Bergþór Másson
Skoðanabræður
www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.
Author
Bergþór Másson
Category
Podcast website
Latest episode
Apr 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#336 Hamingjusamur, heilbrigður, auðugur? 18.10.2024 1:05:56
Skoðanabræður snúa aftur eftir veikindi og víla ekki fyrir sér að koma sér beint að efninu um framtíð þjóðarinnar. Hvert stefnum við, nú þegar stjórnmálasviðið er galopið og örlagastund knýr dyra? Hér er þessu ekki beint svarað en þetta er rætt, tekið upp á miðvikudagsmorgni. Stóra sýnin fyrir Ísland, stóra allsnægtabyltingin – happy, healthy og wealthy þjóð. Komið inn á Naval Ravikant, rafmyntir,...
#335 Lögmálin sjö um velgengni 11.10.2024 1:44:51
www.patreon.com/skodanabraedur Þetta er þáttur fyrir alla þá sem vilja sigra. Deepak Chopra er höfundur bókarinnar The 7 Spiritual Laws of Success. Guð gaf Snorra gubbupest til þess að þessi þáttur myndi verða til. Aron Kristinn Jónasson stígur inn í hans stað. Máttugur er mættur maður. Við förum yfir þessi sjö lögmál bókarinnar. Guð blessi ykkur kæra bræðalag.
#334 Menntun og psychedelics 04.10.2024 1:01:32
Hvernig menntum við okkur? Hvað er í gangi í háskólunum? Hugmyndir fræðikonunnar Camille Paglia ræddar hér í þessum þætti. Hún er róttæk og skemmtileg. Er munur á körlum og konum? Það fer eftir því hvern þú spyrð. Um lok þáttar er snert á hugvíkkandi efnum, hverjir eiga að nota þau og hverjir alls ekki. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
#333 Vonandi hefur þessi maður ekki rétt fyrir sér! 27.09.2024 1:06:35
Balaji Srinivasan fjárfestir og frumkvöðull hefur spáð ýmsu brjáluðu og ekki allt hefur ræst. Ein af lykilkenningum hans er að hægt og rólega taki netríki við af þjóðríkjum, þar sem hópar munu koma sér saman um samfélög á netinu, sem ekki verða skilgreind af veraldlegum landamærum. Hér ræðum við framtíð Íslands á þessum nótum og veltum öllum steinum. Annað sem kemur við sögu: Hefur regluverk staði...
#332 Þunglyndi er ekki til 20.09.2024 1:02:20
Tilvistarspurning þunglyndis, landbúnaður, Lenín, bókmenntir Rússlands 19. aldarinnar, Pharrell Williams, Bernard Arnault og pólitík þeirra sem eiga heiminn. Þetta er til umræðu í þessu fremsta hlaðvarpi landsins.
#331 Ekkert hefur breyst frá 2005 (e. Stuck Culture) *OPINN ÞÁTTUR* 13.09.2024 1:02:42
Ert þú alltaf að hlusta á gamla tónlist? Eru kvikmyndirnar sem þú ert að horfa á bara sömu kvikmyndir aftur og aftur? Hér er sagan rakin frá afdrifaríkum hryðjuverkaárásum árið 2001 og fjallað um hvernig menning okkar mótaðist í kringum 2005 og hefur síðan lítið breyst. Algrímin valda því, að mati sérfræðinga, að allt sem við sjáum og heyrum er endurtekning eða endurvinnsla þess sem áður hefur vir...
#330 Draumurinn um einokun 06.09.2024 1:09:03
Sérstakur þáttur í tilefni 10 ára afmælis Zero to One eftir Peter Thiel. Bókin sem segir þér hvernig þú átt að hugsa þegar þig langar að stofna fyrirtæki. Fyrst: talað um nýjar saunuþróanir sem bitna á konum. Síðan eru hugmyndir bókarinnar kynntar: Að öðlast einokun, að hugsa stórt, að forðast samkeppni. Í lokin er virðing sett á free market menningarmiðstöðina Húrra Reykjavík fyrir þeirra starf s...
#329 Svona erum við heilaþvegin *OPINN ÞÁTTUR* 30.08.2024 1:05:19
Meistaraverkið The True Believer eftir Eric Hoffer tekið fyrir og sett í nútímasamhengi. Hún fjallar um fjöldahreyfingar. Hvernig verða þær til? Hvernig fólk gengur í þær? Hvernig fólk stjórnar þeim? Út á hvað ganga þær? Kommúnismi og nasismi eru skýr dæmi - en hvað er í gangi í dag? www.patreon.com/skodanabraedur
#328 Allt um einn mikilvægasta höfund samtímans (II. þáttur um Nassim Nicholas Taleb) 23.08.2024 1:02:24
Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri ma...
