RÚV

Síðdegisútvarpið

News IS ↓ 69 episodes

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Andri Freyr Viðarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Dec 29, 2023

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

21.nóvember 21.11.2023

Þann 23. nóvember nk. verður boðið upp á málstofu undir yfirskritftinni Erum við að kaupa til að henda? Þar verður fjallað um mikilvægi hringrásar í fatnaði og hönnun. Áherslan er að vekja athygli neytenda, hönnuða og framleiðenda á málefninu og hvetja til umhverfisvænni framleiðslu, hönnunar og neysluhegðunar. Bjarney Harðar eigandi 66°Norður og Álfrún Pálsdóttir frá Hönnunarmiðstöð koma til okka...

Síðdegisútvarpið 20. nóvember 20.11.2023

Það er síðdegisútvarpið sem heilsar á mánudegi, 20. nóvember. Í hljóðveri sitja þau Guðrún Dís og Kristján Freyr Vinnum gullið er nafn ráðstefnu sem fram fór í dag á Grand hótel í Reykjavík en þar var fjallað um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks. Starfshópur á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins fer með þennan málaflokk og er markmiðið að draga úr allri óvissu er varðar framfærslu og ýmis r...

17.nóvember 17.11.2023

Grindvíkingurinn Sigríður María Eyþórsdóttir skrifaði harðorðan pistil sem birtist á Vísi í vikunni. Pistillinn fjallaði um tvöfaldar hörmungar Grindvíkinga og skrifar Sigríður um falsörlætis tilboð bankanna um að frysta húsnæðislán Grindvíkinga sem hún segir gagnsæa blekkingu til að nýta sér hörmungar sem nú dynja yfir heilt sveitarfélag. Sigríður María kemur til okkar í Síðdegisútvarpið á eftir....

Síðdegisútvarpið 16. nóvember 16.11.2023

Í vikunni var haldið heilbrigðisþing og í ár var áhersla lögð á gagna - og tæknivæðingu í heilbrigðiskerfinu. Sædís Sævarsdóttir ? varaforseti læknadeildar HÍ og verkefnastjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu segir okkur betur frá þinginu en hún hélt erindi um framtíð einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu hér á landi. Nýja Breiðafjarðarferjan Baldur er að verða tilbúin í áætlunarsiglingar milli St...

Síðdegisútvarpið 15. nóvember 15.11.2023

Síðdegisútvarpið heilsar á miðvikudegi og við stýrið sitja þau Guðrún Dís Emilsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson Í þættinum í gær fjölluðum við um það að líkhúsið á Akureyri hefði verið auglýst til sölu eða leigu á Akureyri.net og í Morgunblaðinu og ræddum við við Smára Sigurðsson framkvæmdastjóra Kirkjugarða Akureyrar sem sagði að enginn bæri ábyrgð á rekstri líkhúsa. Frá því að heilbrigðisker...

14.nóvember 14.11.2023

Fyrirtæki hafa í gær og í dag keppst við að bjarga verðmætum frá Grindavík líkt og kom fram í hádegisfréttum í dag. Útgerðir í Grindavík eru vongóðar um að ná að bjarga hráefni og afurðum úr bænum og Orf líftækni tókst að sækja verðmæt fræ sem verið er að rækta í Grænu smiðjunni í Grindavík sem er nýlegt hátæknigróðurhús. Berglind Rán Ólafsdóttir er framkvæmdastýra ORF líftækni við heyrum í henni....

13.nóvember 13.11.2023

Það mæðir mikið á fólki sem hefur þurft að yfirgefa Grindavík. Margir eiga um sárt að binda og erfitt að setja sig í spor þeirra sem þurftu í flýti að yfirgefa heimili og sína persónulegu muni. Óvissan er mikil um framhaldið en hvernig getum við reynt að láta okkur líða betur og hvert getum við leitað ? Elfa Dögg S. Leifsdóttir er Teymisstjóri ? Heilbrigðisverkefna hjá Rauða Krossinum á Íslandi og...

10.nóvember 10.11.2023

Netöryggis-og viðbragðsteymi CERT-IS hvetur fólk til að vera á varðbergi næstu vikur í tilefni af tilboðsdögum sem framundan eru og einn slíkur er einmitt á morgun svokallaður Singles day. Í tilkynningu frá Certis kemur fram að fólk eigi sérstaklega að vera á verði gagnvart öllum smáskilaboðum tengdum kaupum á netinu. Magni Sigurðsson fagstjóri yfir atvika meðhöndlun hjá Cert - is verður á línunni...

