Bergþór Másson

Skoðanabræður

www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.

Author

Bergþór Másson

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Apr 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#84 Skoðanir Þórsteins Sigurðssonar 23.10.2020

Þórsteinn Sigurðsson er ljósmyndari fyrrum þekktur sem Xdeathrow og hefur gefið út bækurnar Container Society Pt. 1 og Juvenile Bliss. Umræðuefni eru meðal annars: ljósmyndun, jaðarhópar, villtir unglingar, gámarnir útá Granda, dagvinna Dodda í líkbrennslunni, Instagram, arfleið, tilgangur lífsins, graffiti, Jakob Frímann, Kegr, rapp, slagsmál og eiturlyf. Leggðu frjálsri fjölmiðlun lið á www.patr...

#82 „Hvar ertu?“ 20.10.2020

Þjóðhátíð er stórhættulegur staður. Samfélagsmiðlar! Full lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur Umræðuefni eru: hárlitanir, sniðmenning í samhengi við Björn Braga, Ingó Veðurguð, Þorstein Má, Ágúst Ólaf og borgarstjóra Kaupmannahafnar, senda „hvar ertu?“ til stelpna, setja tvær stelpur saman í groupchat óvart, setja vini sína í groupchat óvart, Norðuvígi, hár Jay-Z & Halldór Benjamíns, rakstu...

#82 Skoðanir Andra Snæs Magnasonar 16.10.2020

Umræðuefni eru: framleiðsla á kvikmyndum og bókum, álver, goðsögur, jöklar, hagkerfi, hugmyndir, vísindi, stjóriðja, fjölmiðlar, lobbýismi, nýlendan Ísland, óskiljanlegt bull í fjölmiðlum eins og útflutningsverðmæti, fyrirlestrar, hagvöxtur, handrit, pólitískir andstæðingar, rökræður, Konungsbók Eddukvæða ofl ofl Leggðu frjálsri fjölmiðlun lið á www.patreon.com/skodanabraedur

#81 Atvinnulífsscam og hinn hræðilegi Helgi Björns, sem er samt líklega fínn gaur 13.10.2020

Þetta er allt saman ekkert nema bara sýnishorn! Full lengd og mun meiri veisla inni á  www.patreon.com/skodanabraedur. 

#80 Skoðanir Bjargar Magnúsdóttur 09.10.2020

Karlmaður vikunnar! Björg Magnúsdóttir. Langþráð, langíhugað, nú framkvæmt, á meðan plága ríður yfir þjóðirnar. Það á ekki að stoppa lestina. Björg er fjölmiðlakona par excellance og skýtur uppi kollinum hvarvetna þessa stundina, í Ráðherranum, í Málfari eða hvað sem sá ágæti þáttur heitir... Orðspori? Kappsmáli! Svona er tungumálið dyntóttur djöfull en alltaf ratar merkingin á sinn stað. Þetta al...

#86 Skoðanir Unnsteins Manuels 09.10.2020

Skoðanir Unnsteins Manuels, löngu tímabært. Hann kom til Skoðanabræðra fyrir margt löngu og ræddi nýjar ráðstafanir ýmsar, listina, lífið og leikinn. Nú eru nýir tímar, hann er í Berlín að skrifa þætti inni í stórum fundarherbergjum og hann dreymir um frekari afrek. Hvaða afrek? Sjá þátt. Efnistök, að öðru leyti: Hlaðvörp um suðuramerískar tónlistastefnur, tungumálið sem stjórntæki og miðstéttarvæ...

#79 Hvort er betra að vera nafnlaus þunglyndur lúser eða nafnlaus nasisti? 06.10.2020

Full lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Hrun siðmenningar í World of Warcraft, nafnleysi á netinu, menntaskólar í Covid19, Trump og stóra gríman hans Biden, Netflix fjarstýringar uppí rössum, raunveruleikinn vs. skáldskapur, Brian Cox, Ríkisútvarpið svívirt, vaxandi kynslóðir vestur-íslendinga ofl ofl ofl. Útvarp 101 ber ábyrgð á öllu sem er sagt hér.

#78 Skoðanir Sigurjóns Sighvatssonar 02.10.2020

www.patreon.com/skodanabraedur Sigurjón Sighvatsson, skilgreiningin á því að vera legend í leiknum, er genginn í bræðralagið. Hann hefur framleitt fleiri en 50 kvikmyndir og starfað í Hollywood í 35 ár. Meðal verka hans eru; Twin Peaks, Bevery Hills 90210, Killer Elite, Wild At Heart og Brothers. Hér setur hann m.a virðingu á nafn Robert DeNiro og svívirðingu á nafn Harvey Weinstein, segir sögur a...

