Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rauða borðið 19. jan - Reykjavík, okur, borgarpólitík og gagnrýni 19.01.2026 4:02:28
Mánudagur 19. janúar Reykjavík, okur, borgarpólitík og gagnrýni Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Guðmundur Ingi Þóroddsson, Magnea Marinósdóttir og Sara Björg Sigurðardóttir bjóða sig öll fram í prófkjöri Samfylkingarinnar, vilja komast þar á lista, í 2. eða 3. sæti. Gunnar Smári ræðir við þau um borgina, pólitíkina og flokkinn. Runólfur Ólafsson hjá FÍB ræðir bílastæ...
Synir Egils 18. jan - Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði 18.01.2026 2:33:20
Sunnudagurinn 18. janúar Synir Egils: Afsögn, dómsmál, heilbrigði, heimsmál og húsnæði Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur og Lára Zulima Ómarsdóttir upplýsingafulltrúi og ræða frét...
Föstudagur 16. janúar - Vikuskammtur: Vika 3 16.01.2026 1:29:30
Föstudagur 16. janúar Vikuskammtur: Vika 3 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Gunnar Hersvein heimspekingur, Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Jovana Pavlović mannfræðingur og Sara Riel myndlistarkona og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af hótunum, deilum, mislukkuðu spaugi, mótmælum, von og voðaverkum.
Rauða borðið - Helgi-spjall: KK 16.01.2026 3:09:22
Laugardagur 17. janúar Helgi-spjall: KK Kristján Kristjánsson, KK, kemur að Rauða borðinu með gítarinn sinn og munnhörpu og segir og syngur sögu sína, heimspeki sína og skoðanir í helgi-spjalli við Gunnar Smára
Rauða borðið 15. jan - Jákvæðni, Grænland, handbolti, harmleiki, brennivín 15.01.2026 4:37:07
Fimmtudagur 15. janúar Jákvæðni, Grænland, handbolti, harmleiki, brennivín Hjálmar Gíslason frumkvöðull bregst við gagnrýni á áherslur hans sem hann hefur lýst opinberlega um að heimurinn sé betri en við fáum veður af í gegnum fjölmiðla. Björn Þorláks ræðir við Hjálmar. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um sjáfstæði Grænlands og Úkraínu, nábúa stórvelda, fallandi Nató og hvert...
Miðvikudagur 14. janúar: Oddvitaslagur, geðraskanir, Trump, lögfræði og pottormar 14.01.2026 4:45:00
Miðvikudagur 14. janúar Oddvitaslagur, geðraskanir, Trump, lögfræði og pottormar Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur H. Marteinsson vilja bæði leiða Samfylkinguna í komandi borgarstjórnarkosningum. Þau segja Gunnari Smára og Birni Þorláks hvers vegna, fyrir hvað þau standa og hvers vegna fólk ætti að kjósa annað frekar en hitt. Ólafur Ævarsson geðlæknir og Björn Þorláksson fjölmiðlamaður leggja spil...
Rauða borðið 13. jan - Múslimar, leikskólar, Andalúsía, tónlistarnám 13.01.2026 2:48:54
Þriðjudagur 13. janúar Múslimar, leikskólar, Andalúsía, tónlistarnám Árni Þór Þórsson prestur innflytjenda ræðir við Gunnar Smára um andúð gegn innflytjendum, kristin gildi og reynslu hans sem prest innflytjenda og áður prest í Vík í Mýrdal, sem er sú sókn í landinu sem hefur hlutfallslega flesta innflytjendur. Svava Björg Mörk, dósent á Menntavísindasviði HÍ, ræðir við Sigurjón Magnús um mikinn s...
Rauða borðið 12. jan - Fjölmiðlar, Svíþjóð, drykkja, klassík og skólamál 12.01.2026 4:21:35
Mánudagur 12. janúar Fjölmiðlar, Svíþjóð, drykkja, klassík og skólamál Logi Einarsson ráðherra ræðir fjölmiðla og fjölmiðlastyrki. Hvernig bregst hann við ásökunum um að styrkjafyrirkomulagið þjóni einkum auðugum eigendum fjölmiðla en litlir miðlar í almannaeigu eins og Samstöðin séu skildir eftir. Gunnar Smári Egilsson og Björn Þorláksson ræða við ráðherrann. Steingrímur Jónsson sveitarstjórnarma...
