RÚV
Síðdegisútvarpið
Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Andri Freyr Viðarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Síðdegisútvarpið 29. desember. 29.12.2023 1:54:00
Um sérhver áramót hafa svo óheppilega orðið slys og óhöpp hjá okkur sem kjósum að handleika flugelda og ýmis önnur veisluföng en förum ekki nægilega gætilega. Góð vísa er aldrei of oft kveðin og við ætlum að fá þá Hjalta Má Björnsson bráðalækni og Jóhann Ragnar Guðmundsson augnlækni til okkar og fara yfir það helsta sem við ættum að forðast fyrir næstu daga. Við erum mörg sem þekkjum jólastressið...
Síðdegisútvarpið 28. desember 28.12.2023 1:54:00
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Bláfjöll í gær en talið er að allt að fimm þúsund gestir hafi sótt svæðið heim og farið þar á skíði. Bílaröð myndaðist sem náði um tíma til Reykjavíkur og voru langar raðir í miðasölu og lyftur. Einhverjir kvörtuðu undan skipulagsleysi og troðningi. Magnús Árnason framkvæmdastjóri skíðasvæðanna verður á línunni hjá okkur á eftir og við spyrjum hann útí gærdagi...
Síðdegisútvarpið 27. desember 27.12.2023 1:54:00
Hlín Agnarsdóttir rithöfundur býr í Uppsölum í Svíþjóð en þar hélt hún sín fyrstu sænsku jól við ætlum að heyra í henni hvernig það gekk allt saman fyrir sig. Senn líður að nýju ári og þá hafa margir lofað sér að taka upp nýja og betri siði. Hjá sumum er það hefð að henda sér í sjóinn á þessum fyrsta degi ársins. Í Nauthólsvík ætla hraustir einstaklingar að hittast í sparifötum og grímubúningum á...
Síðdegisútvarpið 22. desember 22.12.2023 1:54:00
Natatorium er fyrsta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Helenu Stefánsdóttur, í fullri lengd. Myndin er einhvers konar fjölskylduharmleikur með drungalegum undirtón og skartar Elinu Petersdóttur og Ilmi Maríu Arnardóttur fara með aðalhlutverkum. Myndin verður heimsfrumsýnd á nýju ári á Alþjóða kvikmyndahátíðinni í Rotterdam. Helena ætlar að kíkja til okkar og sega frá. Þúfan er áfangahei...
Síðdegisútvarpið 21. desember 21.12.2023 1:54:00
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins, Elkem, Norðuráli og Rio Tinto og fjarvarmaveitum að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Þessir notendur hafa ekki sætt skerðingum fyrr á þessum vetri. Desember var verulega þurr mánuður syðra og lónstaða Þórisvatns með versta móti. Valur Ægisson er forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Landsvirkjun hann kemur til okkar á eftir...
Síðdegisútvarpið 20. desember 20.12.2023 1:54:00
Síðdegisútvarp Rásar 2 heilsar miðvikudaginn 20. desember. Guðrún Dís Emilsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson sitja saman í hljóðveri í dag. Í gærmorgun hófst aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Eddu Björk Arnardóttur fyrir Héraðsdómi í Skien í Austur-Noregi en þar sætir Edda ákæru fyrir að nema þrjá syni sína og barnsföður síns á brott. Blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson hefur f...
19.desember 19.12.2023 1:54:00
Eldgos hófst milli Sýlingarfells og Hagafells upp úr klukkan tíu í gærkvöld. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að eldgosið sé á besta stað í vondri sprunguröð. Hann telur að sprungan sé hætt að lengjast. Hraunflæði hefur dregist verulega saman og er nú um fjórðungur af því sem það var í upphafi. Sævar Helgi Bragason bendir á að íbúar á suðvesturhorninu gætu átt von á þreföldu sjónarspili...
18.desember 18.12.2023 1:54:00
Innviðaráðherra sagði í hádegisfréttum í dag að ekki standi til að setja lög á verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra að svo stöddu. Stjórnvöld fylgist hins vegar vel með kjaradeilunni og mikilvægt sé fyrir viðsemjendur að ná samkomulagi sem fyrst. Ekkert hefur verið fundað í kjaradeilu flugumferðarstjóra við Samtök atvinnulífsins frá því fyrir helgi og engar viðræður verið boðaðar á næstu dögum. Fl...
