Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ 600 episodes

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Author

Samstöðin

Category

News

Podcast website

samstodin.simplecast.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rauða borðið 11. feb - Staðsetning geðdeildar, Trumptíminn, Réttur er settur og trúverðugleiki 11.02.2026

Miðvikudagur 11. febrúar Staðsetning geðdeildar, Trumptíminn, Réttur er settur og trúverðugleiki Margir lýsa vaxandi áhyggjum af staðsetningu nýja Landspítalans. Hildigunnur Sverrisdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks ýmis álitaefni er tengjast staðsetningunni og mikilvægi geðverndar. Hún deilir jafnframt persónulegri sögu. Þau Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði, Bryndís Ísfold Hlöðv...

Græna borðið - 1. þáttur: Er náttúran munaðarlaus málstaður? 11.02.2026

Miðvikudagur 11. febrúar Græna borðið: Er náttúran munaðarlaus málstaður? Græna borðið er vettvangur umræðu um náttúruvernd og umhverfismál. Hópurinn sem stendur að baki þættinum telur að núverandi stjórnvöld sinni umhverfismálum og náttúruvernd lítið eða ekkert og fari beinlínis á svig við vilja kjósenda í stórum málum. Í fyrsta þættinum undir stjórn Páls Ásgeirs Ásgeirssonar var rætt um stöðu ná...

Rauða borðið 10. feb - Ofurkraftar, íslensk menning, sprúttsala og leiksskólar 10.02.2026

Þriðjudagur 10. febrúar Ofurkraftar, íslensk menning, sprúttsala og leiksskólar Ólafur Ævarsson geðlæknir heldur áfram greiningum á geðveiki og umræðu í samtali við Björn Þorláks. Þeir ræða mátt persónuleikans þegar andlegar krísur ógna heilsu fólks. Ólafur gefur hollráð á sama tíma og leitast er við að brjóta niður veggi fordóma og skammar. Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður, Ragnar Helgi...

Rauða borðið 9. feb - Afsögn Ástu Lóu, oddvitar, kjarasamningar, Bakkakot og Starmer 09.02.2026

Mánudagur 9. febrúar Afsögn Ástu Lóu, oddvitar, kjarasamningar, Bakkakot og Starmer Ásta Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins og fyrrum ráðherra gerir upp í samtali við Björn Þorláks dagana áður en hún lét af embætti. Hún segir að starfsfólk ráðuneytis hennar hafi aldrei mætt öðrum eins ágangi og vilja fjölmiðlafólks til að þefa uppi hneyksli. Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í b...

Synir Egils 8. feb - Framboð, börn, efnahagur og Epstein 08.02.2026

Sunnudagurinn 8. febrúar Synir Egils: Framboð, börn, efnahagur og Epstein Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingkona Pírata, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Andrea Sigurðardóttir blaðakona á Morgunblaðinu og ræða fréttir vikunnar og stöðu...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Benedikt Kristjánsson 07.02.2026

Laugardagur 7. febrúar Helgi-spjall: Benedikt Kristjánsson Benedikt Kristjánsson er tenór sem ungur vann afrek í sönglist sinni og hefur heldur bætt í eftir því sem liðið hefur á ferilinn. Hvaða sögu hefur hann að segja? Benedikt er gestur Björns Þorlákssonar í helgispjalli vikunnar.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 6 06.02.2026

Föstudagur 6. febrúar Vikuskammtur: Vika 6 Í Vikuskammt við Rauða borðið mæta í dag þau Árni Snævarr blaðamaður, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Kolfinna Baldvinsdóttir sagnfræðingur og kvikmyndagerðarkona og Þorkell Heiðarsson formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af uppljóstrunum, hneykslun, okurvöxtum, mótmælum, tuði og áköfum söluræðum.

Rauða borðið 5. feb - Rifist í þinginu, lagareldi, reynsluboltar og borgin þvert á flokka 05.02.2026

Fimmtudagur 5. febrúar Rifist í þinginu, lagareldi, reynsluboltar og borgin þvert á flokka Alþingismennirnir Bryndís Haraldsdóttir og Dagur B. Eggertsson tókust á um Evrópusambandið og Nató og öryggismál fyrir Ísland. Dagur telur að öryggi Íslands myndi aukast við aðild að Evrópusambandinu meðan Bryndís telur það fjarri lagi. Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur og Þorgerður María Þorbjarnardóttir h...

