Bergþór Másson

Skoðanabræður

www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.

Author

Bergþór Másson

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Apr 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#286 Skoðanir Guðna Gunnarssonar *FRÍR ÞÁTTUR* 03.11.2023

Guðni Gunnarsson lífsþjálfi og heimspekingur er með marga mikilvægar persónur í einkaþjálfun, andlegri og líkamlegri, og í þessum þætti gefur hann Skoðanabræðrum smá sýnishorn úr hugmyndafræði sinni. Meginpunkturinn: Það er val að hætta að vera fórnarlamb í eigin lífi. Hér er hægt að læra mikið. Þátturinn er opinn öllum – EN FARIÐ INN Á PATREON!

#285 Skoðanir Ernu Mistar 27.10.2023

Hlustaðu/horfðu í fullri lengd (90mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Erna Mist er listmálari og pistlahöfundur. Tjékkið á pistlunum hennar inni á Vísi. Umræðuefni eru meðal annars: innræting í LHÍ, pólitískur rétttrúnaður, forvitni, ótti, ferðamennska og listaheimurinn, þjóðernisvakning, bókmenntir og ritstörf.

#284 Ákall til íslenskra auðmanna 20.10.2023

Skoðanabræður hafa misst trúnna á ríkisvaldinu, allavega akkúrat núna, hvað gerum við þá? Hérna er talað um listamannalaun til YouTubera, Logan Paul, stöðnun samfélaga, vöxt, Prettyboitjokko, siðferði í popptónlist, Peter Thiel og skemmtigildi lista.

#283 Er nauðsynlegt að skjóta þá? já 13.10.2023

Hlustaði í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Mikið í gangi, mikið í gangi! Skoðanabræður fara yfir það sem skiptir máli. Drake plata, hið sanna siðferði alheimsins sem birtist í popptónlist, ísbirnir á landi, The Lindy Effect og mikið mikið meira. Njótið lífsins kæra bræðralag

#282 Alvöru vald er að segja nei 06.10.2023

LENGRI ÚTGÁFA Á PATREON. Upphaf kjötlífsins og endalok sannleikans, gæti þessi þáttur líka heitið. En aðallega: Ný speki bræðranna kynnt til leiks: Via negativa. Hér er farið yfir ritdeilur sem Snorri Másson ritstjóri hefur staðið í, hér er farið yfir nýjan kjötætulífstíl sem Bergþór hefur tileinkað sér og Snorri peppar, vandamálið við læknastéttina, hliðarverkanir alls sem við gerum og loks þá mi...

#281 Ástæður til þess að elska nútímann 29.09.2023

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti þáttur Skoðanabræðra í vídjó-formi. Ágætis byrjun. Hérna er talað um Kanye West, Reykjavíkurborg, skáldskap, tækni, nútímann og framtíðina.

#280 Það sem Ísland þarf að gera *FRÍR ÞÁTTUR* 22.09.2023

Þessi þáttur er frír en komdu samt í áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur Íslendingar þurfa að breyta um hugarfar á ýmsum sviðum að mati bræðranna, meðal annars að endurvekja gömlu góðu sjálfsmyndina, ef vel á að fara. Auk þess leggja bræðurnir til, að hætti Cató gamla, að Heiðari Guðjónssyni verði hleypt á hafsbotn að sækja olíu. Þetta segir Bergþór innblásinn af dvöl sinni í Oslóarfirði í hi...

#279 Bræðurnir kynna sér kynlífsvinnu í Hamborg 15.09.2023

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Snorri og Bergþór eru staddir í fjölmiðlahöfuðborginni Hamborg. „Sem sagt mikið logið hérna,“ eins og Bergþór lætur um mælt í því samhengi. Hann er ómálefnalegur andstæðingur hefðbundinnar fjölmiðlunar, en hver er það ekki á þessum síðustu og verstu tímum? Við ræðum Þýskaland það fagra land, menningu, list og heimspeki - síðan setjum vi...