Síðdegisútvarpið 15. desember 15.12.2023 1:54:00
Menningin blómstrar sem aldrei fyrr um allt land og hér í henni Reykjavíkurborg bárust fregnir af því í dag að borgaryfirvöld ætli að endurnýja og hækka rekstrarsamninga við fimm sjálfstætt starfandi aðila í menningarlífi borgarinnar. Styrkjunum er ætlað að koma til móts við aukinn rekstrarkostnað svo sem vegna húsnæðis og launa. Skúli Helgason formaður Menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs ræðir...
14. desember 14.12.2023 1:54:00
Það er brjálað að gera í desember, allir á kafi í jólaundirbúningi og síðan þegar jólin koma þá viljum við öll hafa það sem huggulegast og slaka á. En hvað er gott að hafa í huga áður en þessir rólegu dagar skella á, þurfum við að passa upp á börnin okkar þ.e að setja þeim einhver mörk eða eigum við að leyfa þeim að vafra um internetið að vild, spila eins marga tölvuleiki og þau vilja og vera enda...
Síðdegisútvarpið 13. desember 13.12.2023 1:54:00
Á dögunum ræddum við hér í Síðdegisútvarpinu við Ásdísi Kristinsdóttur, forstöðumann verkefnastofu Borgarlínunnar og Bryndísi Friðriksdóttur svæðisstjóra Höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni um Borgarlínuna þ.e verkið sjálft og hvar það er statt. Við ætlum að halda áfram að ræða Borgarlínu í dag og samgöngur á höfuðborgarsvæðinu og fá til okkar Þorkel Sigurlaugsson varaborgarfulltrúa en hann er í...
12.desember 12.12.2023 1:54:00
Endómetríósa (legslímuflakk) er alvarlegur sjúkdómur sem veldur verkjum, ófrjósemi og skerðir lífsgæði. Vitundarvakning um sjúkdóminn hefur aukist, ekki síst vegna vandaðrar fræðslu á vegum Endósamtakanna. Jón Ívar Einarsson læknir framkvæmir aðgerðir við Edómetríósu en þessar aðgerðir hafa aukið lífsgæði hundruða kvenna á öruggan og hagkvæman hátt. Jón Ívar kemur til okkar á eftir og segir okkur...
11.desember 11.12.2023 1:54:00
Í nýrri skýrslu Waitrose- keðjunnar í Bretlandi um matar - og drykkjarneyslu þar í landi kemur fram að matarvenjur margra hafa breyst og venjurnar virðast haldast í hendur við breytt fyrirkomulag í vinnu og meiri hraða í nútímasamfélagi. Það virðist sem sagt vera á undanhaldi að borða morgunmat, hádgismat og kvöldmat í könnunni kemur fram að snakk og kex er algengt á milli mála og ennfremur kemur...
Síðdegisútvarpið 8. desember 08.12.2023 1:54:00
Það eru þau Hrafnhildur og Kristján Freyr sem sjá um Síðdegisútvarpið og ekki laust við að í þeim blundi smá föstudagur í dag! Á morgun verða haldnir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands í íþróttahúsinu Þykkvabæ - það væri nú ekki í frásögur færandi nema hvað að kvenfélagið Sigurvon í Þykkvabæ sér um kaffihlaðborðið og það er nú ekki af verri endanum. Við heyrum í Birnu Guðjónsdóttur formanni...
Síðdegisútvarpið 7. desember 07.12.2023 1:54:00
Áfangaheimilið Brú er að finna á Höfðabakka í Reykjavík en þar eru einstaklingsíbúðir fyrir öll kyn sem hafa lokið langtímameðferð á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti og leggja kapp á að byggja brú inn í framtíð án vímuefna, einn dag í einu. Í sumar var tilkynnt að til stæði að loka áfangaheimilinu eftir að Félagsbústaðir sem eru alfarið í eigu Reykjavíkurborgar sögðu upp leigusamningi við Samhjál...
Síðdegisútvarpið 6. desember 06.12.2023 1:54:00
Síðdegisútvarpið í dag er í umsjón Hrafnhildar og Kristjáns Freys. Í gær birtist grein á Vísi eftir Steinar B. Aðalbjörnsson næringarfræðing og forvarnarfulltrúa hjá Krabbameinsfélaginu undir yfirskriftinni : Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Þar fer Steinar yfir mikilvægi þess að aðgengi að hollum og næringarríkum mat sé gott og mikilvægt í baráttu við betri lýðheils...
5. desember 05.12.2023 45:00
Niðurstöður PISA-könnunar á hæfni og getu 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði voru birtar í morgun. Árangur íslenskra nemenda er undir meðallagi OECD og Norðurlandanna í öllum þáttum og fer versnandi. Jón Pétur Zimsen aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla kemur til okkar og við fáum viðbrögð við þessum niðurstöðum. Bíldælingar og aðrir íbúar á sunnanverðum Vest...
