Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rauða borðið 12. júní - Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál 13.06.2025 3:04:57
Fimmtudagur 12. júní Kulnun skólamanns, Ný Sýn, gegn rasisma, breytt Bandaríki og skipulagsmál Við hefjum leik á uppgjöri Valgarðs Más Jakobsssonar, skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, en hann berskjaldar sig og lýsir einkennum kulnunar í starfi og hvað þurfti að gerast til að hann rambaði á rétta hillu á ný. Björn Þorláksson ræðir við Valgarð. Það eru vendingar á fjölmiðlamarkaði og hefu...
Auðlindin 12. júní 12.06.2025 1:03:19
Fimmtudagur 12. júní Auðlindin Gestir Maríu Lilju og Björns Þorlákssonar í landsbyggðaþættinum Auðlindin í dag eru Kristín Magnea Sigurjónsdóttir blaðamaður á trolli.is í Fjallabyggð Margrét Gauja Magnúsdóttir leiðsögumaður og skólastjóri Lýðsskólans á Flateyri og Sigurður Erlingsson landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði. Þau ræða fréttir og tíðaranda í héraði, landsmál og fleira.
Sjávarútvegsspjallið 12. júní: Jón Baldvin Hannibalsson 12.06.2025 1:03:45
Sjávarútvegsspjallið 12. júní Grétar Mar Jónsson og Ólafur Jónsson ræða við Jón Baldvin Hannibalsson um uppboð veiðiheimilda.
Rauða borðið 11. júní: Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum 11.06.2025 4:35:36
Miðvikudagur 11. júní Flugvöllurinn, hafið, reynsluboltar, glæpasamtök, huldufólk og umbylting í læknavísindum Daði Rafnsson hjá samtökunum Hljóðmörk sem berjast gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli og Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur ræða við Björn Þorláks stöðu vallarins, vítaverða og vaxandi hljóðmengun og alvarlegt atvik í gærkvöld. Flugvallarvinir hafa hótað fólki sem vill minnk...
Rauða borðið 10. júní - Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind 10.06.2025 4:27:52
Þriðjudagur 10. júní Herinn til LA, Thunberg, Trump, Grímur, lífeyrissjóðir og gervigreind Dröfn Ösp Rozas ræðir við Maríu Lilju um mótmælin í LA sem hún segir að sé mikilvægt að kalla ekki óeirðir. María Lilja ræðir við Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, lögmann og formann Siðmenntar um fleyið Madleen sem stöðvuð var með nauðsynlegar vistir fyrir utan Gaza stendur. Hilmar Þór Hilmarsson...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Drífa 07.06.2025 2:18:14
Laugardagur 7. júní Helgi-spjall: Drífa Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, VG og Kvennaathvarfsins segir okkur frá baráttunni, hinu persónulega í pólitíkinni og pólitíkinni í hinu persónulega, frá æsku og uppruna og hversu lengi hún var að finna sig og hvað hún vildi taka sér fyrir hendur. Og um sósíalismann sem hún drakk í sig me...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 23 06.06.2025 1:06:50
Föstudagur 6. júní Vikuskammtur: Vika 23 Það verður líf og fjör í Vikuskammtinum að þessu sinni þegar þau Helga Þórey Jónsdóttir, menningarfræðingur og kennari, Steinunn Gunnlaugsdóttir, myndlistamaður og Atli Bollason, listamaður mætast við Rauða borðið hjá Maríu Lilju. Að þessu sinni verður farið ítarlega í menningarviðburði, störf þingsins, fordóma í samfélaginu, Gaza, Oscar og ríkisborgararétt...
Auðlindin 5. júní 06.06.2025 1:00:40
Fimmtudagur 5. júní Auðlindin Í Auðlind dagsins ræða María Lilja og Björn Þorláks við fjóra íbúa sem allir eiga það sameiginlegt að búa utan höfuðborgarsvæðisins. Björg Björnsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands, ræðir daginn og veginn fyrir austan, Michael Jón Clarke tónlistarmaður í Hrísey og á Akureyri ræðir við okkur útlendingamál og tónlistarviðburð. Berglind Hlín Baldursdóttir bóndi í H...
