Bergþór Másson
Skoðanabræður
www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.
Author
Bergþór Másson
Category
Podcast website
Latest episode
Apr 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#35 Flóni & Joey Christ, snakkpokaát, fitufordómar, skáldskapur og svívirðingar 03.04.2020 1:45:18
SÝNDU FRJÁLSU HLAÐVARPI STUÐNING MEÐ AUR/KASS STYRKJUM Í SÍMANÚMER 6614648. 03:40 styrkjakóngur vikunnar kynntur inn 08:00 sóttkví Snorra og Odds 12:00 dvöl Bergþórs á Siglufirði 15:45 spil svívirt 19:00 stafrænt líf 21:30 þegar Snorri var 100+kg og borðaði Lays Cheese and Onion á hverjum degi & Skoðanabræður athuga eigin fitufordóma 26:30 tilraun til að svívirða Snorra Björns 30:35 Flóni &...
#34 Femínistaperrar og spilltar löggur 31.03.2020 55:45
(Bræðralagsþáttur) Tvær fjarskyldar tegundir í íslenskri náttúru: femínistaperrar og spilltar löggur. Eina sem Skoðanabræður biðja um er að menn gangist við eðli sínu. Svo mörg voru þau orð, og þau eru fleiri. Bergur og Snorri ráða ráðum sínum landshluta, rétt eins og um væri að ræða samgöngubann, þegar slíkt er vitaskuld ekki í gildi, heldur aðeins samkomubann, þó að auglýsingabæklingurinn...
#33 Berglind Festival, dópið í sóttkvínni og ástir samkynhneigðra karlmanna sem eru samt no homo 31.03.2020 1:25:37
Það var í gegnum Holland sem Snorri flaug heim frá Þýskalandi til Íslands og það var í gegnum Holland sem hugtakið „no homo“ fann sér aftur leið upp á yfirborðið í Skoðanabræðraþætti dagsins. Þetta hefur ekki verið sagt í um það bil heil fjögur almanaksár en er hér vakið aftur til lífs af ærinni ástæðu, sem heyra má um snemma í þættinum. Mikilvægur atvinnuvegur þessarar þjóðar sem sekkur nú í sæ k...
#32 Odd Þórða og versta skiptinám sögunnar, sem blessunarlega tekur nú snöggan enda 20.03.2020 1:50:23
„Það hefur enginn skiptinemi í mannkynssögunni nýtt tímann verr heldur en ég,“ segir viðmælandi. Odd Þórða var fyrsti Íslendingurinn sem Skoðanabræður fabúleruðu um að væri kominn með Covid-19, þar sem hann dvaldi í ömurlegu skiptinámi í Southampton (sjá þátt #21). Eftir 7 mánuði inni í herbergi er Odd á leið í einkaþotu heim á sunnudaginn, mun fyrr en áætlað var, og því ber að fagna: Dvölinni er...
#31 Skoðanabræðralagið – virðing á nafn Sigurðar Stefáns - svívirðing á nafn Björns Þorlákssonar 17.03.2020 26:46
Þessi var að setja virðingu á nafnið. Og þessi var að setja virðingu á nafnið. Heyrðu, síðan var þessi að setja virðingu á nafnið. Og veistu hver er búinn að vera að hlusta frá vordögum Skoðanabræðra? Björn Þorláksson. Frá honum hafa Skoðanabræður þó ekki séð túmark með gati á. Svívirðing sett á nafn hans þetta skiptið. Skoðanabræður þiggja engan pening frá fjársterkum aðilum sem kynnu að vilja ha...
#30 Pétur Sóttkvíernan, tjara og fiður í skólablöðum og NEI við kynfræðslu 13.03.2020 1:40:06
Skoðanabræður áskilja sér rétt til þess að ræða ekki undir nokkrum kringumstæðum þá ákvörðun hóps ungra karlmanna að neita sér um að stunda sjálfsfróun og fara í kaldar sturtur. Slík umræða fer fram í öðrum síðri hlaðvörpum, sem þó er erfitt að festa fingur á hver eru nákvæmlega, enda er eftir allt aðeins eitt hlaðvarp til í leiknum: Skoðanabræður. Málið er í sjálfheldu. Annað mál í sjálfheldu er...