#278 Af íslensku menníngarástandi (ásamt Joey Christ) 08.09.2023

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Jóhann Kristófer Stefánsson snýr aftur í ráðuneyti Skoðanabræðra eftir langa fjarveru. Hvað hefur breyst? Hérna er talað um íslenska menningu, víkinga, barnauppeldi, samtímann og ég veit ekki hvað og hvað og hvað! Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Segið vinum ykkur að koma á Patreon.

#277 Skoðanir Gunnars Smára Egilssonar 01.09.2023

Farðu á https://www.patreon.com/skodanabraedur Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi sest í ráðuneyti Skoðanabræðra og reynir að afstýra hægrisveiflunni, sem tekst því miður ágætlega, enda er viðtalsrýmið safe-space þar sem gesturinn fær að ráða för. Engin erfið viðtöl. En hér er margt rætt: Staða hins viðkvæma unga karlmanns, Sjálfstæðisflokkurinn sem mafíustarfsemi, flækjustig þess að sannfæra...

#276 Svona sigrar þú lífið: Nietzsche 25.08.2023

Hlustaðu í fullri lengd á þennan þátt og ótal annarra inni á www.patreon.com/skodanabraedur - lengd þáttar þar inni: 01:45 klst. Sérstakur þáttur Skoðanabræðra um heimspekinginn Friedrich Nietszche. Hræðir það þig? Þá þarftu að hlusta, þá verður þú að hlusta! Þetta er noob-friendly. Við förum lauslega yfir ævi Nietszche og kynnum helstu hugmyndir. Unnið er útfrá grein Vilhjálms Árnasonar: „Við ræt...

#275 Skoðanir Auðuns Blöndal 18.08.2023

Hlustaðu í fullri lengd (90mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Auðunn Blöndal hefur náð þeim fágæta árangri að endurnýja umboð sitt sem helsti skemmtikraftur landsins hjá hverri kynslóð á eftir annarri. Hvaða ekki-tónlistarmaður selur upp tónleika í Laugardalshöll? Hér sest Auddi í ráðuneyti Skoðanabræðra, fer yfir ferilinn, pólitíkina, umræðuna, skítafréttirnar, hlaðvarpið, innblásturinn,...

#274 66° No Swag 11.08.2023

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Kæra bræðralag það er allt að gerast hjá okkur.. Er 66°N orðið nett aftur? Getur Snorri verið eitthvað annað en feitur, ljótur og asnalegur? Mun Gísli Pálmi nokkurntímann fá heiðurinn sem hann á skilið? Er þriðja vaktin raunveruleg eða sundrar hún fjölskyldum? Er hægt að kenna einhverjum um eitthvað?

#273 Þræladans á Þjóðhátíð 04.08.2023

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þjóðhátíð! Skoðanabræður lýsa yfir stuðningi. 150 ár af íslenzkum þrælum að dansa í hlekkjunum sínum? Kannski. Þetta er rætt ásamt öðru: Egilssaga, Travis Scott og Kardashian nornirnar, innflytjendur og fegurðarsamkeppnir.

#272 Skoðanir Kára Stefánssonar 28.07.2023

Vísindamaðurinn Kári Stefánsson sest niður með Skoðanabræðrum og ræðir allt frá stríðsástandi og heimsvaldastefnu okkar uppáhalds stórþjóðar Bandaríkjanna (í þessu samhengi, hvað verður um íslenska tungu?) og til gervigreindar á sviði læknavísinda og mikilvægi þess að fara til starfa á hverjum morgni eins og barn í sandkassann. Hlaðvarp um sjálfbærni og jafnréttismál gerir undantekningu á efnistök...

#272 Þetta er 90% sannleikurinn *FRÍR ÞÁTTUR* 21.07.2023

Nýja reglan hjá Skoðanabræðrum snýst um að segja 90% sannleikann. Minnir að það hafi áður komið fram. Umræðuefni af ýmsum toga; allt frá fordómum vinstrimjúklinga fyrir hægrafólki í ræktinni til já, ýmislegs góðs.. Hið harða hægri lætur ekkert á sig fá. Búum við í lýðræðiskerfi? Naumlega. Gagnrýni á hendur Heiðars Guðjónssonar karlmanns vikunnar svarað. Þætti lýkur með einu fegursta ljóði íslenskr...