Rauða borðið 5. júní: Lagatækni eða mannúð, Evrópumál, auðmagn, persónuvernd, útlendingar og víðerni 05.06.2025 4:01:25
Rauða borðið, fimmtudaginn 05. júní: Mannúð og stjórnsýsla, Evrópuáhugi vinstri manns, auðmagn, persónuvernd, útlendingahatur og víðerni eru á dagskrá í kvöld Við hefjum leik á samtali Björns Þorlákssonar við Henry Alexander Henrysson heimspeking og sérfræðing í siðferðislegum álitamálum rsem rökæðir mál Oscars hins kólumbíska ásamt Hauki Arnþórssyni stjórnsýslufræðingi. Þeir eru ekki alveg á einu...
Sjávarútvegsspjallið - 52. þáttur: Hafrannsóknir og vinnubrögð Hafró 05.06.2025 1:12:40
Fimmdurdagur 5. júní Sjávarútvegsspjallið - 52. þáttur Grétar Mar ræðir við þá Kára Jónsson og Sigurjón Þórðarson um Hafrannsóknir og vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunar.
Rauða borðið 4. júní: Aþena, líf og dauði, rasismi, mótmæli, kvóti, samfélagssöknuður, skák og bridge 04.06.2025 6:15:52
Miðvikudagur 4. júní Aþena, líf og dauði, rasismi, mótmæli, kvóti, samfélagssöknuður, skák og bridge Darina Andreys, Tanja Ósk Brynjarsdóttir og Anna Margrét Lucec Jónsdóttir spila körfubolta með Aþenu í Efra-Breiðholti og berjast fyrir framtíð félagsins gegn borgaryfirvöldum, sem vilja ekki gefa félaginu aðgang að íþróttahúsi. Þær útskýra stöðuna fyrir Gunnari Smára. Sigurjón Magnús ræðir við rey...
Rauða borðið - Útlendingavandamál, rasismi, áfengi og sport, landsbyggðir, lífeyrissjóðir og goth 03.06.2025 5:00:34
Þriðjudagur 3. júní Útlendingavandamál, rasismi, áfengi og sport, landsbyggðir, lífeyrissjóðir og goth Að Rauða borðinu mæta þeir Sigfús Aðalsteinsson, forsvarsmaður hópsins Ísland þvert á flokka og Baldur Borgþórsson, fyrrverandi varaborgarfulltrúi og ráðgjafi, og ræða um mótmælin á Austurvelli, ásakanir um rasisma og hatursorðræðuna á samfélagsmiðlum við Oddnýju Eir og Sigurjón. Snorri Sturluson...
Rauða borðið 2. júní: Pólland, lýðræði, fjölmiðlar, Palestína, woke, glimmer og blóð 02.06.2025 4:10:58
Mánudagur 2. júní Pólland, lýðræði, fjölmiðlar, Palestína, woke, glimmer og blóð Jacek Godek hefur þýtt fjölda íslenskra bóka yfir á pólsku en er líka glöggur samfélagsrýnir. Gunnar Smári slær á þráðinn til Jacek til Gdansk í tilefni af pólsku forsetakosningunum, þar sem frambjóðandi ytra hægrisins sigraði. Kristinn Már Ársælsson prófessor við Duke Kunshan-háskólann í Kína ræðir við Gunnar Smára u...
Synir Egils 1. júní: Sjómenn, veiðigjöld, stjórn og stjórnarandstaða, hægri og vinstri 01.06.2025 2:48:04
Sunnudagurinn 1. júní Synir Egils: Sjómenn, veiðigjöld, stjórn og stjórnarandstaða, hægri og vinstri Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og fyrrum þingkona, Kári Gautason búfjárerfðafræðingur og fyrrum aðstoðarmaður ráðherra og Benedikt Erling...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Jósep Blöndal 31.05.2025 2:56:44
Laugardagur 31. maí Helgi-spjall: Jósep Blöndal Jósep Blöndal, læknir segir frá lífi sínu og ákvörðunum teknum af rælni og ræðir um líf sitt, ástir og æsku, tónlistina, fíknina og fjölskyldulífið en líka um læknisfræðina, hlustunina, heilahvelin, næringafræðina, heilbrigðiskerfið, einkavæðinguna og uppbygginguna á einstakri verkja-meðferð í Hólminum, hvernig tókst að byggja hana upp með teymisvinn...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22 30.05.2025 1:41:43
Föstudagur 30. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Jóna Benediktsdóttir kennari og formaður stjórnarskrárfélagsins, Kjartan Sveinsson formaður Félags strandveiðimanna, Lóa Hjálmtýsdóttir teiknari og Þrándur Þórarinsson listmálari og ræða fréttir vikunnar og ástandið á samfélaginu okkar í upphafi sumar.
