Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rauða borðið 21. maí - Gaza, Reynsluboltar, misskipting, Nigel Farage, arkítektúr, Færeyjar og bridge 21.05.2025 4:43:06
Miðvikudagur 21. maí Gaza, Reynsluboltar, misskipting, Nigel Farage, arkítektúr, Færeyjar og bridge Í byrjun þáttar fer María Lilja yfir það helsta sem er að frétta af þjóðarmorðinu á Gaza. Reysluboltar Sigurjóns M eru á sínum stað. Þau Hörður Torfason - Ragnheiður Davíðsdóttir - Drífa Sigfúsdóttir ræða ýmis hitamál. Vaxtalækkun Seðlabankans mun ekki endilega gera hlutskipti leigjenda bærilegra, d...
Rauður raunveruleiki - Lagabreytingartillögur Sósíalista á Akureyri um svæðisfélög 20.05.2025 23:34
Við ræðum við félagsmenn Sósíalistaflokksins í NA kjördæmi sem hafa lagt fram lagabreytingartillögu um svæðisfélög fyrir komandi aðalfund flokksins 24. maí. Karl Héðinn Kristjánsson ræðir við þá Ara Orrason, Guðberg Egill Eyjólfsson og Jón Þór Sigurðsson um lagabreytingartillögu þeirra og sósíalista á Akureyri.
Rauða borðið 19. maí: Gaza, geðheilsa, málþóf, óþekkti þingmaðurinn, sósíalismi og torfbær 19.05.2025 5:16:24
Rauða borðið 19. maí Gaza, geðheilsa, málþóf, óþekkti þingmaðurinn, sósíalismi og torfbær Ennþá versnar ástandið á Gaza, María Lilja fylgist náið með næstu daga. Í kvöld fær hún til sín Kötlu Ásgeirsdótttur, plötusnúð og aktívista og fara þær yfir nýjustu fréttir. Þá er endurflutt ræða Páls Óskars frá liðinni helgi. Ræðan var frumflutt á baráttufundi fyrir frelsi Palestínu fyrir gesti við Austurvö...
Rauður raunveruleiki - Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð 19.05.2025 14:23
Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð er kynnt í þættinum af Karli Héðni Kristjánssyni, Sigurrós Eggertsdóttur og Sigurði Erlends Guðbjargarsyni. Það er skýrt ákall um breytingar á Samvisku og við teljum að tillaga okkar sé skref í rétta átt. Næsta fimmtudag munum við kynna lagabreytingartillögu okkar. Opin umræða og gagnrýnar spurningar eru velkomnar. Verið hjartanlega velkomin á k...
Synir Egils 18. maí: Þjóðarmorð, söngur, löggur, stríð og fasismi 18.05.2025 1:46:23
Sunnudagurinn 18. maí Synir Egils: Þjóðarmorð, söngur, löggur, stríð og fasismi Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengsl, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi og Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og ræða allt nema veðrið og svo fa...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Andri Snær 17.05.2025 2:09:45
Laugardagur 17. maí Helgi-spjall: Andri Snær Andri Snær Magnason rithöfundur segir frá nýjustu ævintýrum sínum í Himalajafjöllum og Feneyjum og fer yfir feril sinn sem rithöfundur og aðgerðarsinni.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 20 16.05.2025 1:26:20
Föstudagur 16. maí Vikuskammtur: Vika 20 Í frjálst spjall út frá fréttum vikunnar mæta þau Brynhildur Björnsdóttir, kabarett-söngkona og höfundur bókarinnar Venjulegar konur -vændi á Íslandi, Arnar Eggert Thoroddsen, félagsfræðingur við Háskóla Íslands og Sigrún Sandra Ólafsdóttir, textíl-sóunar og fata-neyslufræðingur og Ágúst Borgþór Sverrisson, rithöfundur og fréttastjóri Dv og fara yfir frétti...
