Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Græna borðið 4. þáttur - Ísland er ekki orkueyja 04.03.2026 59:42
Miðvikudagur 4. mars Græna borðið 4. þáttur - Ísland er ekki Orkueyja Græna borðið: Ísland er ekki orkueyja, eins og stjórnvöld og Landsvirkjun halda fram, segir fyrsti umhverfisráðherra lýðveldisins Júlíus Sólnes. Hann segir löngu tímabært að loka álverinu í Straumsvík sem sé komið inn í miðja byggð og barn síns tíma. Júlíus vill efla menntakerfi í þágu atvinnulífs, í stað þess að byggja á gamald...
Rauða borðið 2. mars - Íran, skjánotkun barna, breskir græningjar og máttur sögunnar 02.03.2026 2:59:13
Mánudagur 2. mars Íran, skjánotkun barna, breskir græningjar og máttur sögunnar Innrásarstríð Bandaríkjanna og Ísrael í Íran hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með heimsmálunum. María Lilja fær til sín þau Kjartan Orra Thorsson Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Íran, Anahita Babaei aðgerðarsinna frá Íran og Magneu Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðing til að ræða stöðuna. Þa...
Synir Egils 1. mars - Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt 01.03.2026 2:01:03
Sunnudagurinn 1. mars Synir Egils: Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt Að venju verður farið yfir helstu fréttir líðandi stundar með góðum gestum. Rætt um nýja frambjóðendur og þá líka sem flokkar hafna. Ekki síst hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík þar sem reyndum borgarfulltrúum er fórnað fyrir nýja. Meðal helstu frétta sem verða til umfjöllunar eru 60 milljarða stað...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Oddný Harðar 28.02.2026 2:02:10
Laugardagur 28. febrúar Helgi-spjall: Oddný Harðar Oddný G. Harðardóttir ræðir lífshlaup sitt og feril og kryfur í leiðinni samnfélagið. Oddný er fyrrverandi þinkgkona og ráðherra en lætur samfélagið sig miklu varða. Björn Þorláksson ræðir við hana.
Föstudagur 27. febrúar: Vikuskammtur: Vika 9 27.02.2026 1:01:03
Föstudagur 27. febrúar Vikuskammtur: Vika 9 Gestir að þessu sinni eru þeir: Óli Dóri, plötusnúður og athafnamaður Davíð Roach, fjölmiðlamaður Þorsteinn V. Einarsson, karlmaður og Bragi Páll, rithöfundur. Í vikunni sem leið var ýmislegt að frétta. Eins og td: Viðtal Þóru Tómasdóttur við Margrét Löf, sem varð föður sínum að bana, flokkarnir héldu áfram að birta lista fyrir sveitastjórnir, dóru björt...
Fimmtudagur 26. febrúar: Reynsluboltar, Vinstrið, Bekkurinn, Kúba og lífsorka 26.02.2026 4:24:36
Fimmtudagur 26. febrúar Reynsluboltar, Vinstrið, Bekkurinn, Kúba og lífsorka Reynsluboltar í kvöld ræða þjóðmál og fréttir. Þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Páll Valsson rithöfundur og Jón Trausti Reynisson, blaðamaður á Heimildinni spjalla um umdeild efnistök Rúv í morðmáli og fleira. María Lilja fær til sín Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Líf Magneudóttur til samtals á stöðu vinstrisins í upp...
Rauða borðið 25. feb - Trumptíminn, pólitíkin í Englandi, fákeppni, spilling og búsvæðing 25.02.2026 3:46:03
Miðvikudagur 25. febrúar Trumptíminn, pólitíkin í Englandi, fákeppni, spilling og búsvæðing Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Magnús Helgason, sagnfræðingur mæta í Trumptímann sem er í umsjón Maríu Lilju að þessu sinni. Guðmundur Auðunsson, heiðursfréttaritari Samstöðvarinnar í Englandi ræðir við Maríu Lilju um vendingar í pólitíkinni ytra í kjölf...
