Bergþór Másson

Skoðanabræður

www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.

Author

Bergþór Másson

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Apr 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#60 Eftirsóttustu skeggsveinarnir á Íslandi 21.07.2020

Eftirsóttustu piparsveinar landsins teknir fyrir af sérstöku tilefni enda skeggjaður maður á meðal þeirra. Þetta er hans yfirlýsing. Bræðralag! Njótið þáttarins þið sem eigið það skilið. www.patreon.com/skodanabraedur . Þessir eru eftir: Ein­ar Ágúst Víðis­son , Björn Ingi Hrafns­son, Magnús Sig­ur­björns­son, Högni Eg­ils­son, Hall­dór Karls­son, Snorri Más­son, Pét­ur „Jesús“ Örn Guðmunds­son, H...

#59 Skoðanir Kristínar Tómasdóttur 17.07.2020

Að vinna við að láta fólk hætta saman… hljómar skynsamlega. Gæti verið á vegum borgaryfirvalda, þú mætir á vettvang og birtir pörum opinberan úrskurð þess efnis að þeirra ástarsambandi sé þar með lokið. Fróður maður lagði eitt sinn til að embætti á borð við þetta yrði stofnað í Reykjavík en það var við dræmar undirtektir pólitíkurinnar. Þetta er enda ekki endilega rétta leiðin til þess að koma því...

#58 Skoðanir Geoffrey Huntingdon-Williams 10.07.2020

Kosningar á næsta leiti… til embættis næturborgarstjóra, bitch! Afsakið munnsöfnuðinn og dæmið hann ómarktækan, en þið takið ekki af manninum embættið. Það er að vísu ekki til enn sem komið er en hvað um það. Spurningin er þessi: Hvað er að reka konunglegasta stað landsins, er það í grunninn að þrífa ælu og túrblóð í brotnu glasi ofan í klósetti eða er það að starfa daglega að þeirri göfugu hugsjó...

#57 Harðsoðið blaðamannsþunglyndi og hrun þjóðernisins 07.07.2020

Sjá ég boða hér mikinn fögnuð. Alvöru umræðuefni á miklum alvörutímum. Allt fyrir bræðralagið, en hér aðeins að hluta, því restina er að finna inn á www.patreon.com/skodanabraedur. 

#56 Skoðanir Benedikts Andrasonar 03.07.2020

www.patreon.com/skodanabraedur Talandi um leikinn, hér er máttarstólpi. Karlmaður vikunnar er Benedikt Andrason, Benni Andra semsagt. Jafnvígur á þónokkra veruleika og hliðarveruleika, graff, tattú, dópshit og á þeim nótum, laxveiðar. Nokkrar ár sem renna að sama ósi, eins og maðurinn sagði. Hér, veitt innsýn inn í þessa leiki og við sögu koma dauða- og lífsreynslur sem eiga sér jafnt stað á vettv...

#55 Skoðanir Andreu Rafnar 26.06.2020

Það er ekki óskiljanlegt að sá sem gerir tilraun til þess að byrja að æfa fótbolta of seint og lendir í trámatísku áfalli og allsherjarhöfnun verði varanlega fráhverfur íþróttahreyfingunni til lengri tíma í kjölfarið og leggi sig jafnvel í líma við að kasta rýrð á hana og beiti í því skyni fyrir sér sínu persónulega hlaðvarpi. Skoðanabræður opna sig um þetta, en það er ekki aðalmálið. Andrea Röfn...

#54 Stóra smáhýsamálið, kitla 23.06.2020

Stökkvið um borð í bræðralagið til að gangast á hönd hinum eina og sanna djús. Hér er átt við www.patreon.com/skodanabraedur, þar sem aðgangur fæst að tvívikulegum alvöru Skoðanabræðraþáttum, víðsfjarri ráðamönnum þjóðarinnar og þeirra formlegheitahjali. Sannleikur, eins og þar heitir.

#53 Skoðanir Guðna Th. forseta Íslands 19.06.2020

„Ég hvet öll ungmenni til þess að fylgja eigin sannfæringu. Ekki láta einhverja áhrifavalda segja þér hvað þú átt að hugsa, hvað þú átt að kaupa, hvað þú átt að gera. Vertu þú sjálf, vertu þú sjálfur. Ekki láta plata þig,“ segir Guðni Th. Jóhannesson forseti. Það fékkst ekki meiri svívirðing á nöfn áhrifavalda, sama hvað var reynt. Sjálfur er Guðni á Fésbók eins og hann kallar hana. Hann segist ek...

#52 Skoðanir Helga Seljan & Aðalsteins Kjartanssonar 12.06.2020

www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræðraskjölin.. bjóðið velkomna ástsælustu blaðamenn þjóðarinnar, eins og maðurinn sagði, Kveiksmenn. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan ganga fúsir inn í gasherbergið á Hverfisgötu og leysa frá skjóðunni. Að því marki sem þeir mega hafa skoðanir, hvað finnst þeim um kvótakerfið? Ekkert sérstakt, eins og kemur fram, og hverjum er ekki sama um kvótakerfið!...

