Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ 600 episodes

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Author

Samstöðin

Category

News

Podcast website

samstodin.simplecast.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rauða borðið 14. júlí - Fréttir, geðheilbrigðisþjónusta, þingveturinn, Gaza og mótmæli. 15.07.2025

Mánudagur 14. júlí Við byrjum á nýjum fréttatíma Samstöðvarinnar, ræðum söguleg tíðindi hér innan lands og erlendis og förum yfir öll mál ríkisstjórnarinnar sem döguðu uppi í deilum á þingi. Hafsteinn Michael Guðmundsson, fyrrum starfsmaður Mannvirðingar sem hrökklaðist úr starfi vegna kulnunar, lýsir starfsaðstæðum að Jafnaðarseli, nú Reynimel og ræðir um slæman starfsanda, stjórnunarhætti, launa...

Rauða borðið 10. júlí - Fréttir, Bjarg, upplausn í þinginu og pólitík á suðupunkti 11.07.2025

Við byrjum sumarþátt Samstöðvarinnar klukkan sjö með fréttatíma, förum yfir pólitíkina hér heima sem er við suðumark og segjum aðrar fréttir. Þórhallur Guðmundsson, stjórnsýslufræðingur og félagsráðgjafi, ræðir við Maríu Lilju um frétt okkar um Bjargið. Og síðan förum við yfir fréttir vikunnar og eldfima pólitíkina með góðum gestum: Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Guðmundur Hálfdánarson p...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Páll Óskar 10.07.2025

Fimmtudagur 10. júlí Helgi-spjall: Páll Óskar Páll Óskar Hjálmtýsson segir okkur frá No Borders-tónleikunum sem hann ætlar að syngja á, frá leið sinni út úr skápnum, frá baráttusögu sinni, listinni og ástinni sem hefur heltekið hann.

Miðvikudagur 9. júlí Fréttir, Bjarg, ekki kært, veik sveitarfélög og leigjendur 09.07.2025

Við byrjum sumarþátt Samstöðvarinnar klukkan sjö vegna fótboltans á Ríkissjónvarpinu með fréttayfirlit, förum meðal annars yfir sláandi lýsingar á aðstöðunni á Bjargi, heimili fyrir geðfatlaða. Við ræðum síðan málefni Bjargs við Grím Atlason, framkvæmdastjóra Geðhjálpar og um ákvörðun saksóknara að ákæra ekki menn sem misnotuðu þroskahefta konu við Önnu Láru Steindal, framkvæmdastjóra Þorskahjálpa...

Þriðjudagur 8. júlí. Fréttir, vindmyllur, strandveiði, veiðigjöld og heimsmálin 09.07.2025

Við byrjum sumarþáttinn á Samstöðinni klukkan sjö vegna fótboltans á Ríkissjónvarpinu. Við byrjum á fréttatíma Samstöðvarinnar og förum yfir hitamál hér heima og erlendis. Halla Hrund Logadóttir þingmaður og Andrés Skúlason stjórnarmaður í Landvernd ræða síðan við okkur um vindmyllur í Garpsdal og orkustefnu stjórnvalda. Lilja Rafney Magnúsdóttir þingkona segir okkur frá mikilvægi þess að fá samþy...

Rauða borðið 7. júlí - Fréttir, peningaleysi í Háskólanum og nýr vinstri flokkur í Bretlandi 07.07.2025

Mánudagur 7. júlí Fréttir á Samstöðinni, peningaleysi í Háskólanum og nýr vinstri flokkur í Bretlandi Við byrjum sumarútsendingar á Samstöðinni klukkan sjö vegna fórboltans á Ríkissjónvarpinu. Við reynum fyrir okkur í að segja fréttir og ræðum helstu hitamál, en fáum svo prófessorana Magnús Karl Magnússon og Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur til að segja okkur frá sviknum loforðum stjórnvalda um aukið...

