RÚV
Síðdegisútvarpið
Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Andri Freyr Viðarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
17.október 17.10.2023 1:54:00
Í apríl birti Heimildin ítarlega umfjöllun unna af Aðalsteini Kjartanssyni og Helga Seljan um Súðavíkurflóðið undir yfirskriftinni "Þau þurftu ekki að deyja". Snjóflóðið sem féll á Súðavíkurþorp í janúar 1995 kostaði 14 manns lífið. Aðstandendur telja að ný gögn staðfesti fyrri grun þeirra. Yfirvöld hafi gert fjölmörg mistök í aðdraganda flóðsins, hunsað aðvaranir og brugðist...
16.okt 16.10.2023 1:54:00
Fjölmiðlar víða um heim hafa sagt frá því að Ísraelar hafi boðað tímabundið vopnahlé til þess að hleypa erlendum ríkisborgurum út úr Gaza í gegnum Rafah landamærin. Á sama tíma myndu alþjóðlegar hjálparstofnanir nýta tækifærið og koma neyðarbirgðum til Palestínumanna á Gaza. Um helmingur íbúa Gaza eru börn og eru þau helstu fórnarlömb átakanna á milli Hamas-liða og Ísraels. Vonast er til þess að h...
13.október 13.10.2023 1:54:00
Á mánudaginn verður fyrsta skóflustungan tekin að nýrri fæðingardeild - sem Ísland fjármagnar en þetta verður algjör bylting fyrir mæður og ófædd börn þeirra í Malaví. Við ætlum að hringja í Ingu Dóru Pétursdóttur forstöðukonu sem starfar hjá sendiráðinu Íslands í Malaví. Í vikunni var var lögð fram beiðni á Alþingi þess efnis að dómsmálaráðherra myndi flytja Alþingi skýrslu um vændi á Íslandi. Be...
12.október 12.10.2023 1:54:00
Marga dreymir um betri samgöngur til Keflavíkur og alls konar hugmyndir hafa litið dagsins ljós í þeim efnum. Í þessum töluðu orðum eru ýmsir hagaðilar tengdir þessu viðfangsefni að funda í Kópavogi og spurningin er hvort menn séu komnir einhverju nær í því að bæta samgönguleiðir til Keflavíkur. Dagur B. Eggertsson er einn þeirra sem þarna stigu á stokk og við ætlum að heyra í honum á eftir og hey...
11.október 11.10.2023 1:54:00
Þúsundir hafa látið lífið í stríðinu sem braust út í Ísrael og Palestínu á laugardag og mörg þúsund hafa særst. Ísraelski herinn hefur safnað herliði við landamörkin að Gasaströndinni í dag. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá gangi mála við botn miðjarðarhafs. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður miðflokksins verður á línunni hjá okkur á eftir. Við ætl...
10.október 10.10.2023 1:54:00
Mikil hitabylgja hefur geysað á Tenerife síðustu daga og við ætlum að hringja út síðar í þættinum og heyra í Kristínu Björg Þorsteinsdóttur sem þar er stödd. Blóðug átök geysa á milli Ísraelshers og Hamasliða en hvers vegna er staðan orðin svona fyrir botni miðjarðarhafs? Við ætlum fá til okkar Þórir Jónsson Hraundal sérfræðing í málefnum miðausturlanda á eftir. Um 2,3 milljónir manna búa á Gaza s...
9.október 09.10.2023 1:54:00
Fyrirhuguðum heimflutningi íslenskra strandaglópa í Ísrael var seinkað í dag en nú er hópurinn kominn til Amman í Jórdaníu, og áætlað er að flugvélin fari í loftið kl. 1815 að íslenskum tíma. Þetta er um hundrað manna hópur Íslendinga sem var á ferðalagi um Ísrael þegar stríðsátök brutust þar út um helgina. Við ætlum að freista þess að heyra í fararstjóranum Sigurði Kolbeinssyni hér á eftir. Þingv...
6.október 06.10.2023 1:54:00
Það eru fimmtán ár frá hruni og fimmtán ár upp á dag síðan að Geir H. Haarde sagði þessa fleygu setningu: Guð blessi Ísland. Á sunnudag og mánudag verður sýnd á RÚV heimildamynd í tveimur hlutum um uppgjörið eftir bankahrunið. Í myndinni er fjallað um ótrúlega eftirmála hrunsins þar sem bankaleynd var aflétt og víðtækar rannsóknir hófust á því hvernig þrír stærstu bankar landsins fóru í þrot. Í my...
5.október 05.10.2023 1:54:00
Við höfum fjallað uppá síðkastið um villta laxastofnin í ám landsins og eldislaxinn sem sloppið hefur úr sjókvíum og synt upp árnar. Matvælaráðherra birti heildstæða stefnu um uppbyggingu og umgjörð lagareldis og þar með sjókvíaeldis á dögunum og þar kemur fram að stefnt sé að því að herða kröfurnar og skýra rammann utan um greinina. Á laugardaginn verður haldinn á Austurvelli samstöðufundur gegn...