Sjávarútvegsspjallið - 51. þáttur 29.05.2025 1:02:10
Fimmtudagur 28. maí Sjávarútvegsspjallið - 51. þáttur Grétar Mar fær að þessu sinni til sín þá Ólaf "ufsa" Jónsson skipsstjóra, Jón Kristjánsson, fiskifræðing og Ingimund Elísson stýrimann og skipsstjóra.
Rauða borðið 28. maí: Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind 28.05.2025 4:06:57
Miðvikudagur 28. maí Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind Haraldur Þorleifsson frumkvöðull og tónlistarmaður, Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur í Reynivallaprestakalli, Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræða við Gunnar Smára um mál Oscars Anders Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu. Og um hlutverk borgara...
Rauða borðið 27. maí - Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur 27.05.2025 3:35:21
Þriðjudagur 27. maí Lýðræði. list og gervigreind, ölæði, Landbúnaðarháskólinn og náttúruvefur Valur Ingimundarson sagnfræðingur og Jón Ólafsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára um lýðræðið í austustu Evrópu og lýðræðisþróun í okkar heimshluta. Trump ber á góma ásamt hinum ýmsu Evrópuleiðtogum í bland við stríð, pólitík og uppgang fasisma. Hlynur Helgason, myndlistarmaður, dósent i listfræði HÍ...
Rauða borðið 26. maí: Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót 26.05.2025 3:05:36
Rauða borðið, mánudaginn, 26. maí. Samstöðin, Mótmæli, Aðildarumsókn, Akureyrar-cóvíd og Þokkabót Við hefjum Rauða borðið á smá spjalli um stöðu Samstöðvarinnar og kynnum síðan dagskrá kvöldsins. Við byrjum á því að fara niðrí bæ á mótmæli. María Lilja og Oddný Eir ræddu við fólk sem kom til að mótmæla brottvísun Oscars Andres Florez Bocanegra. Þær hittu fyrir þjóðþekkt andlit og önnur minna þek...
Synir Egils 25. maí - Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli 25.05.2025 2:09:42
Sunnudagurinn 25. maí Synir Egils: Stjórnin, stjórnarandstaðan, flóttabörn og mótmæli Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur og Björn Leví Gunnarsson tölvunarfræðingur og fyrrum þingmaður og ræða fréttir vik...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen 25.05.2025 1:55:41
Laugardagur 24. maí Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen Ásdís Thoroddsen, kvikmyndagerðarmaður segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list.
Vikuskammtur 23. maí: Vika 21 23.05.2025 1:10:25
Föstudagur 23. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammtinum að þessu sinni koma að Rauða borðinu ásamt Maríu Lillju þau Guðmundur Ingi Þóroddsson, Formaður Afstöðu félags fanga. Svala Jóhannesardóttir, formaður Matthildarsamtakanna um skaðaminnkun, Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalista og formaður velferðarráðs Reykjavíkur og Pétur Eggerz, tæknistjóri og aðgerðasinni. Það hefur margt geng...
Rauða borðið 22. maí: Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður 22.05.2025 2:58:16
Fimmtudagur 22. maí Sérhagsmunapot, fangar, geggjun, Gaza og frumlegur listamaður Við hefjum leik við Rauða borðið á viðtali við framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, Ólaf Stephensen. Hann er stóryrtur eftir dóm Hæstaréttar í búvörulagafrumvarpinu og segist hissa á ástandinu í hans gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum. Fréttir af Gaza verða sagðar við Rauða borðið. Magga Stína var áberandi í fjölmi...
Auðlindin - 22. maí 22.05.2025 58:10
Þau Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir, geitabóndi á Háafelli, Stebbi Jak tónlistarmaður og Hildur Þórisdóttir, bæjarfulltrúi Múlaþings ræða mál líðandi stundar innan héraðs sem utan í þættinum Auðlindin í umsjá Maríu Lilju og Björns Þorláks. Í þættinum verður leitast við að bregða upp sjónarmiðum fólksins sem velur að búa úti á landi.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.