#51 Áhrifavaldar, Piece of Shit J.K Rowling og vestfirska vímuefnaveislan 09.06.2020

Þetta er sígilt... skeggið leiðir til drykkju leiðir til neyslu kannabisefna leiðir til meira skeggs: Ég er bólginn af bjór og pilsner á Vestfjörðum. Þess vegna tek ég upp hlaðvarp! www.patreon.com/skodanabraedur

#50 Skoðanir Sönnu Magdalenu Mörtudóttur 05.06.2020

04:30 Sanna mætir í stúdíóið 05:43 Samstöðin 08:18 fyrstu skrefin í pólitík 11:30 félagslega íbúðakerfi Reykjavíkur 14:20 rándýrt að vera fátækur 16:40 langtímaveikindi 18:30 hvernig er að vinna í borginni 20:30 íslenskir flokkar búnir að missa rætur sínar 22:40 kynslóðamunur sósíalista 24:04 hvað er sósíalismi? 27:27 afhverju á ríka fólkið á Íslandi svona mikinn pening? 30:20 Black Lives Matter 3...

#49 Skoðanir Agnesar biskups 29.05.2020

Er maðurinn syndugur? Hefur orðið siðrof? Er kannabis meiri synd en áfengi? Refsar Guð mannfólkinu? Það er ýmislegt sem maður getur leitt hugann að svona í sturtunni á morgnana, en enn betra er að ráðfæra sig við æðsta yfirmann Íslensku þjóðkirkjunnar, Agnesi M. Sigurðardóttur biskup. Hún er karlmaður vikunnar, komin til að kenna bræðralaginu lexíu og minna okkur á upprunann. Það er í kristinni ki...

#48 Teaser (kitla, kv. Snorri) Rauða pillan hans Elon Musk 26.05.2020

Ber er hver að baki nema sér bróður eigi, spakmæli sem hafa enga sérstaka merkingu þessa stundina frekar en fyrri daginn. En Skoðanabræður halda úti góðri veislu: Elon Musk, samkynhneigð, skáldskapinn, handritin, stuldinn á ofurtölvunum og Guð veit hvað fleira. Og Guð! Á þeim nótum sagt frá karlmanni vikunnar í næstu viku, sem er söguleg epík. Skellið ykkur inn á www.patreon.com/skodanabraedur.

#47 Skoðanir Þórðar Snæs ritstjóra Kjarnans 22.05.2020

www.patreon.com/skodanabraedur Björgólfur Thor og Róbert Wessmann. Þegar þeir fara í fýlu út í hvor annan gerist ýmislegt fyndið. Hvað eru 800 milljónir á milli mjög ríkra óvina? Þær eru rekstur DV í örfá ár. Þórður Snær Júlíusson, alvarlegur kóngur, varpar ljósi á það sem annað. Loksins, loksins, segði einhver: Fjölmiðlaumræða í Skoðananabræðrum! Þó sneitt hjá henni eftir föngum, enda margþvælt o...

#46 Tobba Marinós ritstjóri DV, hrun Bandaríkjanna og „dagbækur Hitlers“ 15.05.2020

www.patreon.com/skodanabraedur . BDSM-róla í kjallarahvelfingu. Það er allt eðlilegt við það. Það er líka allt eðlilegt við að Tobba Marinós, ritstjóri DV með meiru, nefni ámóta kjallara sem það fyrsta sem henni detti í hug þegar hún nær sambandi við Skoðanabræður. Eða hún nær sambandi við er ekki nákvæmt orðalag. Þeir ná sambandi við hana, sem er gleðiefni, enda ekki auðsótt hjá uppteknum ritstjó...

#44 RISASTÓR TILKYNNING! Nýir tímar og sigur á Zuckerberg 12.05.2020

Nýir Bræðralagsþættir; auglýsinga- og styrkjaupptalningalausir, stútfullir af hágæða gasi nú aðgengilegir inni á Patreon! Fyrir nýja Bræðralagsþáttinn:   www.patreon.com/skodanabraedur . Fyrir klink geturðu gerst áskrifandi að Bræðralagsþáttum og fengið aðra venjulega þætti degi fyrr en aðrir hlustendur. Skoðið síðuna og komið um borð í veisluna. Framtíðin er núna.

#45 Teaser (kitla, kv. Snorri): Flugvallargangbang 12.05.2020

Hvað gerist þegar maður stendur í röð fyrir flugvél á vegum Wizz Air og einn er leiddur afsíðis af því að hann er að væla yfir aukagjöldum sem eru tilkynnt viðskiptavinum á óheppilegasta tíma í heimi? Lærðu meira með því að ýta á play, og svo enn meira með því að gerast áskrifandi að Skoðanabræðrum á www.patreon.com/skodanabraedur. 