4.október 04.10.2023 1:54:00
Í fréttaskýringaþættinum Kveik í gær var fjallað um neyslu á ópíóiðum hér á landi og tveimur ungum mönnum fylgt eftir og saga þeirra sögð. Í þættinum kemur fram að fjölmargir létust af völdum ofneyslu á ópíóíðum hér á landi á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Á sama tíma eru langir biðlistar í meðferð og tekið dæmi um að 100 manns séu á biðliðsta eftir að komast í meðferð í Krísuvík. Við ætlum að ræða...
3.október 03.10.2023 1:54:00
Margt hefur mætt á þjóðinni að undanförnu og eitt af því síðasta sem við þurftum á að halda var að sjá erlendan ferðamann á 14 tonna trukki spæna upp íslenska náttúru og það í Þjórsárverum, á meðan hann tók það upp og deildi svo skemmdarverkin á youtube. Margar kenningar hafa sprottið upp á samfélagsmiðlum eftir að þetta var sýnt í fréttum á RUV. Er þessi ákveðni ferðamaður náttúruníðingur af vers...
2.október 02.10.2023 1:54:00
Við ætlum að kynna okkur nýjustu vendingar í Bankastræti Club málinu en aðalmeðferð málsins hefur haldið áfram í dag í veislusalnum í Gullhömrum í Grafarholti. Saksóknari krefst þess að maðurinn sem grunaður er um að hafa stungið þrjá inni á skemmtistaðnum Bankastræti Club verði dæmdur til minnst átta ára fangelsisvistar. Haukur Hólm fréttamaður segir okkur frá gangi mála hér á eftir. Gjaldskyldut...
29.september 29.09.2023 1:54:00
Vel á annan tug sprengju- eða skotárása hafa verið gerðar nærri Stokkhólmi í september og tengjast flestar átökum innan glæpagengisins Foxtrot og er yfirstandandi mánuður nú þegar orðinn sá mannskæðasti í fjögur ár þegar kemur að átökum glæpagengja í landinu. Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, ávarpaði þjóð sína í gær og sagði stöðuna grafalvarlega,að gengjastríðið sem nú geisar sé án fo...
28.sept 28.09.2023 1:54:00
Getur gervigreindin unnið sama starf og þýðendur hafa hingað til gert? Nýlega var sagt frá því að Storytel hefði beðið íslenskan þýanda að fara yfir texta sem gerveigreindin hafði gert fyrir fyrirtækið og skemmst er frá því að segja að umræddur þýðandi sagði nei við starfinu. En hvert stefnir í þessum efnum, hver er staða þýðanda gagnvart þessari nýjung sem gervigreindin er, hvað er þetta stór hóp...
27.september 27.09.2023 1:54:00
Hópur aldraðra sem þarf meiri stuðning og hjúkrun er alþjóðlegt vandamál. Hjúkrunarstofnanir eru engan veginn að anna þessum hópi sem fer sístækkandi. Margir telja lausnina liggja í að gera öldruðum kleift að búa sem lengst á eigin heimili og bjóða þar upp á þjónustu sem gerir þetta kleift. Fyrirtækið Gagnaverk hefur þróað forrit i þessum tilgangi sem ber heitið Dala. Care og er þróað af hugbúnaða...
26.september 26.09.2023 1:54:00
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að hingað til lands komu norskir kafarar sem rekköfuðu um helstu laxveiðiár landsins. Þeir voru vopnaðir skutulbyssum og samkvæmt nýjustu tölum náðu þeir 31 eldislaxi þann tíma sem þeir voru hér. Von er á nýjum hópi kafara til að halda hreinsun ánna áfram. Við ætlum að ræða við Gunnar Örn Petersen í dag en hann er framkvæmdastjóri landsambands veiðif...
25.sept 25.09.2023 1:54:00
Í dag var tilkynnt um að nýtt fangelsi verði byggt í stað Litla-Hrauns og fái auk þess nýtt nafn. Á blaðamannafundi í morgun kom fram hjá fangelsismálastjóra að löngu tímabært væri að loka ?ömurlegri? aðstöðu á Litla-Hrauni. Myndlistamaðurinn Tolli Morthens hefur um langa hríð barist fyrir málefnum fanga og m.a. leitt uppbyggingarstarf á meðal fanga á Íslandi. Hann kom til okkar í þáttinn þegar ba...
22.september 22.09.2023 1:54:00
September er alþjóðlegur vitundarvakningamánuður um PCOS og á dögunum birti Elísa Ósk Línadóttir varaformaður PCOS samtkaka Íslands grein á Vísi sem hafði yfirskriftina: Ert þú hluti af þessum 70%? Þessi fyrirsögn vakti athygli okkar hér í Síðdegisútvarpinu og ætlum við að taka fyrir PCOS eða fjölblöðrueggjastokkaheilkenni í þættinum og fá til okkar þær Elísu Ósk og Guðrúnu Rútsdóttur formann PCOS...
21. september 21.09.2023 1:54:00
Júlía Margrét Einarsdóttir og Atli Fannar Bjarkason stýra þættinum. Pabbastrákar er nýtt íslenskt gamanleikrit þar sem nostalgía sígildra sólarlandaferða Íslendinga er sett á svið. Á bak við verkið standa þeir Hákon Örn Helgason, sem er Háið í grínhópnum VHS og Helgi Grímur Hermannsson sem er einn höfunda How to Make Love to a Man. Drengirnir eru að frumsýna verkið í kvöld en gáfu sér tíma til að...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.