#77 Kanínuhola íslenska alt-rightsins: „Rasismi og affjármögnun lögreglu” 29.09.2020

„Ég vil ekki kommúnisma, ég vil ekki kommúnisma, ég vil ekki kommúnisma“ segir hagfræðingurinn og pistlahöfundurinn Anna Karen Jónsdóttir... full lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur

#76 Skoðanir Gumma Emils 25.09.2020

Celebrity trainer Gummi Emil er karlmaður vikunnar. Líkamsrækt, orkudrykkir, samfélagsmiðlar, sjálfsfróun, concerta, no fap og Jordan Peterson. Allt þetta rætt í bland við annað. www.patreon.com/skodanabraedur

#75 Er réttlætanlegt að gera lag um samstöðu í COVID? 22.09.2020

Stóru spurningar lífsins... og dauðans. Víri er kominn á kreik, þ.e. sú krýnda. Lætur til sín taka og veldur hörmungum eins og tónlist um samstöðu á viðsjárverðum tímum. En! Gas í þætti dagsins, allt frá framhaldi um Herra Hnetusmjör og rappleikinn til Sigríðar Andersen, flóttamannaveislunnar og yfirvegaðs uppgjörs við nasismann í Þýskalandi. Farið á Patreon strax! Útvarp 101. Nýr bræðralagsþáttur...

#74 Skoðanir Bjarna Frímanns 18.09.2020

Ópera.. púra ofbeldi í ýmsum skilningi, fyrst og fremst jákvæðum. Bjarni Frímann Bjarnason er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar en látið ekki blekkjast. Hann er alþýðlegur, ungur og að sögn sérfróðra tónlistarsnillingur. Það eðli brýst fram þegar hann stendur og stjórnar, en það braust líka fram þegar Bjarni var í áttunda bekk, varð ástfanginn af stelpu í 10. bekk, bauð henni á deit, var hafnað o...

#73 Íslenskt rapp kannski aðeins að spá í að drepa sig 15.09.2020

Andlát: Íslenskt rapp, segir Davíð Roach, gagnrýnandi Ríkisútvarpsins. Skoðanabræður fagna slíkri dáð, að lýsa yfir dauða einhvers sem auðvitað gefur sig út fyrir að vera sprelllifandi. Pistill sem vakti athygli ögn tekinn og skoðaður nánar, og komist að niðurstöðu um brotalamir í röksemdafærslu, sem eru þó auðvitað óhjákvæmilegar, enda röksemdafærslur á endanum ekki annað en bara tilfinningar. An...

#72 Skoðanir Hallgríms Helgasonar 11.09.2020

Höfundur Íslands… sem sagt Hallgrímur Helgason. Sem skrifaði einmitt bók sem heitir Höfundur Íslands, þar sem talað var illa um kommúnisma. Helstefna, segja hægrimenn, og voru ánægðir með bókina. Allt eðlilegt við það. Að vera skáld! Það er ágætur eiginleiki sem veitir innsýn. Eða þá að innsýnin valdi skáldskapnum. Hvernig sem það er hefur Hallgrímur frá ýmsu að segja og koma hans í þáttinn fellur...

#71 Andlegir nazis, alt-right hippar, kakó & kvíðaköst 08.09.2020

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur og eigðu von á því að vinna epíska vinninga.

#70 Skoðanir Gunnhildar Fríðu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur (nýju stjórnarskrárinnar) 04.09.2020

Stærstu mál samtímans... Skoðanabræður gera þeim að sjálfsögðu skil. En það má heita umdeilt hver þau eru nákvæmlega... klámið, grasið og skeggið eða þá „róttækar“ stjórnmálalegar breytingar, sem mætti svo sem vera gæsalappalaus lýsing á þeirri ráðstöfun að setja þjóð nýja stjórnarskrá. Sú hugsjón er helsta ætlunarverk karlmanna vikunnar, Gunnhildar Örnu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur, sem...

#69 Þegar Instagram myndir tanka, kvaðir listamanna og heitar þýskar gellur 01.09.2020

„We were in the jungle, there were too many of us, we had access to too much money, too much equipment, and little by little we went insane“ Innihald orkudrykkja, að hætta drekka vegna þunglyndis, Jónas Hallgrímsson, Jón Gnarr, heitar þýskur gellur, að mæta í skóla og sigra, uppistandarar og rapparar í Covid, lögfræðingar, ofbeldi og hnífastungur í miðbænum, undirheimar, mafíósar, Samherji, epíska...