#43 Skoðanir Gísla Marteins 08.05.2020

Gísli Marteinn Baldursson.. hvernig er að vera frægur! Grundvallarspurning blaðamennskunnar. Réttast væri að láta þar við sitja. (Sjá skiptingu á efni þáttarins neðst) Því miður getur maður ekki látið eina spurningu nægja þegar maður fær eins stóran lax í hljóðver, og því er farið yfir nokkur önnur atriði. Skoðanabræður spyrja um skoðanir, en ekki hvað, og þar þarf fyrst að kanna þá heimild, eða f...

#42 Sólveig Anna formaður Eflingar, móðursýki auðvaldsins, tilgangur lífsins og framtíð íslensks rapps 01.05.2020

03:00 Áslaug Arna eyðileggur Child 04:23 viðtal við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar 33:50 mikilvægi sannleikans 35:30 Instagram story afmæliskveðjur 38:20 ólík samskipti við ólíkt fólk 40:33 fjórtán ára stelpa í viðtali við Liberal Media 44:00 ADHD fjárglæpamaðurinn 51:00 Evran og saga Evrópusambands 58:00 músík sem verður til þegar allt er að hrynja 59:30 þróun íslensks rapps 01:11 Trav...

#41 Sannleikurinn um Lamestream Media og sagan um píkuna og dýrið 28.04.2020

Bræðralag! Við reiðum okkur á ykkur. Og þó. AUR eða KASS í síma 661-4648. Maggi sushi er gestur þáttarins, sá eini sem hefur fengið að ganga í bræðralagið í beinni. Sjálfsagt að setja virðingu á hans nefnd, svo sem vér og vænumst eftir því af ykkur að þið gerið það við okkur. En allur fjandinn ræddur, samanber fyrirsögn, og ýmislegt endurtekið, orðræða mannsins enda ekki nema samfelld árétting þes...

#39 VIÐTAL VIÐ GOONS: Stormur Kormákur og Patti, þunglyndi, kvíði og skagfirski kvenpeningurinn 28.04.2020

02:00 Viljinn kominn út - 06:26 Þú Skuldar spilað til þeirra sem svíkjast undan - 09:30 gas um covid19 - 10:30 Skoðanabræður ræða eigin þunglyndi og kvíða - 17:20 virðing á Lönu Del Rey - 19:10 gaurar sem virkilega hata lögguna - 21:20 kvíðaköst - 22:30 get out the game - 27:00 Þórólfur með of mikil völd - 30:10 fólk í showbiz með sjálft sig á heilanum - 35:40 Stormur og Patti goonkings viðtal 58:...

#40 Skoðanir Magga sushi, skoðanabræðrafræðings II. 24.04.2020

Ég myndi aldrei kalla hann annað en Magga sushi, en get skrifað hér að Magnús Jochum Pálsson er gestur afmælisþáttar Skoðanabræðra. 1 ár af fremsta hlaðvarpi landsins og megi þau vera þúsund enn, en það er ekk ekki von nema spurt sé hvert sé orðið okkar starf í sex hundruð sumur: Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? Stefnan er að ræða það, en það fer náttúrulega út í aðra sálma, því að...

#38 Samið um gasgjaldið við Sindra Jensson í Húrra, graffað á grunnskóla og rúllað eins og Ísland fyrir þúsund árum 17.04.2020

Fyrirtæki! Skoðanabræður hafa snúist á sveif með auðvaldinu í heimsfaraldrinum, enda ljóst að einhver þarf að rækta landið og hann gerir það ekki nema fá eitthvað fyrir sinn snúð. Og skemmtu þér vel við að fá eitthvað fyrir þinn snúð, þ.e. verða ríkur, með því að opna fatabúð, segir Sindri Jensson stofnandi Húrra, hálfpartinn augljóslega að grínast, enda ekki neitt gríðarlega hagkvæmt aktívitet sá...

#37 Kvíði, Kórónu Víri og samtalið sem vegurinn inn í ljósið 14.04.2020

(Bræðralagsþáttur) Ber er hver að baki nema sér bróður eigi og ber er hver Skoðanabræðrahlaðvarpsþáttur að baki nema sér skoðanabræðralag eigi, eins og við eigum á Facebook og á AUR og á KASS, það er að skilja, sumir sjá sóma sinn í að leggja sitt af mörkum til frjálsrar fjölmiðlunar, aðrir hírast í þögninni, reyna að gefa ekki frá sér múkk, allt í von um að ekki heyrist til þeirra, því þá verður...

#36 DJ Dóra Júlía, ljósir punktar í faraldrinum og úrkynjuð unglingsgerpi á Instagram 10.04.2020

1:18 fara aftur í menntaskóla og unglingalíkamar 07:30 styrkjakóngurinn kynntur inn 10:00 skoða gömul skilaboð á Messenger 13:40 Snorri mætir í mataboð yfirnáttúrulega þunglyndur 17:30 sumarbústaðabann 24:00 Joe Biden elliær 27:20 Þjóðhátíð og FM95BLÖ 41:30 nýja Drake lagið svívirt 45:45 Dóra Júlía 01:10:50 Hildur Lilliendahl,feministar og fjölmiðlar 01:22:40 Talented Mr. Ripley, Matt Damon og Gwy...

Listen to the Skoðanabræður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.