Rauða borðið 15. maí Trump, Vesturbugt, kvíði, Starmer, skoðanakúgun og kynjaþing 15.05.2025 4:00:09
Fimmtudagur 15. maí Trump, Vesturbugt, kvíði, Starmer, skoðanakúgun og kynjaþing Eiríkur Bergmann prófessor ræðir áhrif Trump á stjórnmálin utan Bandaríkjanna við Gunnar Smára. Gunnar Smári ræðir hverfið sem byggja á vestan við Slippinn við Reykjavíkurhöfn við Ástu Olgu Magnúsdóttur, íbúa á svæðinu og verkefnastjóra, Egil Sæbjörnsson, myndlistarmann og aðgerðasinna í byggingarlist og Pál Jakob Lín...
Auðlindin - 15. maí 15.05.2025 55:52
Fimmtudagur 15. maí Auðlindin Gestir: Heiða Guðný Ásgeirsdóttir bóndi í Sveinungsvík í Þistilfirði, Haukur S Magnússon tónlistamaður og vert á Messanum Ísafirði, Aðalsteinn Baldursson verkalýðsfrömuður á Húsavík, Eyþór Stefáns, sjómaður á Borgarfirði eystri og bæjarfulltrúi í Múlaþingi og Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Hvað er að frétta? Fyrir norðan er það ekki síst að það hri...
Sjávarútvegsspjallið - 50. þáttur: Brottkast og framhjálöndun 15.05.2025 1:04:22
Sjávarútvegsspjallið - 50. þáttur: Brottkast og framhjálöndun Grétar Mar spjallar við Þórólf Júlían Dagsson og Gísla Gíslason.
Rauða borðið 14. maí - Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan 14.05.2025 4:18:31
Miðvikudagur 14. maí Trump, náttúra, vinstrið, reynsluboltar, norðurslóðir og blíðan Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um ferð Trump til Sádí Arabíu og nágrannalanda og um mögulegar friðarviðræður í Istanbúl á morgun. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir Oddnýju Eir hvernig þrengt er að starfi frjálsra félagasamtaka í náttúruvernd. Einar Már Jónsson, sa...
Rauða borðið 13. maí - Fordómar, njósnir, arkitektúr, fegurð, dýravernd og félagsvandi fíkniefna 13.05.2025 4:15:31
Þriðjudagur 13. maí Fordómar, njósnir, arkitektúr, fegurð, dýravernd og félagsvandi fíkniefna Við hefjum Rauða borðið á samræðu um leigubílamálið; Íslendingur að nafni Navid Nouri segir svo komið að honum sé ekki stætt að stunda akstur leigubíls, líkt og hann hefur gert að atvinnu í nokkur ár, vegna aukinna fordóma í samfélaginu. Eiginkona Navids, Nanna Hlín Halldórsdóttir mætti með honum til Marí...
Rauða borðið 12. maí - Trillusjómenn, spilling, fjölmiðlar, ofbeldi feðra, Me-dagurinn og heimþrá 12.05.2025 4:31:24
Mánudagur 12. maí Trillusjómenn, spilling, fjölmiðlar, ofbeldi feðra, Me-dagurinn og heimþrá Við hefjum Rauða borðið á spjalli Maríu Lilju við trillusjómenn sem voru fastir í landi vegna öldugangs í Faxaflóa. Hún kíkti um borð í Ríkey og ræddi við bræðurna um borð um daginn og sjóinn. Svo ræðir Björn Þorláks við Þorvald Logason spillingarfræðing um siðferðilegar meinsemdir líðandi stundar í þjóðfé...
Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik 11.05.2025 3:04:03
Sunnudagurinn 11. maí Synir Egils: Auðlindir, innviðir, traust og svik Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessi sinni koma þau fyrst Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og þingmennirnir Halla Hrund Logadóttir og Sigmar Guðmundsson. Síðan taka þau við Árni Helgason lögmaður og varaþingmaður, Lilja Alfr...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson 10.05.2025 1:44:06
Laugardagur 10. maí Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson Í Helgispjalli Ruða borðsins er Pétur Þorsteinsson prestur óháða safnaðarins, sem stendur á tímamótum. Á sunnudag messar hann yfir sóknarbörnum sínum í síðasta skipti, hann kallar það lífslokamessu. Pétur hefur lengi verið þekktur fyrir petrískuna en með gamansömum hætti hefur hann fundið upp nýyrði og gefið út, orð sem gjarnan snúa upp á tungun...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 19 09.05.2025 1:33:26
Föstudagur 9. maí Vikuskammtur: Vika 19 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau María Hjálmtýsdóttir kennari, Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Haukur Már Helgason rithöfundur og Ása Björk Ólafsdóttir prestur og ræða fréttir vikunnar þar sem finna á njósnir, svik, deilur, þjóðarmorð, frið og nýjan páfa.