Rauða borðið 30. júní - Vorstjarna, maraþon, Sanna, Shakespeare, ÍNN, ljóð og Krummi 01.07.2025

Mánudagur 30. júní Vorstjarna, maraþon, Sanna, Shakespeare, ÍNN, ljóð, Krummi Rauða borðið í kvöld verður með sérstöku sniði, uppgjör eftir maraþon beina útsendingu og með fréttum af aðalfundi Vorstjörnunnar.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Þóra Karítas 01.07.2025

Laugardagur 28. júní Helgispjall: Þóra Karítas Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona, höfundur og framleiðandi, segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list.

Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Tyrfingsson 29.06.2025

Laugardagur 25. Helgi-spjall: Þórarinn Tyrfingsson Þórarinn Tyrfingsson læknir segir okkur baráttusögu sína, frá æsku sinni og uppruna, hvað var það sem mótaði hann, lyfti og skaðaði.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26 28.06.2025

Föstudagur 27. júní Vikuskammtur: Vika 26 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Elísabet Ronaldsdóttir klippari, Haukur Már Helgason rithöfundur, Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri og Magnús Scheving framleiðandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af stríð og vopnahléi, málþófi og svörtum skýrslum, valkyrjum og sjarmerandi mönnum.

Rauða borðið 26. júní - Maraþon, fjölmiðlar, Nató, skothvellir, kvíði, kvóti og kettir 26.06.2025

Fimmtudagur 26. júní Maraþon, fjölmiðlar, Nató, skothvellir, kvíði, kvóti og kettir Hverju myndi það breyta ef Samstöðin hætti störfum vegna fjárhagsþrenginga? Hvaða samfélagslegur herkostnaður fylgir því að fjölmiðlar heltist úr leik einn á fætur? Óðinn Jónsson og Björg Eva Erlendsdóttir, fjölmiðlafólk og fyrrum fréttahaukar á Ríkisútvarpinu og Atli Þór Fanndal, ræða við Björn Þorláksson. Hilmar...

Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 55: Ríkisstyrkur 26.06.2025

Fimmtudagur 26. júní Sjávarútvegsspjallið - Þáttur 55 Grétar Mar Jónsson ræðir við Heimi Má Pétursson og Arthúr Bogason um ríkisstyrk.

Rauða borðið 25. júní: Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi 25.06.2025

Miðvikudagur 25. júní Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi Við hefjum leik með viðbrögðum formanns utanríkismálanefndar Alþingis við tíðindum dagsins í Haag. Pawel Bartoszek bregst við tíðindum um að langflest NATO-ríki greiða 5 prósent af þjóðarframleiðslu til varnamála og framlög Íslands stóraukast. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur gagnrýnir valkyrj...

Rauða borðið, 23. júní, 2025. Íran, Grænland, hægrið, friðurinn, handbók helgihaldsins og Kúrdar 23.06.2025

Mánudagur 23. júní Rauða borðið, 23. júní, 2025. Íran, Grænland, hægrið, friðurinn, handbók helgihaldsins og Kúrdar Við hefjum Rauða borðið á umræðu um stríðið í Íran. Kjartan Orri Þórsson Mið-Austurlandasérfræðingur og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræða við Gunnar Smára um árásir herja Ísraels og Bandaríkjanna á Íran. Við pælum því næst í norðurslóðum. Friðrika Hjördís Geirsdóttir, framkvæmdast...

