Bergþór Másson

Skoðanabræður

www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.

Author

Bergþór Másson

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Apr 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#10 Skoðanir Karó 05.07.2019

•Í draumi sérhvers manns er fall hans falið, sagði skáldið, en Skoðanabræður kafa bókstaflega dýpra: Í eista sérhvers karlmanns er draumur hans falinn. Og Hitler missti annað eistað og það var ekki draumaeistað, því ljóst var að hann dreymdi allt fram á hinsta dag. Hið sama gildir um hinn meðalhvíta unga karl sem þarf ekki nema sopa af bjór til að fara að tala um næstu sigra. •Þetta eru hásálfræði...

#9 Skoðanir Danna Deluxe 28.06.2019

Þú ert afi íslensk rapps. Þú bjóst til þennan leik. Þú varst getinn í Afríku. Og þú varst tekinn með keisaraskurð. Þetta er borðleggjandi: Þú heitir Sesar A. –En þú heitir ekki Danni Deluxe, sem hlýtur að teljast öllu betra. Daníel Ólafsson athafnaskáld er karlmaður vikunnar og er sá sem upplýsir um það sem kemur fram hér í upphafi. Sjúki fanturinn sem hann er upplýsir líka um allan fjandann annan...

#8 Skoðanabræður líta um öxl 21.06.2019

–Það er hverjum hollt að staldra við endrum og eins, líta um öxl og allt að því horfa yfir farinn veg. Skoðanabræður þekkja mikilvægi þessa. Eftir stormasama 7. þætti, taka þeir áttunda í að leggja mat á hvert vegferðin hingað til hefur leitt þá. –(Til þess að styðja frjálsa fjölmiðlun sendið styrk á Aur eða Kass í númerið 661-4648) –Einmitt. Tveir gaurar með podcast. Leitað aftur í ræturnar. Snor...

#7 Skoðanir Berglindar Festival 13.06.2019

„Hvernig finnst þér ég?“ spyr Snorri. Berglind Festival hefur skilning á vangaveltum Skoðanabræðra. En hún er orðin 30 ára. Hún er farin að linast. Hún er karlmaður vikunnar að þessu sinni. Um Skoðanabræður: „Þetta er bara mjög ferskt konsept,“ segir hún. „Nei, djók.“ Kuldahlátur. Svívirðingar. Tveir gaurar með podcast. En hlýja! Fram kemur að ef Berglind festival væri á fótboltamóti í boði álvers...

#6 Skoðanir ClubDub 07.06.2019

***EINA VIÐTAL CLUBDUB Í KJÖLFAR ÚTGÁFU NÝRRAR TÓNLISTAR*** –Begga (þolfall) langar til Winnipeg. En hverjum er ekki drullusama? ClubDub komu í eina viðtalið sem þeir gefa í tilefni nýrrar plötu. Sem þeir segja samt að sé ekki plata. Þeir kalla sig listamenn. –Allt frá „er hægt að þrá Rolex úr en segjast ekki vera materíalískur?“ til „við tölum ekki um dýraníð í þessum þáttum“. –Og hvaða rusl er C...

#5 Skoðanir Birgittu Lífar 31.05.2019

Flóni var á B5 um helgina. Skoðanabræður hafa sagt frá öðru eins og frásögnin væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hún er í frásögur færandi. Flóni straujaði Apple Pay kortið fyrir 200 þúsund kall. En sagan er ekki þar með sögð því annar var aðili að máli. – Sá er enginn annar en sú hin eina sanna, Birgitta Líf Björnsdóttir. Hún er þjóðinni að góðu einu kunn og hana þarf vart að ky...

#4 Skoðanir Loga Pedro 24.05.2019

Logi Pedro hefur svo viðbjóðslega mikið af skoðunum að Skoðanabræður héldu varla í við hann. Maðurinn mætir og skellir fyrirvaralaust nokkrum kílóum af gæðaskoðunum á borðið. Hann vinnur vinnuna fyrir bræðurna. –Honum veitir ekki af að fá að læra að vinna, enda vinnur hann vart nokkuð sjálfur, hann er listamaður. –Listamenn! –Í ljós kemur að þessi skoðun stenst ekki alveg, því listamenn þurfa að v...

#3 Skoðanir Lóu Bjarkar 17.05.2019

 „Ég held að það séu bara gaurar sem hlusta og þeir eru að fara að skippa yfir nafnið mitt,“ segir Lóa Björk Björnsdóttir, sviðshöfundur og femínisti, áhyggjufull í viðtali við Skoðanabræður. Hún er fyrsti kvenkyns karlmaður vikunnar. Og ber þann titil hróðug. – Karlmaður vikunnar! Hálfbakað konsept, smá eins og léleg list, sem er til þess eins fallin að triggera PC gellur á Twitter. (Það vir...

#2 Skoðanir Dóra DNA 10.05.2019

Dóri DNA er búinn að mæta í hvert einasta shitty hlaðvarp á landinu. Hann náði klukkutíma með Skoðanabræðrum áður en hann þurfti að þjóta í það næsta. Hann lofaði samt að það sem kæmi fram í þessum þætti væri exklúsíft einkaefni Skoðanabræðra. Það er viðbúið að Skoðanabræðralagið sperri eyrun… í suðupotti vikunnar malla nokkrar vel sjúkar hugmyndir. Eins og hverjar? Fróður spyr ófróðan: þegar gell...

#1: Skoðanir Péturs Kiernan 02.05.2019

Rapparinn „Flóni“ lenti í verkfalli norska flugfélagsins SAS á dögunum þegar hann tók skyndiákvörðun um að fara til Amsterdam í einn dag að hitta vin. Ákvörðunin kostaði hann 400.000 kall, segir umboðsmaður hans. „Það þarf að svipta hann fjárræði,“ bætir hann við. Þessi umboðsmaður er enginn annar en Pétur Kiernan. Áhrifavaldurinn. Instagram-fígúran. Stjórnmálaskýrandinn. Hin albjarta rassabora ve...

Skoðanabræður #0 26.04.2019

Fyrsti þátturinn er svo góður að þunglyndir klámfíklar myndu kalla hann byrjendaheppni. Í honum er enginn karlmaður vikunnar, heldur var punkturinn að bræðurnir fyndu út hvers kyns hlaðvarp þetta ætti eiginlega að vera. Spjallið gekk svo langt að það þurfti að klippa hann til. Og það var ekki gert. Þessi djús er á vegum Útvarps 101.

Listen to the Skoðanabræður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.