Græna borðið - 3. þáttur: Alþingi hefur brugðist 25.02.2026 57:44
Miðvikudagur 25. febrúar Græna borðið - 3. þáttur: Alþingi hefur brugðist Umhverfis orku og auðlindaráðherra ber ekki virðingu fyrir niðurstöðum rammaáætlunar og tekur ákvarðanir sem byggja ekki á þekkingu og heildarsýn. Landsvirkjun beitir þrýstingi til að breyta niðurstöðum rammaáætlunar. Gestir 3. þáttar Græna borðsins voru Stefán Gíslason, fyrrverandi formaður verkefnisstjórnar rammaáætlunar,...
Rauða borðið 24. feb - Höfuðborgarsvæðið, lagaleg álitamál, landsbyggðir, Íran og gervigreind 24.02.2026 4:03:02
Þriðjudagur 24. febrúar Höfuðborgarsvæðið, lagaleg álitamál, landsbyggðir, Íran og gervigreind Gunnar Salvarsson ræðir við Sigurjón Magnús um breytingar á höfuðborgarsvæðinu. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitamál og réttarheimspeki þar sem mál Margrétar Löf kemur meðal annars við sögu og viðtal við hana á Rúv í gær. Doktor Þóroddur Bjarnason ræðir byggðir landsins í tengslum við tæknium...
Rauða borðið 23. feb - Virkir í athugasemdum, íslenskan, Mamma, hamfaratónlist og umhverfismál 23.02.2026 4:06:01
Mánudagur 23. febrúar Virkir í athugasemdum, íslenskan, Mamma, hamfaratónlist og umhverfismál Einar Steingrímsson, stærðfræðingur og virkur í athugasemdum ræðir við Maríu Lilju um mann -og kvenréttindi og umræðuhefðina á netinu. Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla blandar sér í leik þeirra sem vilja ræða stöðu íslenskunnar í samtali við Björn Þorláks. Kolbeinn Þorsteinsson rifjar upp erfiða æ...
Bridgeþátturinn - Kempur og nýliðar 22.02.2026 46:16
Sunnudagurinn 22. febrúar Bridgeþátturinn - Kempur og nýliðar Systkinin Bæring og Harpa Henrysbörn lýsa reynslu sinni af því að keppa á stórmóti í bridds sem nýliðar í íþróttinni. Ljósbrá Baldursdóttir og Matthías Þorvaldsson eru hjón og samherjar í bridds. Björn Þorláks hefur umsjá með umræðunni.
Synir Egils 22. feb - Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin 22.02.2026 1:54:52
Sunnudagurinn 22. febrúar Synir Egils: Börn, glæpir, efnahagsmál, flokkar og heimsmálin Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Drífa Snædal talskona Stígamóta, Brynjar Níelsson lögfræðingur og fyrrum þingmaður og Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar og ræða fréttir vikunnar o...
Rauða boðið: Helgi-spjall: Arna Magnea 21.02.2026 2:39:09
Laugardagur 21. febrúar Helgi-spjall: Arna Magnea Danks Arna Magnea Danks leikkona, áhættuleikari og aktivisti segir frá æsku sinni og uppruna, afleiðingum þess að fæðast sem stelpa í líkama stráks, dugnaðinum sem hún erfði frá foreldrum sínum höfnuninni sem hún upplifði, áföllum og sigrum.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 8 20.02.2026 1:40:02
Föstudagur 20. febrúar Vikuskammtur: Vika 8 Í Vikuskammt við Rauða borðið mæta í dag þau Borgar Magnason tónskáld og bassaleikari, Lína Thoroddsen klippari, Pétur Ben tónlistarmaður og Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá Alþýðusambandinu og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af falli úr háum söðli, stéttakúgun, illri meðferð á börnum, hótunum um hernað, átökum og ásökunum.
Rauða borðið 19. feb - Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur 19.02.2026 4:10:55
Fimmtudagur 19. febrúar Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur Við hefjum leik á mengaðri borg. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Diljá Ámundadóttir, móðir langveiks barns og Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks ræða svifryk og fleira, stöðuna og úrbætur. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, Ágúst Borgþór Sverrisson fréttastjóri DV og Björ...
Græna borðið 2. þáttur - Laxeldi í sjókvíum: bölvun eða búhnykkur? 19.02.2026 1:02:58
Miðvikudagur 18. febrúar Græna borðið: Laxeldi í sjókvíum Í öðrum þætti af Græna borðinu setjast menn niður og skiptast á skoðunum um væntanlegt frumvarp um lagareldi. Páll Ásgeir Ásgeirsson stjórnaði þættinum en við borðið sátu: Jón Kaldal sem hefur látið til sín taka í umræðu um laxeldi undanfarin misseri. Þar sat einnig Arnar Pálsson erfðafræðingur sem er sérfróður um margt sem lýtur að laxfisk...