Synir Egils: Sumarþing, upplausn, heimstyrjöld og sveitarstjórnir 22.06.2025

Sunnudagurinn 22. júní Synir Egils: Sumarþing, upplausn, heimstyrjöld og sveitarstjórnir Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þeir Helgi Seljan blaðamaður, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og ræða fréttir og stöðu samfélagsins á miðju sumr...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Daníel Magnússon 21.06.2025

Laugardagur 21. júní Helgi-spjall: Daníel Magnússon Daníel Magnússon myndlistarmaður, vélstjóri og stólasmiður ræðir um listina, dugnaðinn og drykkjuna, foreldra sína og annað venjulegt fólk sem hefur mótað hann.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25 20.06.2025

Föstudagur 20. júní Vikuskammtur: Vika 25 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Valgerður Þ. Pálmadóttir rannsóknarsérfræðingur í hugmyndasögu, Hafdís Helga Helgadóttir útvarpskona, Vigdís Halla Birgisdóttir leikkona og Andrés Skúlason verkefnastjóri hjá Landvernd og ræða fréttir vikunnar sem einkennast af loftárásum, málþófi, sumri og nýjum tækifærum.

Rauða borðið 19. júní Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór 19.06.2025

Fimmtudagur 19. júní Kvennabarátta, vekni, náttúruspeki, handverk, brids og kvæðakór Við hefjum leik með umfjöllun um konur og kúrda. Í dag, nítjánda júní á hátíðis- og baráttudegi kvenna á Íslandi setur Ögmundur Jónasson kvenréttindabaráttuna á Íslandi í samhengi við baráttu Kúrda fyrir tilverurétti sínum. Kúrdískar konur hafa verið í fararbroddi baráttunnar og Ögmundur segir einnig frá fyrirlest...

Auðlindin 19. júní 19.06.2025

Fimmtudagur 19. júní Auðlindin Gestir Maríu Lilju og Björns Þorláks eru að þessu sinni þau Tinna Ólafsdóttir, Karl Frímannsson, Þórbergur Torfason og Gunnar Gunnarsson.

Sjávarútvegsspjallið 19. júní: Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson 19.06.2025

Sjávarútvegsspjallið 19. júní Grétar Mar ræðir við Björn Ólafsson og Jón Kristjánsson

Rauða borðið 18. júní - Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf 18.06.2025

Miðvikudagur 18. júní Vg, pólitík, Íran, heimsendi, vinstrið og samræmd próf Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður, segir Birni Þorláks að spilling og valdsækni áhrifafólks innan VG, ekki síst Svandísar Svavarsdóttur, skýri bágt gengi flokksins undanfarið. Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði upplýsir Björn að traust til Alþingis sé að aukast frá því sem verið hefur. Hilmar...

Rauða borðið 16. júní - Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir 16.06.2025

Mánudagur 16. júní: Íran og Ísrael, Striplab og njósnir, blaðamennskan, Víkingahátíð og listir Við hefjum Rauða borðið á spjalli við Kjartan Orra Þórsson, Miðausturlandafræðing og sérfræðing í málefnum Írans. Hann ræðir við Gunnar Smára um stríðsátök milli Ísraels og Íran og íranska þjóðerniskennd sem á sér mörg þúsund ára rætur. Ari Logn og Renata Sara Arnórsdóttir, aktívistar í Rauðu regnhlífinn...

Synir Egils 15. júní - Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun 16.06.2025

Sunnudagurinn 15. júní Synir Egils: Málþóf, mótmæli. loftárásir og skautun Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma fyrst þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi, Benedikt Jóhannesson tölfræðingur og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða um málþóf á Íslandi, átö...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Gnarr 14.06.2025

Laugardagur 14. júní Helgi-spjall: Gnarr Jón Gnarr segir okkur frá föður sínum og móður, frá föðurnum á himnum, húmor og pólitík, hugrekki sínu og hugsunarleysi, tímanum þegar hann tapaði sér og gildi þess að tala ekki of mikið um hlutina.

Vikuskammtur 13. júní: Jovana Pavlović, Birgitta Jónsdóttir, Steinunn Rögnvaldsdóttir og Jón Gísli Harðarson 13.06.2025

Vikuskammtur 13. júní Jovana Pavlović mannfræðingur, Birgitta Jónsdóttir skáld, Steinunn Rögnvaldsdóttir kynjafræðingur og Jón Gísli Harðarson rafvirkjameistari.

Listen to the Samstöðin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.