#271 Svona talar maður ekki við kærustuna sína 14.07.2023

Skoðanabræður: Alltaf 90% sannleikurinn. Það er loforðið og það er ekki svikið í dag. Farið yfir ritskoðun á sviði tækninnar og framtíðarland internetsins. Zuckerberg er að breyta ímynd sinni. Snorri uppgötvar forvitnilega þræði í langfeðgatali sonar síns. Milan Kundera minnst. Landsframleiðsla dregst saman vegna veðurs. Og fyrirsögnin: Jonah Hill er óþægilegur við fyrrverandi kærustu sína. Hún ós...

#270 Hugmyndir íslenskra auðmanna (ásamt Heiðari Guðjónssyni) 07.07.2023

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Fyrsti karlmaður vikunnar nýrrar seríu er fjárfestirinn Heiðar Guðjónsson, nýkominn heim frá Grænlandi, þar sem hann leitar af málmum. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel og framtíðin. „Ertu team Björgólfur Thor eða ertu team Róbert Wessmann?“ - „Já...

#269 Frelsi, (jafnrétti), bræðralag 30.06.2023

SKOÐANABRÆÐUR Í FULLRI LENGD Á PATREON:  Hvað hefði Travis Scott gert ef hann hefði rekist á Snorra Másson á Íslandi? Margt rætt. Bræðurnir fara yfir þá endurskrifun sögunnar sem nú á sér stað. En það er allt í lagi, það er auðvitað ekki hægt að skrifa sögu, heldur aðeins endurskrifa. Lúsmý nefnt – hvernig leggst sú bölvun fyrst á okkur nú eftir þúsund ára Íslandsbyggð? Snorrabúð stekkur. Á þeim n...

#268 Disgusting brothers 22.06.2023

Snorri og Bergþór snúa aftur.. 4 þættir á mánuði.. í allt sumar og allt haust og allan vetur! Hlustið á þennan þátt með áskrift inni á www.patreon.com/skodanabraedur

#267 Í öngum mínum erlendis: Japan 30.05.2023

Sólin heim úr suðri snýr.. sumrið lofar hlýju.. Grand Finale. Upp og niður í Nippon: Tokyo, Nagano, Osaka, Nara, Kyoto, Hiroshima, Ozu, Tokyo. 24. apríl, 26. apríl, 30. apríl, 1. maí, 3. maí, 6. maí, 8. maí, 10. maí, 13. maí, 16. maí, 17. maí, 18. maí, 20. maí, 23. maí, 26. maí, 27. maí. Arigato josé-mas!

#266 Í öngum mínum erlendis: Indónesía ii. 27.04.2023

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Kominn aftur til Bali, liðsauki kallaður inn, rúllað yfir eyjuna í taxa; Uluwatu, eldfjall, Norðurhluti. Snúum síðan aftur í djöfulganginn í suðri, leigjum villu og endum síðan epíkina í hreinu paradísinni Gili Air. 1.-24. apríl

#265: Í öngum mínum erlendis: Indónesía i. 04.04.2023

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Hrökklaðist frá Bali yfir á eyjurnar í kring, sný síðan aftur tilbúinn í stríð. 3. mars - 1. apríl Bali (Canggu), Nusa Lembongan, Nusa Penida, Gili Air.

#264 Í öngum mínum erlendis: Nepal ii. 09.03.2023

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Sannleikurinn á þriðja degi.  Ítarleg Vipassana frásögn 17-28. febrúar, 2. mars, 4. mars Vipassana & Kathmandu.  Við höldum áfram - As we proceed.....

#263 Í öngum mínum erlendis: Nepal i. 06.03.2023

Í öngum mínum erlendis.. yrki ég skemmsta daginn.. Mjúk lending í Nepal.  12. feb, 16. feb, 17. feb, 28. feb. Lumbini, Bardia frumskógur, Vipassana inngangur og útgangur. pt. 2 soon come!

Listen to the Skoðanabræður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.