#29 GDRN, Human Centipede skíðayfirstéttarinnar og eiginkonan sem æviráðin hóra 06.03.2020 1:31:50
„Skækjan – það er eiginkonan; eiginkonan – það er skækjan. Aðra kaupi ég til samneytis við mig ævilángt … Hina kaupi ég til samneytis við mig eina nótt.“ Skoðanabræður gerast svo djarfir að mótmæla þessari tvígreiningu kvenna sem má lesa um í skáldsögu frá því snemma á 20. öld. Í hvaða bók? spyr sig sá sem gengur svo langt að lesa þetta klór. Upplýsingar þar um finnast inni í miðjum þættinum, sem...
#28 Samtal við Skoðanabræðralagið 03.03.2020 29:32
Aurið Skoðanabræður í símanúmer 661-4648 og verðið hluti af samfélaginu. Þið getið unnið bolla, bol en fyrst og fremst er samviska ykkar í húfi. Hversu langt gangið þið í baráttunni fyrir frjálsa fjölmiðla? Fyrsti þriðjudagsþátturinn kemur hér í margumrætt hús. Í Bræðralaginu þylja Skoðanabræður upp stuðningsmenn sína, setja virðingu á nafn þeirra sem hafa sett virðingu á nafn þeirra, ef það er ek...
#27 Unnsteinn Manúel, follow frá 99 stelpum og langt, einhliða hláturskast 28.02.2020 1:24:37
Á ögurstundu verður degi ljósara fyrir hvern Skoðanabræður vinna í raun og veru: Fyrir Skoðanabræðralagið. Tvennt er til marks um það: Þessi þáttur, sem var tekinn upp eftir að annar eyddist vegna mistaka tölvunnar. Til þess að endurtaka leikinn þurfti mikið þrek. Hitt hollustumerki Skoðanabræðra gagnvart hlustendum er sú nýja ráðstöfun að héðan af verða engar auglýsingar. Þeir eru frjálst hlaðvör...
#26 Formaður Samfylkingarinnar í Weedbúðinni og hið vesturíslenska Trust Fund Trap 21.02.2020 1:33:22
Allt sem þú segir getur og mun vera notað gegn þér fyrir rétti, segja bandarískir lögreglumenn þegar þeir misþyrma saklausum glæpamönnum. Annað eins mætti vera haft yfir nú þegar formaður næststærsta stjórnmálaflokks landsins samkvæmt könnunum gengur í vatnið, nánar tiltekið í Skoðanabræðralagið. Einsamalt vatnið augun sjá, sem sé gildruna, en glöggskyggn og ósvinnur sér tækifæri öllu heldur: Skoð...
#25 Kynsjúkdómsins Köben, kínverjinn með klinkið og höfnun sem hluti af lífi þínu 14.02.2020 1:38:24
Mamma, hvernig verða kynsjúkdómar til? Við viðskiptafræðideildir, bláeyga flón. Skoðanabræður – fæddir um og upp úr miðjum tíunda áratug tuttugustu aldar – þeir þekkja ekki reynsluheim kvenmanns fædds 1999, svo ekki sé talað um það ef kvenmaðurinn hefur framfæri sitt af því að selja blíðu sína, sem er einmitt ekki tilfelli stráks vikunnar, Ísabellu Lenu! Sálfræðinemi, barstarfsmaður, þekkingarmaðu...
#24 Aronmola hættur á samfélagsmiðlum – mikil ánægja 07.02.2020 2:00:43
Lífið gengur sinn vanagang, sem er náttúrulega mjög deprímerandi í sjálfu sér, en Skoðanabræður halda sínu striki og biðjast aldrei afsökunar, hvorki innilega né innilegrar. Hér ræða þeir við frægan kóng sem brá út af vananum og hætti á samfélagsmiðlum eftir áramót; þeir höfðu fyllt hausinn hans af nægu eitri, tekið af honum nægar klukkustundirnar af tilgangslausu hangsi og misþyrmt geðheilsunni h...