#68 Skoðanir Frímanns Gunnarssonar 28.08.2020

Hashtag. Fremsti fjölmiðlamaður landsins sest á rökstóla með Skoðanabræðrum, sannkallaður karlmaður vikunnar. Frímann Gunnarsson hefur yfirgripsmikla þekkingu á öllu sem viðkemur list, menningu og æðri menntun og Skoðanabræðrum var sannast sagt farið að líða eins og þá væri farið að skorta þá vídd í þáttinn, að undangengnum viðtölum við „anarchists“ eins og Sölva Tryggvason eða „rappara“ á borð vi...

#67 Skoðanir Sölva Tryggva 21.08.2020

Þrír karlmenn, allir PhD: Podcast having dudes. Sölvi Tryggva steig inn í leikinn og sigraði, það verður að segjast. En hvert er markmiðið með þessu hjá honum? Svarið er inni í þættinum! Vísbending: Í grunninn það sem hvetur alla PhD til dáða yfirleitt. Gasið! Það er markmið í sjálfu sér. Svo eru líka markmið eins og að fá Björgólf Thor í þáttinn og þar keppast Skoðanabræður við Sölva um hinn feit...

#66 HEITT og KALT á djamminu 1990: 19 atriði 18.08.2020

Besti bræðralagsþáttur allra tíma, segir Bergþór. Stóru orðin... þau eru auðvitað síst til þess að spara þau. 90 mínútur af veislu, umgjörð hverrar er listi frá árinu 1990 yfir hluti sem eru annars vegar inn og hins vegar out á vettvangi skemmtanalífs. Segir sig sjálft að umdeild atriði eins og kynlíf, hugleiðsla og hip hop verða kveikjur að hágæðagasi fyrir hlustendur. Hvað þá jakkaföt, stjórnmál...

#65 Skoðanir Joey Christ og Lóu Bjarkar 14.08.2020

Eins og Lóa orðar það vel: Fara í Skoðanabræður og eyðileggja mannorð sitt. Í þeirri feigðarför hennar eru Skoðanabræður ekki meira en auðmjúkir verkefnastjórar, þeir taka á móti henni og skapa umgjörð fyrir hana til þess að veitast með skipulegum hætti að eigin orðspori. Hvernig fer maður að því? Með orðum! Orð.. lengi hef ég haft á þeim illan bifur, sagði skáldið, og fleiri mættu tileinka sér, þ...

#64 Skoðanir Egils Ástráðssonar 07.08.2020

Egill Ástráðsson. Sterkt norrænt einnefni eins og bræðralagið vill hafa það. Hann er hinn sterki norræni maður (íslenskur með alskegg) og hefur lengi átt erindi inn í gasklefa Skoðanabræðra þó að hann hafi af ýmsum sökum ekki ratað þangað fyrr en nú. Hann er umboðsmaður, atvinnumaður í veseni og meðal stofnenda Útvarps 101, 101 Studios og 101 Sambandsins og hver veit hvers meira. Allt auðvitað ben...

#63 „Þú ert svo fokking leiðinleg“ - Þjóðhátíð á Tinder 04.08.2020

Bræðralag. Náið ykkur niður eftir verslunarmannahelgi með því að skyggnast inn í hvað gerist á bakvið luktar dyr á Patreon. Þetta er brot úr þætti, og restin er í appinu. Skellið ykkur um borð. www.patreon.com/skodanabraedur. 

#62 Skoðanir Steineyjar Skúladóttur 31.07.2020

www.patreon.com/skodanabraedur Snorri drakk fimm bjóra í stúdíóinu. Fyrirgefið það innilega. Hvaða eiturlyf hefur Steiney Skúladóttir tekið? Hvenær tók hún þau? Hvers vegna?  Stórum spurningum er svarað - ásamt ítarlegum umræðum um sálfræðinga, forréttindi, femínisma, RÚV, dagskrárgerð ofl ofl.

#61 Skoðanir Högna Egilssonar 24.07.2020

Það eru hálfgerð helgispjöll að fara um þennan þátt mörgum orðum enda orð ekki nema ómerkileg tilraun til þess að flækja veruleikann með merkingu. Veruleikinn er nefnilega til sjálfstætt og orðalaust, eins og í músík. Þar er veruleikinn þó saga og tónlistin er saga, sem er ofin úr efni goðsagna, stórsagna, mýta þeirra sem erfðaefni mannsins trúir á í blindni. Og ekki furða að maðurinn trúi, þessar...

Listen to the Skoðanabræður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.