Rauða borðið 18. feb - Vændi, ill meðferð á börnum, áfengi, Trump, VG og sniðganga 18.02.2026 5:07:59
Miðvikudagur 18. febrúar Vændi, ill meðferð á börnum, áfengi, Trump, VG og sniðganga Jón Gnarr þingmaður og Guðný S. Bjarnadóttir stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi ræða við Gunnar Smára um vændi, slaufun, ábyrgð og annað sem tilheyrir umræðunni um átök milli kynjanna. Gunnar Sigurðsson leikstjóri og ferðaþjónustuaðili segir sögu sína í samtali við Björn Þorláks en Gunnar va...
Rauða borðið 17. feb - Börn, Kúba, áföll, íslensk menning og húmanismi 17.02.2026 5:07:15
Þriðjudagur 17. febrúar Börn, Kúba, áföll, íslensk menning og húmanismi Doktor Ársæll Arnarsson setur Bakkakotsmálið í samhengi í spajlli við Björn Þorláks. María Lilja ræðir við Tamilu Gaméz Garcell, kennara um ástandið á Kúbu en þar ríkir mikil mannúðarkrísa. Áföll og aðstandendur verða helsta umræðuefni doktors Ólafs Ævarssonar geðlæknis og Björns Þorlákssonar í fjórða þætti þeirra félaga um ge...
Rauða borðið 16. feb - Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa 17.02.2026 5:05:47
Mánudagur 16. febrúar Rósin, fjölmiðlar, eitruð karlmennska, kynlífssiðfræði, veikindaréttur, Trump-Evrópa Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður landsfélagsins Rósarinnar, aðildarfélags Samfylkingarinnar og formaður Afstöðu ræðir mögulegt klofningsframboð í Reykjavík en fulltrúum Rósarinnar var hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þórhallur Gunnarsson blaðamaður...
Synir Egils 15. feb - Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin 15.02.2026 2:32:20
Sunnudagurinn 15. febrúar Synir Egils: Ógnargróði, verðbólga, öryggi, spilling, bráðavaktin Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Pawel Bartozsek formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og ræða f...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Bjarni Harðar 14.02.2026 2:04:10
Laugardagur 14. febrúar Helgi-spjall: Bjarni Harðar Bjarni Harðarson bóksali er gestur vikunnar í helgi-spjalli Samstöðvarinnar. Hann hefur sett mark sitt á menningar- og útgáfumál og var um tíma þingmaður svo fátt eitt sé nefnt. Björn Þorláks ræðir við Bjarna.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 7 13.02.2026 1:23:57
Föstudagur 13. febrúar Vikuskammtur: Vika 7 Í Vikuskammti föstudaginn 13. febrúar ræða fréttir vikunnar þau Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður, Hallur Magnússon atvinnurekandi, Hanna Kristín Skaftadóttir háskólakennari á Bifröst og Elva Dögg Hafberg uppistandari. Umræðuefni verða ásamt fleiru ofsagróði bankanna, mölvuð heilbrigðisþjónusta, umhverfismál, formannsslagur í Framsókn, Kúba, ólga á Bifrö...
Rauða borðið 12. feb - Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan 12.02.2026 4:32:40
Fimmtudagur 12. febrúar Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan Nýs formanns Framsóknarflokksins, sem kosinn verður um helgina, bíður það erfiða verkefni að reisa flokkinn við til fylgis við nýja tíma. Flokkurinn er í kreppu og mælist með lágt fylgi. Af er sem áður var í þeim efnum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fer yfir samtímann og sögu flokksins í spjalli við Björn Þ...
Sjávarútvegsspjallið 76. þáttur - Strandveiðikvóti 12.02.2026 1:05:23
Fimmtudagur 12. febrúar Sjávarútvegsspjallið - Strandveiðikvóti Grétar Mar og Ólafur "ufsi" Jónsson ræða við innviðaráðherra, Eyjólf Ármannsson, um Strandveiðikvóta og önnur kvótamál.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.