Synir Egils 11. jan - Oddvitar, hótanir, Evrópa, Grænland og Trump 11.01.2026 2:31:21
Sunnudagurinn 11. janúar Synir Egils: Oddvitar, hótanir, Evrópa, Grænland og Trump Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði, Vigdís Häsler lögfræðingur og Þóra Arnórsdóttir forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun og ræðir...
Föstudagur 9. janúar: Vikuskammtur: Vika 2 09.01.2026 1:33:47
Föstudagur 9. janúar Vikuskammtur: Vika 2 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Arna Magnea Danks leikkona, Atli Bollason myndlistarmaður, Ingunn Fjóla Brynjólfsdóttir efnishönnuður og Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af landvinningum og mannránum, ráðherrakapal og oddvitaslag, fínum veislum, verðbólgu og okri.
Rauða borðið 8. jan - Reynsluboltar, vonda ESB, Tourette og sönglög 08.01.2026 4:09:19
Fimmtudagur 8. janúar Reynsluboltar, vonda ESB, Tourette og sönglög Oddný Harðardóttir fyrrum þingmaður og ráðherra, Halldór Guðmundsson menningarfrömuður og Steingerður Steinarsdóttir blaðamaður taka púlsinn á fréttum líðandi stundar og tíðaranda. Alþjóðamálin, ESB, staða íslenskunnar, bókajólin að baki og prófkjör verða til umræðu. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ögmundur Jónasson fyrrverandi þi...
Sjávarútvegsspjallið 8. jan. - Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson 08.01.2026 1:08:09
Sjávarútvegsspjallið 8. jan. Grétar Mar Jónsson ræðir við Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson.
Rauða borðið 7. jan - Trump, fasteignir, innflytjendur og vandræðaskáld 07.01.2026 3:44:15
Miðvikudagur 7. janúar Trump, fasteignir, innflytjendur og vandræðaskáld Sveinn Máni Jóhannesson doktor í sagnfræði, Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi, Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði koma í Trumptímann og ræða við Gunnar Smára um Donald Trump og áhrif hans á heiminn og hugmyndir okkar. Hækkun fasteignaverðs hefur verið lygileg síðustu ár en árið í fyrra var þó undantekning. Árið...
Rauða borðið 6. jan - Ógnin af Trump, sveitarstjórnarpólitík, skuggar í nýjum húsum og vistarbönd 06.01.2026 3:51:31
Þriðjudagur 6. janúar Ógnin af Trump, sveitarstjórnarpólitík, skuggar í nýjum húsum og vistarbönd Baldur Þórhallsson prófessor ræðir stöðu Íslands eftir aðgerðir Trumstjórnarinnar í Venesúela við Gunnar Smára. Hvað merkir það fyrir Ísland að vera á skilgreindu áhrifasvæði Bandaríkjanna. Sara Björg Sigurðardóttir, Samfylkingunni og Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki, takast á um stjórnmál í uppt...
Rauða borðið 5. jan - Enginn fréttatími, Venesúela, maður ársins, Íran og Kína 05.01.2026 3:56:13
Mánudagur 5. janúar Enginn fréttatími, Venesúela, maður ársins, Íran og Kína Við byrjum á að ræða aðgerðir menntamálaráðherra sem hafa kippt fótunum undan fréttatíma Samstöðvarinnar. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur fer yfir aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela í samtali við Gunnar Smára, hverjar verða afleiðingarnar fyrir fólk í Venesúela. Eða á Grænlandi og okkur hér upp á Íslandi? Guðmundur...
Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning 04.01.2026 2:45:25
Synir Egils 4. jan: Árásir, kjarakrísa, pólitík og menning Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Guðmundur Hálfdanarson prófessor í sagnfræði og ræða stríð og friður í upphafi árs, lífskjör, efn...
