræði. Guð blessi ykkur kæra bræðralag - til hamingju með vakninguna. Við erum í þessu saman.

#304 Viðhorf, viðhorf, viðhorf 08.03.2024

Breyttu viðhorfinu þínu og breyttu lífinu þínu. Skoðanabræður halda áfram í sjálfs-þróun - takið eftir, ekki sjálfshjálp - sjálfsþróun. Hún hættir aldrei, við hættum aldrei. Hver veit hvernig þetta endar? Á snekkju með twerkandi gellum? Í Ölpunum? Á búgarði í Borgarfirði? Eitt er víst - þetta endar vel, þetta endar eins og við ákveðum, þetta endar eins og við viljum að þetta endi. Bob Proctor teki...

#303 Svona grefurðu þig upp úr holunni! *FRÍR ÞÁTTUR* 01.03.2024

Framhald á sjálfshjálparvegferðinni er ekki galin leið til að lýsa þessum þætti en hér er þó margt annað rætt: Kristni og wokeismi og sniðmengi þessara hugmyndastefna, að hætta að hata fólk, Trump á McDonald’s í Japan, Zuckerberg, þá firringu að halda því fram að kjöt sé óhollt og loks mikilvægi þess að lesa bækur endurtekið.

#302 Að brjótast út úr fangelsinu 23.02.2024

Stórfenglegur þáttur í dag. Allt að gerast í Sigurðarstofu Sævars. Hérna erum við að tala um; að brjótast út úr fangelsi hugmyndafræðarinnar, Kanye, Werner Herzog, sigrast á sjálfum sér, hætta að vera veikburða ofl ofl ofl

#301 Þú þarft að byrja strax í dag! 16.02.2024

Hér er rætt um nauðsyn þess að innleiða gervigreind á sem flestum sviðum, nauðsyn þess að gera talsverðar breytingar í íslenskum stjórnmálum, hita á sviði rafmynta og svo er enn bætt í þá sjálfshjálparvegferð sem Skoðanabræður hafa verið á og útskýrt hvað menn þurfa að gera til að geta byggt upp líf sitt. Inntakið þar er meðal annars: Þú þarft að byrja strax í dag! Þátturinn í heild sinni inni á P...

#300 Svona verðurðu ríkur 09.02.2024

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þrjúhundraðasti þátturinn, „I keep it 300, like the Romans“ sagði skáldið. Við byrjum á því að fara yfir Jafnréttisstofu (FUERA!) og nýju herferð hennar sem snýst um það að segja fólki hvernig það eigi að hugsa? Spurning. Síðan tölum við um Peter Thiel og nýju ólympíuleikana hans þar sem leyfilegt er að dópa. Mikilvægi testósteróns rætt...

#299 Eftir þrítugt verður ekki aftur snúið 02.02.2024

Farið yfir hættur áfengis, góðar leiðir til að græða peninga, „stöðu fjölmiðla“, góða skapið hjá ritstjóranum og þá hættu að vera virkur karlfemínisti þegar maður lendir á þrjátíu ára markinu – eftir það snúa fáir aftur.

#298 The Woke Mind Virus (FRÍR ÞÁTTUR) 26.01.2024

Leggðu frjálsri fjölmiðlun lið inni á www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræður halda áfram að blása lífi í bræðralagið og sjálfa sig í leiðinni. Hérna er tala um áfengislaust líf, hvernig eigi að sigra, Shakespeare, þjóðvakningu & endurreisn, the woke mind virus, Óskarskandal vegna tilnefninga Barbie og allskonar annað. Guð blessi ykkur öll.

#297 Ísland vs. Bandaríkin m/ Aroni Kristni Jónassyni 19.01.2024

Fyrirsögnin sneiðir fram hjá fjölda mikilvægra umræðuefna en þetta er þó mikilvæg spurning. Í þessum einstaka þætti Skoðanabræðra er Aron Kristinn Jónasson frumkvöðull og rappari fenginn að borðinu til að ræða málefni lands og þjóðar í víðum skilningi. Allt frá íslenskum her, algrími samfélagsmiðla og einsleitni í klæðaburði til vellíðunar við að koma inn á bandarískt salerni; að þannig eigi hluti...

#296 The Law of Attraction 12.01.2024

Lögmál aðdráttaraflsins er ekki nógu gott þannig titillinn er á ensku, kannski í fyrsta skipti? Fræðimenn geta kannað málið. Í þessum þætti er einmitt talað um þetta lögmál, hvernig þú lætur hlutina gerast með jákvæðni og trausti. Þannig virkar þetta. Síðan tölum við líka um allskonar annað eins og íslenska tónlist, XXX Rottweiler, hvalveiðibann,  Björk styttu, Ritstjórann og allskonar annað.  Les...