9.nóvember 09.11.2023

Einn af hverjum 25 íslendingum er með meðferðartækan erfðabreytileika sem veldur því að þeir lifa skemur en þeir sem bera hann ekki. Með því að finna þessa breytileika og upplýsa viðkomandi einstaklinga svo þeir geti leitað sér lækninga má auka lífslíkur til muna. Fræðslufundur Íslenskrar erfðagreiningar hefst í dag klukkan 17 í húsnæði þeirra á Sturlugötu 8. Þar mun Kári Stefánsson forstjóri ÍE g...

8.nóvember 08.11.2023

Síðdegisútvarpið heilsar á miðvikudegi, við stýrið eru þau Hrafnhildur og Kristján Freyr Halldórsbörn Samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin var af Sóllilju Bjarnadóttur doktorsnema og Sigrúnu Ólafsdóttur prófessors hafa Íslend­ing­ar al­mennt mikl­ar áhyggj­ur af lofts­lags­breyt­ing­um, í þessari rann­sókn­ skoðuðu þær hvort mun­ur væri á lofts­lags­á­hyggj­um eft­ir kyni hér á landi og hvort fé­lags...

7. nóvember 07.11.2023

Við ætlum að beina sjónum okkar að fjármálalæsi ungmenna. Betra fjármálalæsi ungs fólks er sérstakt áherslumál á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja en Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri SFF segir að þekking á fjármálum sé mikilvæg undirstaða þegar ungt fólk fer út í lífið og til þátttöku í samfélagi sem verður sífellt flóknara. Hún vill sjá fjármálafræðslu sem skyldunám í grunnskóla til að jafn...

6.nóvember 06.11.2023

Heyrnarhjálp félag heyrnarskertra á Íslandi sendi frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem félagið lýsir yfir þungum áhyggjum yfir stöðu barna og fullorðinna á heyrnarmælingu og heyrnartækjum en nærri tveggja ára bið eftir þjónustu hjá Heyrnar og talmennastöð Íslands og ljóst að úrlausna er þörf. Ennfremur kemur þar fram að heyrnarskert börn eru að bíða svo mánuðum skiptir sem og fólk með mjög alvarl...

3.nóvember 03.11.2023

Yfir 800 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga frá miðnætti og yfir tíu þúsund frá því skjálftahrinan hófst 25. október norðan við Grindavík. Við ætlum að setja okkur í samband við Almannavarnir á eftir útaf stöðunni og heyra í Sólberg Bjarnasyni deildarstjóra Almannavarna. Orkan úr eldhúsinu er nýtt samstarfsverkefni Veitna og Sorpu sem miðar að því að endurnýta afgangsolíu úr eldhúsinu og vernda...

2.nóvember 02.11.2023

Óánægju hefur gætt meðal foreldra leikskólabarna í Árborg vegna mögulegrar yfirtöku Hjallastefnunnar á leikskólanum Árbæ en tilkynning barst í enda októbermánaðar að skólinn yrði Hjallastefnuleikskóli frá og með 2. nóvember. Framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar er Bóas Hallgrímsson og hann segir okkur nánar frá upplýsingaskorti sem varð úr og leiðréttur var. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl gaf út...

1.nóvember 01.11.2023

Ný gögn GPS mælum og gervitunglum staðfesta að kvikuinnskot sé til staðar vestan við Þorbjörn á um þriggja til fjögurra kílómetra dýpi. Tæplega 400 jarðskjálftar mældust á Reykjanesskaga í nótt. Sá stærsti 3,7 að stærð, um þrjá kílómetra vestur af Þorbirni laust fyrir klukkan eitt í nótt. Við heyrum í Helgu Árnadóttur framkvæmdastjóra Bláa lónsins vegna stöðunnar. Grindvíkingar eru margir hverjir...

31.október 31.10.2023

Það er alltaf spenna fyrir því hjá bókelskum landsmönnum að sjá hverjir eru að gefa út og hvaða bækur. Það gerist ekki alltaf að par sendi frá sér eina bók hvor sama árið en þannig er það í ár. Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarsson hafa bæði vakið athygli fyrir skáldsögur, önnur skáldsaga Braga Páls Arnaldur Indriðason deyr fór á mikið flug og Bergþóra Snæbjörnsdóttir hefur verið til...

30.október 30.10.2023

Fréttir af karlmanni á áttræðisaldri, sem flytja átti með sjúkraflugi frá Vopnafirði til Reykjavíkur en fékk ekki að fara í flugið því hann var sagður of þungur hafa vakið spurningar varðandi öryggi og aðgengi fólks á landsbyggðinni að viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Leyfileg hámarksþyngd sjúklinga í sjúkraflugi væri 135 kíló en maðurinn er í kringum 150 kíló. Þegar hann komst loks undir læknishen...