Rauða borðið 18. des - ESB eða ekki, Reynsluboltar, list, trú, Sjálfstæðisflokkurinn og íslenskan 18.12.2025 5:30:43
Fimmtudagur 18. desember ESB eða ekki, Reynsluboltar, list, trú, Sjálfstæðisflokkurinn og íslenskan Magnús Skjöld fyrir hönd Evrópuhreyfingarinnar sem vill inngöngu Íslands í ESB og Haraldur Ólafsson Heimssýn sem berst gegn inngöngu í ESB ræða kosti og galla aðildar Íslendinga að ESB. Björn Þorláks stýrir rökræðunni. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður...
Rauða borðið 17. des - Samfylkingin og innflytjendur, skáldkonur, Ástu Lóu-málið og íslenskan 18.12.2025 4:29:54
Miðvikudagur 17. desember Samfylkingin og innflytjendur, skáldkonur, Ástu Lóu-málið og íslenskan Við byrjum Rauða borði á spjalli þeirra bræðra, Sigurjóns Magnúsar og Gunnars Smára. Síðan Sabine Leskopf borgarfulltrúi hættir senn störfum en hún er ekki sátt við hvernig flokkur hennar, Samfylkingin, heldur á spilunum í útlendingamálum. Björn Þorláks ræðir við hana. Skáldkonurnar Natasha S., Birgitt...
Rauða borðið 16. des - Veður, hægribylgja, loftslag, áföll og cóvid 16.12.2025 5:11:57
Þriðjudagur 16. desember Veður, hægribylgja, loftslag, áföll og cóvid Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur rekur hamfaraveðrið í snjóflóðunum í Súðavík og hvort veðurfræðingar hefðu getað gert betur. Þá spáir Einar ítarlega um jólaveður landsmanna, ekki síst með liti til færðar um vegi landsins og fer yfir árið 2025 veðurfarslega, innanlands sem utan. Björn Þorláks ræðir við hann. Eiríkur Bergmann...
Rauða borðið 15. des - Týnd börn, stjórnmál, hávaði, sjálfsvíg og tónlist 15.12.2025 4:09:42
Mánudagur 15. desember Týnd börn, stjórnmál, hávaði, sjálfsvíg og tónlist Jón K. Jacobsen, faðir drengsins sem dó á Stuðlum, ræðir við Björn Þorláks um börnin sem kerfið virðist hunsa. Tilefni viðtalsins er sláandi viðtal við mæðgin í síðustu viku hér á Samstöðinni um fíkn, geð, úrræði og úrræðaleysi. Hann ræðir dapurleg örlög margra barna og ungmenna sem eru vistuð á Stuðlum og meðferðarúrræðið Y...
Synir Egils 14. des - Samgöngur, fæðingarorlof, EES, Trump, Evrópa og þingið 14.12.2025 2:32:19
Sunnudagurinn 14. desember Synir Egils: Samgöngur, fæðingarorlof, EES, Trump, Evrópa og þingið Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Mogganum, Benedikt Erlingsson leikstjóri og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða fréttir vikunnar og á...
Föstudagur 12. desember - Vikuskammtur: Vika 50 12.12.2025 1:32:03
Föstudagur 12. desember Vikuskammtur: Vika 50 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Hrafnhildur Gunnarsdóttir leikstjóri, Teitur Atlason starfsmaður Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Vera Wonder Sölvadóttir leikstjóri og Þórdís Gísladóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stórkarlalegum yfirlýsingum, nýjum og gömlum hneykslismálum, dagsskrárlegum ákvörðunum, afsökuna...
FRÉTTATÍMINN 11. desember 11.12.2025 1:07:06
Fimmtudagur 11. desember FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Laufey Líndal segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?
Rauða borðið 11. des - Börn í vanda, reynsluboltar, lögfræði, Evrópa og áfengi um jól 11.12.2025 4:23:42
Fimmtudagur 11. desember Börn í vanda, reynsluboltar, lögfræði, Evrópa og áfengi um jól Grímur Atlason hjá Geðvernd bregst við máli drengsins Hjartar og móður hans, Hörpu Henrýsdóttur, sem Samstöðin fjallaði um í gær. Grímur segir í samtali við Björn Þorláks mikið vanta upp á að börn sem lendi í geðheilbrigðisvanda séu varin. Oddný Harðardóttir, fyrrum fjármálaráðherra og þingmaður, Lárus Guðmunds...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.