4.desember 04.12.2023 1:54:00
Síðdegisútvarpið heilsar á þessum ágæta mánudegi. Á eftir munum við senda út beint frá HM kvenna í handbolta þegar að Ísland og Angóla eigast við. Gunnar Birgisson kemur til okkar og lýsir leiknum í beinni. Þetta er þriðji leikur íslenska liðsins í D riðli og nokkuð ljóst að stelpurnar þurfa að gefa allt í leikinn í dag til að eiga möguleika á að halda áfram í mótinu. Gunnar fer yfir stöðuna með o...
30. nóvember 30.11.2023 45:00
Síðdegisútvarpið heilsar ykkur á fimmtudegi. Þátturinn verður í styttri kantinum í dag vegna landsleikjar í handbolta. En á eftir eigast við Slóvenía og Ísland á HM kvenna í handbolta. Leikurinn hefst klukkan 16:50 og verður honum lýst í beinni hér á Rás 2 og Gunnar Birgisson kemur til okkar á eftir til að gera það auk þess sem hann mun spá í spilin með okkur fyrir leikinn. Nú þegar að fyrsti sunn...
29.nóvember 29.11.2023 1:54:00
Í ár innritaðist metjöldi karla í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og við Háskóla Íslands en 26 karlar sóttu um námið og innrituðust. Við ætlum að heyra í Gísla Kort Kristóferssyni prófessor við Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri á eftir en hann hefur leitt vinnu í því að fjölga körlum í hjúkrunarfræði. Jónas Kristjánsson læknir oft kenndur við Náttúrulækningafélagið og heilsuhælið í...
28. nóvember 28.11.2023 1:54:00
Skipulagsmál eru sívinsælt viðfangsefni jafnt í daglegri umræðu sem og stjórnmálaumræðu og líður vart sá dagur þar sem þau eru ekki til umræðu í fjölmiðlum. Á morgun kemur út stórvirki í bókaútgáfu, Samfélag eftir máli, sem er heildstætt yfirlit yfir sögu skipulagsmála á Íslandi og þar rekur höfundurinn, Haraldur Sigurðsson skipulagsfræðingur, þróun bæjarskipulags á Íslandi frá því um aldamótin 19...
27.nóvember 27.11.2023 1:54:00
Í kvöld býður Ferðafélag Íslands til Háfjallakvölds þar sem haldið verður upp á 96 ára afmæli félagsins. Sérstakur heiðursgestur og fyrirlesari er einn frægasti háfjallagarpur heims, Garrett Madison frá Seattle í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann klifið Everest 11 sinnum, K2 þrisvar í 6 tilraunum, og síðastliðið vor bæði Nuptse og Lothse. Auk þess hefur hann klifið öll hæstu fjöll...
24. nóvember 24.11.2023 1:54:00
Það er síðdegisútvarpið sem heilsar á föstudegi, 24. nóvember. Í hljóðveri sitja þau Hrafnhildur og Kristján Freyr. Ef fólk hefur ekki tekið eftir því þá er svartur föstudagur í dag en hann verður vart myrkari heldur en í Góða hirðinum þar sem engin tilboð verða á boðstólum í dag, ekkert stress og engin læti. Heldur verða slökkt ljósin í búðinni og boðið upp á piparkökur og spil. Við heyrum í Frey...
23. nóvember 23.11.2023 1:54:00
Í dag fór hópur pípulagningameistara til Grindavíkur til að skoða hús með tilliti til skemmda á lögnum og til að lagfæra það sem til þarf og í verður komist . Böðvar Ingi Guðbjartsson er formaður félags pípulagningameistara og við hringjum í hann á eftir. Á 25 ára afmælisráðstefnu Samtaka ferðaþjónustunnar hélt Tryggvi Freyr Elínarson frá Datera erindi sem hafði yfirskriftina Munu tæknifyrirtæki t...
22.nóvember 22.11.2023 1:54:00
Ísraelsmenn hafa samþykkt fjögurra daga vopnahlé á Gaza en forsætisráðherra Ísraels sagði í gær að samkomulagið þýði ekki að stríðinu sé lokið. Samkomulagið felur í sér að gíslum verði sleppt og flutning hjálparganga til Gaza. Bjarni Pétur Jónsson fréttamaður kemur til okkar á eftir til að fara nánar yfir stöðuna fyrir botni miðjarðarhafs. Í Kastljósinu í gær var fjallað um aðstæður íslenskra kven...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.