#295 Nýtt ár, ný tækifæri 05.01.2024

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti þátturinn í nýju húsnæði Skoðanabræðra. Allt að gerast! Það sem er talað um meðal annars: Hvernig maður verður ríkur, að gera eitthvað sem skiptir máli, Guðni Th. forseti, samfélagsmiðla- og sjálfsfróunarfasta Nökkva Fjalars, munurinn á ungmönnum nútímans og árið 1970 og fullt fullt fleira.

#294 Öll eru maður ársins! *OPINN ÞÁTTUR* 29.12.2023

2023 var risastórt ár fyrir öll. Heldur betur! Hér fara bræðurnir yfir árið sem leið, yfirvofandi vakningu, milljarðamæringshugsunarhátt, vonbrigði í aðfangadagsmessu, að vera feitur í hausnum á sér ásamt því að snerta á stemningunni í Portúgal þar sem Bergþór er staddur núna á milli jóla og nýárs. Hvað er málið með Portúgala? Gleðilegt nýtt ár kæra bræðralag!

#293 Að reyna að hætta að hata jólin 22.12.2023

Bræðurnir eru komnir í jólaskap og fara yfir allt sem vita þarf í undirbúningi fyrir hátíðirnar. Bergþór ætlar að gera ýmislegt á nýju ári, en hann ætlar ekki sérstaklega að reyna að draga úr hugmyndafræðilegri einangrun sinni. Snorri á fyrstu jólin með börnum og hefur raunhæfar væntingar til góðrar skemmtunar. Umræðuefni: Upplýsingaóreiðan í jólaboðinu, Taylor Swift manneskja ársins hjá Time, væn...

#292 Er kominn tími á stjórnmálaflokk? 15.12.2023

Víkingaflokkurinn, Víkingar, Bræður Íslands eða Þjóðveldisflokkurinn. Þetta eru allt nafnahugmyndir af nýjum stjórnmálaflokk sem lögð eru drög af hérna í þessum þætti. Jákvæðni, frelsi, hreysti og sannleikur. Þetta boðar flokkurinn. Guð blessi ykkur öll.

#291 Skoðanir Atla Steins Guðmundssonar 08.12.2023

Atli Steinn Guðmundsson er blaða- og ævintýramaður. Glöggir hlustendur muna eftir honum úr #128 Skoðanir Noregs. Hreinn og beinn kóngur. Hér er talað um: Norðurlöndin, glæpi, rokk, lyftingar og ritstörf. Alhamdulillah!

#290 Skoðanir Ívars Orra Ómarsson *FRÍR ÞÁTTUR* 01.12.2023

Hér ræða bræðurnir við bardagakappann, frumkvöðulinn og mataræðisfrömuðinn Ívar Orra Ómarsson. Ívar Orri, einnig kallaður Seiðkarlinn, kafaði ofan í allt mögulegt tengt mataræði eftir að hann greindist með sykursýki – og lærði margt, sem hann deilir nú með fylgjendum sínum á Instagram.  Hann hefur einnig mjög ákveðnar hugmyndir um hinn eina sanna góða lífsstíl og hugarfar, sem allt er reifað í þes...

#289 Eðli mannsins 24.11.2023

Fremsta hlaðvarp landsins heldur áfram að framleiða þetta hágæða. Snorri segir að löggan eigi að fá byssur en Bergþór segir Fuck The Police. Heimspekingurinn sem sameinaði austræn og vestræna speki Arthur Schopenhauer er ræddur og hans hugmyndir lauslega kynntar. Virðing sett á ICEGUYS og nýja forseta Argentínu hann Javier Milei. Allahu akhbar.

#288 Þetta þarftu til að stofna fjöldahreyfingu 17.11.2023

Hvað þarf leiðtogi fjöldahreyfingar eins og þeirra sem spruttu upp á 20. öld að hafa til að ná langt? Hvað þarf fjöldahreyfing til að virka? Hér er rætt um fjöldahreyfingar, Kanye, einkavæðingu sundlauganna í Reykjavík og ágæti einkaframtaksins, stórar hugmyndir eftir að Guð dó og í gegnum allt þetta: Farið með lifandi hætti yfir bókina True Believer eftir Eric Hoffer - sem fjallar um fjöldahreyfi...

#287 Skoðanir Halldórs Guðmundssonar 10.11.2023

Halldór Guðmundsson er ævisöguritari Halldórs Laxness, bókmenntafræðingur, forleggjari og menningarmaður mikill. Hérna er reynt að komast að því hvað gerði Laxness að svona miklum king, afhverju Íslendingar elska bókmenntir, hvort að Sovétríkin hafi borgað fyrir Mál og Menningarhúsið niðri í bæ ofl ofl ofl. Hrein veisla, njótið vel.

Listen to the Skoðanabræður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.