#23 Strákur vikunnar og útsmogni alþjóðadildóinn 31.01.2020 1:39:23
– Ath. látið ekki glepjast af ögn síðri gæðum fyrstu sjö mínúturnar en vera skyldi. Það batnar, rétt eins og orðfærið, eftir því sem líður á þáttinn. – Að vera avókadó eða að vera ekki avókadó, þarna er efinn, enda avókadó lýsingarorð málfræðilega. Í Southampton í Bretlandi er avókadóstigið í sögulegu lágmarki, ekki síst eftir að íslenskur stjórnmálafræðinemi ákvað að flytjast þangað í skiptinám í...
#22 Skoðanir Young Nazareth 24.01.2020 2:05:47
Sjálfstæðismenn sem gera lyndistákn (á vesturíslensku emoji) á undan hverju orði sem þeir gasa út úr sér á Twitter. Óheillaþróun, sem árvökult auga Skoðanabræðra fer auðvitað ekki á mis við. Hvernig endar þetta? Festur mun slitna, freki renna og að lokum verður byltingarkenndur indie-bragur yfir því að tjá vafasöm pólitísk áform án lyndistákna. Skoðanabræður taka auðvitað ekki afstöðu til einstakr...
#21 Skoðanabræður snúa aftur 17.01.2020 1:08:21
Landvarðarbrundið! Það er hinn heiðni helgi safi sem grundvallaði þessa þjóð í öndverðu – og heldur áfram að gera það á kojufylleríum í hinum ýmsu þjóðgörðum landsins. Þetta er fólkið sem er ekki á Instagram, en tryggir í gegnum aðrar göfugri boðleiðir framgöngu kynstofns okkar. Að vera ekki á Instagram er svo sem eitthvað fyrir aðra en bara skinhelgar síðhærðar skeggjaðar lopapeysur: Skoðanabræðu...
#20 Skoðanir Magga Sushi, skoðanabræðrafræðings 30.08.2019 2:07:19
Eftir að maður lítur um öxl er hollt að staldra við, og líta um öxl. Magnús Jochum Pálsson, Maggi Sushi, helsti Skoðanabræðrafræðingur á Íslandi, kemur hér að máli við Skoðanabræður og fer yfir farinn veg. Við erum að tala um excel-skjal, við erum að tala um styrkleikaröð, við erum að tala um sannferðuga lýsingu á veröldinni. Það má enn styrkja Skoðanabræður í númerið 661-4648 á KASS eða AUR og þó...
#18 Skoðanir Ara Mássonar, bróður Skoðanabræðra 28.08.2019 1:23:10
Lífið er veisla, segir höfundur þess frasa, Ma King, blóðbróðir Skoðanabræðra, sem forðum var dæmdur til ævarandi hippadóms. En það er næs og ráðstöfunin sver sig ekki í ætt við örlög Sýsifosar, hún er jákvæð, eins og rætt er í þessum þætti. Líklega öllu betri en líf ritstjóra Skoðanabræðra. Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræðra, sem þeir láta ókeypis í té hlustendum sínum efti...
#19 Skoðanir Jakobs Birgissonar 28.08.2019 1:23:02
Velkomin í Live Fílalag! Í dag fílum við göndulinn á Jakobi Birgissyni í beinni á Port 9, þátturinn afrakstur þeirrar kynlegu iðju. En fyrst: Svívirðum þá sem melduðu sig en mættu ekki, tóku þannig pláss frá þeim sem raunverulega vildu koma, þeim sem raunverulega eru meðlimir í Skoðanabræðralaginu, þeim sem setja virðingu á annarra manna nöfn. Þessi þáttur er einn af tveimur bónusþáttum Skoðanabræ...