Rauða borðið 8. maí - Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn 08.05.2025 5:02:31
Fimmtudagur 8. maí Trillur, Grænland, ófriður, trans, þingkona og börn Strandveiði byrjaði í vikunni. Gunnar Smári ræðir við Kjartan Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, um gildi veiðanna og verðmæti fyrir þjóðarbúið. Ný sláandi heimildarmynd um uppljóstrun á áður óþekktu arðráni á Grænlandi er til umræðu hjá Oddnýju Eir. Sólveig Ásta Sigurðardóttir, bókmenntafræðingur og ný-doktor á hugvís...
Sjávarútvegsspjallið - 49. þáttur 08.05.2025 52:26
Fimmtudagur 8. maí Sjávarútvegsspjallið - 49. þáttur
Rauða borðið 7. maí - Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge 07.05.2025 4:43:59
Miðvikudagur 7. maí Þjóðarmorð, reynsluboltar, fríhöfn, rafmagnsleysi, þroski barna og bridge Gunnar Smári slær á þráðinn til Qussay Odeh í Jerúsalem og innir hann eftir viðbrögðum Palestínumanna við þjóðarmorðinu og vaxandi kúgun. Sigurjón fær til sín reynslubolta að ræða samfélagsmál: Ásmundur Friðriksson fyrrverandi þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jón G. Hauksson blaðamaður ræða he...
Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur: Veiðigjöld og vald - hver á auðlindina? 07.05.2025 59:24
Miðvikudagur 7. maí Sósíalísk stjórnarandstaða - 13. þáttur Gestur þáttarins er Kári Jónsson, sósíalisti sem hefur starfað við ýmis störf í sjávarútveginum og hefur séð og fundið þær breytingar sem kvótakerfið hefur haft í för með sér. Fiskurinn í sjónum, hann hefur lengi verið gullkista þjóðarinnar. Í gegnum aldirnar hefur hann fætt okkur, haldið samfélögum gangandi og tryggt Íslandi sess á alþjó...
Rauða borðið 6. maí: Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækur 06.05.2025 4:19:54
Þriðjudagur 6. maí Húsnæðismál, mótmæli, Gaza, Þýskaland, aðkomufólk, hannyrðir og maðkabækur Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, er formaður átakshóps ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Sem eru í tómu tjóni. Ragnar segir Gunnari Smára hvernig hann ætlar að bjarga málunum. María Lilja ræðir við mótmælendur við ríkisstjórnarfundinn í morgun, fólk sem krefst aðgerða íslenskra stjórnval...
Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi 05.05.2025 4:37:21
Mánudagur 5. maí Rauða borðið: Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, kosningar og fangelsi Ísraelsstjórn samþykkti í morgun áætlun um að herða hernaðaraðgerðir á Gaza og leggja alfarið undir sig landsvæðið. Stjórnin hvatti íbúa til að færa sig til suðurs og von er á miklum blóðsúthellingum. Ingólfur Gíslason, kennari við menntavísindasvið er vel inni í málunum og ræðir við Maríu Lilju um nýjustu fr...
Synir Egils 4. maí: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir 04.05.2025 2:23:43
Sunnudagurinn 4. maí Synir Egils: Njósnir, verðbólga, veiðigjöld og íþróttir Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Svandís Svavarsdóttir formaður Vg, Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður og væntanlegur þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir fyrrverandi þingkona Framsóknar o...
Rauða borðið - Helgi-spjall: GVA 03.05.2025 1:40:21
Laugardagur 3. maí Helgi-spjall: GVA Gunnar V. Andrésson ræðir um æsku sína og uppruna og samfélagið sem hann skráði sem ljósmyndari í rúma hálfa öld, en stór sýning með myndum hans sem blaðaljósmyndari verður opnuð í Ljósmyndasafninu í dag.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.