27. október 27.10.2023

Vinsældir orkudrykkja hafa aukist mikið síðustu ár þar sem áhrif þeirra eru gjarnan ?hressandi? en geta jafnframt verið ávanabindandi. Drykkirnir innihalda sætuefni og koffín í óhóflegu magni ásamt öðrum virkum efnum og ættu ekki að teljast sem svaladrykkir í venjulegum skilningi. Birna G. Ásbjörnsdóttir doktorsnemi í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands hefur rannsakað áhrif orkudrykkja á líka...

16. október 26.10.2023

Sérstakir táknmáls-tónleikar verða haldnir í Tjarnarbíói næstu helgi þar sem sviðsett verða ljóð á íslensku táknmáli og kannaðar verða nýjar slóðir í sviðslistum. Heyrnalausir og heyrandi sitja hlið við hlið á tónleikunum þar sem döff ljóðlist og kórverk skapa áður óséðan samleika. Elsa Björnsdóttir, Ásta Sigríður Arnardóttir og Túlkurinn Agnes Steina kíkja til okkar. Hinir ofurgreindu spéfuglar T...

25. október 25.10.2023

Síðdegisútvarpið heilsar á miðvikudegi, við stjórnvölinn sitja nafnarnir Andri Freyr og Kristján Freyr. Á morgun fimmtudag efna Samtök ungra bænda til baráttufundar fyrir lífi sínu og sveitanna í Salnum í Kópavogi. Auk nokkurra gestafyrirlesara munu ungir bændur koma þar fram þar og taka til máls en þeir standa flestir frammi fyrir fjárhagslegum ómöguleika um þessar mundir og ungt fólk sem vill he...

24. október 24.10.2023

Sjálf viðburðarstýra kvennaverkfallsins, Inga Auðbjörg Straumland verður á línunni á eftir. Munum við heyra í henni um hvernig verkfallið hefur gengið fyrir sig í dag. Engar áhyggjur hlustendur góðir, við fengum formlegt leifi frá henni sjálfri á föstudaginn var. Í byrjun síðustu aldar tók þjóðin ástfóstri við bílinn, þetta einstaka samgöngutæki sem greiddi götu og létti störf, auk þess að opna la...

23. október 23.10.2023

Niðurstöður nýjustu talningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á íbúðum í byggingu hafa verið birtar. Í ljós kemur að samdráttur er í fjölda nýrra framkvæmda vegna íbúðabygginga á landinu. Við ætlum að fara yfir helstu niðurstöður HMS hér á eftir þegar að Elmar Þór Erlendsson framkvæmdastjóri hjá HMS kemur til okkar. Hafsteinn Vilhelmsson er 39 ára fjölskyldufaðir búsettur í Kópavogi. Hafsteinn va...

20.október 20.10.2023

Um 100 manns söfnuðust saman við ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í morgun til þess að mótmæla stríðinu í Palestínu. Þess var krafist að stjórnvöld fordæmi aðgerðir Ísraelshers í Palestínu og tók Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á móti 2000 undirskriftum um frjálsa Palestínu. Linda Blöndal fréttamaður var á staðnum og tók nokkra mótmælendur tali. Í dag fagnar Valur Gunnarsson sagnfræðingur úg...

19.október 19.10.2023

Í gær 18.október var alþjóðlegur dagur breytingaskeiðsins og af því tilefni ætlum við að beina sjónum okkar að þessu tímabili sem allar konur ganga í gegnum. Breytingaskeiðið reynist sumum konum erfitt á meðan aðrar finna minna fyrir því en einkennin eru mjög breytileg frá konu til konu. Alþjóðlegu breytingaskeiðasamtökin IMS ákváðu að yfirskrift gærdagsins skyldi vera hjarta og æðasjúkdómar og er...

18.október 18.10.2023

Vísindanefnd um loftslagsbreytingar birti í morgun fjórðu skýrslu sína um loftslagbreytingar á Íslandi og var hún kynnt á fjölmennum fundi í Grósku. Í skýrslunni kemur fram að til að tryggja að áskoranir vegna loftslagsbreytinga verði ekki meiri en við er ráðið, þurfi umbyltingu í lífsháttum og umgengni við náttúruna. Þar kemur m.a. fram að loftslagsbreytingar hafi þegar átt þátt í að gera innflut...

Listen to the Síðdegisútvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.