#17 Skoðanir Joey Christ og Flóna 23.08.2019 1:55:28
Núvitund, það er að eyða miklum pening! Einkum ef þú ert heimskur rappari. Skoðanabræður hafa hingað til aðeins rætt þá hlið persónuleika Flóna, hvursu hann eyðir. En það er auðvitað meira í hann spunnið en bara það. Það er ást, það er virðing og það er von um betri heim. Þess skal getið hér strax, að um ræðir næstsíðasta þátt í fyrstu seríu af Skoðanabræðrum. Þeir sem eiga eftir að launa þeim erf...
#16 Skoðanir Skoðanamóðurinnar 16.08.2019 1:48:26
–Nærbuxur, skyrtur, dósir, bollar, diskar, handklæði, sokkar. Allt á gólfinu á víð og dreif um íbúðina. Bergþór kemur heim, sópar þessu öllu saman og hrúgar í rúmið hans Snorra. Illa vegið að góðum manni – ófagleg vinnubrögð. –En þeir eru vel upp aldir af móður sinni, sem hér er mætt í Skoðanabræður, Skoðanamóðirin! Hún fæddi þessa menn og auðvitað vinda menn sér umsvifalaust í þá umræðu: Hvað er...
#15 Skoðanir Katrínar Jakobsdóttur 09.08.2019 1:08:42
Hlustaðu til að heyra hvort Katrín Jakobsdóttir drekki fimm eða tíu vínglös á viku! –Karlmaður vikunnar. Þetta finnst feminískum forsætisráðherra gott grín. Og hann, hún, reynir að standa undir nafni! –Sú tilraun ber árangur. –They sitja eftir með sárt ennið. Ein valdamesta persóna á Íslandi í viðtali hjá Skoðanabræðrum. Hver hefði haldið. Hún var nörruð í þennan þátt... á fölsku...
#14 Skoðanir Arons Mola 02.08.2019 2:18:17
–Free The Nipple? Feit pæling sem gekk ekki upp. –Og ert þú að horfa á midget shemale klám? Þetta er þátturinn fyrir þig. –Hér fáið þið Gamla-Mola! Aron Mola endurfæddist eitthvað í kringum 2016, minnir þann sem hér veldur fjöður. Það var stór breyting. He Changed. A Lot. He’s A Nice Guy. I Like Him. Enskan er óræð vísun sem verður ræð við hlustun þáttar. –Karlmaður vikunnar er beinlínis móðurriði...
#13 Skoðanir Birnis rappara 26.07.2019 1:45:44
–Lífið er erfið veisla! Eða lífið er veisla en það mæta nokkrir óboðnir gestir. –Eins og til dæmis eiturlyfjafíkn. Karlmaður vikunnar hefur kynnst því. Og hann virðist jafnframt hafa sigrast á því. Af hverju ertu að spyrja mig, af hverju, á hverju ertu, eða hvað sem í fjandanum er sagt í þessu lagi. En Birnir er ekki á neinu, það er punkturinn. –(Skoðanabræður má og á að styrkja í síma 661-4648 á...
#12 Skoðanir Þóru Tómasdóttur 19.07.2019 1:45:18
•„Þetta er svo viðbjóðslegt og rótgróið stéttahatur,“ segir Snorri. „Svona Facebook-hópar á Íslandi eru bara viðbjóðslegir,“ segir Bergþór. „Þetta er ekki fyndinn hópur,“ segir Þóra. Þetta eru ekki góðar umsagnir. Hlustið áfram til að vita hvaða hóp ræðir um. •Þóra Tómasdóttir blaðamaður og almennur kóngur er Karlmaður vikunnar í vikunni, sá elsti til þessa. Og sennilega sá greindasti, yfirvegaðas...
#11 Skoðanir Siffa G. 12.07.2019 1:46:45
„Var bara einhver sem reið 16 ára gellu og því var bara leyft að slæda?“ er spurt. Hverjum tvítið glymur, er spurt. YFN Lucci er með 7 árum yngri gellu. Og það er dóttir Lil Wayne. •Upplýsingaóreiða, þetta er þekkt vandamál. Karlmaður vikunnar skrifaði BS-ritgerð um FAKE NEWS. Og niðurstaðan var þessi: *****. Það kemur fram í þættinum. Karlmaður umræddur er enginn annar en Siffi G. •Siffi G....
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.