Sjávarútvegsspjallið - 75. þáttur: Makrílkvóti og fiskveiðistjórn 05.02.2026

Fimmtudagur 5. febrúar Sjávarútvegsspjallið - 75. þáttur Grétar Mar ræðir við Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar.

Rauða borðið 4. feb - Trump, listir, áfengi og Framsókn 04.02.2026

Miðvikudagur 4. febrúar Trump, listir, áfengi og Framsókn Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur ræða við Gunnar Smára áhrif Trump á hugmyndir okkar, bandarískt samfélag og heiminn. Stuðningur við listir er á undanhaldi. Skapandi greinum hefur verið hent út af borðinu. Fjölmörg börn eru á biðlista í tónlistarnámi. Ha...

Rauða borðið 3. feb - Forval Vg, íslensk menning, Inngrip vegna olíufélaganna og fjölmiðlar 03.02.2026

Þriðjudagur 3. febrúar Forval Vg, íslensk menning, Inngrip vegna olíufélaganna og fjölmiðlar Við hefjum leik á umræðu fjögurra frambjóðenda í VG. Átta vilja verða borgarfulltrúar VG í borgarstjórnarkosningum í vor. Auður Alfífa Ketilsdóttir, Finnur Ricart Andrason, Steinar Harðarson og Hlynur Már Ragnheiðarson sem gefa kost à sér í forvali, ræða við Björn Þorláks um framboðið, áherslur og möguleik...

Rauða borðið 2. feb - Tröllatími, Samfylkingin, ESB og öðruvísi ævistarf 02.02.2026

Mánudagur 2. febrúar Tröllatími, Samfylkingin, ESB og öðruvísi ævistarf Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um þokuna í heimsmálum. Þeir tveir ungliðar sem hlutu framgang í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík á dögunum vonast til að aukin þátttaka ungs fólks í stjórnmálum leiði til breytinga. Þau Stein Olav og Bjarnveig Birta ræða við Björn Þorláks. Fyrrverandi þingmen...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Kristján Jóhannsson 31.01.2026

Laugardagur 31. janúar Helgi-spjall: Kristján Jóhannsson Kristján Jóhannsson stórsöngvari er gestur okkar í Helgispjalli að þessu sinni. Hann er skemmtilegur og lífsglaður maður. Því er um að gera að hlusta samtalið. Ferillinn í óperuheiminum er ekki alltaf greiður og breiður. Sem betur fer eru „sigrarnir“ margfalt fleiri á glæstum söngferli Kristáns Jóhannssonar. Kristján rifjar upp skemmtilegar...

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 5 30.01.2026

Föstudagur 30. janúar Vikuskammtur: Vika 5 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Rut Reynisdóttir framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, Steinunn Rögnvaldsdóttir félags-og kynjafræðingur, Birkir Karl Sigurðsson hlaðvarpari og Reynir Traustason blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af sigrum, verðbólgu, framboðum, hótunum, deilum og nýjum hlutverkum.

Rauða borðið 29. jan - Reynsluboltar, heimsmálin, handbolti og Pétur Gunn 29.01.2026

Fimmtudagur 29. janúar Reynsluboltar, heimsmálin, handbolti og Pétur Gunn Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Valgerður Rúnarsdóttir læknir og Hallur Magnússon atvinnurekandi ræða fréttir og þjóðmál líðandi stundar. Verk ríkisstjórnar, verðbólgu, handbolta og stöðu íslenskunnar ber á góma. Björn Þorláks hefur umsjón með umræðunni. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir heimsmálin, friðarviðræð...

Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 74: Hafrannsóknir í tímanna rás 29.01.2026

Fimmtudagur 29. janúar Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 74 Guðlaugur Jónasson og Björn Ólafsson, fiskitæknir eru gestir Grétars að þessu sinni og ræða þeir hafrannsóknir og vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunnar.

Rauða borðið 28. jan - Trump, lögfræði, Ormstunga og Myrkir músíkdagar 28.01.2026

Miðvikudagur 28. janúar Trump, lögfræði, Ormstunga og Myrkir músíkdagar Nichole Leigh Mosty doktorsnemi, Magnús Helgason sagnfræðingur, Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og Ólafur Þ. Harðarson prófessor fara yfir vikuna hjá Donald Trump með Gunnari Smára og um hvernig verk hans og orð hafa áhrif á samfélagið, heiminn og hugmyndir okkar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir meint svindl í handbolta, hark...