#327 Allt um einn mikilvægasta höfund samtímans (I. þáttur um Nassim Nicholas Taleb) 16.08.2024 1:00:33
Nassim Nicholas Taleb er sérfræðingur í líkindum, fjárfestingum og almennum kóngalífstíl. Tvímælalaust einn af mikilvægari höfundum samtímans, eins og stöðugar vinsældir bóka hans sýna. Á meðal þeirra: Fooled by Randomness, Black Swan, Antifragile og Skin in the Game. Í þessum þætti förum við efnislega yfir einstaka, nýstárlega og nærandi hugmyndafræði Taleb, sem getur líklega gert þig að betri ma...
#326 Hið umtalaða MATRIX 09.08.2024 54:23
Bláa pillan eða sú rauða? Hið svokallaða matrix er tekið til umræðu. Hvernig aflærum við hluti og sleppum tökum á óuppbyggilegum konseptum? Það er spurning - hlustaðu og kannski verðurðu einhverju nær.
#325 Skoðanir Begga Ólafs 02.08.2024 1:29:32
Biðin var löng og ströng en nú er hann mættur í hljóðver til okkar, enginn annar en Beggi Ólafs. Hann býr í Los Angeles en er í heimsókn í framtíðarlandinu. Hann ætlar sér stóra hluti úti, er með hugann við persónulega þjálfun, við gervigreind, við sálfræði, við bætingar og hefur frá mörgu að segja. Ferilllinn! Hvernig varð Beggi Óla að þeim sem hann er, hvernig var í fótbolta, ekki eitrað, segir...
#324 MACHIAVELLI 26.07.2024 1:04:47
Sérstakur þáttur um elítur; hvernig þær fúnkera, af hverju þær eru til - og hvernig stjórna þær hugmyndum og kerfum? Til þess að skilja þetta betur skoðum við bókina The Machiavellians: Defenders of Freedom eftir James Burnham. Epískar pælingar þar. Í samhengi við þetta er lauslega snert á vibe-shifti sumarsins: Donald Trump, Peter Thiel og Elon Musk. Hvað er í gangi?
#323 Þeim tekst ekki að brjóta okkur niður! (um Marc Andreessen) 19.07.2024 1:08:42
Í þessum þætti fara bræðurnir yfir Marc Andreessen frumkvöðul frá A til Ö, þannig að þú þarft ekki að vita hver hann er til að byrja að hlusta. Hann skrifaði skjal að nafni Techno-Optimist Manifesto á dögunum, þar sem verulega verðmæta innsýn er að finna. Stjórnmál, fjárfestingar, andlegt ástand almennings, allsnægtahugarfarið, orkumál, allt mögulegt á milli himins og jarðar. Ef þú ert týndur og þ...
#322 Skoðanir Gunnlaugs Guðmundssonar stjörnuspekings *OPINN ÞÁTTUR* 12.07.2024 1:57:00
Styddu frjálsa fjölmiðlun inni á www.patreon.com/skodanabraedur Stjörnuspeki er ekki fyrirbæri sem við höfum gert mikil skil á þessum vettvangi fram að þessu enda lifum við tíma vísindahyggjunnar og ef trúarbrögð koma við sögu eru þau ekki að nafninu til byggð á stjörnuspeki, þótt sá stjörnuspekingur, Gunnlaugur Guðmundsson, haldi því að vísu fram að allt hið kristna hugsanakerfi byggist að miklu...
#321 Pólitískar skoðanir á gráu svæði 05.07.2024 1:00:24
Í dag er fjallað um nýja leið til að skilja stjórnmál nútímans: Það er rautt lið, blátt lið og það er grátt lið. Gráa liðið fílar margt sem rauða liðið gerir en það er samt alls ekki rauða liðið. Það er að segja: Við í gráa liðinu trúum meira á framtíðina en fortíðina. Einnig fjallað um mikilvægi þess að lifa í allsnægtum og farið aðeins yfir feril Howard Hughes.
#320 Merkilegasti Íslendingur allra tíma 28.06.2024 1:10:27
Óformlegt framhald Íslandsögunnar. Í þetta skipti þræðum við 20. öldina. Að sjálfsögðu er frásögnin ekki línuleg, rétt eins og Íslandssaagan. Önnur umræðuefni eru kynjuð loftslagsmál í samhengi við afnýlenduvæðingu og svo veðmálafyrirtæki á Íslandi. Rannsóknarspurning er sett fram í byrjun þáttar: Hver er merkilegasti Íslendingur allra tíma? Svör í lokin.