Rauða borðið 27. jan - Jarðhræringar, menning, gervigreind, flóttafólk og blankt listafólk 27.01.2026

Þriðjudagur 27. janúar Jarðhræringar, menning, gervigreind, flóttafólk og blankt listafólk Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur gagnrýnir harðlega hvernig ráðandi hafi ýtt gagnrýnum röddum frá umræðuborðinu vegna Reykjaneselda. Hann ræðir Grindavík og örlög bæjarins sérstaklega. Þetta kemur fram í snörpu viðtali Björn Þorláks. Björn Þorsteinsson heimspekingur, Viktoría Blöndal höfundur og leikst...

Rauða borðið 26. jan - ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland 26.01.2026

Mánudagur 26. janúar ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Thomas Möller ráðgjafi eru ósammála um hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið. Þau brýna rök sín í spjalli við Gunnar Smára. Ásdís Bergþórsdóttir sálfræðingur efast um að bann á snjallsíma- og samfélagsmiðlanotkun barna muni bæta líða barna, heldur jafnvel auka vanlíðan hjá hópi barna...

Bridgeþátturinn - Stórmót fram undan 25.01.2026

Sunnudagurinn 25. janúar Bridgeþátturinn - Stórmót framundan Tvö epísk briddsstórmót fara fram eftir helgi. Annars vegar Reykjavík Bridge Festival í Hörpu og hins vegar WBT stjörnufansinn. Dagbjört Hannesdóttir og Magnús E. Magnússon briddsspilarar ræða í samtali við Björn Þorláks spennandi tíma í briddsíþróttinni hér á landi.

Synir Egils 25. jan - Pólitísk átök, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd 25.01.2026

Sunnudagurinn 25. janúar Synir Egils: Pólitísk átök, innan flokka og utan, heimsveldi, veikt alþjóðakerfi og breytt heimsmynd Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Kjartan Sveinsson formaður Landssambands smábátaeigenda og María Sigrún Hilmarsdóttir...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Davíð Þór 24.01.2026

Laugardagur 24. janúar Helgi-spjall: Davíð Þór Davíð Þór Jónsson prestur segir okkur frá sjálfum sér, sigrum, baráttu og lægðum, æsku, uppruna og mótunarárum.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 4 23.01.2026

Föstudagur 23. janúar Vikuskammtur: Vika 4 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Bjarki Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðingur, Elín Írís Fanndal varaþingmaður Flokks fólksins, Halldór Tinni Sveinsson framkvæmdastjóri og Sólveig Ásta Sigurðardóttir nýdoktor og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af óreiðu, mismælum, stífum fundarhöldum, framboðum og flokkaflakki.

Rauða borðið 22. jan - Breiðavík, skólamál, reynsluboltar, Miðflokkurinn, ástarkraftur og Stuðlar 22.01.2026

Fimmtudagur 22. janúar Breiðavík, skólamál, reynsluboltar, Miðflokkurinn, ástarkraftur og Stuðlar Ari Alexander Ergis Magnússon, Bárður Jónsson og Bergsteinn Björgúlfsson mættu í viðtal til Sigurjóns Magnúsar til að ræða um Breiðuvík, þar sem Bárður var geymdur sem barn. Sögur úr Breiðuvík voru rifjaðar upp. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir Sjálfstæðisflokki og Skúli Helgason Samfylkingunni ræða sk...

Miðvikudagur 21. janúar - Vinstrið, velsæld, Trump, svefnlyf og gremjulegur karl 21.01.2026

Miðvikudagur 21. janúar Vinstrið, velsæld, Trump, svefnlyf og gremjulegur karl Vg og Vor til vinstri, hópur í kringum Sönnu Magdalenu Mörtudóttir, ætla að bjóða saman lista í borgarstjórnarkosningunum í vor. Sanna kemur að Rauða borðinu ásamt Rakel Hildardóttur, Rósu Björk Brynjólfsdóttur og Steinari Harðarsyni og ræðir við Gunnar Smára um borgarpólitíkina. Þau Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræði...

Listen to the Samstöðin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.