#319 Nokkur atriði sem þú þarft að vita um Ísland (OPINN ÞÁTTUR) 21.06.2024 1:07:17
EINLÆGLEGA: Óvænt epískur þáttur sem allir þurfa að hlusta á – fróðleikur og mikilvægar pælingar um stöðu mála. - Í þætti dagsins, sem verður mögulega hluti af þriggja hluta seríu, er farið yfir sögu Íslands frá upphafi daga, þjóðveldisöldin, goðakerfið útskýrt, myrku aldirnar og allt fram til nítjándu aldar. Mikið farið út af sporinu samt og farið í stærri spurningar. Allt er þetta gert til að re...
#318 STEVE JOBS 14.06.2024 1:12:00
Sérstakur þáttur um Steve Jobs. Áhrifamesta mann mannkynssögunnar? Kannski. Hérna er stiklað á stóru varðandi ævi og feril meistarans. Hvað gerði hann að svona miklum snilling? Hvernig fór hann að þessu? Hvaða öfl voru að verki? Hvað hafði áhrif á hann? Hvernig hugsaði hann? Hvað getum við lært af honum? Þessu öllu er svarað hérna í þessum sérstaka þætti Skoðanabræðra. Guð blessi ykkur kæra bræðal...
#317 Þrjú lögmál Bergþórs og lífsreglurnar fjórar 07.06.2024 1:05:21
Bergþór leiðir okkur í gegnum þrjú lögmál Bergþórs og við förum einnig yfir Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz. Halla T. mælti með þeirri bók í viðtali og menntunarfílístear á netinu reyndu að gera lítið úr sjálfshjálparviðleitninni. Annars fer hluti þáttarins í að fallast djúplega á kjör Höllu Tómasdóttur forseta. Aðrar pælingar; hver verður arftaki Trump? Sá sem kann á miðlana. En svona...
#316 Versta valdastétt í heimi? 31.05.2024 1:06:17
Skoðanabræður halda áfram að verja lýðræði og mannréttindi. Í þetta skipti tala þeir aðeins um forsetakosningarnar, pistil Auðar Jónsdóttur um íslenska valdafólkið, gervigreindina miklu sem á eftir að breyta öllu - og margt, margt annað. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
#315 Rætur vestrænnar menningar (þáttur frá Grikklandi hinu forna) 24.05.2024 57:04
Að þessu sinni eru bræðurnir staddir í vöggu vestrænnar siðmenningar, hafa varið mánuðum í að undirbúa umfjöllun um staðinn og segja nú gjörið svo vel, eftir að hafa heimsótt helstu staði í persónu. En óttist ekki að hér sé vísað til staða sem þið ekki þekkið eða til manna sem þið ekki þekkið! Þetta er kjörinn vettvangur fyrir byrjendur til þess að skyggnast inn í helstu atriði í forngrískri menni...
#314 Íslensk endurreisn (Þáttur um Jónas Hallgrímsson og Fjölnismenn) 17.05.2024 1:11:08
Sérstakur þáttur um 19. öldina íslensku og endurreisnina á íslenskri menningu sem átti sér þá stað. Ef þetta hræðir þig, stígðu inn í óttann! Komdu og vertu með. Þetta er gott fyrir þig. Aðalpersónur þessarar þáttar eru Jónas Hallgrímsson og Fjölnismenn (Konráð Gíslason, Tómas Sæmundsson og Brynjólfur Pétursson). Við tölum um hugmyndirnar þeirra, hvað þeir vildu og víbrurnar í kringum þá. Allt þet...
#313 Hver er óvinur ungra Íslendinga? *OPINN ÞÁTTUR* 10.05.2024 1:04:20
Komdu og vertu með í samfélagi sem skiptir máli. Áskrift kostar ekki nema 10$ á mánuði. www.patreon.com/skodanabraedur Góðan daginn kæra bræðralag. Þetta er guðdómlegur þáttur sem tekur á móti ykkur þessa vikuna. Helst er talað um hvernig maður býr til vöru sem nær til venjulegs fólks. Þú gerir það með því að vera skýr. Í þessu samhengi ræðum við um sögur, skáldskap og hvernig hver og einn býr til...
#312 Lífsráð handa ungum manni 03.05.2024 1:02:10
Bræðurnir svara ungum manni sem leitar til þeirra vegna stórra ákvarðana sem hann þarf að taka í lífinu, þeir fara yfir umræðu um Prettyboitjokko, þeir ræða málfund um anarkókapítalisma sem þeir sóttu í Sjálfstæðishúsinu og loks ræða þeir hughreystandi hugmynd um sigur hinna blaðrandi stétta á tímum gervigreindar, eins og Peter Thiel sér hann fyrir sér.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.